Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1998, Page 2
2
Fréttir
Viðræður vegna sérfræðingadeilunnar:
Hugmyndir um hærri
greiðslur sjúklinga
- álögur á sjúklinga aldrei góður kostur, segir heilbrigðisráðherra
Hugmyndir um aö hækka þak á
greiðslum sjúklinga vegna læknis-
kostnaöar eru nú ræddar í tengslum
við samningaviðræður sérfræðinga og
Tryggingastofnunar. Ekki er rætt um
ákveðna upphæð, enda liggur enn ekki
fyrir hversu mikið samningar við sér-
fræðingana kosta.
„Við höfum gætt þess að hækka
ekíd þjónustugjöld sjúklinga sL tvö
ár,“ sagði ingibjörg Páimadóttir heil-
brigðisráðherra vegna þessa máls. „En
þar sem áhrif kjarasamninga sérfræð-
inga eru enn ekíd ljós, er ekkert hægt
að fúllyrða á þessu stigi. Álögur á sjúk-
linga eru aldrei góður kostur."
Umrætt þak hefur verið við 12.000
króna mark frá árinu 1993. Þegar sjúk-
lingur fer til sérfræðings greiðir hann
fyrstu 1.400 krónumar og 40 prósent af
því sem umfram er. Tryggingastofnun
greiðir afganginn. Öryrkjar og ellilíf-
eyrisþegar greiða 500 krónur, auk 13,3
prósenta af umframkostnaði. Þegar
sjúklingurinn hefur greitt 12.000 krón-
ur í lækniskostnað á ári fær hann svo-
kallað afsláttarkort. Eftir það þarf hann
aðeins að greiða þriðjung þeirrar upp-
hæðar sem hann þurfti áður að greiða.
Böm undir 16 ára aldri í sömu fjöl-
skyldu fá afsláttarkort við 6000 króna
þak á ári. Aldraðir og öryrkjar fá
einnig afsláttarkort við 3000 króna
markið.
Miklu fleiri afsláttarkort
Ekkert hefúr verið ákveðið hvað
varðar hækkun á hlutdeild sjúklings í
lækniskostnaði. Hins vegar hafa kom-
ið ábendingar úr fjármálaráðuneytinu
varðandi þennan möguleika, sam-
kvæmt heimildum DV. Þá hefur hann
komið upp í samningaviðræðum
lækna og Tryggingastofhunar. Helstu
rök talsmanna þessarar breytingar em
þau, að eðlilegt sé að breyta 12.000
króna markinu, því það sé búið að
vera óbreytt svo lengi. Læknisverk
sérfræðinga séu metin í einingum,
hver eining margfólduð með krónu-
tölu, sem hafi hækkað úr 135 krónum
í 145. í þeim samningaviðræðum sem
em í gangi fari læknar enn fram á
hækkun á þessari krónutölu. Verkið
hækki þannig í verði með samningum
við lækna og sjúklingurinn greiði þá
sjálfkrafa meira í krónutölu. Verði
engin breyting á þessu nái miklu fleiri
einstaklingar 12.000 króna markinu ár-
lega, séu fljótari að því og fái þar með
afsláttarkort.
Samkvæmt heimildum DV hefur
hækkun á „þakinu" ekki verið rædd
formlega í heilbrigðisráðuneytinu né
innan ríkisstjómarinnar.
Auk þessa hefúr komið fram sú hug-
mynd í samningaferlinu að Trygginga-
stofiiun taki ekki þátt í einhveijum
þáttum þeirrar þjónustu sem sérfiæð-
ingar veita. Hefúr þá verið nefnt sem
dæmi fyrsta viðtal hjá sérfræðingi.
Andstæðingar þessarar hugmyndar
hafa bent á aö á þeim tíma sé sjúkling-
urinn búinn að ganga ákveðna leið í
gegnum kerfið og greiða fyrir þjónustu
sína á öllum stigum. -JSS
Frjósamar stúlkur á 3. ári í hjúkrunarfræði:
Sextán eignuðust börn á einu ári
Þær eru frjósamar stúlkumar á 3.
ári í hjúkrunarfræði í Háskólanum.
16 hjúkrunarfræðinemar úr 60
manna bekk hafa eignast 17 böm á
undanfórnu ári. Ellefu stúlknanna
vora samankomnar í gær með börn-
in og stilltu sér upp fyrir ljósmynd-
ara DV.
„Við vomm níu sem fæddum
böm á síðustu önn, þ.e. frá septem-
ber og fram í janúar. Þetta er ótrú-
lega skondið en viö höfum allar
mjög gaman af þessu. Viö hittumst
auðvitað með bömin á milli þess
sem við lesum og eram i skólanum.
Þá er auðvitað mikið fjör og mikill
bamsgrátur. Við erum komnar með
heilt fótboltalið og rúmlega það,“
sagði Auður Jóhannsdóttir, ein
móðirin í hópnum.
Stúlkurnar tóku allar próf í
hjúkrunarfræðinni í desember sl.
þrátt fyrir að vera nýorðnar mæður
og hafa um margt annað að hugsa
en sjálft námið. -RR
Ellefu stúlkur úr hjúkrunarfræðinni
sem eru nýorðnar mæður stilltu sér
upp með börnin fyrir Ijósmyndara
DV. DV-mynd GVA
Fæddist sama dag og gosið hófst:
Hefði átt að heita Goshildur
- segir Júlíana Bjarnveig Bjarnadóttir sem á afmæli í dag
Júlíana Bjarnveig Bjarnadóttir með dóttur sína,
Sunnevu. DV-mynd ÓG
Eyjamönnum finnst engin ástæða
til að efna tii fagnaðar þegar kemur
að 23. janúar, deginum þegar
Heimaeyjargosið hófst 1973. Júliana
Bjarnveig Bjamadóttir hefur þá sér-
stöðu meðal Vestmannaeyinga að
hafa tilefni til hátíðahalda þennan
Bifreið ók
á flugvél
Bifreið ók á Domier-flugvél ís-
landsflugs á Akureyrarflugvelli
í fyrrakvöld.
Bifreiðin var notuð til að taka
farangur farþega en vélin var
nýlent á flugvellinum. Farþegar
og áhöfn vom farin frá borði
þegar óhappið varð. Landgangur
vélarinnar skemmdist en unnið
er að viögerðum. -RR
dag því hún leit fyrst dagsins ljós
þann 23. janúar 1973.
Hún fæddist reyndar í Reykjavík
en móðir hennar hafði komið frá
Eyjum gosnóttina. Foreldrar
Júlíönu em Linda Antonsdóttir og
Bjami Valtýsson sem þá bjuggu við
Brekastíg í Eyjum. Linda var komin
á steypirinn en fyrir áttu þau son-
inn Halldór sem þá var tveggja ára.
„Um kvöldið hafði mamma haft
samband upp á spítala og látið vita
að hún væri búinn að missa vatn-
ið,“ segir Júlíana sem sjálf var farin
að banka á dyr þessa heims.
Mamma flutt í þyrlu
„Eftir það sofnaði mamma en
stuttu seinna ræsti afi hana og sagði
aö það væri byrjað að gjósa austur á
Eyju. Hann sagði að það væri ekki
neitt til að hafa áhyggjur af og fór
mamma að sofa aftur. Það var svo
lögreglan sem ræsti hana og flutti
niður á bryggju.
Þegar átti að setja mömmu um
borð í einn bátinn kom ljósmóðir
og stoppaði það af. Mamma var
síðan drifin upp á flugvöll og um
borð í þyrlu sem flutti hana til
Reykjavíkur. Þar fædd-
ist ég um hádegið," seg-
ir Júlíana.
í dag fagnar JúlícUia
25 ára afmæli sínu en
hún býr enn í Eyjum.
Hún á tvö böm og býr
með Elíasi Rúnari
Kristjánssyni. „Mér
finnst mjög fint að eiga
afmæli þennan dag.
Hann er ekkert öðru-
vísi en aðrir afmælis-
dagar en á fimm ára
millibili er ég dregin
fram í dagljósið vegna
þess að ég er jafngömul
Heimaeyjargosinu.
Mamma hefur stundum
strítt mér á því að ég
hefði átt að heita Goshildur. Að
öðru leyti er þetta eins og hver
annar afmælisdagur og í kvöld
verður hefðbundin afmælisveisla,"
segir Júlíana að lokum. ÓG
Dpf cj/■ i 5|T >0^ HT VVPCY'i
FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1998
Stuttar fréttir i>v
10% undir gangverði
Forstjóri Fasteignamats ríkisins
segir gangverð íbúðarhúsnæðis í
Reykjavík 10% yfir fasteignamati.
Búast megi við að fasteignamat
verði hækkað innan skamms. Sjón-
varpið sagði frá.
Vísað frá
Félagsdómur
vísaði í gær frá
máli Sjó-
mannasamtak-
anna gegn út-
vegsmönnum
vegna boðaðs
verkbanns
þeirra síðar-
nefhdu. Sævar
Gunnarsson, formaður Sjómanna-
sambandsins, segir frávísunina lít-
ilsvirðingu við sjómenn og störf
þeirra.
Yfirfært ónæmi
Læknar óttast að sýklaónæmi í
dýrum sem gefin era sýklalyf í
fóðri geti borist yfir í menn og
dregið úr virkni sýklalyfia hjá
þeim. Dæmi era um þetta, að sögn
Sjónvarpsins.
Davíð í Riga
Davíð Oddsson forsætisráðherra
situr í dag leiðtogafund Eystra-
saltsráðsins sem haldinn er í Riga
í Lettlandi. Fundinum, sem hófst í
gær, lýkur i dag.
Halldór leiöir EFTA
Halldór Ás-
grímsson utan-
ríkisráðherra,
sem nú er for-
maður EFTA-
ríkjanna innan
EES, er nú í
Brussel. Hann
hefur átt fundi
með fulltrúum
framkvæmdastjómar ESB, þeim
Hans van den Broek, sir Leon
Brittan, Anitu Gratin, Erkki
Liikanen og Ritt Bjerregaard og
rætt við þau Schengen-málið,
stækkun ESB, myntbandalag Evr-
ópu og mengun á norðurhveli.
25% lækkun
Hlutabréf í Tæknivali hafa
lækkað um samtals 25% á Verð-
bréfaþingi frá því á gamlársdag
þegar félagið keypti hlutabréf í
sjáifú sér. Þau hlutabréf hefúr fe-
lagið nú selt á genginu 6,0 en nafn-
verð þeirra er 616 þúsund kr. Við-
skiptavakt Viðskiptablaðsins segir
frá þessu.
Lagaheimild skortir
Ríkislögmaður segir að sérstök
lagaheimOd verði að liggja fyrir
áður en þróunarsvið Byggðastofii-
unar er tekið upp og flutt til Sauð-
árkróks. Málið er nú til athugunar
hjá forsætisráðherra. Starfsmenn
ætla ekki að flytja norður, en Egill
Jónsson stjómarformaður hefur
ekki áhyggjur af því og segir við
RÚV að þróunarsviðið verði flutt.
Nýtt Sophiumál
Dómþing var í
Istanbúl í gær í
nýju forræðis-
máli sem Sophia
Hansen hefur
höfðað gegn
Halim A1 til
ógildingar fyrri
dómi hæstarétt-
ar Tyrklands. Málsaðilar fengu
frest til 5. mars tii að afla gagna.
Uppnám vegna styrks
Uppnám er í Kvennalistanum
vegna þess að úthlutunamefnd út-
gáfústyrks leggur til að styrkur til
þingflokksins verði skertur og
þriðjungur hans, um 1,9 milljónir
kr., látinn renna til Kristínar Ást-
geirsdóttur sem ekki er lengur í
þingflokknum. RÚV segir frá.
Dýrt Akureyrarsund
Sundlaug Akureyrar og sund-
laug Egilsstaða era dýrustu sund-
staðir á landinu. Ódýrast er að fara
í sundlaugina á Seltjamamesi, seg-
irRÚV.
Vilja ræóa við Ingibjörgu
Miðstjóm ASÍ vill ræða við Ingi-
björgu Pálmadóttur um heilbrigð-
iskerfið og stefiiu stjómvalda í
málum þess. Verið sé að gera á því
grundvallarbreytingar án þess að
mótuð stefna liggi fyrir. RÚV sagði
frá. -SÁ