Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1998, Blaðsíða 11
JU>V FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1998
menning
11
Jenö Jando - galdramaöur á hljóðfæri sitt. DV-mynd Hilmar Þór
Rússíbani
Það minnti helst á æsilega ferð í rússíbana að sitja á
tónleikum í Háskólabíói í gærkvöld. Þar mátti ferðast í
hæstu hæðir og dýpstu dali og hraðinn á ferðalaginu mik-
ill. Á stundum var sem maður ferðaðist í mörgum sviðum,
færi hátt á einu en hrapaði hratt á öðru. Þessi andlegu,
spennubundnu ferðalög byggðust á tónverkunum sjálfum
sem flutt voru, flytjendunum og þá bæði einleikara og
hljómsveitarmeðlimum og svo stjómandanum.
Á efhisskránni vom fjögur verk, öll eftir ungversk
tónskáld. Svítur eftir félagana Bartok og Kodaly römm-
uðu inn flutning á tveimur píanókonsertum eftir Frans
Liszt. Einleikari í þeim einn kannski frægasti hljóðfæra-
leikari Ungverja, Jenö Jando píanóleikari.
Tónlist
Sigfríður Björnsdóttir
Þessi fyrrnefnda rússíbanaferð hófst með svitu eftir
Kodaly, Dansar frá Galanta. Þó að sígaunastefin sem
hún byggist á kitluðu einstaka sinnum athyglisgáfuna
þá var það ekki nóg til þess að hæðum væri náð. Verk-
ið er í mörgum smærri köflum, líkt og svítur em jafn-
an, en þeir tolldu einkennilega illa saman og sálræn
framvinda heildarinnar þvinguð og óeðlileg. Ekki bætti
úr skák að hljóðfæraleikur var brogaður, strengir í upp-
hafi t.d. ótrúlega ósamtaka. Þó áttu bæði verk og flytj-
endur góða spretti.
Eftir þessa upphitun byrjaði svo hið glannalega ferða-
lag hlustenda fyrir alvöra. Einleikarinn kom og reynd-
ist galdramaður á hljóðfæri sitt. Svo magnaður var gald-
ur hans að hann þurfti ekki nema örfáa takta með lág-
marks hljómsveitarþátttöku til að gera hverja sál að
sinni. Fyrri konsertinn, nr. 1, hefur enn ótrúlega ferskt
yfirbragð og er flygillinn þar í skemmtilega djörfu aðal-
hlutverki. En jafnvel hljómsveit í aukahlutverki getur
sett strik í reikninginn. Hljóðstyrkur kemur ekki í stað
tilfmningar fyrir takti og samhæfing við einleikarann
virtist hanga á bláþræði. Þannig skrifast hátindar fyrir
hlé á Liszt og Jando, en dalbotnarnir á stjórnandann En
Shao og hljómsveitina.
Þessi afstaða hélst óbreytt í seinni konsertinum, nema
hvað framlag Liszts lækkaði nokkuð flugið á löngum köfl-
um. Jando var farinn að hjálpa til við stjómunina með því
að bíða á þýðingarmiklum augnablikum eftir því að menn
væru allir komnir á sama stað. En Shao missti nánast
taumhaldið stöku sinnum enda mikiil munur á því hvem-
ig einleikari og hljómsveit túlkuðu slag hans. Verkið var
þó leikið til enda, en báða konserta hefði hljómsveitin
greinilega mátt æfa mun betur. Einleiksstrófum einstakra
hljóðfæraleikara var þó yfirleitt skUað af miklu listfengi
og á engan haUað þó sérstaklega sé minnst framlags Bryn-
dísar HöUu Gylfadóttur í þessu verki og leiks Einars Jó-
hannessonar í þeim öUum.
Önnur svíta, Makalausi Mandaríninn, eftir Bartok
var lokaverk tónleikanna. Verkið er krefjandi í æpandi
miskunnarleysi sínu sem náðist að túlka mjög sannfær-
andi. Stjómanda og hljómsveit var þakkaö innUega í
lokin, menn að öUum likindum ánægðir með að lenda
heUu og höldnu á jörðinni eftir spennandi endasprett.
les brot úr einleiknum Við höfum
aUar sömu sögu að
segja. Loks ætlar Gísli
Rúnar að flytja brot
úr leikritinu Við horg-
um ekki, við borgum
ekki en hann lék
einmitt í frumupp-
færslu þess verks hér
á landi svo vel að
seint gleymist.
Dagskráin hefst kl.
20.30 en húsið verður
opnað kl. 19.30. Ekki
koma of seint.
Trúður af guðs náð
ítalska leikskáldið
og leikarinn Dario
Fo fékk nóbelsverð-
launin í bókmennt-
um í fyrra, virtustu
verðlaun veraldar
fyrir orðlist. Þá urðu
margir undrandi og
ýmsir hneykslaðir,
ekki síst ítalskir
hægrimenn, því
Dario hefur verið
ansi óþægur ljár i
þeirra þúfu áratug-
um saman.
Listaklúbbur Leikhúskjallarans
ætlar að halda upp á þessa óvæntu
verðlaunaveitingu á mánudags-
kvöldið með dagskrá helgaðri Dario
Fo og eiginkonu hans og samstarfs-
manni, leikkonunni Fröncu Rame.
Halldóra Friðjónsdóttir leikhús-
fræðingur, sem menntuð er á Ítalíu,
talar um hjónin og sýnir mynd-
bandsupptökur af sýningum þar
sem þau eru i aðalhlutverkum. Hún
er svo heppin að hafa séð þau með
eigin augum í Páfanum og norninni
árið 1990 í Róm. Vala Þórsdóttir
vann lokaverkefni í enskum leiklist-
arskóla upp úr verkum Dario Fo og
sendi honum afraksturinn. Hann
varð svo hrifinn að hann bauð
henni á námskeið til sin í fyrrasum-
ar. Vala leikles einleikinn Nauðgun-
ina í Leikhúskjallaranum á mánu-
dagskvöldið og Jóhanna Jónas leik-
Listasafnið færir út
kvíarnar
Listasafn íslands hefur keypt hús-
eignina Laufásveg 12 sem er 850 fer-
metrar, á þrem hæðum. Kaupin
leysa húsnæðisvanda Listasafnsins
því í nýja húsinu mun fara betur
um bóka- og heimildasafn Lista-
safnsins en hingað til og það getur
sinnt betur upplýsingaþjónustu við
almenning en hægt hefur verið.
Skrifstofur safnsins verða í nýja
húsinu og einnig forvörsludeild og
fræðsludeild.
Listaskóla lokað
Starfsemi Listaskólans við Ham-
arinn í Hafnarfirði hefur verið lögð
niður og hefur rekstraraðili hans,
Listvör sf., skilað húsnæðinu að
Strandgötu 50 til bæjaryfirvalda. Sá
Listvör sér ekki fært að halda starf-
seminni áfram án frekari stuðnings
af hálfu bæjaryfirvalda.
Þeim sem hugðust leggja stund á
myndlistarnám við Hamarinn er
bent á Námsflokka Hafnarfjarðar og
myndlistarskóla Kópavogs, Garða-
bæjar og Reykjavíkur.
Myndlistarnámskeið
Talandi um myndlistamám þá
em námskeið í uppsiglingu hjá
fræðsludeild Myndlista- og handíða-
skóla íslands.
Námskeið í myndbreytingum í
tölvu verður í tölvuveri MHÍ í Skip-
holti 1, 2.-6. febrúar. Þar er kennt að
tóna einlitar myndir, breyta mynd-
um og lagfæra. Kennari er Leifur
Þorsteinsson.
7.-14. febrúar verður kennt að
þrykkja myndir á leir, meðal ann-
ars með silkiþrykksaðferð þar sem
þrykkt er á hráa og hrábrennda
hluti og glerjað yfir. Kennslan fer
fram í Skipholti 1 en nánari upplýs-
ingar gefur Fræðsludeildin í síma
551 9811.
Umsjón
Silja Aðalsteinsdóttir
*7
H
B E T R A
m
Regluleg
líkamsþjálfun
og rétt mataræði
er lykilinn að góðri heilsu
og hraustlegu útliti
-# - #
/
Þeir sem hugsa
um heilsuna
drekka
Egils Bergvatn
og Kristal
A
Fjöldi
hollustutilboða
á Heilsuviku
i Hagkaupi
HAGKAUP
Fjöidi námskeiða
og timar við allra hæfi,
hjólatimar og tækjasalur.
Hringið og
leitió upplýsinga
i sima 533 3355
Fylgist með daglegri umfjöllun um
heilsu og hollustu i heilsuátakinu
Leið til betra lifs
i DV og á Bylgjunni
frá 15. janúar til 4. febrúar.