Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1997, Blaðsíða 12
12
MÁNUDAGUR 25. ÁGÚST 1997
Spurningin
Hefur þú séð
geimverur?
Þórður Daníel Þóröarsson nemi:
Já, í Kringlunni.
Sigurjón Kristjánsson nemi: Já,
Þórður er geimvera.
Hafþór Hlynur, sjálfstæður at-
vinnurekandi: Nei, ekki nema í bíó
en ég trúi hins vegar á þær.
Linda Ósk Sigurjónsdóttir: Nei, ég
hef aldrei séð geimverur.
Daníel Örn Jóhannesson nemi:
Nei, ég hef aldrei séð geimverur en
ég trúi á þær.
Fríður Hulda Hafsteinsdóttir
nemi: Nei, aldrei séð en ég trúi á
þær. Þær eru grænar og með augu
sem standa út úr höfðinu.
Lesendur
Hrútleiðinleg-
ur Blossi
Atriöi úr kvikmyndinni Blossa. - „Einhverra hluta vegna hefur gleymst aö
skrifa handrit fyrir myndina," segir m.a. í bréfinu.
Friðrik skrifar:
Ég brá mér í kvikmyndahús í gær
og það er tilefni þess að ég sendi lín-
ur til blaðsins. Vegna umtalsins
sem kvikmyndin Blossi hefur hlotið
og einnig vegna einhverrar tilhneig-
ingar í manni til að sjá allar íslensk-
ar kvikmyndir, fór ég og barði sjón-
arspilið augum.
í stuttu máli sagt er þetta, að
minu mati, einhver sú verst gerða
og jafnframt leiðinlegasta kvik-
mynd sem nokkurn tíma hefur ver-
ið varpað á tjald hér á landi. Dreg
ég þó heldur úr. Ég viðurkenni þó
að myndin „Nei er ekkert svar“ var
í álíka gæðaflokki.
Einhverra hluta vegna hefur
gleymst að skrifa handrit fyrir
myndina og ráða leikara í hana. Ég
hef alltaf staðið í þeirri trú að leik-
arar væru fólk sem gæti talað og
jafnvel leikið, þótt það þyrfti ekki
endilega að vera útskrifað úr leik-
listarskóla. - Það er reyndar verð-
ugt umhugsunarefni hvers vegna
menntaðir leikarar fá sjaldan að
spreyta sig hin síðari ár í myndum
sem þessari? - En nóg um það.
í myndinni er einn fyrrverandi
íþróttamaður, sem getur varla stam-
að út úr sér setningu án þess að
mann verki í hlustirnar, eitt „beib“
og einn fyrrverandi söngvari, sem á
að vísu sæmilega takta en ekki nægi-
lega góða til að henda milljónatugum
í verkefnið. - Tæknivinnslan er þol-
anleg. En hvaða máli skiptir það þeg-
ar þar er ekkert annað aö finna?
í heildina er þama mynd sem
gæti hugsanlega sómt sér væri hún
klippt niður í fimm mínútur fyrir
stuttmyndakeppni í framhaldsskóla.
Mín tillaga er þessi: Annars veg-
ar að banna Júlíusi Kemp að gera
kvikmyndir, hann er búinn að sýna
og sanna rækilega að honum er það
ekki gefið. Hins vegar að fleyta ein-
hverju af þeim peningum sem ann-
ars hefðu farið í framtíðarvitleysur
hans og álíka hæfileikalausra
töffara í minni einingar (t.d. 5 til 10
milljónir i einu) til ungra og efhi-
legra. Ekki bara ungra kvikmynda-
gerðarmanna.
Gaman væri til dæmis að sjá
kvikmynd í fullri lengd eftir snill-
ingana á Akureyri sem puðrað hafa
út óborganlegum, heilsteyptum
stuttmyndum og sýnt í Háskólabíói
og þar sem handritið, leikurinn og
allt annað sem myndunum viðkem-
ur gengur upp. - í staðinn fyrir að
brotlenda á fyrstu mínútu.
Pólitík gyðinga í Palestínu
S.R. Haraldsdóttir skrifar:
Pólitíkin hjá gyðingum í Palest-
ínu er að losna fyrir fullt og allt við
alla Palestínu-Araba í landinu, sem
þeir tóku með valdi og blóðsúthell-
ingum frá Aröbum eftir 1000 ára bú-
setu þeirra.
Fyrr munu þeir ekki hætta. Þetta
ætti öllum að vera ljóst. Slíkur fas-
ismi sem þarna er um að ræða er
argasta drepkýli jarðarinnar. Og
einn góöan veðurdag mun það
springa. Þá upphefst þriðja heims-
styrjöldin eða Harmageddon.
Þegar að því kemur munu allar
Arabaþjóðir vera tilbúnar að berj-
ast og gera út af við gyðingana
þarna. Spádómar í Biblíunni nefna
gyðinga í Palestínu „glæpaland" og
„lýðinn“ sem Drottinn er eilíflega
reiður (Malaki 1:3-5).
Það er ekki til neitt ísrael í
Palestínu, þeir eru ekki hinn út-
valdi. Guðs ísraels eru allir guð-
hræddir menn um gjörvalla jörðina.
Alveg sama hvaða þjóð eða
trúflokki þeir tilheyra. „Guð fer
ekki í manngreinarálit, heldur er
honum þóknanlegur í hverri þjóð
...“ (Postulasagan: 10:35 og Orðs-
kviðirnir 11:6). - Friður í Mið-Aust-
urlöndum er draumur sem mun
ekki rætast fyrr en eftir þriðju
heimsstyijöld. Þetta eru spádómar
Biblíunnar og Nostradamusar.
Ráðherrar sæki tölvunámskeið
Helgi Magnússon skrifar:
Ég hlýddi á viðtal við utanríkis-
ráðherra í morgunútvarpi RÚV sl.
fimmtudagsmorgun. Fréttamaður-
inn Jóhanna Margrét Einarsdóttir
hringdi beint á Sheraton-hótelið í
Santiago í Chile þar sem ráðherr-
ann var staddur. Ráðherrann og
fjölmenn viðskiptanefnd frá íslandi
ásamt jazztríói héðan hafði verið á
ferðalagi um nokkur ríki Suður-
Ameríku til aö afla viðskiptasam-
banda og auka samstarf þjóðanna
þar syðra við ísland.
Þegar á leið samtalið varð mér á
að spyrja sjálfan mig: Við hvem er
ráðherrann að tala? Við íslensku
þjóðina væntanlega. - Hann lagði
m.a. til að þama syðra væri þörf á
sendiráði fyrir ísland. Já, hvað er
dlSiKIM þjónusta
allan sólarhringinn
Aðeins 39,90 mínútan
- eða hringið í síma
550 5000
milli kl. 14 og 16
Já, er ekki tölvuþekkingin nauösyn ráöherrum jafnt og mönnum í viöskipta-
lífinu?
nauðsynlegra en að ísland stofni
sendiráð í Suður-Ameríku? íslensk-
ir ráðamenn lifa víst ekki á tölvu-
öld. Vita þeir ekki (þ.ám. utanríkis-
ráðherra) að flest viðskipti fara
fram gegnum tölvusamskipti i dag?
Það er ekki þörf á neinum sendiráð-
um í Suður-Ameríku né annars
staöar óravegu frá íslandi.
Það er rétt sem Þorvaldur Gylfa-
son prófessor segir í nýlegri grein
sinni: Þess sjást engin merki að
stjórnmálamennirnir hyggist hætta
að raða sjálfum sér og hverjir öðr-
um í stöður og leggja undir sig fyr-
irtæki sem hafa hingað til fengið að
lúta forystu kunnáttumanna.
Ég legg til að ráðherrar, núver-
andi og þeir í framtíðinni, sæki
tölvunámskeið til að komast eilítið
inn í nútímann. Það gengur ekki að
ráðherrar tali einhverja fornaldar-
tungu við þjóðina gegnum ríkisfjöl-
miðlana.
DV
A-flokkarnir:
Samvinna eöa
sameinining?
Örn skrifar:
í umræðunni um samvinnu eða
sameiningu A-flokkanna hefur al-
menningi ekki verið gerö nægi-
lega góð grein fyrir stöðu mála.
Við vitum t.d. ekki hvort flokk-
amir leggja meiri áherslu á. í DV
nýlega er haft eftir Össuri Skarp-
héðinssyni að hann vilji frekar
sameiningu en samvinnu, og ætti
hann glöggt til að þekkja, búinn
að vera í báöum A-flokkunum.
Geta fjölmiðlar ekki gert skoðana-
könnum hjá flokksmönnum A-
flokkanna hvort ofar sé á óskalist-
anum; samvinna eða sameining?
Olíuleit fremur
en gullleit
Karl Einarsson hringdi:
Ekki hefur gæfan orðið okkur
hliðholl í gullleitinni hér á landi.
Samt er von að úr rætist eftir að
niðurstöður úr sýnatöku berst er-
lendis frá. En ég spyr: Hversu
nauðsynlegra væri ekki að hefjast
handa um að fullkanna meint
olíusvæði fyrir Norðausturlandi,
en þar hafa sannanlega fundist
setlög sem vísindamenn fullyrða
að undir kunni að leynast olía?
Auðvitað á ríkisstjórnin að hafa
frumkvæði að fúllnaðarrannsókn-
um á því hvort þama er vinnan-
leg olía. Færeyjar og Grænland
þurfa ekki endilega að verða fyrri
til að finna vinnanlega olíu.
Einskis nýtur
samningur
við Rússa
Haukur skrifar:
Hinn tvíhliöa samningur Rúss-
lands og Islands um samstarf og
samskipti á sjávarútvegssviöinu
er einskis virði að því er varðar
veiðar okkar íslendinga í rúss-
neskri veiðilögsögu og gagn-
kvæmt. Veiöiheimildir eru ekki í
sjónmálinu, því þær eru ein-
göngu orðaðar með loðnu emb-
ættismannamálfari. Svo sem:
„sem síðar kann að verða samið
um...“, „samkvæmt ákvörðun
rússneskra stjórnvalda hverju
sinni“ og „eftir því sem þörf kref-
ur“ o.s.frv., o.s.frv. - Samningur
þessi hefur því nánast enga þýð-
ingu fyrir okkur íslendinga, svo
mjög sem gumað er af honum
vegna þekkingarskorts.
Slúðrið eitt
einskis virði
Bjami Valdimarsson skrifar:
Lögreglan kaupir staðfest. Ef
hún keypti bara upplýsingar færi
helftin af þjóðinni í gæsluvarð-
hald. Launin fyrir upplýsingam-
ar eru fyrst og fremst að fá að
halda eigin vímuefnum. Er það
lægsta greiðsla. Ekki þarf að
veita fé af fjárlögum í þess háttar
viðskipti, því yfrið nóg fellur til
af upptækum varningi. Útilokað
er að stunda viðskipti við bófa,
án þess að verða einn af þeim
sjálfur! í næstu kosningum verð-
ur þjóðin að velja sér leiðtoga
sem binda enda á þennan skrípa-
leik og fleira grátt gaman.
Götunarfárið
viðbjóðslega
Kjartan hringdi:
Það lýsir þessari þjóð best að
forráðamenn unglinga, og jafnvel
fullorðið fólk, þótt í yngri kantin-
um sé, skuli leyfa sér að eyði-
leggja líkamshluta sína með göt-
um og stungum hér og þar; i
eyru, munn, varir og tungu! Ves-
alings unglingarnir sem mynd-
imar birtast af sýnast eins og
hver önnur úrhök mannskepn-
tmnar á víðavangi, illa hirt, feim-
in og ómannblendin. Þetta er eitt
það viðbjóðslegasta sem duniö
hefur yfir þjóðina og hefur hún
þó ekki úr háum söðli að detta.