Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1997, Síða 68
LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1997 DV
>™ |tyikmyndir
>>
Ráðabruggið
hygii.
rfékk
Nýjas'ta myndin
meö Aliciu
Silverstone.úr
..Clueless"
551 6500
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Sýnd kl. 6, 9 og 11.30.
Sýnd kl. 5 og 7.
Sýnd kl. 9 og 11.
Sýndkl. 4.50, 6.55, 9 og 11.10.
alicia silverstone
My Best
Friend’s
Wcdding
Sími 551 9000
Sýnd kl. 7, 9 og 11.
Sýnd kl. 5.
KinMök 0«kai>\rr<Maiiii;inmnl fr«
llilly lioii riioniton.
Myml srm skilur ••ii”an rltir ÓMioiiinn.
★★★i S.V. Mbl
★★★i. Ú.D. DV
Hetjur ritma-l á
ólíklegustu stöduiu..
★★★ Mbl
★★★ DV
★★★ý. ÁS Dagsljós
„Oborganleg bresk
gamanmynd sem hefur
fengið frábæra aðsókn í
heimalandi sínu sem og í
Bandaríkjunum."
Sling Blade
Aðalhlulverk: Bdly Boh Thornton,
Robert Duvall, Dwiglit Yoakam & J.T.
Walsh.
Leikstjórn & hamlrit: Billy Boh
Thornton. JýU
EnrgnasKroæi
í
I
Film noir eru tvö frönsk sakleysis-
leg orð sem segja samt mikið á
kvikmyndamáli. Ekki hefur svo vit-
að sé verið reynt að koma merk-
ingu þeirra yfir á önnur tungumál,
enda erfitt. Ef íslenska ætti orðin
þá mundu þau missa alla merk-
ingu, útkoman væri svört filma eða
svört kvikmynd. Það voru franskir
gagnrýnendur sem frmdu upp hug-
takiö þegar þeir hófu að flokka
vissa tegund kvikmynda, oftast sakamálamyndir
sem skutu upp kollinum í Bandaríkjunum í byrj-
un fimmta áratugarins, sakamálamyndir sem
• ' i/oru dimmar, með þungum undirtón, þar sem
svartsýni var ríkjandi og heiðarleiki vefengdur.
Oft var stutt á milli þess góða og illa og voru
hetjumar ekkert undanskildar, sem oft voru óör-
uggir einfarar.
Hugtakið fengu frönsku gagnrýnendumir frá
bókmenntagagnrýnendum á átjándu og nítjándu
öld sem notuðu roman noir til að lýsa grófum
breskum skáldsögum. í film noir myndunum
bandarískum var beitt vissri tækni, sérstaklega í
næturtökum, bæði utan- og innadyra, sem
Frakkarnir hrifust af og sérstakri lýsingu beitt
til aö ná fram sem mestum raunvemleika.
Margir þekktir leikstjórar vom á tímabili boð-
berar film noir, má þar nefna John Huston (The
^ Maltese Falcon, 1941, Key Largo, 1948, The Aspa-
malt Jungle, 1950), Howard Hawks (To Have and
Have Not, 1944, The Big Sleep, 1946), Michael
Curtiz (Casablanca, 1942, Mildred Pierce, 1945)
Robert Siodmak, (The Suspect 1945, The Killers,
1946, The Dark Mirror, 1946, Cry of the City,
1948), Fritz Lang (The Woman in the Window,
1944, Scarlett Street, 1946, The Big Heat, 1953 og
Billy Wilder (Double Indemnity, 1944, The Lost
Weekend, 1945, Sunset Boulevard, 1950).
Það er staðreynd að am-
erísku film noii--mynd-
imar höfðu mikil áhrif
á evrópska kvikmynda-
gerðarmenn sem
reyndu hvað þeir gátu
að ná upp sömu áhrif-
um, oft með góðum ár-
angri. Þeir sem vilja
láta film noir-skeiðinu
ljúka við eitthvert tíma-
bil miða oftast við miðj-
an sjötta áratuginn þeg-
ar litmyndir vora orðn-
ar ríkjandi og breið-
tjaldið komið til sög-
unnar. Frá þeim tíma
hefur verið gerður
fjöldi kvikmynda í
Bandaríkjunum sem
með sanni má segja að
sé film noir og margar
hverjar sóma sér vel
innan um hinar eigin-
legu film noir-myndir, má þar nefna Touch of
Evil (Orson Welles), kvikmyndir Don Siegel,
Crime in the Streets, Madigan og Dirty Harry,
Bullit (Peter Yates), The Long Goodbye (Robert
Altman) og Chinatown (Roman Polanski). Þessar
myndir og margar fleiri era að margra mati film
noir-myndir, en tilheyra samt ekki þeim kjama
sem ávallt er miðað við. -HK
Aðrir leikstjórar sem vert
er að nefna og áttu þátt í
að gera film noir að hug-
taki sem verður notað um
ókomna framtíð í kvik-
myndaheiminum eru Or-
son Welles (The Lady
from Shanghai, 1948), Otto
Premingar (Laura, 1944),
Alfred Hitchcock, (Spell-
bound 1945), Edward
Dmytryk (Murder My
Sweet, 1945), Anthony
Mann (Raw Deal, 1948,
Side Street, 1950), Fred
Zinnemann (Act of Vio-
lence, 1949), Henry Hat-
haway (Kiss of Death,
1947, Call Northside 777),
Robert Rossen (Johnny
O’Clock, 1947, Body and Soul, 1947), Robert Wise
(Captive City, 1952), Jules Dassin (Brate Force,
1947, Naked City, 1948), John Farrow (The Big
Clock, 1948), Elia Kazan (Boomerang, 1947, Panic
in the Streets, 1950), Nicholas Ray (They Live by
Night, 1949, On Dangerous Ground, 1952), Phil
Karlson (Scandal Sheet, 1952, 99 River Street,
1953), Samuel Fuller (Pickup on a South Street,
1953) og Robert Aldrich (Kiss Me Deadly, 1954).
The Big Sleep (1946). Ein frægasta
noir-kvikmyndin. Humphrey Bogart og
Laureen Bacali í hlutverkum sínum.
The Killers (1946) gerði Burt Lancaster
frægan á svipstundu. Hann er á myndinni
ásamt Övu Gardner.
lenska jólamyndin
Á annan dag jola veröur frum-
sýnd islenska kvikmyndin Stikk-
frí í Stjörnubíói og Háskólabíói.
Um er aö ræða gamansama fjöl-
skyldumynd sem segir frá leit
ungrar stúlku aö fóður sínum.
Hún ratar i margvísleg ævintýri
og inn í söguþráðinn fléttast
pabbar, mömmur, hálfsystur,
hálfbræður, háifpabbar, hálf-
mömmur, næstum því frænkur,
gamlir pabbar og nýjar mömm-
ur. Meðal aðalhlutverk fara
Bergþóra Aradóttir (11 ára),
Freydís Kristófersdóttir (12) og
Bryndís Sæunn Sigriður Gunn-
laugsdóttir (2). Leikstjóri er Ari
Kristinsson, en Bergþóra er dótt-
ir hans og vakti hún mikla at-
hygli fyrir leik sinn í Tár úr
steini.
Bræður í samstarf
Aidan Quinn er þekktur leik-
ari og einn þeirra sem alltaf sýna
góðan leik. Þessi ágæti leikari á
bræður, Paul og Declan, sem
ekki eru eins þekktir, þótt báðir
hafi starfað í kvikmyndum um
skeið. Þegar þeir voru drengir
sagði móðir þeirra bræðra þeim
sögu sem geröist á uppvaxtarár-
um hennar á írlandi. Saga þessi
var Paul sérstaklega eftirminni-
leg og skrifaði hann handrit eft-
ir sögunni og nefndi This Is My
Father. Hafist var handa við
kvikmyndagerðina í sumar.
Paul Quinn leikstýrir sinni
fyrstu mynd og Aidan leikur að-
alhlutverkið ásamt James Caan,
John Cusack, Stephen Rea, Colm
Meaney og Moya Farrely. Declan
Quinn er kvikmyndatökumaður,
en hann fékk óskarsverðlaun fyr-
ir kvikmyndatöku sina á Leaving
Las Vegas.
Draumasmiðjan í
teiknimyndirnar
Nýja stórfyrirtækið í kvik-
myndabransanum, DreamWorks
ætlar að fara á fullu í teikni-
myndabransann og hefja sam-
keppni við Disney og Fox, en
Fox hefur nýlega komið sér upp
öflugri deúd til að gera teikni-
myndir og er Anastassia fyrsta
myndin. Fyrsta stóra verkefni
Draumasmiðjunnar á þessum
vettvangi verður Chicken Run,
sem fjallar um hóp aí kjúklingum
sem ákveða að strjúka á vit frels-
isins áður en þeir verða notað-
ir á grillið eða settir í frysti.
Fyrir kjúklingahópnum fara
breski kjúklingjtrinn Ginger
og ameriski kjþklingurinn
Rocky. Ekki er áætlað að
sýna Chicken Run fyrr en
snemma árið 2000.