Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1997, Side 24
32
FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1997
LITLA
iip
PV
TEIKNISAMKEPPNI
14
LEITIN AÐ JÓLAKORTI DV
DV efnir til teiknisamkeppni meðal krakka á grunnskólaaldri.
Viðfangsefnið er jólakort DV og (?urfa innsendar myndir
því að vera í lit og tengjast jólunum.
Vinningsmyndin verður notuð sem jólakort DV1997.
Glassileg verðlaun í boði fyrir jólakort DV:
FYRSTU VERÐLAUN:
Ferðataski m/geislaspilara
2ja diska spilari, X- Bass kasetta,
útvarp - FM,MW og LW.
ÖNNUR VERÐLAUN:
4.900
4.500
Vasadiskó m/útvarpi
Utvarp: FM, MW, segulband X-bass,
3ja blöndu tónjafnari
ÞRIÐJU VERCLAUN:
0PIOMEER’
Pioneer-heyrnatól — mjög vönduð,
Hylja allt eyrað.
Fægileg með úrvals hljómburði.
Skilafrestur er til laugardagsins 20. nóvember nk.
Utanáekríft er.
Krakkaklúbbur DV, Pverholti 11,105 Peykjavík.
Merkt: DV-jólakort Teiknisamkeppni
B R Æ O U R N I R
Liam í Oasis fékk æðiskast:
Elti fréttamenn
og réðst á bíl
Hinir alræmdu Oasisbræður
Liam og Noel Gallagher hafa
hneykslað bresku þjóðina enn
einu sinni. Reiðir hlustendur
hringdu til útvarpsstöövarinnar
BBC og kvörtuðu undan þvi hvað
Liam hefði verið orðljótur. Og
þingmaður breska íhaldsflokksins
-sakaði BBC um ábyrgðarleysi fyr-
ir að hafa látið bræðuma Ijá sig í
útvarpinu.
Noel sagði meðal annars í út-
varpsviðtali að hann væri hlynnt-
ur fíkniefniun og yngri bróðir
hans tók undir. Síðan bætti Noel
því við að væri hann borgarstjóri
í London myndi hann leyfa fikni-
efnaneyslu. Eftir útvarpsþáttinn
sátu fréttamenn um heimili Liams
til að fá hann til að tjá sig um um-
mælin í útvarpinu. Liam reiddist
og elti tvær fréttakonur eftir göt-
unni. Hann réðst síðan á bíl
þeirra. í bílnum sat dauðhræddur
ljósmyndari.
Liam kvaðst ekki sjá eftir því
að hafa blótað í útvarpinu og öskr-
aði: Ég er hundleiður á ykkur.
Farið til helvítis áður en ég lem
ykkur.
Sviðsljós
Hillary Clinton forsetafrú gat ekki heimsótt fæðingarborg sína, Chicago, án
þess að banka upp á hjá annarri vinsælli og valdamikilli konu,
sjónvarpsstjörnunni Opruh Winfrey. Vel fór á með þeim stöllum.
Knattspyrnuhetjan er ekta Frakki:
Cantona á vin-
gott við leikkonu
Eric Cantona er ekki franskur
fyrir ekki neitt. Þessi fyrrum
stjömuleikmaður breska fótboltafé-
lagsins Manchester United hefur
orðið uppvís að því að leika sér með
frönsku leikkonunni Béatrice Dalle
þegar hann er að heiman. Eric er
kvæntur maður, fyrir þá sem ekki
vissu.
Árvökulir gestir Atlantic veit-
ingastaðarins í London, þar sem
fræga og ríka fólkið heldur jafnan
til, tóku eftir skötuhjúunum um
daginn þar sem þau vom í innileg-
um faðmlögum. Og kannski pínulít-
ið meira.
Þeir sem til þekkja vom nokkuð
hissa á þessu uppátæki knatt-
spymuhetjunnar. Cantona er nefni-
lega ekki vanur að flíka einkalífi
sínu svona á almannafæri, að
minnsta kosti ekki þessum hluta
þess. Annars er Cantona á Englandi
til að leika í kvikmynd um Elísa-
betu drottningu hina fyrstu.
Á meðan þessu fer fram situr eig-
inkonan Isabelle heima i Barcelona
með bömunum tveimur.
„Þau höguðu sér alveg eins og
par. Þau hölluðu sér hvort upp að
öðra og hvísluðu í eyra hvort ann-
ars og flissuðu. Þá slengdi Cantona
handleggjunum utan um hana og
tók að kyssa hana af áfergju. Ég var
virkilega hissa af því að ég veit að
hann er kvæntur," var haft eftir
einum fastagesti veitingastaðarins
sem fylgdist með atganginum.
Béatrice Dalle, sem hefur
afskaplega kyssilegan munn, er
frægust fyrir leik sinn í myndinni
um hana Betty Blue.
Béatrice Dalle er nýjasta ástkona
Erics Cantona fótboltakappa.
Vinningshafar í Hafmeyjuleiknum
1.-2. verðlaun: Glæsilegar dúkkur úr ævintýrinu Hringjarinn
í Notre Dame og myndbandið með Litlu Hafmeyjunni nr. 1.
Birna Guðmundsdóttir nr. 6884
Jóhann Pálmar Harðarson nr. 11334
Þengill Pór Vilhjálmsson nr. 12115
Valdís María Einarsdóttir nr. 5694
Ásgeir Tómasson nr. 6477
Birna Karen nr. 7021
Guðfinna Hávarðardóttir nr. 8752
Berglind Eir Egilsdóttir nr. 10995
Elín Ösp Axelsdóttir nr. 10611
Kolbrún Davíðsdóttir nr. 2314
Sigríður Óskarsdóttir nr. 2899
Heiðrún Skarphéðinsdóttir nr. 9852
Orri Óli Emmanúelsson nr. 11951
Vésteinn Bjarnason nr. 11424
Magnús Þór Ingólfsson nr. 11008
Guðmunda Gunnarsdóttir nr. 4876
Björg Inga Erlendsdóttir nr. 10934
Heba Katrín Sigþórsdóttir nr. 7998
Sandra og Sindri Helgabörn nr. 8931
og 8930.
MM
Kæru vinningshafar. Til hamingju - njótið vel.
Krakkaklúbbur DV og SAM-myndbönd þakka öllum
sem voru með kærlega fyrir frábæra þátttöku.
Vinningarnir verða sendir vinningshöfum í pósti
næstu daga.
3.-20. verðlaun: Myndbandið um Litlu
hafmeyjuna nr. 1 eða nr. 2.
Bowie erríkastur
David Bowie er ríkastur í
poppheiminum, að því er tímaritið
BusinessAge fullyrðir. Söngvarinn
á eignir sem metnar em á um 65
milljarða íslenskra króna. Bowie
er einnig sagður vera meðal 25
auðugustu manna Bretlands.
Bítillinn Paul McCartney er
næstríkasta poppstjarnan. Eignir
hans em metnar á rúmlega 61
milljarð íslenskra króna. í þriðja
sæti er Tom Jones sem á rúmlega
32 milljarða. Phil Collins er i
fjórða sæti. Hann á 26 milljarða.
Kryddstelpurnar em í 42. sæti á
lista yfir ríkustu Bretana og eiga
tæpa tvo milljarða íslenskra
króna.