Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1998, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1998 JLj"V
★ ★
Mikil breidd í framboði stærri og minni bíla:
Ný gerð dísilvéla sérlega spennandi
„Uppsveiflan í sölu nýrra bíla á
síðasta ári kom fram hjá okkur eins
og öðrum,“ segir Hallgrímur Gunn-
arsson, forstjóri Ræsis hf. „Það sem
háði okkur þó hvað snertir Mazda-
bílana var að þar skorti breiddina í
bílaframboði framan af árinu. Það
bætti töluvert úr þegar 626 kom og
þó enn betur þegar 626 station kom.
Það á síðan eftir að batna enn fram
eftir þessu ári þegar við fáum lítinn
bíl frá Mözdu, Demio. Svo eigum við
von á dísilvélum í 626 og 323.
Hjá Benz verður töluvert mikiö
um að vera. Við kynntum A-bílinn í
haust og allir þekkja þá sögu, en
fyrstu bílamir koma til afhendingar
núna í mars. Þar er spumingin bara
um að fá nógu mikið því það er
greinilegt að eftirspumin er meiri
en framboðið. M-bílsins, nýja
jeppans, er einnig beðið með mikl-
um áhuga. Svo má ekki gleyma því
að í lok ársins kemur nýr S-klassi
og það er alltaf viðburður þegar
flaggskipið er endurnýjað.
Núna aftur á móti emm við að fá
fyrstu dísilbílana með „common ra-
il“ tækninni, einbunuvélar, og
væntum okkur talsvert mikils af
þeim. Þær vélar em hljóðlátari, þýð-
gengari og verulega aflmeiri en
sambærilega stórar dísilvélar af
eldri gerðum og það ætti að gefa
okkur góð sóknarfæri á þeim hluta
markaðarins sem hún hentar.“
Úthugsaða stefnu vant-
ar gagnvart dísilgjaidi
- Nú hefur þú nefnt dísil bæði viö
Mazda og Mercedes. Verðið þið ekk-
ert varir við varfæmi fólks gagn-
Hallgrímur Gunnarsson, forstjóri hjá Ræsl hf.: „Getum boöiö allt fró 2,5 metra borgabll upp 150 tonna tæki.“
vart dísilvélum vegna þess aö það
veit enginn hvaða stefna veröur
u Þú M'
Kláradu dæmið
með SP-bílaláni
Með SP-bllalán inni I myndinni
býðst þér ián til aiit að 7 ára
• 75% lánaö til allt að 7 ára í nýjum bíl
endanlega tekin um innheimtu
vegagjalds af dísilbílum - hvort það
veröur áfram slumpur, fer inn í ol-
íuverðið eða eitthvað eitt enn verö-
ur uppi á teningnum?
„Jú. Eins og er þarf að aka mjög
mikið á fastagjaldi af dísilfólksbíl til
aö ná kostnaðarjofhun við bensín-
fólksbíl í rekstri. í flestum tilvikum
er þaö einhvers staðar nálægt 20
þúsund kílómetra ársakstri, sem
enn er talsvert yflr meðalakstri
hins almenna bíleiganda. Með þessu
er verið að hygla bensinbílum.
Gagnvart stærri bílum búum við nú
við akstursmæla, kerfi sem þrátt
fyrir endurbætur er þannig að
menn treysta því ekki. í ljósi þess
kom upp sú stefna að lita dísilolíu
aðra en þá sem færi til notkunar á
bíla. í þessu sambandi var horft til
annarra Evrópuþjóöa þar sem er til-
tölulega algengt að olía sé lituð með
þeim hætti sem fyrirhugaö er hér.
En þá kemur í ljós að mjög marg-
ir „eiga“ að fá ódýra olíu áfram:
bátaflotinn, húsaupphitun, vinnu-
vélaeigendur, bændur. Þetta eru um
80% af dísilolíumarkaðnum og dálít-
ið öfugsnúið dæmi að fara að lita 80
prósentin. Þar fyrir utan er litunar-
kerfið langt í frá fullkomið heldur.
Það losar okkur við mælana, sem er
jákvætt, en því fylgir mikill stofn-
kostnaður í dreifingarkerfi og til-
tölulega hár reksturskostnaður.
Það er spuming hvort ekki er
kominn tími til að segja: Bíðum við
- eru ekki til fleiri leikir í stööunni?
Það er engin patentlausn til en
kannski er hægt að finna leið til að
dreifa þessum kostnaði á annan og
auðveldari hátt. Sá möguleiki er
líka fyrir hendi að ríkiö ákveði að
sætta sig við að hafa minni tekjur af
þessum liö. En það hefur alla tíð
veriö ófrávíkjanlegt skilyrði af
hálfu ríkisvaldsins aö halda sömu
tekjum áfram og helst að auka þær.
Best væri auðvitað frá allra sjón-
arhóli að þessi greiðsla kæmi jafn-
óðum og greitt er fyrir eldsneytið.
Að þessu leyti sjáum viö jákvæöu
hliöamar á lituninni, en við værum
ekkert sanngjarnir ef við horföum
ekki líka á hina hlið málsins."
Æskileat að einfalda
vörugjaldsflokkunina
„í samhengi við þetta er kannski
ekki úr vegi að koma inn á vöru-
gjaldaflokkana og þá neyslustýringu
sem í þeim felst. Ég vil hafa stöðug-
leika og ekki koma aftan að mark-
aðnum með ótímabærum breyting-
um. Þetta viðhorf heyri ég líka frá
neytendum og fólki úr öllum stjóm-
málaflokkum, að andi laganna eigi
að vera eins einfaldur og hægt er,
þar með talið að einfalda vöru-
gjaldsflokka á innflutningi bíla.
Þetta var gert með vörubílana á síð-
asta ári. Þar var tekið mjög jákvætt
skref og vörugjaldið lækkað í 15%
sem er gott, en samt enn þá of hátt
sem svarar þessum 15 prósentum.
Efnahagslíf okkar gengur í mikl-
um bylgjum og fyrirtækin hafa átt
bágt með að bregðast við þessum
snöggu sveiflum upp og niður. Ef
við stæðum jafnfætis öðmm Evr-
ópulöndum þannig að aukakostnað-
ur okkar af að kaupa, eða selja, at-
vinnubíla hvar sem væri á Evrópu-
svæðinu væri aðeins flutnings-
kostnaðurinn, væri miklu auðveld-
ara að bregðast fljótt og hagkvæmt
við sveiflum með því að kaupa eða
selja eftir því sem verkefni og efna-
hagsástand segðu fyrir um.“
Tækni og verð skrefi á
undan keppinautunum
- En hvaö er að gerast með at-
vinnubíla hjá Ræsi hf.?
„Á síðasta ári kynntum við nýju
Atros-vömbílana. Þeir em nú sem
óðast að koma í gagnið, en það er
um tveggja ára ferli að skipta út
allri vömbílalínunni. Við emm
núna á vormánuðum aö fá fyrstu
þriggja ása bílana. Reynslan er mjög
fin það sem af er og við njótum þess
að þama er ný tækni sem viður-
kennt er að er alveg skrefmu á und-
an keppinautunum og verðið líka.
Þar að auki er að koma ný lína í
millistærð vömbíla, frá 7 til 15
tonna, sem líka verður ódýrari en
þeir sem hún tekur við af.
Á síðasta ári kynntum við fjór-
hjóladrifnu sendibílana af Sprinter-
gerð sem núna eru að fara í fjölda-
framleiðslu og fara að birtast í
margvíslegum útfærslum. í strætis-
vögnum em líka margar spennandi
nýjungar og gaman að geta sagt frá
því aö eftir sameiningu Setra og
Mercedes Benz í Eurobus er sú ein-
ing nú farin að skila hagnaöi sem
boðar ýmsa jákvæða hluti fyrir
Mercedes Benz.
Breiddin í því sem við getum boð-
ið er eins og sjá má af þessu tölu-
verð. Ég gleymdi raunar að minnast
á minnsta bílinn, sem við fáum þó
ekki fyrr en næsta vetur, smábílinn
Smart. En þegar hann er kominn
getum við boðiö allar geröir bíla frá
2,5 metra borgabíl upp í - ja - 50
tonna tæki!“ S.H.H.
NP-varahlutir:
Góðir kveikjuþræðir fyrir japanska bíla
• Þú ert skráöur eigandi að bílnum
• Ekkert lokagjald
• Mánaðargreiðslur við þitt hæfi
• Þú gctur cndurnýjaö bílinn í annan nýjan
eða greitt upp lánið hvcnær
sem er á lánstímanum
• Lægri kostnaður ef þú crt f greiðsluþjónustu
SP-FJÁRMÖGNUN HF
Vegmúla 3 ■ 108 Reykjavlk ■ Slml 588 7200 ■ Fax 588 7201
í rysjóttri veðráttu hér á landi er eitt veiga-
mesta atriðið í viðhaldi bíla aö halda kveikju-
þráðunum í lagi. Gallaðir eða óhreinir
kveikjuþræðir geta orsakað gangtrufianir eöa
þá hreinlega að bíllinn fari ekki í gang.
Bílaumboðin og varahlutaverslanir hafa
boðið bileigendum nýja kveikjuþræði til end-
urnýjunar á þeim gömlu og nú bjóða NP-vara-
hlutir á Smiðjuvegi 24 í Kópavogi góðan val-
kost fyrir eigendur japanskra bíla en það eru
góð kveikjuþráðasett, sem gerö eru eftir sömu
stöðlum og bílaverksmiöjurnar í Japan setja.
Þræðirnir eru með sérlega stórum kertahett-
um sem falla alveg yfir kertin og vernda þau
vel fyrir raka og óhreinindum.
Samkvæmt upplýsingum frá Valdimar Jörg-
enssyni hjá NP-varahlutum kosta þráðasettin
frá 3800 kr. ' -JR
Góö kveikjuþráöasett fyrir
japanska bíla fást hjá NP-
varahlutum í Kópavogi.