Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1997, Page 10
10
MÁNUDAGUR 25. ÁGÚST 1997
Fréttir
DV
^ Flaggskip Húsvíkinga kemst ekki í höfnina þar:
Ofært að heima-
höfn Húsvíkings
sé á Akureyri
- segir Einar Njálsson bæjarstjóri
DV, Akureyri:
„Það er auðvitað alveg ófært að
heimahöfn Húsvíkings sé á Akur-
eyri, það er eiginlega svo neyðarlegt
að það er varla að maður geti nefnt
það,“ segir Einar Njálsson, bæjar-
stjóri á Húsavík, en Húsvíkingur,
nýja flaggskipið í fiskiskipaflota
Húsvíkinga, kemst ekki inn í höfn-
ina þar sökum þess hversu djúpt
skipið ristir.
Reyndar hafa Húsvíkingar varla
vitað hverju þeir ættu að trúa varð-
andi djúpristu skipsins sem áður hét
Pétur Jónsson og er eitt af glæsile-
gustu og stærstu fiskiskipum íslend-
inga, því tölur Siglingastofnunar og
skipstjóra skipsins um það hafa ekki
borið saman. Skipstjórinn hefur
haldið því fram að skipið risti 7,6
metra en Siglingastofnun lagði fram
tölurnar 6.0-6,4 metra. Þegar DV
ræddi við fulltrúa Siglingastofnunar
sagði hann að mistök hafi átt sér stað
og tölur skipstjórans væru réttar.
„Það er sama hvor talan er rétt,
við þurfum að gera ráðstafanir hér
til að skipið geti landað í sinni
heimahöfn, sem og önnur stór skip
Hið nýja skip Húsvíkinga, Pétur Jónsson PH.
sem við höfum gert samninga við
um að kaupa af afla. Við vorum með
heimild til dýpkunar í Suðurhöfn-
inni árið 1999 en nú höfum við
ákveðið að taka ekki þessi stóru
fiskiskip þar inn, heldur í Norður-
höfnina og ætlum um leið að
stækka viðlegukantinn þar. Tækni-
menn Siglingastofnunar eru núna
að vinna fyrir okkur að þeirri út-
færslu og við stefnum að því að
leggja tUlögur um þessa fram-
kvæmd fyrir hafnarnefnd í næsta
mánuði," segir Einar Njálsson. -gk
Nóg er af heitu vatni í nýja þjónustuhúsinu á tjaldsvæðinu í Skógum og öll
hreinlætisaðstaöa til fyrirmyndar. DV-mynd NH
Heitt vatn í nýju þjönustuhúsi
á tjaldstæðinu á Skógum
DV.Vík:
Nýlega var tekið i notkun nýtt
þjónustuhús á tjaldsvæðinu í Skóg-
um. í því er öll hreinlætisaðstaða,
salerni og vaskar, og fyrirhugað er
að þar verði einnig þvottavél og
þurrkari. Úti eru svo skolvaskar.
Það sem vekur athygli ferðalanga
er að í húsinu er nóg af heitu vatni.
Þá eru sturtur í þjónustumiðstöð-
inni Fossbúanum, sem er félags-
heimili Austur-Eyfellinga, en þar er
afgreiðslan fyrir tjaldsvæðið. Þessar
sturtur eru fyrir ferðafólk og er tím-
inn ekki takmarkaður.
Skýringin á þessu er sú að í Skóg-
um er nóg af heitu vatni sem fæst
úr borholu sem var gerð fyrir
nokkrum árum og vatnið úr henni
nægir vel fyrir aUa byggðina í Skóg-
um og nýtist einnig fyrir tjaldsvæð-
iö. -NH
Framkomu- og módel námskeib
hefst í nœstu viku.
Fjölbreytt og spennandi markvisst námskeiö
fyrir stúlkur og pilta, 13-16 ára og 17 ára og eldri.
1. Fyrri hluti, byrjendur.
Snyrting og hreinlæti
Framkomuþættir
Siðvenjur
Ganga - snúningar
Framsögn
Mannleg samskipti
2. Síhari hluti, framhald
Sviðsframkoma
Tjáning
Myndataka - Video
Hæfinspróf, tískusýning
1. verftlaun: l'erð til Seoul í
fegurðarsamkeppni 1998.
Ath. okkur vantar gott sýningarfólk í haust.
2. vcrMaun: Samningur viö
Módelsamtökin um sýningarstörf.
Kennarar: Henny Hermansdóttir, danskennari og módel.
Esther Finnbogadóttir, módel.
Guðmundur Hreiðarsson, módel.
Mit/jLcÁ/l&ffrXðJ/lAJh'
Skipholti 25
Innritun og upplýsingar í símum
557 3340 og 564 3960
milli kl. 16.00 og 19.00.
Unnur Arngrímsdóttir,
framkvœmdastjóri.
Hvalfj ar ðargöng:
Kalla á vegabæt-
ur í Borgarnesi
DV.Vesturlandi:
Fyrir skömmu var tekiö fyrir í
skipulagsnefnd Borgarbyggðar bréf
frá bæjarráði þar sem óskaö er eftir
tiUögum frá nefndinni um viðþrögð
við opnum Hvalfjarðarganga. Málið
var rætt og eftirfarandi bókun sam-
þykkt:
„Með tilkomu Hvalfjaröarganga
má gera ráð fyrir aukinni umferð
um Borgarfjörð og Borgarnes. í
þessu sambandi leggur skipulags-
nefnd áherslu á að unnið verði að
endurbótum á umferðaræðum um
byggðarlagið þannig aö akandi og
gangandi komist greiðlega um og án
slysahættu. í því sambandi bendir
skipulagsnefnd á að nauðsynlegt er
að breikka þjóðveg nr 1. við Vega-
gerð ríkisins í Borgamesi og setja á
hann aðrein við gatnamót Vestur-
landsvegar og Borgarbrautar."
Þá bendir nefndin á nauðsyn þess
að setja göng undir Borgarbraut
gegnt Leikskólanum Klettaborg, til
að tryggja greiðari umferð gangandi
og hjólandi milli íbúðarhverfa.
Einnig itrekar nefndin nauðsyn á
lagningu gangstígs frá þéttbýlinu í
Borgamesi að útivistarsvæðum í
Hamarslandi.
Ofangreind atriði em nauðsynleg
sem fyrstu viðbrögð en nefndin
bendir jafnframt á að aukin umferð
kemur til með að þrýsta á nýlagn-
ingu þjóðvegar 1 upp með landinu,
eins og gert er ráð fyrir á því aðal-
skipulagi sem er í vinnslu.
-DVÓ
Sementsverksmiöja ríkisins:
Rúmlega
10% aukning
á sements-
sölu
DV Akranesi
Sementssala fyrstu sjö mánuði
þessa árs hefur aukist um 10,43%
miðað við sama tímabil í fyrra, að
sögn Tómasar Runólfssonar, deild-
arstjóra hjá Sementsverksmiðju
Ríkisins hf. á Akranesi.
Fyrstu sjö mánuði ársins 1996
voru seld 47.937 tonn en fyrstu sjö
mánuöi þessa árs voru seld 52.942
tonn. Allt árið 1996 voru seld 88.000
tonn af sementi og á þessu ári er
gert ráð fyrir því að salan veröi
95.000 tonn. Þessa aukningu á sem-
entssölu má aöallega rekja til ál-
versframkvæmdanna á Grundar-
tanga og framkvæmda við Hval-
fjarðargöngin. -DVÓ