Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1997, Side 34

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1997, Side 34
42 MÁNUDAGUR 25. ÁGÚST 1997 Afmæli Ole Lindquist Ole Lindquist, sagnfræðingur, kennari og leiösögumaður, Reyni- mel 47, Reykjavík, varð fimmtugur í gær. Starfsferill Ole er fæddur á Borgundarhólmi, einkabam foreldra sinna, en árið 1950 flutti fjölskyldan til Jótlands ^ þar sem hún átti rætur sínar. Ole bjó í Esbjerg til 1965; í Þýskalandi frá 1965 til 1971; frá 1971 til 1973 í Reykjavík; frá 1973 til 1995 á Akur- eyri en síðan þá hefur hann verið búsettur í Vesturbænum í Reykja- vík. Frá og með 1979 hefur Ole dvalið langdvölum víðs vegar um Norður- Evrópu. Hann er danskur ríkisborg- ari. Móðurafi Ole, Peter Thomas Thomasson, f. 1886, d. 1962, búsettur í Árósum, var myndskeri, stein- höggvari og stúkkatör. Eins og iðn- sveinar þess tíma sem ætluðu að taka meistarapróf urðu að gera, starfaöi hann lengi (1906-1912) viðs vegar um Evrópu, aðallega i þýsku- mælandi löndum. Árið 1915 öðlaðist hann meistararéttindi en vann til dauðadags sem einyrki. Hann skar út og seldi mikið af húsgögnum úr eik og mahoní og vann líka við end- urgerð gamalla kirkjumuna á Jót- landi fyrir danska Þjóðminjasafnið. Hann var líka meistari við smíði Kastaníu-brúarinnar (úr graníti) í Óðinsvéum. Hann var sérlega fróð- ur um menningarsögu Evrópu og varði Ole flestum sínum fríum hjá honum og hefur hann frá honum vbæði lifsviðhorf og áhuga á menn- ingarsögu. Eftir gagnfræðapróf frá Boldesagier-skóla í Esbjerg árið 1964 stund- aði Ole m.a. nám á fyrsta ári við Kennara- skólann í Hjorring á Norður-Jótlandi 1965-66 en hélt þá þaðan til Þýskalands og tók inn- tökupróf við Martin- Luther-Universitat Halle-Wittenberg. Þar stundaði hann nám til meistaraprófs í sögu (Diplom-Historiker, 1970) og í heimspeki (Diplom- Philosoph, 1971). Haustið 1973 réðst Ole til Mennta- skólans á Akureyri og kenndi hann mannkynssögu og heimspeki tíma- bilið 1973-79 við nýstofnaða félags- fræðideild skólans. Á árunum 1980-87 kenndi Ole eingöngu mann- kynssögu og þá fyrst og fremst við öldungadeild MA. Skólaárið 1979-80 nam Ole nor- ræna fomleifafræði og sögusafn- fræði við Háskólann í Björgvin og á sumrin 1980-86 starfaði hann við fomleifarannsóknir víðs vegar um Noreg, síðustu árin sem stjómandi (með víkingaöld sem sérsvið). Milli áranna 1987 og 1995 stund- aði Ole sagnfræðirannsóknir á mörgum stöðum í Norðvestur-Evr- ópu. Á árinu 1995 varði hann dokt- orsritgerð sína „Hvalir í efticihags- og menningarlífi norrænna útvegs- bænda 900-1900“ („Whales, dolphins and porpoises in the economy and culture of peasant fishermen in Norway, Orkney, Shetland, Faeroe Islands and Iceland, ca 900-1099 AD and Norse Greenland, ca 1000-1500 AD; 3. bindi, 1300 bls., 1994) við Háskólann í St. Andrews, Skotlandi. I framhaldi af því var Ole þar veitt heiðursstaða (Honorary Fellowship, þ.e. sem Honorary Fellow) við St. John’s House Centre for Advanced Historical Studies. Hann heldur rannsóknum sínum áfram með aðsetur í Vesturbæn- um. Ole er vísindalegur ráðgjafi og op- inber áheyrnarfulltrúi (Accredited Observer) fyrir Alþjóðahafrann- sóknastofnunina (International Oce- an Institute; tengd háskólunum í Valletta, Malta; Halifax, Nova Scotia, og i Honolulu, Hawaii) í Al- þjóðahvalveiðiráðinu. Sem slíkur hefur hann sótt ársfundi þess frá og með 1983 og mun einnig taka þátt í 49. ársfundi ráðsins í Mónakó í október. Greinargerðir Ole frá árs- fundunum hafa birst í Ocean Year- book hjá Chicago University Press. Fræði- og ráðgjafarstörfin hafa leitt til þess að Ole hefur haldið fjölda gestafyrirlestra við ýmsa há- skóla í Norður-Evrópu. Tímabilið 1989-90 stóð Ole fyrir frumkönnun á möguleikum á hvala- skoðun hér við land og gerði fyrstur allra tillögur þar að lútandi og í maí 1990 var skýrslunni dreift innan- lands og utan. í september 1996 hóf Ole þriggja ára nám í íslensku fyrir erlenda stúdenta við Háskóla íslands (til B.Ph.Isl.-prófs) tO að styrkja vald sitt á íslenskri tungu, sérstaklega hvað ritfæmi varðar, auk þess að auka þekkingu sína i íslenskum fræðum. Sl. voru lauk Ole einnig vetrarlöngu kvöld- og helgarnámi við Leiðsöguskóla íslands sem leið- sögumaður ferðamanna. í sumar hefur hann starfað við leiðsögn ferðamanna á þýsku, ensku, dönsku/skandinavísku og hyggst halda því áfram, sumar sem vetur, samhliða íslenskunáminu og fræði- störfunum. Fjölskylda Árið 1970 kvæntist Ole Hólmfriði Guðmundsdóttur Bárðarsonar, f. 1944, sérkennara og núna skóla- stjóra grunnskóla Skútustaðahrepps í Reykjahlíð. Þau kynntust á náms- árum sínum i Halle an der Saale en skildu árið 1984. Einkabam Ole er Margrét Ingi- björg Lindquist, f. 8.6. 1974, á Akur- eyri. Hún er nemandi á öðru ári á textílbraut Myndlista- og handíða- skóla íslands. Hún er danskur ríkis- borgari en búsett í Kópavogi. Margrét á hálfbróður, Óttar Guð- jónsson Samúelssonar, f. 21.6. 1967, hagfræðing, búsettan í London. Foreldrar Ole vom þau Carl Jo- han Lindquist, f. 1918, d. 1978, og Jenny Ruth Lindquist, fædd Thoa- sen, f. 1919, d. 1985. Carl Johan var yfirbryti hjá DFDS (Sameinaða gufuskipafélaginu) frá 1950 til dauðadags og sigldi með skipum fé- lagsins til Bretlands, Norður- og Suður-Ameríku og Miðjarðarhafs- landa. Jenny Ruth var lengst af Ole Lindquist. Sigurður Valgarð Jónsson Sigurður Valgarð Jónsson (Siggi Valli) hljóðfæraleikari, Reynimel 66, Reykjavik, er sjötugur í dag. Starfsferill Siggi Valli fæddist á Húsavík og ólst þar upp til átta ára aldurs en fluttist síðan til Akureyrar og ólst mpp þar. Snemma sýndi Siggi Valli mikinn áhuga á tónlist og spilaði jafnt á harmoniku sem trommur með mörgum þekktum hljómsveitum á Akureyri. Einnig kenndi hann á hljóðfæri með spilamennskunni og vann í Gefjun eins og flestir Akur- eyringar í þá daga. Siggi Valli flutti með fjölskyldu sína til Reykjavíkur árið 1965 og hætti þá að mestu að spila opinber- lega að undaskildu starfi með Lúðrasveit Hafnarfjarðar um tíma. Hann starfaði til sjós sem mat- sveinn á hinum ýmsu skipum þar til hin síöustu ár er hann vann hjá Gúmmísteypu Þ. Lárussonar. Siggi Valli fæst nú við áhugamál sín svo sem tónlist, hagleikssmíð á skipamódelum og kvikmyndaleik þar sem þegar er komin myndin Siggi Valli trommari og væntaleg er á haustdögum myndin Siggi Valli á mótorhjóli. Fjölskylda Siggi Valli kvæntist árið 1949 Maríu Sigfríði Sigurðardóttur, f. 3.11. 1931, d. 19.7. 1994, húsmóður. Foreldrar hennar voru Sigurður F. Jónsson prentari og Hulda Ingi- marsdóttir, húsmóðir frá Akureyri. Þau eru bæði látin. Börn Sigga og Maríu eru: Harald- ur Páll, f. 22.12.1949, þjónn í Reykja- vík; Hulda, f. 30.9. 1952, læknaritari í Reykjavík, og er hennar maki Jón Friðjónsson, málarameist- ari og vélstjóri; Inga Rut, f. 22.2. 1958, kennari í Kópavogi, og er hennar maki Böðvar Bjarki Pét- ursson kvikmyndagerðar- maður. Þau eiga dæturnar Ragnhildi og Katrínu; Ólöf Helga, f. 23.8.1967, förðun- arfræðingur í Borgamesi, hennar maki er Guðjón Kristjánsson atvinnurek- andi. Þau eiga dæturnar Hugrúnu Huldu, Eddu Fanneyju og Maríu Esther. Faðir Sigga Valla var óþekktur en móðir hans var Ólöf Valdimarsdótt- ir vinnukona sem lést úr berklum árið 1929 á Kristneshæli og er því lítið um hana vitað. Siggi Valli var því hálfgerður sveitar- ómagi við fæðingu. En fyrir tilstilli hjónanna Jóns Flóventsstonar og Guðnýjar Helgadóttur frá Húsavík, sem tóku hann í fóstur, komst hann til vits og ára. Siggi ólst þar upp til átta ára aldurs í góðum upp- eldissystkinahópi þeirra Fannýjar, f. 1906, Krist- jáns, f. 1908, Helgu, f. 1910, Sigríðar Pálínu, f. 1913, og Georgs, f. 1917, sem öll era nú látin. Flutti hann þá til Akureyrar ásamt stjúpsystur sinni, Sigríði Pálínu Jónsdóttur, og manni hennar, Har- aldi Sigurgeirssyni og ólst síðan upp hjá þeim. Siguröur Valgarð Jónsson. ► staögreiöslu- og greiöslukortaafsláttur oWt mil/i hirryns og stighœkkandi Smáauglýsingar birtingarafsláttur 550 5000 Ul hamingju með afmælið 25. ágúst 85 ára Ingveldur R. Bjamadóttir, Kleppsvegi 4, Reykjavík. Kristján A. Kristjánsson, Langagerði 70, Reykjavík. 80 ára Guðný Sigfríður Jónsdóttir, Furugerði 1, Reykjavík. Sigríður Stefánsdóttir, Kópavogsbraut 83, Kópavogi. Sigríður Sigurðardóttir, Háteigi 2d, Reykjanesbæ. Jón V. Bjarnason, Valþjófsstað 2, Fljótsdalshreppi. 75 ára Jón Kr. Bjarnason, Hamrahlíð 37, Reykjavík. Vigdís Finnbogadóttir, Litlu-Eyri, Vesturbyggð. 70 ára Bent Bjami Jörgensson, Háaleitisbraut 89, Reykjavík. Aðalheiður Gunnarsdóttir, Höfðabrekku 15, Húsavík. Sigriðiu- Theódóra Jónsdóttir, Hraunbæ 86, Reykjavík. 65 ára Bjami Th. Rögnvaldsson, fyrrv. prestur á Prestsbakka, fræðimaður, fyrrv. skólastjóri, fræslustjóri og kennari, Safanjýri 42, Reykjavík. 60 ára Ragna Hjaltadóttir, Esjugi'und 33, Kjalameshreppi. 50 ára Rúnar Jóhannsson, Faxastíg 18, Vestmannaeyjum. íris Gréta Valberg, Víðivangi 7, Hafnarfirði. Rúna Björg Jónsdóttir, Stóragerði 14, Hvolsvelli. Jón Guðmundsson, Asparfelli 12, Reykjavík. Örn Gmndfjörð, Ástúni 2, Kópavogi. Sigríður Ragnarsdóttir, Brú 2, Jökuldalshreppi. Guðrún Sigurðardóttir, Lundum 1, Borgarbyggð. 40 ára Þorsteinn V. Baldvinsson, Vallargötu 16, Reykjanesbæ. Guðmundur Einarsson, Álfhólsvegi 18, Kópavogi. Ólöf Guðrún Hafsteinsdóttir, Sólvallagötu 29, Reykjavík. Nikolína Theodóra Snorradóttir, Vesturgötu 129, Akranesi. Aðalbjörg Kolfinna Örlygsdóttir, Tjamarlundi 19d, Akureyri. Hrafhhildur Fríða Gunnarsdóttir, Spítalavegi 19, Akureyri. Anna Lea Bjömsdóttir, Gónhóli 6, Reykjanesbæ. Andrés Viðarsson, Ránarbraut 7a, Vík í Mýrdal. Guðlaug Kristinsdóttir, Fannafold 111, Reykjavik.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.