Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1998, Síða 4
4
FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1998
Slagur hjá Framsókn
Hörð barátta er um efstu tvö
sætin hjá Framsóknarflokkn-
um. Guðjón Ólafur Jónsson,
aðstoðarmaður Guðmundar
Bjamasonar,
sækir í öruggt
sæti og er studd-
ur af andstæð-
ingum Alfreðs
Þorsteinsson-
ar. Kosninga-
stjóri hans er
Páll Magnús-
son, fyrrver-
andi formað-
ur Stúdenta-
ráðs, og bróðir Árna, aðstoðar-
manns Finns Ingólfssonar.
Gamlir Röskvuliðar úr Háskól-
anum styðja hann með ráðum
og dáð. Niðurstaðan verður
fróðleg...
Gustar um Ástþór
Friöarboðinn Ástþór Magn-
ússon er reiður því enginn vill
rífast við hann opinberlega um
Reykholtsmálið. Ástþór segir að
Björn Bjarna-
son hafi neitað
að ræða við sig
hjá Snorra Má
Skúlasyni í
Dagsljósi og
séra Geir
Waage Reyk-
holtsklerkur
ekki viljað
hitta hann í
íslandi í dag hjá
Jóni Ársæli Þórðarsyni. Ást-
þór hefur nú sent frá sér til-
kynningu þar sem hann kvartar
undan því að fréttamaður á Rík-
issjónvarpinu hafi tekið við
hann viðtal um málið sem ekki
hafi birst...
Spenna í Reykjavík
Sjálfstæðismenn í Reykjavík
telja nú sigurlíkur sínar í
Reykjavík meiri en um langt
skeið. Þeir álíta að persónufylgi
Guðrúnar Pét-
ursdóttur, sem
tók níunda sæt-
ið, styrki lista
þeirra veru-
lega. Að auki
hefur nú mjög
dregið saman
með Ingi-
björgu Sól-
rúnu Gísla-
dóttur borgar-
stjóra og Árna Sigfússyni i
könnunum á vinsældum þeirra.
í síðustu könnun var munurinn
ekki nema um þrjú prósent en
hafði áður verið kringum tutt-
ugu. Spennan eykst...
Forystukreppa
Prófkjör sjálfstæðismanna í
ísafjaröarbæ verður í næsta
mánuöi. Nokkur óvissa er um
það hverjir gefi kost á sér af nú-
verandi bæjar-
fulltrúum. Talið
er víst að
Magnea Guð-
mundsdóttirá
Flateyri fari
fram. Þá er
talið líklegt að
Halldór
Jónsson,
framleiðslu-
stjóri Básafells, vilji sitja
áfram í bæjarstjórn. Hvorugt
þeirra er talið til þess fallið að
leiða listann í næstu kosning-
um. Fyrir liggur aö Jónas
Ólafsson, klofningsmaður og
núverandi bæjarstjóri, hættir og
nú eru raddir uppi um að rétt sé
að Þorsteinn Jóhannesson,
oddviti flokksins, dragi sig
einnig í hlé svo hægt verði að
ná sáttum innan flokksins. Það
gæti því farið svo aö Norður-
tangamálið ali af sér forystu-
kreppu ...
Umsjón Reynir Traustason
Fréttir
25 ár frá því aö gosið hófst á Heimaey:
Gífurlegt sjónarspil
- Eldfell gnæfir yfir bæinn og minnir á hörmungar sem Eyjamenn máttu þola
DV, Eyjum:
í nótt voru liðin 25 ár frá því jörð
rifnaði á Heimaey og upp kom heilt
fiall og hraun sem gróf einn þriðja
hluta af Vestmannaeyjabæ.
Nú gnæfir Eldfell yfir bæinn og
minnir á þær hörmungar sem Eyja-
menn máttu þola fyrir aldarfiórðungi
en þeir misstu aldrei trúna á að bær-
inn þeirra yrði byggður á ný. Eyja-
menn voru ákveðnir í að snúa aftur
og trúir þeirri sannfæringu sinni hófu
þeir hreinsunarstarf strax í febrúar á
meðan gosið stóð sem hæst. Baráttan
sem fór í hönd fól í sér sigra en marg-
ar orrustur töpuðust í baráttunni við
náttúruöflin og nú eru um 400 hús og
íbúðir undir hrauni og gjalli á Heima-
ey. Gosið var gífurlegt sjónarspil og
martröð.
Bærinn aldrei sá sami
í fyrsta skipti var ráðist gegn
hraunstraumi með vatnsdælur að
vopni. Árangurinn af því verður
aldrei mældur en hann var sýnilegur.
Sjálfur verður bærinn aldrei sá sami
en nú mynda Eldfell og Nýjahraunið
skjól gegn austanáttinni og eftir gos
eiga Vestmannaeyingar eina bestu
höfn á landinu. Gosinu lauk i byrjun
júlí sama ár og það hófst og um leið
hófst endurreisnarstarfið. Því lýkur
kannski seint. Og þótt blási á móti í
augnablikinu eru Vestmannaeyingar
bjartsýnir á framtíðina enda hafa
Vestmannaeyjar haldið stöðu sinni
sem stærsta og öflugasta verstöð
landsins. -ÓG
Á fyrstu klukkutímum gossins var sprungan kílómetri á lengd, nánast þráðbein yfir austasta hluta Heimaeyjar. Strax
á fyrsta sólarhringnum breyttist sprungan í gíg rétt austan Kirkjubæjar. Horfðu menn á þetta í forundran, fundu að-
eins fyrir smáöskufalli, hita frá gosstöðvum og megna goslykt. Vindáttin stóð frá gosstöðvum i austurátt út á haf.
Fólk sést hér standa í hlíöum Helgafells og má sjá hve húsin eru nálægt gossprungunni. í einni svipan breyttist vind-
áttin. Þá gekk glóandi vikurinn inn yfir Kirkjubæina og kveikti í fyrstu húsunum. Glóandi vikurmolarnir þeyttust yfir
austasta hluta bæjarins. DV-myndir GVA
Rúmri viku eftir aö gosið hófst var heljarinnar vikurfjall búið að myndast og hraun farið að renna í átt til innsigling-
arinnar á Heimaey.
Þrátt fyrir gífurlegt magn af gjalli
tókst mönnum að moka húsin upp.
Hér sést glitta í eitt húsið.
Glóandi hraunið mjakaðist áfram og braut allt sem fyrir varö. Hús brotnuöu og brunnu og ekki varð viö neitt ráðið.
Um 400 hús og íbúðir eru undir gjalii og hrauni í Eyjum. Þau hús sem stóöu næst sprungunni og fóru fyrst undir
hrauniö eru í dag grafin um 200 metra í jörð niöur.
Götunafn tekið af húsi til minningar
um góða og fallega götu sem var að
hverfa í djúp ösku og hrauns.
Mynd tekin vib rafstöðina sem gloandi hraunið braut niður. Miklu magni vatns var sprautað á
hraunstreymiö til að reyna að hægja á því. Hér sjást björgunarmenn munda vatnsslöngurnar.
Séö frá höfninni. Eldtungurnar teygðu sig til himins og
svartan og illúðlegan mökk lagöi frá gosinu.