Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1998, Qupperneq 24
36
FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1998 TW
nn
Ummæli
Skilaði vett-
lingunum
„Ég skilaði Friðriki vettl-
ingunum. Ég þarf
ekki að nota þá
því það verður
ekkert barið á
puttana á mér.
Það hefur ekki
verið barið á þá
hingað til og ég
á ekki von á að það
verði gert. En það gæti kom-
ið sér vel fyrir Friðrik að
eiga tvenna."
Páll Pétursson félagsmála-
ráðherra um gjöf fjármála-
ráðherra til samráðherra
sinna, í Degi.
Þorramaturinn
„Það væri helst við hæfi
og í stíl við sjálfan
þorra„matinn“ að selja hann
upp úr tunnum í einhverjum
kumböldum við höfnina. Þá
gætu menn sem vilja vera
„þjóðlegir" snætt hann í sér-
hönnuðum toríkofum."
Steingrímur Sigurgeirsson
fréttastjóri, í DV.
Hákarl og brennivín
„Það er ótækt eftir að
maður hætti að
drekka að þurfa
að éta hákarl því
maður át hann
bara til að hafa
tilefni til að
drekka brenni-
vín.“
Flosi Ólafsson leikari, í DV.
Af eldsneyti og mat
„Ég þekki engan sem
myndi nokkurn tímann
kaupa annars flokks elds-
neyti á bílinn sinn. Hins veg-
ar setur ótrúlega stór hluti
fólks mat ofan í sig sem ekki
er hægt annað en telja ann-
ars og jafnvel þriðja flokks
eldsneyti."
Guðrún Póra Hjaltadóttir
næringarfræðingur, í DV.
Verndari
kvótakerfisins
„Hvemig list kjósendum á
! þá staðreynd að
, Halldór (Ás-
, grímsson) er höf-
, undur og vernd-
ari kvótakerfis-
ins sem er að
! gera fjölda
fólks eignar-
laust um land
allt um leið og hann er að
skapa feikileg verðmæti fyr-
ir sjálfan sig og fáeina út-
valda?“
Valdimar Jóhannesson,
framkvæmdastj. Samtaka
um þjóðareign, í Morgun-
blaðinu.
veit
’úÆ:'h k w m - ■
. - . . . v . < ' /• >, • ,* r*
♦ «~s' I,\' ■ '' ***
v v # 5 .;v<* 9 *t;
o*'
Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir sundkona:
sund fer vel saman
Námog
DV, Akranesi:
„Ég veit ekki hvemig ég mun
nota ferðastyrkinn en ég á eftir að
fara á mót í júní eða júlí. Um er að
ræða Evrópumeistaramót unglinga
í Belgíu. Styrkveitingin kom mér
svolítið á óvart en ég hefði hins veg-
ar viljað fá aðeins meira,“ segir Kol-
brún Ýr Kristjánsdóttir, 14 ára af-
rekskona á Skaganum, sem fékk um
daginn 60.000 króna ferðastyrk frá
Akraneskaupstað.
Þó svo að Kolbrún Ýr verði að-
eins 15 ára á þessu ári er hún kom-
in i röð fremstu sundkvenna á ís-
landi og árangur hennar, bæði inn-
anlands og erlendis, var stórglæsi-
legur á síðasta ári. Hún setti á
þriðja tug meta, ____________
Akranes-, ung-
linga- og ís-
landsmet. Kol-
brún vann til fjögurra einstaklings-
verðlauna á Smáþjóðaleikunum og
setti leikjamet. Hún stóð sig vel á
Norðurlandameistaramótinu í
sundi, þar sem hún var Norður-
landameistari unglinga í 50 metra
skriðsundi, og á alþjóðlegum mót-
um erlendis. Meðal annars var hún
í þriðja sæti á ólympíuleikum æsk-
unnar í Portúgal. Hún varð önnur í
kjöri íþróttamanns Akraness og
kom það sumum á óvart.
Kolbrún á ekki langt að sækja
íþróttahæfileikana. Afi hennar er
Ríkharður Jónsson, einn af bestu
knattspymumönnum á sínum tíma,
en hann lék með gullaldarliði Akur-
nesinga, Fram, íslenska landsliðinu
og lék fjóra leiki
með Arsenal í Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir.
Metropolitan-deildinni og tvo leiki
með fyrstu deildar liðinu á móti
enska landsliðinu. Auk þess er mik-
ið um afreksmenn i ættinni.
„Þennan góða árangur þakka ég
þeim mikla stuðningi sem ég fæ frá
fjölskyldunni og henni Sigurlínu
Þorbergsdóttur, þjálfara mínum,
sem er alveg frábær, og svo öllum
sem hafa komið nálægt þessu,“ seg-
ir Kolbrún. Henni finnst vel búið að
sundfólki á Akranesi en er
hins vegar ekki kunn-
ugt um það hvernig
búið er að sund-
fólki úti á
landi. „Mér
fmnst það
hins vegar
Maður dagsins
bráð-
nauðsyn-
legt að fá
50 metra
innisund-
laug sem
fyrst svo að
við getum
staðist saman-
burð við sund-
fólk i öðrum
löndum."
„Námið
og sundið
fer vel
saman
og ég er
að fá
ágætis einkunnir, en oftast þarf ég
að skipuleggja hlutina þannig að
þetta gangi upp. Það afrek sem mér
fmnst standa upp úr hjá mér á síð-
asta ári er þriðja sætið á ólympíu-
leikum æskunnar sem haldnir voru
í Portúgal á síðasta ári. Þar setti ég
fyrsta íslandsmet mitt í fullorðins-
flokki. Það var í 100 metra
baksundi. Stefnan hjá mér á næst-
unni er að gera enn þá betur en ég
hef gert og halda áfram og á næstu
árum hef ég í hyggju að kom-
ast á sem flest mót til að
öðlast sem mesta
reynslu. Svo stefni
ég að því að komast
á Ólympíuleik-
anna í Sydney
árið 2000. Það
þýðir ekkert
annað en að
stefna hátt.“
Kolbrún Ýr seg-
ir að það það sé
ekki tími til
annarra áhuga-
mála en að
stunda sundið.
Hún býr í
heimahúsum hjá
foreldrum sínum,
þeim Kristjáni
Hannibalssyni múr-
arameistara
og Ingunni
Ríkharðs-
dóttur, leik-
skólakenn-
ara og fyrr-
verandi
ifS. sundkonu.
-DVÓ
Áhugi íslendinga á alpa-
greinum hefur aukist veru-
lega eftir frábæran árangur
Kristins Björnssonar.
Heimsbikarinn
á skíðum
Heimsbikarkeppnin í
alpagreinum var fyrst hald-
inn 1967. Sá sem oftast hef-
ur unnið er Svíinn Ingemar
Stenmark, hefur unnið 86
Blessuð veröld
sinnum, 46 sinnum í stór-
svigi og 40 sinnum í svigi.
Gerði hann þetta á tímabil-
inu 1974 til 1989. Eitt keppn-
istimabilið sigraði hann 13
sinnum. Stenmark vann sér
það meðal annars til frægð-
ar að vinna 14 sinnum i röð
í stórsvigi, frá 23. febrúar
(afmælisdagurinn hans)
1978 til 21. janúar 1980. Sá
sem unnið hefur flesta sigra
í bruni er Austurríkismað-
urinn Franz Klammer sem
sigraði samtals 25 sinnum á
árunum 1974 til 1984.
Annemarie Moser (Pröll)
hefur unnið flestar einstak-
lingskeppnir kvenna, alls 62
sinnum. Gerði hún þetta á
árunum 1970 til 1979.
Keppnistímabilið 1989 vann
Vreni Schneider frá Sviss
þrettán sinnum í heimsbik-
arkeppni kvenna, þar af í
öllum sjö svigkeppnunum.
Myndgátan
Sæsími
'EyþoR,-
Myndgátan hér að ofan lýsir Orðasambandi.
Eggert Þorleifsson og Björn Ingi
Hiimarsson í hlutverkum feðga í
Feörum og sonum.
Feður og
synir
Leikfélag Reykjavíkur sýnir í
kvöld á stóra sviði Borgarleik-
hússins Feður og syni eftir ívan
Túrgenjev. Leikurinn gerist í
Rússlandi um miðja nitjándu öld.
Hinn ungi Arkadí kemur með
skólafélaga sinn, hinn bráðgáf-
aða Basarov, á óðal foður síns.
Basarov gerir árangurslausar tO-
raunir til að vekja þessa rót-
grónu og efnuðu fjölskyldu af
óhagganlegu andvaraleysi. En
hann er kvalinn af togstreitu
mikilla tilfinninga og grípur til
örþrifaráða með skelfilegum af-
leiðingum.
Leikhús
í hlutverkum í Feðrum og son-
um eru Bjöm Ingi Hilmarsson,
Eggert Þorleifsson, Guðlaug El-
ísabet Ólafsdóttir, Guðrún Ás-
mundsdótth', Halldóra Geir-
harðsdóttir, Kristján Franklin
Magnús, Pétur Einarsson, Sóley
Elíasdóttir og Þorsteinn Gunn-
arsson. Leikstjóri er Alexsei
Borodin og sá hann einnig um
leikgerð.
Bridge
íslenskir bridgespilarar kannast
margir við hugtakið „gúmmískvís".
Það er notað um hendur þegar vörn-
in telur sig vera þvingaða í afköst-
um, án þess að þvingunin sé í raun
til staðar. Hollendingar kalla þessa
„þvingunarstööu" „Dutch Squeeze",
en þessi nafngift kom fram eftir
frægt spil Hollendinganna Comeli-
usar Slavenburg og Hans Kreyns á
London Times-boðsmótinu árið
1968. Hollendingarnir sátu í NS og
höfnuðu í dobluðum 5 hjarta samn-
ingi eftir mikla sagnbaráttu. Útspil
vesturs var spaðatvistur:
* D962
V 84
* ÁG72
* D63
4 K74
«4 KG73
4- KD84
4 104
N
4 ÁG853
4 10953
4 K852
4 10
«4 ÁD109652
4 6
4 AG97
Slavenburg var sagnhafi og hann
setti kónginn í blindum og austur
ásinn. Austur spilaði áfram spaða
sem sagnhafi trompaði og spilaði
tígli. Vestur setti ásinn og hélt
áfram spaðasókninni. Nú virðist
blasa við að sagnhafí eigi aðeins 10
slagi og verði að gefa einn slag á
lauf í lokin. Slavenburg sá hins veg-
ar að vömin gat gert mistök í af-
köstunum og í stað þess að taka tvo
slagi á KD í tígli með laufafköstum
heima, ákvað hann að renna niður
öllum trompum sínum. Bæði austur
og vestur héldu að þeir þyrftu að
passa tígullitinn og hentu öllu öðm
en spilum í þeim lit. Slavenburg átti
eftir ÁG97 í laufi í ijögurra spila
endastöðu, vestur hafði hent sig nið-
ur á drottningu staka í þeim lit og
austur niður á kónginn stakan.
Fjórir síðustu slagir sagnhafa komu
því á lauf. ísak Öm Sigurðsson