Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1997, Síða 31
DV LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1997
%!k
Guðjón Sveinsson, rithöfundur á
Breiðdalsvík, gefur nú út þriðju
bókina um Daníel, Sagan af Daníel.
Hann hefur gefið þær ailar út sjálf-
ur og segist ekki hafa borið af því
fjárhagslegan skaða.
DV-mynd Steinar
sagt að þarna væri komin holl lesn-
ing fyrir ungt fólk. Bækurnar væru
vel skrifaðar.
Námið hefði styrkt
„Skrifin hafa gengið ágætlega en
ég hef þó alltaf séð eftir því að hafa
ekki hlustað á móður mína sem
vildi að ég færi í framhaldsnám eft-
ir landspróf. Menn verða vitanlega
ekki rithöfundar af því einu að fara
í nám en ég er ekki í vafa um að það
hefði styrkt mig í þessu,“ segir rit-
höfundirinn sem hefur verið að í
áratugi og reiknar með að útgefnir
titlar séu orðnir um þrjátíu talsins.
Mest hefur hann gefið út af bama-
bókum.
Guðjón segir að Daníel eigi sér
vissulega fyrirmynd, sem og ýmsar
persónur og sumir staðir í bókinni.
„Daníel var góður vinur minn
sem tók líf sitt eftir erfiðleika og
baráttu. Ég hef haft góðan tíma til
- segir Guðjón Sveinsson, rithöfundur á Breiðdalsvík
„Ég hef stundum spurt sjálfan
mig að því hvað fái mig til þess að
vera að vinna að þó þetta stóru
verkefni hér á hjara veraldar. Ég
svara því þannig að þetta hljóti að
vera bilun. Ég verð ekki ríkur og
ekki heldur frægur. Bilun er því sú
niðurstaða sem ég kemst að,“ segir
Guðjón Sveinsson, rithöfundur á
Breiðdalsvik. Hann er nú að gefa út
þriðja bindið af bókinni Sagan af
Daníel. Bókin ber undirtitilinn Á
bárunnar bláu slóð.
Fyrsta bindið um Daniel kom út
1994 og hafði handritið þá verið til-
búið í ein tvö ár. Hann hafði „skrið-
ið milli útgefenda" til þess að reyna
að fá hana gefna út. Þeir sáu eitt-
hvað i henni en þar sem en-in og ef-
in voru orðin óþarflega mörg fannst
Guðjóni hann vera að eyða tíma sín-
um til einskis. Valið stóð því á milli
þess að henda handritinu ofan í
skúffu eða gefa það út sjálfur.
Keyrði mig út
„Mér fannst ekki annað hægt en
að þetta kæmi út og því fór ég af
stað út í þetta ævintýri. Önnur bók-
in var langt komin þar sem sú
fyrsta hafði beðið tilbúin nokkra
hríð og því gat ég gefið hana út
strax árið eftir. Síðan leið ár á milli.
Ég var orðinn mjög þreyttur en
ágætur bókavörður hér, sem hefur
lesið handritin yfir og aðstoðað mig
á ýmsan hátt, hvatti mig til þess að
reyna að láta ekki líða lengri tíma.
Ég keyrði mig alveg út en held að
það hafi ekki komið niður á efni
bókarinnar. Það er eiginlega óhætt
að segja að ég sé eins og undin
drusla í dag^svo mikil orka fór í að
klára bókina í tíma.“
Guðjón segist nokkuð sannfærður
um að enginn hefði héraðsbrestur-
inn orðið þótt Daníel hefði ekki
komið út. Hann hefur þó áhyggjur
af því að markaðslögmálið sé farið
að ráða svo miklu að vera kunni að
fólk verði af góðum bókum fyrir
vikið. Hann segist þó hafa fengið
slíka dóma að hann telji að bækum-
ar skilji eftir örlítið spor í íslenskri
tungu. Um annað bindið hafi verið
að velta efniviðnum fyrir mér og er
ekki i nokkmm vafa um að Daníel
lítur annað slagið yfir öxlina á mér
og hvíslar að mér ýmsum hlutum
sem ég var búinn að gleyma en rifj-
ast upp á einkennilegan hátt. Ég nýt
þess að skrifa og þar sem ég hef
ekki borið fjárhagslegan skaða af
þessu brölti mun ég halda þvi eitt-
hvað áfram. Ég er rétt að komast af
stað með fjórðu bókina," segir Guð-
jón Sveinsson rithöfundur.
-sv
Halldór Andri ásamt afa sínum, Sveinbirni Árnasyni, bónda á Kálfsá.
DV-mynd HJ
Fjórtán ára drengur í Úlafsfirði:
Annast refabú afa síns
DV, Úlafsfirðí:____________________________
Fjórtán ára drengur í Ólafsfirði,
Halldór Andri Ámason, annaðist
refabú afa síns í sumar og vinnur
enn hjá honum um helgar eftir að
skólinn byrjaði. Hann fer reglulega
fram í sveit, að Kálfsá, til að sinna
vinnunni sem jafnframt er mikið
áhugamál hjá honum.
Afi drengsins, Sveinbjörn Árna-
son, bóndi á Kálfsá, kom á fót refa-
búi árið 1985 í gamalli hlöðu. Svein-
bjöm var einn þeirra örfáu sem á
sínum tíma lögðu ekki út i óheyri-
lega fjárfestingu, enda fór hann ekki
á hausinn og þraukar enn. í haust
komu góðar fréttir um að verð á
refaskinni hafði hækkað umtals-
vert.
Halldór Andri annaðist búið al-
einn í heilan mánuð, á meðan afi
hans og amma fóm í ferðlag til út-
landa. Halldór Andri vaknaði eld-
snemma á morgnana til að moka
skít og gefa dýrunum.
Halldór Andri segir að þessi vinna
sé stundum skemmtileg og hann vilji
miklu frekar vinna þarna heldm- en
í bæjarvinnunni á sumrin. -HJ
Tilboðsdagar
frábært úrval
af glæsilegum
sófum
20% afsláttur
af klukkum
og glösum
ný sending