Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1997, Qupperneq 43
LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1997
Qókarkafli n
Skjaldborg hefur gefid út œviminningabókina Þá flugu Emir -
Lítil flugsaga að vestan sem Jónas Jónasson hefur skráö. Þar er
saga Haröar Guömundssonar flugmanns rakin en hann starfrœkti,
ásamt konu sinni, Flugfélagiö Ernir á ísafiröi í rúman aldarfjórö-
ung. Á þeim tíma varö Höröur landsþekktur, ekki síst fyrir fræki-
lega framgöngu sina í sjúkraflugi sem hann stundaði viö erfiöustu
aöstœöur um árabil og bjargaöi þannig ófáum mannslífum. í bók-
inni segir frá sjúkrafluginu og ýmsum öörum viöburöum í lífi
Haröar, m.a. neyöarflugi fyrir Alþjóöa Rauöa krossinn í Afríku.
Við birtum hér einn kafla úr bókinni er segir m.a. frá ævintýra-
legu sjúkraflugi frá Þingeyri til ísafjaröar og reynslu eins lœknis af
flugmennsku Haröar.
„Þegar Vestur-ísafjarðarsýsla var
gerð að sérstöku læknishéraði varð
Þingeyri læknissetur árið 1888. Árið
1909 var byggt þar sjúkrahús sem
var lengi hið eina i sýslunni.
Rétt fyrir jólin 1976 var HaUgrím-
ur Magnússon heilsugæslulæknir í
Grundarfirði. Hann er sérmenntað-
ur í geðlækningum en var ungur
læknanemi í afleysingum á Þing-
eyri og var að annast sjúkling sem
hann taldi að komast þyrfti hið
bráðasta á spítalann á ísafirði.
Hörður Guðmundsson var þá til-
tölulega nýbyrjaður að annast
sjúkraflug en var samt orðinn hálf-
gildings þjóðsagnapersóna á Vest-
fjörðum.
Guðmundsson steig út í fjúkið. Hall-
grímur horfði í undrun á flugmann-
inn úlpulausan í þessu veðri sem
haföi meira að segja brett upp
skyrtuermarnar rétt eins og í huga
hans væri sumar og sól og honum
kæmi veðrið á Þingeyri ekkert við.
Hann fór að bardúsa eitthvað við
hurðina því á leiðinni hafði vélin
látið svo illa að hurðin hafði
skekkst og gustaði þar inn alla leið-
ina.
„Þetta fer allt einhvern
veginn"
Þegar búið var að koma sjúk-
Aður fyrr hafi læknirinn verið til-
búinn að taka vissa áhættu ef eitt-
hvað hindraði för sjúklings. En það
hafi alltaf verið erfitt að meta að-
stæður og ákveða hvenær nauðsyn-
legt væri að biðja um sjúkraflugvél.
„Auðvitað gat ég búið um bein-
brot og framkvæmt smærri aðgerð-
ir. Til dæmis þurfti ég eitt sinn ný-
byrjaður að starfa sem fullgildur
læknir á Patreksfirði að aðstoða
konu í svokallaðri sitjandi fæðingu.
í dag mundi enginn biðja heilsu-
gæslulækni að framkvæma botn-
langaskurð. Ég gæti mjög auðveld-
lega gert slíka aðgerð á heilsugæsl-
unni hjá mér en ég yrði áminntur
af landlækni. Ríkjandi stefna er
alveg klár. Læknar eiga að senda
sjúklinginn á stóru sjúkrahúsin
ef mikið liggur við en á því geta
verið skuggahliðar því stundum
er verið að stofna sjúkraflug-
mönnum í hættu.“
Hallgrimur Magnússon hóf
störf á sjúkrahúsinu á Pat-
reksfirði í nóvember 1978 og
var þá orðinn fullgildur
læknir.
„Ég átti afskaplega
ánægjulegt samstarf við
Hörð og Egil á Hnjóti, tengt
sjúkrafluginu. Ég hafði yfirborðs-
þekkingu á veðurfræði því áður en
„Þó aö Höröur Guömundsson kunni aö vera lítt þekktur á svokallaöa landsvísu var hann mjög vel þekktur á Vest-
fjöröum og í mjög miklum metum hjá öllum,“ segir Hallgrímur Magnússon læknir m.a. um Hörö Guömundsson í
bokinni. Hér er Höröur við eina vél Ernis á upphafsárum flugfélagsins.
Af honum voru sagðar margar
allrosalegar björgunarsögur.
Niður úr kófinu
Ungi læknaneminn sem þurfti að
koma sjúklingi á sjúkrahúsið á ísa-
firði hringdi eftir sjúkraflugvélinni
því landleiðin var lokuð vegna
snjóa. Á Þingeyri var enginn sjúkra-
bíll og þurfti því að notast við kaup-
félagsbílinn til að flytja sjúklinginn
á flugvöflinn. Sá bíll var í raun of
stuttur til slíkra flutninga og þurfti
að hafa afturhurðina upp á gátt
þannig að fætur sjúklingsins náðu
út í grenjandi stórhríðina á leiðinni.
Þegar komið var á flugvöllinn var
beðið í nokkurri óvissu eftir flugvél-
inni því veðurguðirnir héldu áfram
að láta illa og mikið létti Haflgrími
þegcir hann sá litlu flugvélina koma
niður úr hríðarkófinu. Hann skildi
ekkert hvernig flugmanninum hafði
tekist að síga svona af himni ofan
og beint niður á litlu flugbrautina
og engin radartæki á jörðu niðri að
vísa honum leiöina. Þessi flugmað-
ur hlaut að vera göldróttur.
Vélin nam staðar hjá kaupfélags-
bíl í gervi sjúkrabíls og Hörður
lingnum fyrir í flugvélinni og menn
búnir að kveðjast ók Hörður flugvél-
inni að brautarenda og beið svo fær-
is að fara í loftið. Þegar Hallgrímur
Magnússon horfði undrandi á flug-
vélina hristast inn í hríðina varð
honum hugsað til afa síns, Guð-
mundar Hallssonar, bónda og sjó-
manns í Tálknafirði. Þegar hann
var í mestum vandræðum sagði
hann alltaf: „Þetta fer allt einhvem
veginn," sem reyndist líka alltaf
rétt! En vandræði sjúklingsins sem
nú var á leið til Isafjarðar höfðu alls
ekki farið einhvern veginn heldur
hafði hugrakkur flugmaöur komið
til bjargar.
Nú mætti í framhaldi af þessu
spyrja af hverju læknar dreifbýlis-
ins sendi sjúklinga svona oft af
höndum sér til sjúkrahúsa í þétt-
býli. Era menn búnir að gleyma
læknum gamla tímans sem skáru
menn upp á fjóshurðum ef ekki
vildi betur?
Erfitt að meta aðstæður
Hallgrímur Magnússon læknir
brosir og segir að kröfur manna um
öryggi og sérhæfingu hafi breyst.
DV-mynd GVA
ég hóf læknanám lærði ég stærð-
fræði og jarðeðlisfræði við háskól-
ann í Ósló og vann á Veðurstofu Is-
lands á stúdentsárunum.
Stundum þegar ég þurfti að koma
sjúklingi hið bráðasta á sjúkrahús í
Reykjavík og átti von á sjúkraflug-
vél Harðar beið ég á flugvellinum á
Patreksfirði og við Egill Ólafsson
spáðum í veðrið í sameiningu og
lóðsuðum Hörð niður á flugvöllinn
þegar skyggni var nánast ekkert.
Dag nokkum var ég kominn á flug-
völlinn með sjúkling og vonaði að
vélin gæti lent. Það var norðan
hríðarhraglandi,
hvasst
og mikil ísing. Hörður
var að sveima yfir flugvellinum og
hafði fjóram sinnum gert tilraun til
að lenda en orðið að hætta viö þeg-
ar vélin flaug í lágmarkshæð yfir
blindflugsvitann og hann sá ekkert
niður. Egill sagði Herði að fara upp
í ákveðna hæð í biðflug og hann
mundi kalla hann upp ef rofaði það
mikið til að sjónflug væri mögulegt
í 3000 fetum. Svo kallaði Egill að nú
væri þetta athugandi en þá hafði
Hörður flogið langt út á Patreks-
fjarðarflóa og lækkað sig þar úti og
ætlaði að komast þaðan inn á flug-
völl. En það tókst ekki því óveðurs-
bakki lá þvert yfir flóann svo Hörð-
ur hækkaði flugið aftur. Við Egill
tókum eftir skilum í skýjaþykkn-
inu, reiknuðum út hraða þeirra og
stefnu og vissum hvenær þau yrðu í
lokastefnu Harðar og hann í þeirri
hæð að þurfa að sjá til jarðar til að
geta lent. Egill sagði honum að nú
skyldi hann prófa að fljúga ná-
kvæmlega eftir aðflugskortinu, fara
í leyfilega lágmarkshæð og í að-
flugsbeygjunni væri líklegt að hann
næði sjónflugi. Þetta tókst og þegar
Hörður var á lokastefnu kallaði Eg-
ifl til hans að hann mundi sjá bráð-
um. Það reyndist rétt, Hörður sá allt
í einu grilla í flugvöllinn og kallaði:
„Ég sé niður!“ Eftir nokkrar mínút-
ur var hann lentur og mikið létti
mér þá. Ég gat ekki annað en hrós-
að Agli og sagði að mér þætti hann
asskoti ákveðinn enda þurfti hann
að vera það. Mikið dáðist ég að hug-
rekki Harðar að treysta á svona
mannlegt jarðsamband án aðstoðar
radartækja."
Læknirinn og flugmaðurinn
unnu síöan saman í mörg ár.
Hörður ásamt einum fiugmanna sinna, Jóni Ingvarssyni, sem starfaöi lengi
hjá Erni.
Barn í andnauð
Þegar Hallgrímur var á Patreks-
firði var leitað til hans út af bami
sem var í mikilli andnauð og bráðri
lífshættu. Hallgrímur sá fram á
æðisgengið kapphlaup við tímann
en vissi að Hörður brást æv-
inlega fljótt við, hringdi í
hann og sagði hvað var að og
lauk samtalinu með því að
segja:
„I guðsbænum flýttu þér!“
Hallgrímur læknir hljóp síðan
með barnið út í bíl og ók þegar af
stað út á flugvöll. Veðrið var
ágætt og skilyrði góð en nú var
það tíminn sem skipti öllu máli.
Bamið hætti einu sinni að anda á
leiðinni en Hallgrimi tókst að fá
það til að anda aftur. Þessu fylgdi
gríðarleg streita fyrir hann. Þegar
komið var með barnið á flugvöllinn
var Hörður þegar lentur og beið.
Ferðin suður gekk vel, sjúkrabill
beið á Reykjavíkurflugvelli og þegar
komið var með bamið á spítalann
og verið var að flytja það á gjör-
gæsludeild fór það í öndunarstopp á
ganginum, en auðvelt var að grípa
inn í og bjarga lífi barnsins. Hall-
grímur segir að barnið hefði dáið ef
það hefði ekki komist í hendur sér-
fræðinga svona fljótt.
Flugvélin snerist í hring
Dag nokkurn var Hörður á leið til
Patreksfjarðar að ósk Haflgríms til
að sækja sjúkling sem þó var ekki í
bráðri hættu en þurfti fljótlega að
komast undir læknishendur í
Reykjavik. Veðrið var vont, norð-
austan snjókoma og mikið frost.
Þegar Hörður lenti á flugveflinum
snerist flugvélin skyndilega nærri
því í hring. Hallgrímur og Egill sáu
þetta gerast og áttu von á hinu
versta en Herði tókst að stöðva vél-
ina án þess að hún færi á hliðina. I
ljós kom að bremsan á hægra hjóli
hafði frosið fóst á leiðinni og þegar
hjólið snerti völlinni snerist það
ekki heldur klossbremsaði. Þeir fé-
lagar skröpuðu ísinn af með vasa-
hníf og sáu þá að dekkið hafði
spænst illa upp þegar vélin snerti
völlinn. Dekkið hafði ekki sprungið
en varasamt var að treysta á það.
Þegar vélin var að öðra leyti tilbúin
til flugs var haldið af stað og fór
Hallgrímur með sjúklingnum suö-
ur. Þegar flugvélin nálgaðist
Reykjavík var mikið dimmviðri og
þeir sáu ekkert niður fýrr en þeir
flugu yfir Örfirisey. Slökkviliðsbílar
flugvallarins biðu í viðbragðsstöðu
ef illa færi í lendingunni, því þegar
Hörður fór í loftið tilkynnti Egill
um atvikið þegar hjólið hafði
spænst upp á Patreksfjarðarflug-
velli og Hörður staðfesti það fyrir
lendingu í Reykjavík.
Auðna var enn og aftur Herði vin-
samleg.
Sunnanverðir Vestfirðir eru afar ^
einangraðir hvað snertir læknis-
þjónustu. Hallgrímur heldur þvi
óhikað fram að Hörður hafi átt mik-
inn þátt í því, aö þessi byggð hélst
þó svo blómleg þennan tíma.
„Starf björgunarflugmannsins
Harðar Guðmundssonar var mjög
mikilvægt í hugum fólks á Vest-
fjörðum, sérstaklega fólks sem átti
böm. Það hefur hiklaust ráðið bú-
setu þess. Þó að Hörður Guðmunds-
son kunni að vera lítt þekktur á svo-
kallaða landsvísu var hann mjög vel
þekktur á Vestfjörðum og í mjög
miklum metum hjá öllum. Látum al- <.
veg vera þó aö fjölmiðlar í Reykja-
vík hafi ekki vitað af honum, það
vora þeirra mistök.
Almenningur á þessum vestfirska
útkjálka elskaði og virti þennan
bjargvætt sinn“.“
(Millifyrirsagnir eru blaösins.)