Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1997, Side 34
LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1997 JjV
34 *
fréttaljós
Goðsögn á glapstigum
Winnie Madikizela-Mandela, sem
neitar öllum ásökunum er fram
hafa verið bomar gegn henni fyrir
Sannleiks- og sáttanefnd Suður-Afr-
íku og lýsir sjálfri sér sem einfaldri
sveitastúlku, komst í sviðsljósið
1958 vegna ástarsambands. Þá
skildi Nelson Mandela við eigin-
konu sína Evelyn til að geta gifst
Winnie.
Fjórum árum síðar var Nelson
handtekinn og dæmdur í lífstíðar-
fangelsi fyrir meint samsæri gegn
stjórn kynþáttaaðskilnaðarstefn-
unnar. Sjálf mátti Winnie þola tíðar
handtökur og henni var vísað til
bæjarins Brandforts þar sem hún ól
upp dætur sínar tvær, Zenani og
Zindzi. Lögreglan kom oft í heim-
sókn um miðjar nætur og barðist
Winnie í bókstaflegri merkingu við
lögreglumennina. Ekki var óvana-
legt að lögreglan léti grjóti rigna á
blikkþakinu á húsi fjölskyldunnar
til að trufla nætursvefn hennar og
eitt sinn ruddust lögreglumenn inn
á ungar dætumar þar sem þær lágu
í baði. Einangrunin fór illa með
Winnie. Hún fylltist hatri og reis
upp gegn stjóm hvítra.
Afengissjúklingur með
ofsóknarnrjálæöi
Stuðningsmenn Winnie kölluðu
hana „Móður þjóðarinnar“. Hún
var alþjóðlegt tákn baráttunnar
gegn aðskilnaðarstefnunni. Um
allan heim töluðu menn um eig-
inkonu Nelsons Mandela sem
ekki léti kúga sig. Hún varð
að goðsögn. Hún var alltaf í
fremstu víglínu. Hún var
alltaf á bandi þeirra veik-
ustu. Hún barðist stöðugt
fyrir því að fá eiginmann
sinn, Nelson sem var fremsti
óvinur stjómar hvítra
manna, látinn lausan.
Þaö vom fáir sem minntust á
meintar neikvæðar hliðar Winnie,
að henni væri ekki hægt að treysta,
að hún væri áfengissjúklingur, að
hún væri með ofsóknarbrjálæði og
að hún væri harðstjóri.
Winnie var umkringd ungum
mönnum sem gegndu starfi lífvarða
hennar. Þeir kölluðu sjálfa sig
knattspymulið Mandela, Mandela
United Football Club. Ásamt Winnie
fóm þeir með yfirráðin í Soweto, út-
hverfi blökkumanna í Jóhannesar-
borg, eftir að hún sneri þangað úr
útlegðinni 1986. Winnie og félagar
hennar töldu nauðsyn á að refsa
þeim sem grunaöir vora um að
veita lögreglunni upplýsingar og
þau sáu sjálf um refsingamar.
Nelson Mandela, sem frétti hjá
leiðtogum Afríska þjóðarráðsins af
skelfingunni sem lífverðir eigin-
konu hans ollu, gerði boð eftir
konu sinni í fang-
elsið hvað eftir
annað. Hann skip-
aði henni að leysa
upp lífvarðasveit
sína en hún neit-
aði.
Árum saman
reyndi Afríska
þjóðarráðið að
kveða niður
orðróminn um
eiginkonu núver-
andi forseta Suð-
ur-Afríku. Árið
1989 hafnaði ráðið Winnie og líf-
vörðum hennar opinberlega. Hún
neitaði enn að leysa sveit sína upp.
Hjónabandið eyðilagt
Þegar Nelson Mandela var látinn
laus úr fangelsi 11. febrúar 1990 eft-
ir 27 ára fangavist hélt hann í hönd
konunnar sem hann elskaði. Hann
uppgötvaði hins vegar skjótt að ára-
langur aðskilnaður hafði eyöilagt
hjónaband þeirra. Árið 1992 skildu
Winnie og Nelson að borði og sæng.
Það var svo í fyrra sem Nelson fékk
lögskilnað frá Winnie. Hann bar
upp á hana hjúskaparbrot og sagði
að hún hefði ekki komið i rúm hans
á meðan hann var vakandi í eitt ein-
asta skipti frá því aö hann var lát-
inn laus.
Winnie og félagar í knattspymu-
liði hennar vora sökuð um mann-
rán, árásir og morð á unglingum,
þar á meðal 14 ára dreng, Stompie
Seipei, um það leyti sem Nelson var
látinn laus. Árið 1991 var Winnie
dæmd í sex ára fangelsi fyrir mann-
rán. Dómurinn var mildaður og
Winnie þurfti aðeins að greiða sekt.
Jerry Richardson, þjálfari knatt-
spymuliðsins, var dæmdur fyrir
morðið á Seipei og dæmd-
ur til dauða. Dóminum
var breytt í lífstíðar-
fangelsi.
í vitnaleiðslum hjá
sannleiksnefndinni
í þessari viku
kvaðst Richard-
son hafa farið
eftir skipunum
Winnie. Ric-
hardson er
bara einn
af
tekið á leigu þotu og flogið til
Angóla til að sækja demanta.
Winnie var sögð vera í peninga-
vandræðum. Vinir hennar hefðu
orðið að aðstoða hana fjárhagslega
til að hún gæti greitt af-
borganir af húsinu í
Soweto á meðan
eiginmaður
hennar var í
fangelsi. Samt
átti hún að
hafa fengið
tugmilljóna
króna að-
meðan Winnie var fjarverandi gerði
lögreglan, sem rannsakaði meinta
spillingu hennar, húsleit á heimili
hennar og skrifstofum.
Nelson Mandela rak fyrrverandi
eiginkonu sína úr ríkis-
stjórn sinni. Þau
deildu hart fyrir
dómstólum um
tæknilega hlið
brottreksturs-
ins. Síðan
hefur rikis-
stjómin,
með tak-
mörkuðum
árangri,
reynt að fá
Winnie til að
skila búnaði
sem hún fékk
sínar hendur
þegar hún
gegndi starfi að-
stoðarráðherra.
Einnig er verið að
reyna að fá hana
til að endur-
greiða út-
lagðan
mörgum fé-
lögum í knattspyrnuliðinu
sem undanfarna viku
hafa vitnað gegn henni
frammi fyrir Sannleiks-
og sáttanefnd Suður-
Afríku til að létta á
samviskunni og til að
biðja um sakarapp-
gjöf vegna gamalla
synda.
Pólitískur
rv_jy Winnie Madikizela
I UIIIX fimmtudaginn.
Um það leyti sem
Winnie var dæmd sagði hún af sér
öllum störfum innan Afríska þjóðar-
ráðsins. En í desember 1993 var hún
aftur komin á fulla ferð og var kjör-
in forseti kvennadeildar ráðsins.
Sumir hafa lýst Winnie sem
pólitískum Fönix sem hafi áhuga á
forsetaembættinu.
Winnie hefur
boðið sig fram í
embætti varafor-
seta Afríska þjóð-
arráðsins. Staðan
losnar þegar Nel-
son Mandela segir
af sér flokksfor-
mennsku á næst-
unni, og núver-
andi varaforseti
ráðsins, Thabo
Mbeki, tekur við
sæti hans. Það er
því mikið í húfi. Og það þykir ekki
bara mikið í húfi fyrir Winnie held-
ur fyrir alla Suður-Afríku.
Winnie vann sæti á þingi Suður-
Afríku í kosningunum í apríl 1994
sem vora þær fyrstu sem allir kyn-
flokkar fengu að taka þátt í. Winnie
fékk embætti aðstoðarráðherra
lista, menningar, vísinda og tækni.
En hneykslismálin í kringum
Winnie héldu áfram. Fiölmiðlar í
Suður-Afríku greindu frá því að fyr-
irtæki nokkurt hefði stefnt henni
vegna skuldar. Winnie átti að hafa
Mandela sver eiö fyrir Sannleiks- og sáttanefndinni í Suöur-Afríku í Jóhannesarborg á
Símamynd Reuter
stoð frá Nelson.
í febrúar 1995 krafðist Nelson þess
að Winnie bæðist opinberlega afsök-
unar vegna gagnrýni á ríkisstjóm
hans. Hún fór síðar í heimsókn til
Vestur-Afríku gegn vilja hans. Á
kostnað sem hún hafði ekki heimild
fyrir.
Vitnaleiðslur undanfarinna daga
hafa verið hörð árás á Winnie
Mandela. Þúsundir manna, sem
tengdust Afríska þjóðarráðinu og
Nelson Mandela og Winnie í febrúar 1990 á leiö frá knattspyrnuleikvangi í
Soweto aö lokinni fyrstu ræöunni sem Nelson hélt fyrir stuöningsmenn sína
eftir aö hann var látinn laus úr fangelsi. Símamynd Reuter
fyrrverandi stjómvöldum, hafa beð-
ið um sakarappgjöf. En það hefur
Winnie ekki gert. Hún segist ekkert
hafa á samviskunni. Sannleiks- og
sáttanefhdin hefur ekki umboð til
að ákæra. Nefndin afhendir hins
vegar málið rikislögmánni sem tek-
ur ákvörðun um hvort grundvöllur
sé fyrir ákæra.
Winnie hefur verið granuð um
að standa að baki átján alvarlegum
mannréttindabrotum, þar á meðal
mannránum, árásum og að minnsta
kosti sex morðum. Það var fótbolta-
klúbburinn sem framkvæmdi verk-
in.
Fyrirskipanir um morð
Sum vitnanna hafa greint frá því
að Winnie hafi tekið þátt í barsmíð-
unum á fómarlömbunum. Eitt vitn-
anna, Katiza Cebekhulu, sem flaug
frá Bretlandi þar sem honum var
veitt hæli, til að vitna, kvaðst hafa
séð Winnie stinga áðurnefndan
Seipei til bana. Þjálfari fótboltaliðs
Winnie, Jerry Richardson, hefur
hins vegar játað á sig morðið á
Seipei sem hann sagðist hafa framið
ásamt öðram manni. Hann sagði
Winnie hafa horft á þegar drengn-
um var misþyrmt. Drengurinn var
barinn vegna gruns um að vera
uppljóstrari.
Seipei var meðal fiögurra
unglinga sem lífverðir
Winnie rændu frá prestsbú-
stað. Kváðust lífverðimir
hafa rænt piltunum vegna
þess að presturinn hefði
áreitt þá kynferðislega.
Tveir piltanna drógu til
baka vitnisburð sinn um
kynferðislega áreitni. Þeir
sögðu hins vegar að þeir
hefðu sætt miklum bar-
smíðum heima hjá Winnie
Mandela í refsingarskyni
fyrir að hafa leyft prestin-
um að misnota þá.
Meðal sakanna sem Ric-
hardson bar á Winnie fyr-
ir Sannleiks- og sátta-
nefndinni vora fyrirskip-
anir um morð á Lolo
Sono og Sibusiso
Shabalala sem hurfu i
nóvember 1988. Richard-
son sagði að þeir hefðu
verið myrtir eftir að hann
hafði ranglega sakað þá
um að hafa svikið tvo fé-
laga f hinum vopnaða
væng Afríska þjóðarráðs-
ins. Það hefði hins vegar verið hann
sjálfur sem sagði lögreglunni frá
starfsemi þeirra.
Nicodemus Sono sagði sannleiks-
nefndinni frá þvi að hann hefði síð-
ast séð son sinn Lolo í litlum sendi-
bíl með Winnie. Sonurinn hefði ver-
ið illa leikinn eftir barsmíðar en
Winnie hefði neitað að sleppa hon-
um þar sem hann væri uppljóstrari.
Starfsmenn sannleiksnefhdarinnar
höfðu samband við ökumann sendi-
bílsins í síðustu viku. Hann stað-
festi vitnisburð Sonos en neitaði
frekari samvinnu eftir að Winnie
Mandela hafði samband við hann.
Winnie er einnig bendluð viö morð
ið á lækninum Abu Baker Asvat
sem var heimilislæknir fiölskyld-
unnar þar til hann var skotinn til
bana á stofu sinni i janúar 1989.
Tveir menn, sem voru dæmdir fyrir
morðið, sögðu Winnie hafa boðið
þeim fé fyrir að myrða lækninn þar
sem vitnisburður hans hefði getað
tengt hana við morðið á Seipei.
Richardson greindi jafnframt frá
því að Winnie hefði fyrirskipað
morð á Kuki Zwane sem bjó á heim-
ili hennar. Kuki á að hafa verið
myrt þar sem hún slóst við dóttur
Winnie, Zindzi, um athygli ungs
manns sem var kærasti Zindzi.
Richardson sagði að Winnie hefði
hrósað honum þegar búið var að
myrða Zwane.
Byggt á Reuter