Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1997, Blaðsíða 28
36
FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1997
ífi
Síminn og
neytandinn
Það væri eðlilegra að stjórn-
völd hér á landi gengju til liðs
við Neytendasamtökin um aukna
neytendavemd í símaþjónustu í
stað þess að gæta hagsmuna ein-
okunarfyrirtækisins."
Jóhannes Gunnarsson, fram-
kvæmdastj. Neytendasamta-
kanna, í DV.
Neytendur eiga ekki
að ráða
„Hagsmunasamtök neytenda
geta ekki ráðið kostnaðarverði á
síma hér innanlands."
Halldór Blöndal samgönguráð-
herra, í DV.
Klassískt ippon
„Mér sýnist þetta hafa verið
ósköp klassískt ippon fyrir kenn-
ara.“
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastj. VSÍ, um kennara-
samningana, í Degi.
Ummæli
Menn éta ekki prósentur
„Það sem ég vil nú segja um
þennan samning svona fljótt á
litið er að menn éta ekki prósent-
ur.“
Sigtryggur Karlsson kennari,
um kennarasamningana, í
Degi.
Ekki göfugur tilgangur
„Það hefur ekkert upp á sig að
fara þama inn ef halda á áfram
sama hráskinnsleiknum. Það
yrði aðeins til að auka ferða-
kostnað ríkisins sem er ekki göf-
ugur tilgangur."
Halldór Asgrímsson utanríkis-
ráðherra, um aðild að Alþjóða
hvalveiðiráðinu, í DV.
Hæsta tréð á íslandi, sem er í
Hallormsstaðarskógi, mælt.
Hæsíu trén
Stutt er síðan Sunnlendingar
efuðust um að hæsta tré á íslandi
væri í Hallormsstaðarskógi en
urðu síðan að lúta í lægra haldi
þegar trén höfðu verið mæld.
Tréð í Hallormsstaðarskógi er þó
ekki hátt miðað við hæstu tré
sem mæld hafa verið í heimin-
um.
Blessuð veröldin
Samkvæmt rannsóknum sem
gerðsir vom var hæsta tréð sem
mælt hefur verið myrtutré af teg-
undinni Eucalyptus regnans sem
óx við Watts-ána í Victoriu í
Ástralíu. Skýrt var frá því árið
1872 að tréð hefði mælst 132,58
metrar. Talið er að þetta tré hafi
náð 150 metra hæð þegar það var
hæst.
Hæsta tré sem nú stendur er
„Harry Cole tréö“ í Humboldt
County í Kalifomíu. Var það 113
metra hátt þegar það var síðast
mælt. Hæsta lauftré sem nú
stendur er myrtratré (Eucalypt-
us regnans) í Styx-dalknum í
Tasmaníu. Það er 95 metra hátt.
Björgunarsveitir á
Austurlandi
Ú
Orn,
Bakkafirði
ÚVopni
Vonn?
Vopnafirði
DSveinungi,
Borgarfirði
Jökull,
Jökuldal [ 1
ísólfur,
Hjáiparsveit skáta, /
Fellabæ
GróT^ |/N|
Egilsstöðum _ _ '—'
Arsöl,
Reyðarfirði
Seyðisfirði
Gerpir,
Neskaupstað
Brimrún,
Hjálparsveit skáta
.— Eskifirði
Geisli,
Fáskrúðsfirði
Björgólfur,
Stöðvarfirði
ÚEining,
Breiðdalsvík
Báran,
Djúpavogi
DV
Sigríður Ólafsdóttir, varaformaður Verkamannasambands íslands:
Fór að keyra öskubíl
þegar ég var tvítug
Stutt er síðan þingi Verkamanna-
sambandsins lauk. Þar var kosinn
nýr varaformaður, Sigríður Ólafs-
dóttir, sem einnig er varaformaður
Dagsbrúnar. Sigríður er búin að
vera lengi í verkalýðsbaráttunni og
í stuttu spjalli var hún fyrst spurð
hvort ekki væri tímafrekt að gegna
varaformennsku í tveimur stóram
samtökum: „Jú, það getur verið það.
Það koma þeir tímar sem mikið er
um að vera annaðhvort hjá Dags-
brún eða Verkamannasambandinu,
og oft tvinnast þetta saman, þá fer
mikill tími hjá mér í félagsmálin.
Það vill svo til að ég hef fengið þann
tíma sem ég hef þurft frá mínu
starfi enda má kannski segja að sem
aðaltrúnaðarmaður Dagsbrúnar hjá
borginni sé ég stöðugt að vesenast í
málum sem stundum renna saman
viö stjómarsetu mina.“
Meðfram því að vera aðaltrúnað-
armaður starfar Sigríður hjá Sorp-
hreinsun borgarinnar. „Ég sé um að
fara í fyrirtæki út af flokkun á sorpi
þannig að ég get dálítið ráðið ferð-
inni og því get ég sinnt félagsmálun-
um þegar á þarf að halda.“
Sigríður er búin að starfa hjá
borginni i tæp tuttugu og tvö ár.
„Ég byrjaði að vinna hjá borginni
þegar ég var sautján ára gömul og
hef verið þar síð-
an. Ég var tutt-
ugu ára þegar ég
fór að keyra
öskubíl sem vakti
nokkra athygli.
Það var mikið
horft á mig þegar
ég var að keyra
öskubílinn."
Sigríður byrj-
aði að starfa sem
trúnaðarmaður
Dagsbrúnar hjá
Sorphreinsun-
inni árið 1987.
„Ég verð aðal-
trúnaðarmaður
1990 og sama ár
kosin í stjórn
Dagsbrúnar.
Þetta hefur síðan
stöðugt verið að
vinda upp á sig.“
Margvíslegt
starf er fram und-
an bæði hjá
Verkamannasambandinu og Dags-
brún. „Hjá Verkamannasamband-
inu er það meðal annars fram und-
an að nú á að fara að einbeita sér að
starfsmenntamálum fyrir ófaglært
fólk. Það er mjög spennandi mál
sem þarf að
vinna vel að. í
Dagsbrún ber
hæst sameiningu
Dagsbrúnar og
Framsóknar og
er mikil vinna
lögð í það mál.
Við stöndum
núna í lagabreyt-
ingum og alls-
herjaratkvæða-
greiðsla rnn lögin
verður í lok nóv-
ember og stofn-
samningurinn
verður síðan til-
búinn í byrjun
desember. Það
verður siðan
mikil vinna fram
á vor í að koma
þessu máli 1
höfn.“
Ekki fer allur
tími Sigríðar i fé-
lagsmálin. Hún
hefur alla tíð haft mikinn áhuga á
bílum og mótorhjólum: „Ég er dellu-
manneskja og hef alltaf verið dálítill
strákur í mér og bíladellan hefur
lengi loðað við mig. Þá hef ég kennt
á bíl í hjáverkum." -HK
Sigriöur Ólafsdóttir.
Maður dagsins
Myndgátan
Fjársvikamál
Myndgátan hér aö ofan lýsir nafnorði.
Á myndinni eru leikmenn ÍR og
KFI í hörðum slag undir körfunni,
bæði þessi lið verða í eldlínunni í
kvöld.
Fimm leikir
í körfu-
boltanum
Fimmta umferðin í Úrvals-
deild karla í körfuboltanum
verður leikin í kvöld, fyrir utan
einn leik, og eru margir spenn-
andi leikir á dagskrá. í Grinda-
vík mæta heimamenn ÍA, í Höll-
inni á Akureyri keppa Þór og
Skallagrímur, á Seltjarnarnesi
taka KR-ingar á móti ísfirðing-
unum i KFÍ, í íþróttahúsinu við
Strandgötu í Hafnarfírði leika
Haukar og ÍR og í Valsheimilinu
leika Valur og Njarðvíkingar.
Allir leikimir hefjast kl. 20.
íþróttir
Á morgun leika síðan á Sauð-
árkróki Tindastóll og Keflavík.
Einn leikur í 1. deild karla verð-
ur einnig annað kvöld og fer sá
leikur fram í Borgarnesi. Þar eig-
ast við Stafholtstungur og ÍS.
Fjöldi leikja er síðan á dagskrá
um helgina en þá er keppt í Fjöl-
liðamótinu.
Bridge
Pólverjinn Piotr Gawrys þykir
vera grimmur í sögnum og tekur oft
mikla áhættu. I þessu spili leiddi
sagnharka hans til ævintýralegrar
niðurstöðu í vonlausum samningi.
Gawrys sat í suður, vestur gjafari
og allir utan hættu:
f K8
* G2
* 74
* DG109432
Vestur Norður Austur Suður
14 2 ♦ 2 * 2 grönd
3 * 3 grönd p/h
Spilið er úr bókinni The Times
Book of Bridge sem bókaforlagið
Batsford gaf út í siðasta mánuði.
Gawrys átti góðan tígulstuðning en
vildi ógjarnan taka undir með
veiklulegri þriggja tígla sögn.
Tveggja granda sögn hans hefur ef-
laust verið hugsuð til þess að letja
andstæðingana áframhalds í sögn-
um. Hvílíkur vitleysissamningur!
hugsa eflaust flestir, AV geta tekið 8
fyrstu slagina í þremur gröndum.
En setjum okkur nú í spor aummgja
vesturs. Hann taldi austar eðlilega
eiga þriggja spila stuðning í spaða
og sagnhafi hlaut að eiga Kx í
spaða. Útspil vesturs var því hjarta-
kóngur. Þegar hann barði blindan
augum spilaði hann laufi. Gawrys
drap á ásinn heima, spilaði tígli á
ÁK og síðan hjarta úr blindum eins
og sá sem er í vonlausu spili.
Gawrys drap gosa austurs á drottn-
ingu og vestur yfirdrap á hjartaás.
Vestur var nú sannfærður um að
austur ætti innkomu á tigul og taldi
enn síður en áður ástæðu til að
hreyfa spaðann. Hann spilaði því
aftur laufi og skyndilega átti
Gawrys 9 slagi í þessum ótrúlega
samningi. ísak Örn Sigurðsson
4 ÁD10932
* ÁK74
•f 5
* 75