Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1997, Side 4
4
FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1997
Fréttir___________________________d’
14 ára stúlka hætt komin:
Með sprunginn botn-
langa í 6 sólarhringa
- þrír læknar skoöuðu hana en töldu hana vera með kveisu eða vírussýkingu
Pála Hallgrímsdóttir meö foreldrum sínum, Ágústu Friðriksdóttur og Hallgrími Jónassyni.. Pála var hætt komin eftir
aö hún hafði veriö meö sprunginn botnlanga í sex daga. Prír læknar höfðu þá skoðað hana. DV-mynd S
14 ára stúlka, Pála Hallgrímsdótt-
ir, var mjög hætt komin á dögunum
eftir að hún hafði verið með sprung-
inn botnlanga í 6 sólarhringa. Stúlk-
an var skoðuð á þeim tíma af þrem-
ur læknum sem sögðu hana vera
með kveisu, virus- eða bakteríusýk-
ingu.
Pála var ekki send í rannsókn
fyrr en 6 sólarhringum eftir að hún
fann fyrst fyrir verkjum og þá
greindist hún með sprunginn botn-
langa. Þá var hún mjög illa haldin
af kvölum. DV frétti af veikindum
Pálu og spjallaði við foreldra henn-
ar, Ágústu Friðriksdóttur, og Hall-
grím Jónasson.
Sögö vera meö kveisu
„Aðdragandi veikindanna var sá
að Pála kom úr skólaferðalagi um
hádegi á fóstudegi. Þá var henni illt
í maganum. Verkurinn ágerðist eft-
ir því sem leið á daginn og um
kvöldið var hún orðin svo kvalin að
hún bar varla af sér. Henni var
bæði illt í maganum og flökurt. Þá
fórum við með hana á læknavaktina
við Barónsstíg. Þar var hún skoðuð
af lækni sem sagði hann að þetta
væri kveisa í uppsiglingu. Hún byrj-
aði að kasta upp strax eftir að hún
kom heim. Læknirinn hafði sagt að
við skyldum gefa henni Paraseta-
mól við verkjum og hita. Hún var
óskaplega veik um helgina og þó að
við gæfum henni ótakmarkað af
verkja- og hitalækkandi lyfum var
hún alltaf með tæplega 40 stiga
hita,“ segja Ágústa og Hallgrímur,
foreldrar Pálu.
Komin með óráö
„Á sunnudag var hún áfram með
mikla kviðverki, háan hita og
einnig komin með óráð. Þá fékk ég
heim lækni frá læknavaktinni sem
skoðaði hana. Hann sagði að hún
væri með vírussýkingu og við
skyldum halda áfram að gefa henni
verkja- og hitalækkandi lyf. Á
þriðjudeginum var ég í sambandi
við lækni og daginn eftir fór ég aft-
ur með hana til læknis. Hann skoð-
aði hana og sagði að hún væri með
bakteríusýkingu og skrifaði upp á
breiðvirkt sýklalyf sem við fórum
að gefa henni. Morguninn eftir var
hún ennþá með 40 stiga hita og orð-
in svo veik og máttfarin að hún gat
með herkjum staðið.
Loks í rannsókn
Þá vorum við foreldrarnir orðnir
ákveðnir í að það yrði að rannsaka
bamið. Hún var búin að vera fár-
veik í sex daga og engin batamerki
sjáanleg. Þá hringdi ég í heimilis-
lækni og sagði honum að við vild-
um að Pála yrði rannsökuð. Það
hlyti að þurfa að reyna að finna út
hvað væri að barninu þar sem hún
væri búin að vera svona mikið veik
í tæpa viku og hún væri hreinlega
að gefast upp. Þjáningamar, sem
hún var búin að ganga í gegnum,
voru óbærilegar. Læknirinn
hringdi þá niður á bráðamóttöku og
í framhaldi af því var hún strax
send í blóð- og þvagrannsókn og síð-
an í röntgenmyndatökur og sónar-
skoðun..
Þá kom í ljós að hún var búin að
vera með spmnginn botnlanga í 6
sólarhringa. Haft var samband við
skurðlækni þá um kvöldið og hann
látinn meta hvort hún færi strax í
skurðaðgerð. Þá kom í ljós að of
langt var síðan botnlanginn hafði
sprangið til að hægt væri að skera
hana strax. Hún var þá sett á mjög
sterka sýklalyfjameðferð sem hún
fékk í æð, einnig mikla næringu því
hún var ekkert búin að borða í um
viku,“ segja foreldrarnir.
Ásökum ekki læknana
Pála var á sjúkrahúsinu í 8 daga
en er nú nýkomin heim. Eftir tæpa
tvo mánuði fer hún í skurðaðgerö
og þá verður sprangni botnlanginn
fjarlægður. Fjölskyldan segist vona
innilega að ekki verði um meiri eft-
irköst að ræða.
„Það var geysilega vel hugsað um
Pálu á spítalanum, alveg frá því hún
kom inn á bráðamóttökuna og þang-
að til hún fór heim. Það er aðdáun-
arvert hversu vel er hugsað um
þessi veiku böm á spítölunum og
allt gert til þess að reyna að láta
þeim liða eins vel og hægt er. Öll
umönnun gat að mínu mati ekki
verið betri, hvorki gagnvart sjúk-
lingum eða aðstandendum þeirra.
Við viljum taka það fram að við
erum ekki að ásaka þessa lækna.
Það hefur eflaust verið erfitt að
greina þetta botnlangatilfelli hjá
Pálu og læknar eru líka mannlegir.
Þetta var mjög erfiður timi fyrir
okkur öll og auðvitað fyrst og
fremst fyrir Pálu,“ segja Ágústa og
Hallgrlmur. -RR
Dagfari
Orlæti Pósts og síma
Dagfari hefur ekki aðgang að
Intemetinu og hefur þess vegna
ekki tök á því að senda Pósti og
sima hamingjuóskir sínar og þakk-
arkveðjur á Netinu. Þeim er hér
með komið á framfæri. Pósti og
sima hefur verið breytt yfir í al-
menningshlutafélag í stað þess að
vera eitt af stærstu ríkisfyrirtækj-
um landsins. Nú eru að koma í ljós
kostir þessarar skipulagsbreyting-
ar. Nú kemur í ljós hversu við-
skiptavænt fyrirtækið er af því að
nú verður það að taka tillit til eig-
enda sinna, símnotenda og allra
viðskiptavina. Fyrirtækið er orðið
markaðsvænt.
Það sem hefur gerst er að landið
allt hefur verið gert að einu not-
endasvæði. í kjölfarið hefur Póstur
og sími lækkað utanbæjarslmtöl
verulega og fyrirtækið hefur sömu-
leiðis lækkað millilandasímtöl og
það eina sem hefur gerst og fólk er
að gera athugasemdir við, er að
innanbæjarsímtöl era hækkuð um
80% í kr. 1.99 per skref.
Þetta er ekki mikil hækkun í
Ijósi þeirrar lækkunar sem gerð er
á öðram símtölum, enda birtist
heilsíðu auglýsing frá Pósti og
síma í dagblöðunum í gær, þar sem
Póstur og simi óskar landsmönn-
um öllum til hamingju með þá
„ánægjulegu staðreynd" að simtöl
hér á landi eru með því lægsta sem
þekkist í heiminum.
Forsvarsmenn Pósts og síma sjá
sem sagt sérstaka ástæðu til að
flytja íslendingum hamingjuóskir í
tilefni þessara gjaldskrárbreytinga.
Svo kemur borgarráð Reykjavík-
ur og mótmælir einhverri hækkun,
sem ekki er orð á gerandi! Og al-
þingismenn kveðja sér hljóðs utan
dagskrár til að gera mál út af þeirri
tillitssemi sem Póstur og simi hef-
ur sýnt viðskiptavinum sínum!
Era laun heimsins ekkert nema
vanþakklæti? Gera menn sér til
dæmis grein fyrir því að Póstur og
sími telur sig tapa um eitt hundrað
milljónum króna á þessum breyt-
ingum? Það er áreiðanlega eins-
dæmi í heiminum að stórt og öflugt
fyrirtæki, sem ræður algjörlega
markaðnum og getur gert sem þvi
sýnist með símgjöldin, skuli breyta
gjaldskrám sínum til aö ná fram
tapi í rekstrinum!!
Þeir era ekkert að leika sér að
þessu. Þeir lækka ekki utanbæjar-
símtölin og þeir hækka ekki innan-
bæjarsímtölin, nema vegna þess að
það er í þágu símnotenda og fyrir-
tækið tekur jafnvel á sig stórt tap,
til þess eins að geðjast viðskipta-
vinum sínum.
Og svo eru menn að rífast út af
þessu og mótmæla 80% hækkun,
þegar allir sjá að sú hækkun er
„ánægjuleg staðreynd" í ljósi þeirr-
ar hagræðingar sem af henni hlýst
og tapinu sem hún hefur í fór með
sér.
Fjölmiðlar hafa verið að krefja
Póst og sima svara um forsendum-
ar fyrir breytingunum á gjald-
skránni. Póstur og sími hefur neit-
að að gefa þær upp, enda viðskipta-
leyndarmál. Aðrir mega auðvitað
ekki komást að því hvemig Póstnr
og sími fer að því að hækka gjöld-
in hjá obbanum af þjóðinni til þess
eins að tapa á þvi.
Sérstaklega er það varasamt
gagnvart keppinautunum á mark-
aðanum, sem að visu era ekki enn
þá fyrir hendi, en maður veit
aldrei nema einhver geti hækkað
gjöldin enn meir og þess vegna er
best að segja sem minnst. Og alls
ekki í símann.
Nema þá í símtölum til útlanda.
Þau eru ódýrust, þannig að ef
menn vilja tala innanbæjar, þá er
um að gera að skreppa til útlanda
til að hringja þaðan.
Dagfari