Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1998, Síða 22
34
FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1998
Messur
Árbæjarkirkja: Guösþjónusta kl. 11.
Barnaguðsþjónusta kl. 13. Allir for-
eldrar velkomnir. Prestarnir.
Áskirkja: Barnaguösþjónusta kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 14. Ámi Bergur Sig-
urbjömsson.
Breiðholtskirkja: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 11. Sr.
Sigurjón Árni Eyjólfsson messar.
Tómasarmessa kl. 20. Fjölbreytt tón-
list, fyrirbænir og máltíð Drottins.
Gísli Jónasson.
Bústaðakirkja: Bamamessa kl. 11.
Foreldrar hvattir til þátttöku með
bömunum. Guðsþjónusta kl. 14.
Pálmi Matthíasson.
Digraneskirkja: Messa kl. 11.
Sunnudagaskólinn á sama tíma. Létt-
ur málsverður eftir messu.
Dómkirkjan: Guðsþjónusta kl. 11.
Prestur sr. Jakob Á. Hjálmarsson.
Skólamessa kl. 14. Altarisganga.
Prestur sr. Jakob Á. Hjálmarsson.
Bamasamkoma kl. 11. í safnaðar-
heimilinu i umsjá Auðar Ingu Ein-
arsdóttir.
Elliheimilið Grund: Guðsþjónusta
kl. 10.15. Prestur sr. Kjartan Om Sig-
urbjömsson.
Eyrarbakkakirkja: Bamaguðsþjón-
usta kl. 11. Sóknarprestur.
Fella- og Hólakirkja: Guðsþjónusta
kl. 11. Prestur sr. Guðmundur Karl
Ágústsson. Barnastarf á sama tíma.
Prestamir.
Fríkirkjan i Reykjavik: Guðsþjón-
usta kl. 14. Gospelsystur Kvennakórs
og Stúlknakórs Reykjavíkur syngja
ásamt Kór FríkirRjunnar í Reykja-
vik. Barnaguðsþjónusta kl. 11.15.
Prestur sr. Magnús B. Bjömsson.
Grafarvogskirkja: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11 i Grafarvogskirkju. Bama-
guðsþjónusta kl. 11 i Engjaskóla. Guðs-
þjónusta kl. 14 í Grafarvogskirkju. Sr.
Vigfús Þór Árnason prédikar og þjón-
ar fyrir altari. Prestarnir.
Grensáskirkja: Barnasamkoma kl.
11. Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Ólafur Jó-
hannsson.
Hallgrímskirkja: Barnasamkoma og
messa kl. 11. Barnakór Hallgríms-
kirkju syngur. Sr. Ragnar Fjalar Lár-
usson prédikar og er þetta síðasta
guðsþjónusta hans i kirkjunni að
sinni. Tónleikar Schola cantoram kl.
17. Stjórnandi Hörður Áskelsson.
Landspitalinn: Messa kl. 10. Sr. Ingi-
leif Malmberg.
Háteigskirkja: Bamaguðsþjónusta
kl. 11. Sr. Helga Soflla Konráðsdóttir.
Messa kl. 14. Sr. María Ágústsdóttir.
Hjallakirkja: Fjölskylduguösþjón-
usta kl. 11. Sr. íris Kristjánsdóttir
þjónar. Barnaguðsþjónusta kl. 13.
Prestamir.
Innri-Njarðvikurkirkja: Messa kl.
14, altarisganga. Sunnudagaskóli kl.
11 sem fer fram í Ytri-Njarðvíkur-
kirkju. Böm sótt að safnaðarheimil-
inu kl. 10.45 og Grænási kl. 10.40.
Keflavikurkirkja: Sunnudagaskóli
kl. 11. Munið skólabilinn. Guðsþjón-
usta kl. 14. Prestur sr. Sigfús Baldvin
Ingvason.
Kirkjuvogskirkja: Hátíðarmessa,
altarisganga, Prófastsvísitasía. Pró-
fastur, dr. Gunnar Kristjánsson,
heimsækir söfnuðinn, prédikar í
messunni og þjónar fyrir altari ásamt
sóknarpresti.
Kópavogskirkja: Barnastarf í safn-
aðarheimilinu Borgum kl. 11. Guðs-
þjónusta kl. 11. Altarisganga. Ægir
Fr. Sigurgeirsson.
Langholtskirkja: Kirkja Guðbrands
biskups. Messa kl. 11. Prestur sr. Jón
Helgi Þórarinsson. Kaffisopi eftir
messu. Bamastarf kl. 11.
Laugameskirkja: Bamaguðsþjón-
usta kl. 11. Messa kl. 14. Eftir messu
verður boðið upp á kaffiveitingar í
safnaðarheimilinu. Jón Dalbú Hró-
bjartsson kveður Laugamessöfnuð
formlega þennan dag í báðum guðs-
þjónustunum.
Lágafellskirkja: Bamastarfið verð-
ur að þessu sinni i Lágafellskirkju kl.
11 og kemur I stað hinnar almennu
guðsþjónustu. Bill frá Mosfellsleið fer
venjulegan hring. Jón Þorsteinsson.
Neskirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Starf fyrir 8-9 ára böm á sama tíma.
Opið hús frá kl. 10. Kirkjubíllinn
ekur. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Frank
M. Halldórsson. Tónleikar kl. 17. Sin-
fóníuhljómsveit áhugamanna.
Óháði söfnuðurinn: Þjóðlagamessa
kl. 14. Barnastarf á sama tíma. Hópur
úr Hafnarfjarðarfjarðarkirkju leiðir
helgihald undir stjórn Þórhalls Heim-
issonar í samfélagi við safnaðarprest.
Kaffi eftir messu.
Seljakirkja: Krakkaguðsþjónusta kl.
11. Guðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónust-
inni útvarpað. Sr. Irma Sjöfn Oskars-
dóttir prédikar. Guðsþjónusta kl. 14.
Sr. Valgeir Ástráðsson prédikar.
Guðsþjónusta í þjónustumiðstöðinni
Árskógum kl. 16. Sr. Valgeir Ástráðs-
son prédikar. Prestarnir.
Seltjarnarneskirkja: Messa kl. 11.
Prestur sr. Baldur Kristjánsson.
Barnastarf á sama tíma.
Stokkseyrarkirkja: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Sóknarprestur.
Ytri-Njarðvíkurkirkja: Sunnudaga-
skóli kl. 11. Brúðuleikhús. Baldur
Rafn Sigurðsson.
Fólk í fréttum
Agnar Gunnarsson
Agnar Halldór Gunnarsson,
bóndi á Miklabæ í Akrahreppi í
Skagafirði, hefur verið málsvari og
flutningsmaður þeirrar tillögu að
hreppurinn greiði ungu fólki
hreppsins hundrað þúsund krónur í
bameignarstyrk. Þetta kom fram í
DV-frétt í gær.
Starfsferill
Agnar fæddist í Bolungarvík 23.1.
1953 og ólst þar upp. Hann var í
bamaskóla í Bolungarvík, einn vet-
ur í Gagnfræðaskólanum á ísafirði,
stundaði nám við ML og lauk þaðan
stúdentsprófi 1973. Hann stundaði
síðan nám við guðfræðideild HÍ og
lauk embættisprófi í guðfræði 1979.
Agnar var kennari við Grunn-
skóla Suöurfjarðahrepps á Bíldudal
1981-86 og jafnhliða framkvæmda-
stjóri Sláturfélags Arnfirðinga á
Bíldudal um þriggja ára skeið, var
kennari i Varmahlíð í Skagafirði
1986-93 en stundaði jafnframt bú-
skap á Miklabæ frá 1986 og hefur al-
farið helgað sig búskapnum frá
1993.
Agnar situr i hreppsnefnd Akra-
hrepps frá 1990, var formaður sókn-
amefndar á Bíldudal, sat í stjóm
hestamannafélagsins Stiganda, er
formaður Veiðifélags Skagafjarðar,
situr í áfengisvarnanefnd Akra-
hrepps og er stjómarformaður Slát-
ursamlags Skagfírðinga.
Fjölskylda
Agnar kvæntist 5.6. 1981 Döllu
Þórðardóttur, f. 21.3. 1958, bónda og
starfandi prófasti á Miklabæ. Hún
er dóttir Þórðar Arnar Sigurðsson-
ar deildarstjóra og Auðar Eir Vil-
hjálmsdóttur, sóknarprests í
Þykkvabæjarprestakalli.
Synir Agnars og Döllu eru
Trostan, f. 25.11. 1981,
menntaskólanemi við
MA; Vilhjálmur, f. 15.5.
1985, nemi í Akraskóla.
Systur Agnars era
Kristin, f. 12.8. 1954,
kennari í Bolungarvík;
Ósk, f. 26.12. 1956, kenn-
ari í Kópavogi.
Foreldrar Agnars era
Gunnar Halldórsson,
fyrrv. sjómaður í Bolung-
arvík, og k.h., Helga Guð-
mundsdóttir húsmóðfr.
Ætt
Gunnar er sonur Halldórs Þor-
geirs, b. í Bolungarvík, Jónassonar,
b. í Svansvík, Jónssonar, b. á Keldu
og í Vatnsfjarðarseli, Jónssonar.
Móðir Gunnars var Agnes Veron-
ika Guðmundsdóttir, vinnumanns í
Kotum í Önundarfirði, bróður Þor-
bjargar, ömmu Gunnars Ásgeirs-
sonar stórkaupmanns. Guðmundur
var sonur Ásgeirs, b. í Heydal, Jóns-
sonar, b. í Kollabúðum, Jónssonar,
læknis í Ármúla, Einarssonar. Móð-
ir Guðmundar í Kotum var Guðrún
Jónsdóttir. Móðir Guðrúnar var
Þorbjörg, systir Jónasar á Bakka,
langafa prófessoranna Jónasar og
Halldórs og skólastjóra VÍ,
Þorvarðar, Elíassona. Þorbjörg var
dóttir Þorvarðar, b. á Bakka Sig-
urðssonar, ættfoður Eyrardalsætt-
arinnar, Þorvarðarsonar. Móðir
Agnesar var Margrét, systir Elísa-
betcU-, langömmu Magneu, ömmu
Þrastar Árnasonar skákmeistara.
Margrét var dóttir Bárðar í Súða-
víkurkoti, Guðmundssonar, b. í
Amardal, Pálssonar. Móðir Guð-
mundar var Margrét Guðmunds-
dóttir, hreppstjóra í Neðri-Amar-
dal, Bárðarsonar, ættföður Arnar-
dalsættarinnar, Illuga-
sonar. Móðir Margrétcir
var Þórunn Þorbergsdótt-
ir, b. á Meiribakka,
Hjaltasonar, bróður
Ólafs, langafa Ólafar,
móður Jóns Nordal tón-
skálds.
Helga er dóttir Guð-
mundar, b. og kennara á
Blesastöðum, Magnús-
sonar, b. í Votumýri,
bróður Guðlaugar,
ömmu Sigurgeirs Sig-
urðssonar biskups, föður
Péturs biskups. Magnús var sonur
Sigurðar, b. á Votumýri, Guð-
mundssonar og Guðrúnar Gísladótt-
ur. Móðir Guðmundar á Blesastöð-
um var Guðrún Eiríksdóttir, b. á
Reykjum, Eiríkssonar, ættfoður
Reykjaættarinnar, Vigfússonar.
Móðir Guðrúnar var Sigríður Stur-
laugsdóttir, b. á Brjánsstöðum,
Gunnarssonar og Þorbjargar, systur
Knúts, langafa Tómasar Guðmunds-
sonar skálds og Hannesar Þorsteins-
sonar þjóðskjcdavarðar.
Móðir Helgu var Kristin Jóns-
dóttir, b. í Vorsabæ, Einarssonar, b.
á Syðri-Brúnavöllum, Eggertssonar.
Móðir Jóns var Vilborg Ketilsdóttir
frá Skálholti. Móðir Kristínar var
Helga Ragnhildur, hálfsystir, sam-
feðra, Vigdísar, langömmu Vigdísar
forseta. Helga Ragnhildur var dóttir
Eiríks gamla, b. í Vorsabæ, Hafliða-
sonar auðga á Birnustöðum, Þor-
kelssonar. Móðir Helgu var Ingveld-
ur Ófeigsdóttir, ættföður
Fjallsættarinnar, Vigfússonar.
Móðir Ingveldar var Ingunn, systir
Eiríks á Reykjum og dóttir Eiríks,
ættfóður Reykjaættarinnar,
Vigfússonar.
Agnar Gunnarsson.
Afmæli_________________________
Sigurður Kristján Björnsson
Siguður Kristján
Björnsson rafveituvirki,
Fálkakletti 1, Borgarnesi,
verður fertugur á
morgun.
Starfsferill
Sigurður fæddist í
Reykjavík og ólst þar
upp. Hann stundaði nám
við Bændaskólann á Hól-
um í Hjaltadal og lauk
þaðan búfræðiprófi 1976,
lauk prófi í frjótækni
1986, stundaði nám við
Rafiðnaðarskólann og
lauk sveinsprófi þaðan í rafveitu-
virkjun 1992.
Sigurður vann við bústörf í Borg-
arfirði, i Vatnsdal í Austur-Húna-
vatnssýslu og í Danmörku í eitt ár.
Hann hóf störf í byggðarlinuflokki
hjá RARIK 1979 en hefur starfað í
rekstrarflokki RARIK i Borgarnesi
frá 1981. Þá er hann umboðsmaður
Bílaleigu Akureyrar í Borgamesi
frá 1982.
Sigurður hefur gegnt
ýmsum trúnaðarstörfum
fyrir rafveituvirkjafélag
íslands, m.a. verið for-
maður félagsins í níu ár
og hefúr setið í miðstjórn
Rafiðnaðarsambands ís-
lands fyrir hönd síns fé-
lags er hann var formað-
ur.
Sigurður er áhugamaður
um knattspyrnu og er
mikill stuðningsmaður
Skallagríms í Borgamesi.
Hann var einn af stofn-
endum Stuðningsmanna-
klúbbs Skallagríms 1997 og er for-
maður klúbbsins.
Fjölskylda
Sigurður kvæntist 6.8. 1983 Elínu
Bjamadóttur, f. 21.8. 1962, húsmóð-
ur. Hún er dóttir Bjama Sigurðsson-
ar sem lést 1981 og Kristjönu Guð-
mundsdóttur, starfsmanns við
Sjúkrahús Reykjavíkur, en hún er
búsett í Kópavogi.
Böm Sigurðar og Elínar era Erla
Guðrún Sigurðardóttir, f. 26.11.1982;
Sigríður Ása Sigurðardóttir, f. 3.9.
1987; Bjami Sigurðsson, f. 27.3. 1989;
Birkir Sigurðsson, f. 23.5. 1995.
Systkini Sigurðar era Jóhanna
Björnsdóttir, f. 20.2. 1957, húsmóðir
í Reykjavík; Örn Björnsson, f. 1.12.
1959, trésmiður í Reykjavík; Krist-
jana Bjömsdóttir, f. 8.12.1962, kenn-
ari í Reykjavík; Bjöm Bjömsson, f.
16.12. 1964, kennari og skipstjóri í
Namibíu; Ingibjörg Bjömsdóttir, f.
15.9. 1971, húsmóðir í Hveragerði.
Foreldrar Sigurðar: Björn Sig-
urðsson, f. 22.8. 1932, d. 11.9. 1980,
leigubílstjóri í Reykjavík, og Ragn-
heiður Erla Hauksdóttir, f. 3.10.
1938, húsmóðir í Reykjavík.
Ragnheiður Erla giftist aftur
Þórði Júlíussyni, f. 6.8.1937, d. 26.10.
1995, pípulagningameistara. Þau
bjuggu í Flatey til 1995 en þá flutti
Ragnheiður Erla til Reykjavíkur.
Sigurður og Elín taka á móti
gestum að heimili sínu,
laugardaginn 24.1. frá kl. 17.00-21.00.
Sigurður Kristján
Björnsson.
Til hamingju
með afmælið
23. janúar
80 ára
Karl G. Guðmundsson,
Bústaðavegi 15, Súðavík.
Þórður Jónsson,
Grandavegi 47, Reykjavík.
75 ára
Ásta Ámadóttir,
Heiðargerði 14, Reykjavík.
María Elvira Ólafsson,
Skipasundi 60, Reykjavík.
Pálina Jónsdóttir,
Skólavegi 2,
Vestmannaeyjum.
Ragnhildur
Metúsalemsdóttir,
Sauðhaga 1, Egilsstöðum.
70 ára
Anders Guðmundsson,
Smáratúni 31, Keflavík.
Konráð Pétursson,
Dverghömrum 28, Reykjavik.
Markús Stefánsson,
Fitjasmára 6, Kópavogi.
60 ára
Alfreð Ámason,
Hlíðargötu 34, Neskaupstað.
Bergljót Gyða Helgadóttir,
Löngubrekku 11, Kópavogi.
Kristín Zoéga,
Breiðuvík 18, Reykjavík.
50 ára
Bragi Guðmundsson,
Kársnesbraut 106, Kópavogi.
Guðrún Brynjólfsdóttir,
Eskihlíð 12, Reykjavík.
Kristinn J. Albertsson,
Hringbraut 48, Hafnarfirði.
Steimmn Káradóttir,
Rauðagerði 48, Reykjavík.
Þórleif Sigurðardóttir,
Sólvallagötu 32, Keflavík.
40 ára
Katín Inga
Karlsdóttir,
Tryggvagötu 22,
Selfossi.
Eiginmaður
hennar er
Karl Bjömsson, bæjarstjóri á
Selfossi.
Erling Kjæmested,
Bústaðavegi 103, Reykjavík.
Marey Linda Svavarsdóttir,
Asparteigi 1, Mosfellsbæ.
Ólafur Óskar Óskarsson,
Aðalstræti 16, Akureyri.
Sigríður H. Ingimarsdóttir,
Birkihlíð 31, Sauðárkróki.
Sigríður Soffía
Böðvarsdóttir,
Reynigrand 77, Kópavogi.
Sigrún Sigurðardóttir,
Efstakoti 3, Bessastaðahreppi.
Snæbjöm Sigurgeirsson,
Nökkvavogi 18, Reykjavík.
Sverrir Mar Albertsson,
Hólabraut 4 B, Hafnarfirði.
Þorbjöm Svanur Jónsson,
Vogum, Hofshreppi.
Kristjana Guðmundsdóttir og Helga Leifsdóttir skera laufabrauö.
Þorranefndin öll t undirbúningnum. Sigurður blótsgoöi í forgrunni í skraut-
legri peysu.
DV-myndir Þórarinn
Þorrinn blótaður
„Það er vissara að blóta þorra, ef
ekki er ekki víst hvað getur gerst,“
sagði Sigurður Ingvarsson, blóts-
goði á Eskifirði og formaður Verka-
lýðsfélagsins Árvakurs. Eskfirðing-
ar voru nú í vikunni að undirbúa
þorrablót sitt og mættu margir til
leiks.