Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1998, Side 9
FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1998
9
dv Stuttar fréttir
Utlönd
Fjöldamorðingi gripinn
Bosníuserbi, sem grunaöur er
um morð á yfir 60 múslímskum
fongum, var gripinn í gær af friö-
argæsluliðum NATO. Hann var
fluttur til Haag þar sem hann
verður leiddur fyrir Alþjóða-
stríðsglæpadómstólinn.
Friðarfundur
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
átti í gær tvo fundi með Yasser
Arafat, leið-
toga Palestínu,
í Washington.
Tjáði Clinton
Arafat að það
væri ósk sín
að ísraelar
kveddu heim
her sinn frá að
minnsta kosti 10 prósentum af
landsvæði Vesturbakkans.
Palestínumenn vilja fá 30 prósent
svæðisins sem er miklu stærra
svæði en ísraelar vilja afhenda.
Gefur skýrslu
Yfirmaður vopnaeftirlits Sam-
einuðu þjóðanna, Richard Butler,
mun í dag gefa Öryggisráði SÞ
skýrslu um misheppnaða for sína
til íraks.
Melludólgur
Svissneskur dómstóll hefur
dæmt melludólg til að greiða
vændiskonu 110 þúsund dollara í
skaðabætur eftir að hún kærði
hann fyrir að hafa haldið 90 pró-
sentum af launum hennar.
Kaczynski játar
Theodore Kaczynski, sem er
fyrrverandi stærðfræðiprófessor,
viðurkenndi í
gær að vera
hinn svokall-
aði Una-
bomber. Þar
með komst
hann hjá. því
að vera dæmd-
ur til dauða.
Samkvæmt samkomulagi við
saksóknara fær Kaczynski i stað-
inn lifstíðarfangelsi. í 17 ár stóð
hann fyrir fjölda sprengjuhótana
og -árása sem urðum þremur að
bana.
Á leið til Mir
Bandaríska geimskutlan
Endeavour er nú á leið með geim-
fara til rússnesku geimstöðvar-
innar Mir. Reuter
Clinton þrætir fyrir ástarævintýri meö lærlingi:
Gore trúir á sak-
leysi forsetans
Bill Clinton Bandaríkjaforseti vís-
aði algjörlega á bug í gær öllum
ásökunum um að hann hefði átt í
ástarsambandi við unga stúlku sem
var í starfsþjálfun í Hvíta húsinu.
A1 Gore varaforseti sagðist trúa orð-
um forsetans. Kenneth Starr, sér-
stakur saksóknari sem rannsakar
málið, lýsti því yfir að rannsókn-
inni yrði hraðað.
Forsetinn og menn hans velta nú
vöngum yfir því hver sé besta leiðin
fyrir forsetann til að fjalla um mál-
ið, áður en hann heldur stefnuræðu
sína í þinginu á þriðjudagskvöld.
Lögfræðingurinn Vemon Jordan,
einkavinur Clintons, hitti frétta-
menn í gær og vísaði á bug fúllyrð-
ingum um að hann hefði, að undir-
lagi Clintons sjálfs, sagt Monicu
Lewinsky, fyrrum lærlingi i Hvíta
húsinu, að ljúga til um meint ásar-
samband við forsetann. Ef rétt reyn-
ist, gæti það leitt til þess að forset-
inn þyrfti að segja af sér.
Samband þeirra Clintons og
Lewinsky á að hafa byrjað árið 1995
þegar Lewinsky var 21 árs.
Til stóð að Lewinsky gæfi eið-
svarinn vitnisburð í kynferðis-
áreitnimáli Paulu Jones gegn forset-
anum í dag en dómarinn í málinu
hefúr frestað því um óákveðinn
tíma, eftir samráð við lögfræðinga
málsaðila. Lewinsky hefur þegar
lagt fram eiðsvama skýrslu í mál-
inu þar sem hún segist ekki hafa átt
í ástarsambandi við forsetann.
Saksóknarinn Kenneth Starr,
sem er að rannsaka Whitewater
fasteignahneykslið sem Clinton hef-
ur verið bendlaður við og nú máli
Lewinsky, hefúr lengi verið forset-
anum erfiður ljár í þúfú. Hann neit-
aði þó í gær kvörtunum úr Hvíta
húsinu að hann væri í eins konar
krossferð gegn forsetanum.
„Ég trúi staðfsastlega á stað-
reyndir og á sannleikann og að
sannleikurinn muni að lokum koma
í ljós,“ sagði Starr við fréttamenn.
T';[3eo,ch \v
Félagar í hópi sem kallar sig tryggu stjórnarandstöðuna efndu til mótmælaaðgerða fyrir framan Hvíta húsið í
Washington í gær og kröfðust afsagnar Clintons forseta vegna nýjasta kynlífshneykslisins. Mótmælendur kröfðust
þess einnig að forsetinn yröi dæmdur fyrir embættisafglöp. Slmamynd Reuter
Páfi gagnrýndi
kommúnismann
á Kúbu
Jóhannes Páll páfi átti í gær
fund með Fidel Kastró Kúbufor-
seta í byltingarhöllinni í Havana
nokkrum klukkustundum eftir
að hann hafði gagnrýnt kommún-
ismann í úti-
messu í Santa
Clara, þar sem
jarðneskar leif-
ar byltingarfor-
ingjans Che
Guevara eru.
í messunni,
sem um 120
þúsund manns sóttu, fordæmdi
páfi fóstureyðingar og gagnrýndi
yfirvöld á Kúbu fyrir að skipta
sér af uppeldi bama.
Á Kúbu eru næstum öll böm
skyldug til að sækja heimavistar-
skóla frá 14 ára aldri. Sagði páfi
aðskilnað bama og foreldra oft
hafa alvarlegar afleiðingar, eins
og til dæmis ótímabærar kyn-
lífsiðkanir.
í byltingarhöllinni leiddi
Kastró páfa um ganga og ræddi
kurteislega við hann. Engar
fregnir hafa borist af því um
hvað formlegar viðræður þeirra
snemst. Að loknum fundi sínum
skiptust páfi og Kastró á gjöfúm.
Amerískur
útiuistarfatnaður
Cortina Sport
Skólavörðustíg 20 - Sími 5521555
Build
Nestlé Build-Up er bragðgóður drykkur sem inniheldur 1/3 af ráðlögðum
dagskammti (RDS) af 12 vítamínum og 6 steinefnum auk prótíns og orku
Nestle
<$0
o(j Vitamins
iMintrcds/
Slmpiy
SACHETS
Mdi
Build-Up fyrir alla
Góð aðferð til þess að auka neyslu vítamína og
steinefna þegar þú þarft á aukakrafti að halda.
»* Hentar bömum (eldri en 3ja ára) sem eldra fólki
t
og öllum þar á milli.
Build-Up á meðgöngu og
með barn á brjósti
Tryggir aö nægiiegt magn næringarefna sé til
staðar á þessum mikilvæga tíma
Build-Up eftir veikindi
Sér til þess að þú færð öll réttu næringarefnin til
þess að ná skjótum bata
Build-Up - fljótiegur drykkur
Eitt bréf út í kalda eða heita mjólk eða
ávaxtasafa gefur þér fljótlegan og bragðgóðan
drykk stútfullan af næringarefnum
Uppiýsingar
um næringarinnihald:
(38 gr. bréfi blönduöu (284 ml. af mjólk
% af RDS
Orka kj 1395
kcal 330
Prótín 9 18,0
Kolvetni g 37,1
þar af sykur g 36,5
Fita g 12,4
þar af mettuö g 7,5
Trefjar g 0,6
Natríum g 0,4
Kalíum mg 810
Vftamfn
A-vítamín H9 300,0 38%
B1-vítamín mg 0,6 43%
B2-vítamín mg 1,0 63%
B6-vítam(n mg 0,9 45%
B12-vítamín H9 1,7 170%
C-vítamín mg 23,0 38%
D-vítamín ng 1,8 36%
E-vítamín mg 3,3 33%
Bíótín mg 0,06 40%
Fólín H9 84,0 42%
Níasín mg 6,2 34%
Pantótenat mg 3,0 50%
Steinefni
Kalk mg 607,0 76%
Joö þg 94,0 63%
Járn mg 5,5 39%
Magnesíum mg 132,0 44%
Fosfór mg 534,0 67%
Zink mg 6,3 44%
Dæmi um hvaö
vítamín og steinefni
gera fyrir þig
A-vítamín
Nauösynlegt til vaxtar og viöhalds
vefja. viöheldur mykt og heilbngöi
hörunds. Ver slimhuö i munni. nefi.
halsi og lungum. Eykur viönam gegn
sykingum og bætir sjonina. Hjalpar viö
rnyndun beina.
B2-vítamín ^RiboN.ívint
Hjalpar viö aö nyta orkuna i fæöu.
hjalpar viö myndun motefna og rauðra
bloökorna. Nauösynlegt til aö viöhalda
hörundi. noglum. hari og goön sjon.
Nsacin (Nrasin-vitamm B3)
Bætir bloörasina og lækkar kolestrol i
bloöi. Viöhelduf taugakerfinu. lækkar
háan bloðþrystmg, hjalpar viö meltingu
og stuölar aö heilbrigöi huðat.
Zink
Mjog mikilvægt fyrir onæmiskerfiö.
flytir fyrir aö sar groi og er mikilvægt
fyrir.stoöugleika bloðsms. Viöheldur
alkaline jafnvægi likamans.
s ú k k u I a ó i
jaróaberja
v a n i I I u
bragóiaust