Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1997, Blaðsíða 32
ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1997
Beygjur á
beina vegi
„Það er furðulegt með vega-
gerð ^ íslandi að þar sem hægt er
að fara beint með vegi, eins og
gert er alls staðar í heiminum,
eru settar beygjur. Það virðist
sem flestir þeirra manna sem
taka þessar ákvarðanir í vega-
málum hafi ekki bílpróf.“
Steindór Sigurðsson, fram-
kvæmdastj. SBK, í DV.
Enginn árangur af blaðri
„Ég lít svo á að umræðan um
samstarf A-flokkanna verði ekki
unnin í fjölmiölum. Reynslan er
sú að þvi meira sem blaðrað er í
fjölmiðlum því ólíklegra er að ár-
angur náist.“
Steingrímur J. Sigfússon al-
þingismaður, í Degi-Tímanum.
Ekki hægt að ætlast til
að ég opni mxmninn
„Þú getur varla ætlast til þess
að ég opni munninn þegar rætt
er um mál sem bankaráðið hefur
gert eða hefur ekki gert.“
Eiríkur Guðnason seðlabanka-
stjóri, í DV.
Ummæli
Ekki eins góðir
og Skaginn
„Ég er á því að Eyjamenn séu
vel að titlinum komnir því þeir
hafa verið með skásta liðið. En
þeir eru ekki með eins gott lið og
Skaginn var með undanfarin
fimm ár.
Ólafur Þórðarson, fyrirliði ÍA, í
Morgunblaðinu.
Kalt á toppnum
„Það er kalt á toppnum og
margar öfundarraddir heyrast.
En ég segi við ykkur Eyjamenn:
Njótið þess í botn að vera ís-
landsmeistarar."
Atli Eðvaldsson, fyrrum þjálfari
ÍBV, i DV.
Útvarpssjónaukar eru yfirleitt
risasmíð. Þessi er viö Goldstone
í Kaliforníu.
Útvarps-
sjónatikar
Útvarpssjónaukar eru í eðli
sínu útvarpsviðtæki með stefnu-
loftnetum af ýmsum gerðum.
Sumir þeirra eru hreyfanlegir
þannig að hægt er að beina þeim
í allar áttir, aðrir eru fastir og
sjónsvið þeirra takmarkað við
hluta af himinhvolfinu sem fær-
ist þó í hring vegna snúnings
jarðar. Útvarpssjónaukar þurfa
að vera geysilega næmir því út-
varpsgeislunin úr himingeimn-
um er með örfáum undantekn-
ingum afar dauf. Það bylgjusvið
sem gufuhvolfið hleypir í gegn-
um sig nær frá tveimur millí-
metrum upp í hundrað metra
bylgjulengd og miðast tækin við
þennan „útvarpsglugga".
Blessuð veröldin
Útvarpssjónaukar geta ekki
greint eins fina drætti og
(ljós)sjónaukar af sömu stærð
því að sundurgreiningin stendur
í öfugu hlutfalli við bylgjulengd-
ina sem notuð er. Er því reynt að
hafa loftnetin sem stærst og nota
víxlunaraðferðir til að auka
sundurgreininguna.
Hákon Hákonarson, formaður atvinnumálanefndar Akureyrar:
Reyni að láta
gott af mér leiða
DV, Akureyri:
„Ég hef í langan tíma haft bæði
bein og óbein afskipti af atvinnu-
málum og átti m.a. sæti í atvinnu-
málanefnd eitt kjörtímabil," segir
Hákon Hákonarson sem hefur tek-
ið við formennsku í atvinnumála-
nefnd Akureyrarbæjar og mun
stýra nefndinni út kjörtímabilið.
Hákon segir að stutt sé til loka
kjörtímabilsins og pólitískar línur
hafl þegar verið lagðar í starfi
nefndarinnar. „Það þýðir þó ekki
að ég ætli mér að fara inn í þessa
nefnd bara til að sitja þar, ég mun
kappkosta að setja mig inn í öll
mál sem snerta starfssvið nefndar-
innar og öll þau mál sem nefndin
getur haft afskipti af og reyna eins
og hægt er ásamt félögum mínum í
nefndinni að láta gott af okkar
starfl leiða,“ segir Hákon.
Hann er fæddur í Þingeyjarsýslu
og ólst þar upp til 13 ára aldurs
þegar hann flutti til Akureyrar þar
sem hann hefur búið síðan. „Ég hef
unnið við ýmis
störf, var til sjós,
stundaði bygg-
ingarvinnu jafn-
framt námi og
lærði síðan vél-
virkjun. Siðan
vann ég við mína
iðn í 10-15 ár eða
alveg þar til ég
hóf störf að fé-
lagsmálum. Árið
1976 varð ég for-
maður Félags
málmiðnaðar-
manna á Akur-
eyri og hef
stundað það starf
síðan.“
Um áhugamál-
in segir Hákon
að þau tengist
aðallega veiði-
skap og útiveru.
„Ég fer mikið til
veiða, stunda
bæði silungs- og
Hákon Hákonarson.
Maður dagsins
laxveiðar t.d. í
Skjálfanda-
fljóti, Fnjóská
og Laxá í Aðal-
dal, svo ein-
hverjar ár séu
nefndar, og
einnig skýt ég
gæsir, þetta eru
mín áhugamál
fyrst og
fremst.“
Hákon er giftur
Úlfhildi Rögn-
valdsdóttur,
skrifstofu-
manni og fyrr-
um bæjarfull-
trúa á Akur-
eyri, og þau
eiga tvö börn,
Hákon Gunnar
og Helgu Hlín.
-gk
Myndgátan
Hefur himinn höndum tekið.
Myndgátan hér aö ofan lýsir nafnoröi.
Miklos Dalmay leikur á Seltossi í
kvöld.
Píanótón-
leikar í Sel-
fosskirkju
Hvert þriðjudagskvöld þessar
vikumar eru tónleikar í Selfoss-
kirkju. í kvöld býðst tónlistar-
unnendum að heyra Miklos Dal-
may leika á píanó í kirkjunni.
Dalmay er Ungverji en hefur nú
um hríð starfað á íslandi. Býr
hann ásamt fjölskyldu sinni á
Flúðum. Miklos Dalmay hlaut
Tónvakaverðlaun Ríkisútvarps-
ins í fyrra og varð snilli hans
einkum kunn eftir það. Á efnis-
skránni em verk eftir Brahms og
Chopin. Tónleikarnir hefjast kl.
20.30 og er aðgangur ókeypis.
Tónleikar
UNM 1997
Tónlistarhátíð ungra nor-
rænna tónlistarmanna verður
haldið áfram í kvöld og verða
tónleikar I Listasafni íslands kl.
20. Flutt verða verk eftir Peter
Bruun, Morten Danielsen, Edina
Hadziselimovic, Jesper Nordin,
Timo Virtanen og Jesper Hol-
men. í tengslum við hátíðina
heldur Luca Francesconi fyrir-
lestur í Tónlistarskóla Reykja-
víkur kl. 14.
Bridge
Sumarleikarnir í bridge í Banda-
ríkjunum (ACBL Summer
Nationals) voru spilaðir dagana 25.
júlí til 4. ágúst. Meðal annars var
spilaður sterkur tvimenningur fyrir
þá sem öðlast höfðu nafnbótina Life
Master. í þessu spili í undanúrslit-
um þeirrar keppni fór Bandaríkjam-
aðurinn Richard Schwartz á kostum
i norðursætinu sem sagnhafi í
þremur gröndum. Sagnir gengu
þannig, austur gjafari og allir á
hættu:
♦ Á9
* K97
♦ ÁKG5
* KD76
4 64
* D54
4 10962
4 ÁG83
4 875
V ÁG8
4 8743
4 952
Austur Suður Vestur Norður
3 4 pass pass 3 grönd
p/h
Schwartz reyndi að sjálfsögðu
þrjú grönd eftir spaðahindrun aust-
urs og útlitið var ekki bjart þegar
austur spilaði út spaðakóng.
Schwartz gaf þann slag, átti þann
næsta á spaðaásinn og lagði niður
tígulás. Þegar drottningin féll, fór
útlitið að verða bjartara. Hann tók 3
slagi á tígul og spilaði síðan vestri
inn á þann fjórða. Vestur reyndi að
spila sig út á laufi, sagnhafl átti
slaginn á kóng, spilaði næsta hjarta
á ásinn og aftur laufi. Vestur setti
lítið spil, Schwartz drottninguna
heima og nú var sviðið sett. Laufi
var áfram spilað, vestur gat tekið
tvo slagi í þeim lit, en varð síðan að
spila frá hjartadrottningu sinni.
Schwartz hleypti að sjálfsögðu yfir á
gosann, enda var hann búinn að
gera ráð fyrir þessari legu.
ísak Öm Sigurðsson