Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1997, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 1997
11
dv_______________________Fréttir
Músarbrauðið ráðgáta
- segir Jóhannes Jónsson í Bónusi
„Það er ómögulegt að segja til um
hvar mús hefur komist í umrætt
brauð. Miðað við þær varúðcirráð-
stafanir sem gerðar eru hér og eng-
in ummerki flnnast hlýtur slíkt at-
vik að vera einstakt ef það hefur átt
sér stað í versluninni," sagði Jó-
hannes Jónsson, eigandi Bónuss, að-
spurður um kvartanir Þorgerðar
Einarsdóttur félagsfræðings, um að
músétið brauð væri selt í verslun
Bónuss á Seltjarnamesi.
„Brauðið er flutt beint inn í versl-
unina og sett í hillurnar. Það sem eft-
ir er af brauði frá deginum áður er
sent í burtu. Þetta er eins snyrtilegt
ferli og það getur verið. Allt svona
neikvætt er að sjálfsögðu mjög slæmt
fyrir verslunina en við höfum ekki
orðið fyrir svona umtali áður þó að
við seljum mörg þúsund manns brauð
i hverri viku. Ég hef aldrei fengið
orðsendingu frá heilbrigðiseftirlitinu
um að það hafl borist kvartanir um
slíkt hér,“ sagði Jóhannes.
Engin ummerki eftir mýs
„Það er ekki sannað að þetta hafl
gerst í versluninni og raunar ekki
hægt að útiloka það heldur. Við at-
huguðum verslunina mjög gaum-
gæfllega. Sú athugun leiddi í ljós að
meindýravarnir era mjög góðar í
versluninni og að engin ummerki
sáust eftir mýs þar, ekki einu sinni
músaskítur. Hins vegar er þetta
þekkt vandamál að mýs leita inn
þegar kólna tekur. Þetta er vanda-
mál sem margir eiga við að etja,“
sagði Þorsteinn Narfason, hjá heil-
brigðiseftirliti Kjósarsvæðis, að-
spurður um málið. -RR
Jórvi vígður
Nýr leikskóli, sem stendur við
Hæðargarð, var vígður formlega á
þriðjudag. Efnt var til samkeppni
um nafn á nýja leikskólanum og af
þeim rúmlega 70 tillögum sem bár-
ust var tillaga Brands Gíslasonar
samþykkt. Leikskólinn fékk nafnið
Jörvi. Það var Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borgarstjóri sem gaf
skólanum nafnið og spurði bömin í
framhaldi af því hvað nýi skólinn
þeirra héti; Jörrrrrvi, Jöðvi, Jövi,
Jörvi voru svörin.
Jörvi rúmar 80 börn. Hann er
byggður sem fjögurra deilda þó að
nú sé þar starfandi fimmta deildin,
sem er deild fimm ára barna. Þau
eru í Vinaseli sem er gömul skóla-
stofa úr Breiðagerðiskóla. Jörvi tók
til starfa 1. ágúst en þá um leið var
leikskólanum Staðarborg lokað og
börnin sem þar voru fluttu í nýja
leikskólann. Albína Thordarson er
arkitekt hússins og er þetta þriðji
leikskólinn sem byggður er sam-
kvæmt sömu teikningu. Leikskóla-
stjóri i Jörva er Sæunn Karlsdóttir.
-ST
Heitt vatn finnst:
Duttum í lukkupott
Brauð í hillunum í Bónusversluninni á Seltjarnarnesi. Kvörtun barst um að
músétið brauð hefði verið í versluninni.
% afsláttur!!
ára afmœlH!
I tilefni af ^ ara
afmœliGullhallarinnar
Í8. október munum við veita
a
Aðeim tnokk
afslátt
kra dam
dag(
af öllum vörum
Notið tœkifœrið og verslið jólagjafirnar snemma.
DV, Akureyri:
„Það má segja að við höfum dott-
ið í lukkupottinn. Holan er svo til
mitt á milli Árskógssands og Hauga-
ness, þéttbýliskjamanna tveggja í
hreppnum, nánast þar sem áformað
hafði verið að setja upp miðlunar-
geyma ef vatn fyndist annars staðar
þannig að við sleppum við allt sem
heitir aðveitulagnir," segir Kristján
Snorrason, oddviti í Árskógshreppi
í Eyjafirði, en þar hefur fundist um-
talsvert magn af heitu vatni í jörðu
við Brimnesborgir.
Kristján segir að nákvæmar mæl-
ingar á holunni hafi ekki farið fram
en hún er talin munu gefa um 35 sek-
úndulítra af um 70 gráða heitu vatni.
Hann segir vatnsþörflna i hreppnum
vera á bilinu 12-15 sekúndulítra
þannig að vatnið úr nýju holunni er
yfrið nóg fyrir hreppsbúa.
Flest hús í Árskógshreppi eru hit-
uð með rafmagni en á nokkrum
stöðum er hins vegar oliukynding.
„Ég sé ekki á þessari stundu hversu
hratt verður farið í framkvæmdir
við að tengja hitaveitu inn í hús í
hreppnum. Hér er nýafstaðin sam-
eining við Svarfaðardalshrepp og
Dalvíkurbæ sem tekur gildi á miðju
næsta ári og ef menn hafa hug á að
flýta eitthvað framkvæmdum mun-
um við væntanlega hafa samráð við
nágranna okkar og tilvonandi sveit-
unga, en ég býst varla við að menn
stökkvi tiL Þó væri inni í myndinni
að taka heitt vatn til reynslu inn i
nokkur hús, t.d. í skólann sem er
stór notandi og stutt að fara með
lagnir," segir Kristján.
í nokkurn tíma hefur verið hugað
að því að hefja húshitun með heitu
vatni í Árskógshreppi. Kristján segir
að upphaflega hafi verið rætt mn að
fá vatn frá Dalvík, en kostnaður við
það hafl verið mikill vegna langrar
og dýrrar lagnar og varmatap hefði
orðið umtalsvert á leiðinni. -gk
Dulúð, ástir, örlög og
framtíðin . . .
Viltu kynnast sjálfum/
sjálfri þér á nýjan hátt?
Viltu kanna eigin sálardjúp
og sjá inn í framtíðina?
Hvers vegna ætlar
þú ad setja
Snorra Hjaltason í
5. sæti í prófkjöri
sjálfstæðismanna.
Þóra Guðmundsdóttir
"Maðurinn er alveg
óhennju duglegur"
Gunnar S. Björnsson
"Við þurfum mann með
þekkingu og reynslu í
byggingariðnaði
í þorgarstjórn"
Helga Þorkelsdóttir
"Hann lœtur til sín taka
í íþróttastarfi þarna
og unglinga"
Snorri Hjaltason
Maður með
reynslu
..úr atvinnulífinu
..úr íþróttastarfi
..af stjórnmálum
..aff félagsmálum
..af verkalýðsmálum
Snorri Hjaltason óskar eftir
þínum stuðningi í 5. sceti í prófkjöri
sjálfstœðismanna í Reykjavík 1997