Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1997, Síða 2
2
FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 1997
Fréttir
Hallbjörn Hjartarson lýsir því hvernig honum var innanbrjósts að horfa á Kántrýbæ brenna:
Ég hlýöi almættinu
A-flokkarnir á Akranesi:
Sameiginlegt framboð
DV, Akranesi:
Félagsfundur í Alþýöubandalag-
inu á Akranesi samþykkti í gær-
kvöldi að vinna áfram að sameig-
inlegu framboöi með Alþýðu-
flokki.
í samþykkt flokkanna, sem lá
fyrir fundinum, kom fram að sam-
eiginleg uppstillinganefnd að við-
bættum fulltrúum frá öðrum aðil-
um sem vilja ganga til samstarfs
við flokkana mun gera tillögu um
framboðslista.
Alþýðubandalagið hefur 3 menn
í bæjarstjóm og myndar meiri-
hluta með Sjálfstæðisflokknum.
Alþýðuflokkur hefur einn fiilltrúa.
Heyrst hefur að Guðbjartur Hann-
esson, einn af fulltrúum Alþýðu-
bandalagsins og forseti bæjar-
stjómar, muni ekki gefa kost á sér
áfram.
Hann sagðist í gær ekki vera
búinn að gera upp við sig hvað
hann gerði. Aðrir fulltrúar Al-
þýðubandalagsins era þau Ingunn
Anna Jónasdóttir og Sveinn Krist-
insson. En ekki er vitað um af-
stöðu þeirra, Ingunn er í Finn-
landi og ekki náðist í Svein. Ingv-
ar Ingvarsson er fulltrúi Alþýðu-
flokksins í bæjarstjóm Akraness.
Hann hefur ekki tekið ákvörðun
um hvort hann gefur kost á sér
áfram. „Ég tel að líkurnar séu
50:50 að ég fari fram,“ sagði Ingv-
ar við DV.
-DVÓ
„Mér fannst á tímabili í nótt þeg-
ar ég stóð þama úti og sá þetta allt
fara að einhvem veginn hefði verið
best að ég færi líka. Það hefði verið
best. En þessi hugsun stóð stutta
stund. Gamalt máltæki segir að tím-
inn lækni öll sár. Ég segi að hann
geti borið smyrsl á þau þannig að
manni líði ekki eins illa á eftir. Ég
þykist vita að slíkt muni gerast með
mig,“ sagði Hallbjöm Hjartarson,
kántrýsöngvari á Skagaströnd, þeg-
ar DV sótti hann heim í gær.
Hallbjöm segir að vafalaust verði
„lágt á honum risið“ á næstunni -
meðan hann safni orku og kjarki.
En síðan muni „hann rísa upp“.
Stuttar fréttir
Reyndi að berjast við eldinn
„Það var vegfarandi sem varð var
við reyk og lét mig vita,“ sagði Hall-
bjöm sem býr í húsi gegnt Kántrý-
bæ sem er tveggja hæða hús. Eldur-
inn kviknaði um miðnættið í fyrra-
kvöld. Á neðri hæð Kántrýbæjar
var veitingastaður en í risinu var
útvarpsstöð Hallbjamar, mörg
hundrað hljómplötur sem hann hef-
ur veriö að safna á lífsleiöinni,
geymslur og fleira.
„Ég fór út og sá strax að reykur-
inn kom frá kvistinum á efri hæð-
inni. Ég fór inn og ætlaði að slökkva
með slökkvitæki en þá var reykur-
inn orðinn mjög mikill. Þegar ég
var að fara upp
stigann var ég að
kafna. Reykurinn
var kolsvartur og
mikill hiti inni.
Það var kallað á
slökkvilið og sír-
ena var sett í
gang. Mér fannst
slökkviliðið lengi
á leiðinni. En sek-
úndur í svona lög-
uðu era mjög
lengi að líða. Þær
verða næstum því
að hálftíma,"
sagði Hallbjöm.
„Nú er bara að vera þægur strákur við alföður sinn og hlýða því sem framtíðin ber í skauti sér,“ segir Hallbjörn.
DV-myndir Hilmar Þór
Ósáttur við
slökkviliðið
„Ég sá í hvað
stefndi en mér
fannst tjónið ekki
þurfa að verða
svona mikið,“
sagði Hallbjöm.
„Ég sagöi slökkvi-
liðsmönnum
hvernig hægt
væri að hefta eld-
inn en það var
ekki hlustað á
það. Já, þetta
hefði ekki þurft
að fara svona illa
ef mennimir
hefðu verið vaxn-
ir sínu verki."
Rannsókn í gær
leiddi í ljós að lík-
lega hefði eldur-
Hallbjörn tekur ösku og sót af vinylplötum sem fóru illa
í brunanum.
Grétar, sonur Hallbjarnar, við uppbrunnin tækin í útvarp Kántrýbæ.
inn kviknað í perustæði á efri hæð-
inni. Hallbjöm sagðist vera tryggð-
ur að hluta vegna tjónsins:
„Þegar maður er að endumýja og
kaupa ný tæki vill maður trassa að
gefa það upp. Það voru því tæki
þama sem ekki eru tryggð," sagði
Hallbjöm.
Eins og að missa eitt af
börnunum
„Þetta er svipað því að ég hafi
misst eitt af bömunum mínum. Allt
mitt líf var þarna inni - allt sem ég
hef veriö að byggja upp. Bara út-
varpsstöðin stóð i fimm milljónum
króna. Ég var líka búinn að eignast
geysilega gott safn af kántrýhljóm-
plötum. Fáir áttu annað eins. Það er
mikil eftirsjá að því. Ég reikna ekki
með að ég nái þvi nokkum tíma aft-
ur. Það sem maður er einu sinni bú-
inn að gera verður aldrei eins aftur.
En ég ætla mér að halda áfram.
Ég ætla að sigra mína hugsjón -
kántrýtónlistina sem ég hef lagt allt
í sölurnar fyrir frá fyrstu tíð. Ég hef
fómað lífi mínu í hana. Þá er bara
að taka skellinum og átta sig á því
að það er eitthvað meira sem ég á
eftir að gera. Þetta læt ég ekki vinna
bug á mér,“ sagði Hallbjörn.
Áfallið í fyrrinótt var ekki það
fyrsta sem Hallbjöm upplifir:
„Árið 1985 lenti ég í bílslysi. Þá
hrandi líf mitt í rúst. Ég afskrifaði
allt, fjölskyldu og annað. Ég var lif-
andi dauður í sex ár. Síðan var ver-
ið að gefa mér kjarkinn smám sam-
an aftar. Ég var búinn að ná honum
með Guðs hjálp. En svona er þetta.
Tækin á útvarpsstöðinni.
Það er alveg öraggt að almættið
ætlar mér eitthvað meira. Það era
hreinar línur. Auðvitað er harka-
legt að taka svona í mann. En ég
trúi því að einhver tilgangur sé með
þessu. Það er eitthvað meira, ein-
hver þroski sem ég á eftir að yfir-
stíga og ná. Um það era mörg mörg
dæmi. Nú er bara að vera þægur
strákur við alfóður sinn og hlýða
því sem framtíðin ber í skauti sér,“
sagði Hallbjöm Hjartarson. -Ótt
Veikindi forsetafrúarinnar
Forseti íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, hefúr tilkynnt að fyrsti
áfangi læknismeðferðar á sjúk-
dómi forsetafraarinnar, Guðrún-
ar Katrínar Þorbergsdóttur, hafi
gengið vel. Guðrún Katrín mun
geta dvalið heima að mestu en
verður á sjúkrahúsi nokkrar vik-
ur í senn í tengslum viö aðra
áfanga læknismeðferðar.
Ekkert þróunarverkefni
Samkvæmt reglum EES gengm-
ekki að skilgreina smíði nýs haf-
rannsóknaskips sem innlent þró-
unarverkefni. Þetta kom fram á
Alþingi í gær í umræðum um
endurreisn íslensks skipasmíða-
iðnaðar.
Sjálfvaldir sjóðir
Samtök áhugafólks um lífeyris-
sparnað telja að allir skuli gi'eiða
í lifeyrissjóði en eigi að fá að velja
sjálfir sjóðinn. RÚV sagði frá.
Neita aó koma á fund
Borgarstjóri og fjórir borg-
arfulltrúar frá R- og D-listum
ákváðu í sameiningu að þiggja
ekki boð um að tala á fundi Skóla-
stjóra- og Kennarafélags Reykja-
vikur í dag af því að kennaradeil-
an er á viðkvæmu stigi. Morgun-
blaðið segir frá.
Skákmeistari Noröurlanda
Jóhann Hjart-
arson sigraði á
VISA-skákmót-
inu um titilinn
Skákmeistari
Norðurlanda í
gær. Hann fékk
10,5 vinninga af |
13 mögulegum
og náði besta árangri íslensks
skákmanns um árabil.
Mikil loðna
Komandi loðnuvertíð getur orð-
ið ein sú besta í sögu veiðanna, aö
sögn Stöðvar 2. Verð á loðnuaf-
urðum er nú mjög hátt, einkum
vegna aflabrests á ansjósu hjá S-
Ameríkumönnum.
Ferðum fækkað
íslandsflug hefur ákveðið að
hætta daglegum morgun- og
kvöldferðum til ísafjaröar. Áfram
verður flogið daglega á vegum fé-
lagsins. Morgunblaöið segir frá.
-SÁ
Húsleit
hjá Hnefa-
leikafélagi
Lögreglan í Reykjavík gerði í gær
húsleit í húsakynnum Hnefaleikafé-
lags Reykjavíkur i Dugguvogi 19. Lög-
reglan lagði hald á gögn og muni á
staðnum sem tengjast hnefaleikum.
Eftir hnefaleikakeppni, sem fram
fór í Dugguvogi 19 og var sýnd á Stöð
2, lagði lögreglan fram kröfu um hús-
leit á staðnum. Héraðsdómur Reykja-
víkur varð við þeirri kröfu í gær.
Rannsókn málsins er í fullum
gangi. Lög kveöa sem kunnugt er á
um að kennsla og keppni í hnefaleik-
um sé bönnuð hér á landi.
-RR