Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1997, Síða 8
8
FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 1997
Útlönd
Stuttar fréttir dv
Gögn frá tölvufyrirtækinu Compaq:
Microsoft bolaði
keppinautnum burt
Bandaríska tölvufyrirtækiö
Compaq lét lögfræðingum banda-
rískra stjórnvalda í té gögn sem ku
sýna að hugbúnaðarfyrirtækið
Microsoft hafi hótað að meina tölvu-
framleiðendum að nota Windows 95
stýrikerflð ef tengill við vefskoðara
fyrirtækisins væri ekki á skjáborði
tölvanna.
Dómsmálaráðuneyti Bandaríkj-
anna hefur sakað Microsoft um að
hafa svikið samkomulag gegn
hringamyndun sem fyrirtækið gerði
við stjórnvöld árið 1995. Gögnin frá
Compaq, öðrum tölvufyrirtækjum
og Microsoft, svo og vitnisburður
starfsmanna eru grundvöllur kvart-
ana dómsmálaráðuneytisins.
Keith Shugarman, sérfræðingur í
lögum gegn hringamyndun, telur
ástæðuna fyrir því að dómsmála-
ráðuneytið hafi sagt frá gögnunum
vera þá að stjómvöld telji sig hafa
góðan málstað að verja.
Hlutabréf í Microsoft lækkuðu í
gær um 2,81 dollar, niður í 135,69
dollara.
Dómsmálaráðuneytið skýrði frá
því að gögnin, sem það hefur undir
höndum, sýndu að Microsoft hefði
hótað að láta Compaq ekki fá
Windows 95 ef táknmynd Intemet
Explorer vefskoðarans væri ekki á
skjáborðinu. Forráðamenn Compaq
höfðu hugsað sér að hafa Netscape
Navigator, vefskoðara keppinautar
Microsofts, á skjáborðinu.
Skjöl þessi komu fram 1 dagsljós-
ið tveimur dögum eftir að dóms-
málaráðuneytið sakaði Microsoft
um að hafa brotið samkomulag gegn
hringamyndun með því að þvinga
tölvuframleiðendur til að hafa vef-
skoðara sinn á öllum tölvum með
Windows 95 stýrikerfinu.
Janet Reno dómsmálaráðherra
sagði á mánudag að farið hefði ver-
ið fram á það við alríkisdómstól að
Microsoft yrði gert að greiða um
sjötíu milljónir króna í dagsektir
fyrir að brjóta samkomulagið frá
1995.
Microsoft tilkynnti Compaq í
maílok í fyrra að það ætlaði að segja
upp leyfi fyrirtækisins til að nota
Windows 95. Það er óþolandi staða
fyrir alla framleiðendur einmenn-
ingstölva. Forráðamenn Compaq
sögðu að þeir hefðu ekki átt neinna
kosta völ. Reuter
Alsírbúum lofað
fullu lýðræði
Milljónir Alsírbúa ganga að
kjörborðinu í dag í bæjar- og
sveitarstjórnarkosningum sem
stjórnvöld segja að séu lokaá-
fanginn að fullri endurreisn lýð-
ræðis í landinu.
Landsmenn gera sér aftur á
móti engar vonir um að kosning-
amar muni binda enda á
skálmöldina sem hefur kostað 65
þúsund mannslíf á undanförnum
tæpum sex árum. Reuter
UPPBOÐ
Framhald uppboðs á eftirfarandi
eignum verður háð á þeim sjálf-
um sem hér segir:_______________
Flúðasel 90, 4ra herb. íbúð á 3. hæð t.h.,
þingl. eig. Magnús Einar Svavarsson,
gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkis-
ins og Húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar,
mánudaginn 27. október 1997 kl. 14.30.
Háberg 3, 2ja herb. íbúð á 3. hæð, merkt
03-03, þingl. eig. Gróa Björg Jónsdóttir,
gerðarbeiðandi Háberg 3, húsfélag,
mánudaginn 27. október 1997 kl. 13.30.
Háberg 30, þingl. eig. Ema Petrea Þórar-
insdóttir, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður
starfsm. ríkisins, mánudaginn 27. október
1997 kl. 14.00._________________
Ugluhólar 12,4-5 herb. íbúð á 3. h. t.v. +
sérgeymsla á 1. hæð, þingl. eig. Guð-
mundur Oddgeir Indriðason og Þuríður
Bima Halldórsdóttir, gerðarbeiðendur
Byggingarsjóður ríkisins, Lífeyrissjóður
starfsm. ríkisins, Lífeyrissjóðurinn Lífiðn
og Sameinaði lífeyrissjóðurinn, mánu-
daginn 27. október 1997 kl. 15.00.
S Ý SLUM AÐURINN í REYKJAVÍK
ggg „ S" „■» ÍÍi V
a • 4 ÍPSw
, m jí; -' " t' ■ l|
J Jm ll
Ungur maður í Brazzaville, höfuðborg Kongólýðveldisins, notaði hlé á vopnaskakinu í borginni í gær til að koma
öldruðum föður sínum heim í þessum forláta hjólbörum. Reiknað er með að Denis Sassou Nguesso, leiðtogi upp-
reisnarmanna og nýr þjóðhöfðingi landsins, komi til höfuðborgarinnar í dag til að kóróna sigur sinn í borgarastríð-
inu. Sautján liðsmenn hans voru drepnir í fyrirsát í gær og þykir það ekki boða gott. Símamynd Reuter
Gróðurhúsalofttegundir:
Clinton leggur
fram málamiðlun
Friðarverðlauna-
hafi sakaður um
hryðjuverk
Herinn í Indónesíu sakar frið-
arverðlaunahafann frá því í fyrra,
Jose Ramos-Horta, um þátttöku í
starfsemi hryðjuverkasamtaka.
„Ramos-Horta er óbeint bund-
inn hryöjuverkastarfsemi vegna
sambands síns við hryðjuverka-
samtökin Brigada Nagra sem hafa
aðsetur í Portúgal. Þau hafa verið
sökuð um sprengjutilræði á Java
í siðasta mánuði," fullyrðir tals-
maður hersins í Indónesíu í við-
tali við indónesíska fjölmiðla.
Talsmaðurinn segir Brigada
Nagra vera hemaðarvæng einnar
stjórnarandstöðuhreyfingarinnar
sem Ramos-Horta starfi með.
Kínverjar vilja
gott andrúmsloft
Kínversk yfirvöld vonast til að
Bandaríkjastjóm takist að koma í
veg fyrir að mótmælendur trufli
heimsókn Jiangs Zemins, forseta
Kína, til Bandaríkjanna í næstu
viku. Talsmaður kínverska sendi-
ráðsins í Washington kvaðst bú-
ast við að bandarísk yfirvöld
myndu tryggja að andrúmsloftið
yrði gott. Talsmaður Bandaríkja-
stjórnar sagði að Kínveijar fengju
ekki sérmeðhöndlun þar sem tján-
ingarfrelsi ríkti. Reuter
Bill Clinton Bandaríkjaforseti lét í
gær undan gífurlegum þrýstingi frá
atvinnulífinu í Bandaríkjunum.
Lagði forsetinn fram tillögu um
hvernig draga mætti úr útblæstri
loftttegunda sem stuðla að upphitun
lofthjúpsins og valda svokölluðum
gróðurhúsaáhrifum. Gengur tillagan
miklu styttra en önnur iðnríki
krefjast. Kröfumar eru meira
að segja ekki i samræmi við
það sem forsetinn'íagði sjálfur
til fyrir fjórum árum, að því er
danska blaðið Politiken
greinir frá.
I gær tilkynnti Clinton að
Bandaríkin vildu að iðnríki
takmörkuðu losun frá og með
tímabilinu 2008 tU 2012 við það
mark sem hún nam 1990. Síð-
an ætti að minnka losunina.
Þrátt fyrir að um málamiðl-
un sé að ræða hjá Clinton
sætti hann gagnrýni iðnrek-
enda heima fyrir. FuUtrúar
þeirra sögðu að tUlagan
myndi rústa iðnaðinum,
valda gífurlegri hækkun á
bensíni og veita þjóðum eins
og Kína forskot í samkeppni.
Sumir umhverfisvemdar-
sinnar sögðu aftur á móti að
tillagan gengi aUtof skammt
og að of seint yrði að forðast
umhverfisslys.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti.
Símamynd Reuter
Kanar í andstreymi
Bandarísk stjómvöld mættu
mikilli andstöðu bandamanna
sinna á ársfundi Alþjóða hval-
veiðiráðsins í gær þegar þeir
lögðu tU að indíánaþjóðflokkur
fengi að hefja á ný hvalveiðar í
Kyrrahafi.
Störfin í suðaustri
Bretar, sem ætla sér að reyna
að finna vel launuð og trygg
störf á næstu tíu áram, verða að
einblína á suðausturhluta Eng-
lands. Þetta kemur fram í nýrri
skýrslu um atvinnuþróun.
Vík milli vina
Borís Jeltsín Rússlandsforseti
sagði í gær að
fyrrum Sov-
étlýðveldin
tólf, sem
mynda Sam-
veldi sjálf-
stæðra ríkja,
hefðu fjar-
lægst hvert
annað og að leita þyrfti leiða tU
að snúa þeirri þróun við.
Hengdir í Egyptaiandi
Fjórir bókstafstrúarmenn
voru hengdir í fangelsi 1 Kaíró
fyrir ýmsa glæpi, þar á meðal
morð á lögregluþjóni og árás á
ferðamannarútu.
Hervélar rekast á
Tveir flugliðar týndu lífi þegar
tvær bandarískar herflugvélar
rákust á yfir Edwards-herflug-
stöðinni i Kalifomíu í gær. Slys
hafa verið að plaga bandaríska
flugherinn að undanförnu.
Hert eftirlit
Háværar kröfur era nú í Dan-
mörku um að eftirlit með lyfja-
gjöf verði hert í kjölfar meintra
morða á vistmönnum hjúkranar-
heimUis fyrir aldraða.
Aftökumet
60 aftökur hafa farið fram í
Bandaríkjunum á þessu ári. 10
aftökur tU viðbótar era ráðgerð-
ar fram að áramótum. Þar með
slá Bandaríkjamenn metið í af-
tökum frá 1957. Þá voru 65 tekn-
ir af lífi.
Ágreiningur minnkaöur
Bandarísk yfirvöld sögðu í
gær að dregið hefði úr ágrein-
ingi ísraelsmanna og Palestínu-
manna fyrir tUstilli sendimanns-
ins Dennis Ross. Hann hefur ver-
ið á ferð í Mið-Austurlöndum.
Fékk ekki sjúkrabíl
Sex bai-na einstæð móðir í Sví-
þjóð lést tólf tímum eftir að tvö
elstu börn hennar, 11 og 12 ára,
reyndu árangurslaust að fá að-
stoð neyðarþjónustu. Læknir
sendi engan sjúkrabU.
Tugþúsundir án heimilis
Að minnsta kosti 20 þúsund
manns eru heimilislausir í kjöl-
far mikUla flóða í suðurhluta
BrasUiu.
Landamærum lokaö
Yfirvöld í Líberíu lokuðu í
gær landamæram sínum að Si-
erra Leone. VUja Líberíumenn
koma í veg fyrir að hermenn fari
um land þeirra í þeim tUgangi að
koma forseta Sierra Leone aftur
tU valda.
lörast einskis
Pol Pot, leiðtogi Rauðu kmer-
anna, sem sak-
aðir eru um
morð á yfir
mUljón íbúum
Kambódíu,
segir í tíma-
ritsviðtali sem
birtist í vik-
unni að hann
iðrist einskis.
Jarðskjálftar á Taívan
Tveir jarðskjálftar gengu yfir
suður- og austurhluta Taívans.
Engar fréttir hafa borist af slys-
um eða skemmdum.
Reuter