Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1998, Blaðsíða 28
> o
□
* O
20
■3
s LD
'j~. O
■>
2 LXÍ
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá f síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
5505555
FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1998
Ríkisspítalar:
200 milljóna
sparnaður
„Ég geri mér vonir um að þær að-
^gerðir, sem stjómarnefnd hefur nú
samþykkt, geti náð um 200 milljónum
í sparnað," sagði Guðmundur G. Þór-
arinsson, formaður stjómar Ríkisspít-
alanna, vegna aöhaldsaðgerða, sem
unnið hefur verið að undanfarna
daga.
í gær var fundur stjórnarnefndar
þar sem farið var yfir hagræðing-
arhugmyndir. Guðmundur undir-
strikaði að miðað við óbreytta starf-
semi frá fyrra ári myndi vanta í rekst-
urinn um 450 milljónir króna í ár.
„Til viðbótar við þær 200 milljónir
sem sparast núna gerum við okkur
vonir um að við fáum 100-150 milljón-
ir úr 300 milljóna pottinum sem
skipta á milli sjúkrahúsa. Við reyn-
um að gera þetta með eins mildum að-
> gerðum og unnt er, ráða ekki í stöður
sem losna, en reyna heldur að færa til
starfsfólk. Það er ekki stefnt að upp-
sögnum." -JSS
Helgarblað DV:
Kristinn í
sviðsljósinu
í helgarblaði DV á morgun kenn-
ir ýmissa grasa. Opnuviðtalið er við
hetjuna okkar, Kristin Bjömsson,
svigkappa frá Ólafsfirði, sem á
skömmum tíma hefur skipað sér í
hóp fremstu skíðamanna heims.
Hann verður í sviðsljósinu um helg-
ina í Austurríki á tveimur mikil-
vægum mótum.
Rætt er við Erling Gíslason sem á
40 ára leikafmæli um þessar
mundir. Fjallað er um listamanninn
meö barnshjartað, Samúel í Selár-
dal, en söfnun er hafin til bjargar
dýrmætum listaverkum hans fyrir
vestan. Leiklist í 20 ára sögu Menn-
ingarverðlauna DV er rakin og í
erlendu fréttaljósi er fjallað um
•kvennamál Clintons. Einnig er
viðtal við Kristján Halldórsson
handboltaþjálfara í Noregi. -bjb/sv
(greiÍaTeÍFnÖkkuðN
BOLATOLL FYRIR
NORÐAN? J
Brytarnir í Múlakaffi léku á als oddi í morgun enda búnir að gera allt klárt fyrir þorrann sem hefst í dag.
Falsanir á íslenskum málverkum:
Virt uppboðs-
fyrirtæki sætir
rannsókn
Dæmi eru um að málverk, sem
seld hafa verið á listaverkauppboð-
um danska uppboðsfyrirtækisins
Bruun-Rasmussen í Kaupmanna-
höfn sem verk klassískra íslenskra
listmálara, hafi verið falsanir. Lög-
reglurannsókn fer nú fram vegna
slíks máls.
Bruun-Rasmussen er velþekkt
og gamalgróið listmunauppboðs-
fyrirtæki. Það er eitt hið stærsta
sinnar tegundar á Norðurlöndum.
og vant að virðingu sinni. Sam-
kvæmt heimildum DV beinist hluti
lögreglurannsóknar dönsku lög-
reglunnar á meintum fólsunum
íslenskra klassískra listmálara, að
því að skoða hvort eða í hversu
miklum mæli falsaðar myndir hafa
verið seldar í gegnum uppboðsfyr-
irtækið, hugsanlega í því skyni að
fá þeim gæðastimpil.
Einn af stjórnendum Bruun-
Rasmussen, Peter Christmas Möll-
er staðfesti í morgun við DV að
fyrirtækið væri í samvinnu við
lögreglu um að upplýsa tvö slík til-
vik eins og jafnan væri gert. Hann
taldi hins vegar að meintar falsan-
ir á verkum Svavars Guðnasonar
væru stórlega ofmetnar. Ef vísvit-
andi væri verið að selja falsaðar
myndir í gegnum fyrirtækið þá
væri það sakamál en vart ef selj-
andi hefði verið grunlaus um að
mynd hans væri folsuð. „Það er á
hreinu að komi kaupandi með
sannanir fyrir því að hafa keypt
falsaða mynd hjá okkur, þá ganga
kaupin til baka og við gerum kröfu
á hendur þeim sem setti myndina í
sölu,“ sagði Peter Christmas Möll-
er. Hann sagði að eigendasaga
fylgdi sjaldan með þeim hlutum
sem boðnir eru upp hjá Bruun-
Rasmussen, eða í vart meira en um
10% tilfella.
-SÁ
Veðrið á morgun:
Hlýnandi
veður
Á morgun verður sunnan- og
suðaustankaldi eða stinning-
skaldi og rigning sunnan og vest-
anlands, en snjókoma eða slydda
til fjalla.
Norðaustanlands verður hæg-
ari suðvestanátt og þurrt. Held-
ur hlýnandi veður.
Veðrið í dag er á bls. 37.
100 þúsund á nýbura:
Gæti orðið
4 milljónir
árlega
„Þetta er fyrst og fremst hugsað
sem styrkur til ungra foreldra af
okkar hálfu. Ég á ekki von á því að
hreppsbúar taki kipp í þessum
málum,“ segir Broddi Björnsson,
oddviti Akrahrepps, en eins og DV
greindi frá í gær hefur hrepps-
nefndin þar samþykkt að greiða
100 þúsund krónur fyrir hvert
barn sem fæðist í hreppnum.
Broddi segir vel geta verið að
þessi tilhögun verði öðrum hrepp-
um til eftirbreytni og að styrkur
sem þessi verði tekinn upp í fá-
mennari byggðum landsins.
Sigurður Guðmundsson, for-
stöðumaður þróunarsviðs Byggða-
stofnunar, segir það einungis já-
kvætt ef sveitarfélög geri eitthvað
til þess að hvetja fólk að koma til
sín.
„Þetta er eflaust ein aðferð til að
fjölga í hreppnum, án þess að það
verði einhver byggðarstefna í
framtíðinni," segir Sigurður.
Samkvæmt upplýsingum frá
Byggðastofnun voru 223 íbúar
skráðir í hreppnum á síðasta ári.
Þar af voru 104 konur og 119 karl-
ar. 42 konur eru á aldrinum 15-44
ára. Ef þær yrðu allar við áskorun
hreppsins til fjölgunar gætu út-
gjöld sveitarfélagsins í barneignar-
styrki numið allt að 4 milljónum
króna á ári.
-Sól.
Myndir Svavars:
Falsanir
- segir Alex Steen
Alex Steen, blaðamaður á
Extrablaðinu í Kaupmanna-
höfn, segir í samtali við DV að
hann telji flestar, ef ekki allar
myndimar falsaðar sem dansk-
ur málverkasafnari keypti af
Galleríi Leif Jensen í þeirri trú
að þær væru eftir Svavar
Guðnason.
Alex Steen er þekktur og
virtur í málaralistarheiminum
í Danmörku, en hann hefur
skrifað um myndlist í um hálfa
öld og þekkir feril og verk
Svavars Guðnasonar mjög vel.
Hann segir að umræddar
myndir, sem sagðar eru eftir
Svavar og hafa undanfarið ver-
ið rannsakaöar gaumgæfilega í
Kaupmannahöfn, séu svo illa
gerðar og svo lélegar eftirlík-
ingar af verkum Svavars að
engu tali taki.
-SÁ
Ojjsí Mn
I §MJjJ!JiJj
□PELe
■Þýskt eöalmerki
Bílheimar ehf.
OF»EL. [PlMHB ■■■
Sœvarhöfba 2a Sími:525 9000