Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1998, Page 8
22
0/ar
MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRUAR 1998
Sala á ítölskum bílum einkum í stærri bílunum:
Smábílakaupendur hunsa
öryggisbúnaðinn
„Árið 1997 var fyrsta heila árið
okkar með bílana frá Fiat-samsteyp-
unni, þannig að við getum sagt að
við höfum komið á réttum tíma,“
segir Páll Gíslason, forstjóri ístrakt-
ors. „Það hjálpaði okkur mjög mik-
ið því við vorum í upphafi að glíma
við draug, Fiathræðsluna. En með
góðri hjálp, meðal annars bílablaða-
manna á íslandi, hefur þessi draug-
ur nú látið verulega á sjá þannig að
staðan er allt önnur núna en var
fyrir 14-15 mánuðum þegar við byrj-
kaupa minnstu bíl-
ana sem ef til vill
ættu að vera öðrum
fremur að hugsa um
öryggið. Því enginn
veit hver er næstur.
Vegna öryggisbún-
aðarins erum við í
hærri kantinum
hvað verð snertir en
viðskiptavinurinn
metur það einskis."
uðum.“
Smábílakaupandinn
JDÍ
horfir á veromiðann
Undir sæng
meðan stor-
hríðin stendur
„Við vissum i rauninni afar lítið
í upphafi hvað við vorum að fara út
i. Ég sagði til að byrja með að við
værum með smábílaumboðið Fiat
en reyndin er sú að við seljum eig-
inlega ekki smábíla. Aðalsölubílam-
ir eru millistærðarbílar,
Bravo/Brava, og stærri millistærð,
Marea. Okkur hefur ekki tekist að
saxa á söluna í Polo sem er aðal-
sölubíllinn í smábílum hér þrátt fyr-
ir að Fiat Punto hafi verið langsam-
lega söluhæsti bíllinn í Evrópu í
fyrra. En það er bara tiltölulega lít-
il sala i smábílum á Islandi.
Kannski er það í og með okkur að
kenna, en mér finnst að markaður-
inn hér vanmeti Puntoinn að því
leyti að hann sé álitinn minni en
hann er. Það er líka hluti af þessu
máli að okkar bílar eru með allan
öryggisbúnað: læsivarðar bremsur,
tvo öryggisloftpúða, kippibelti.
Þetta kostar allt peninga og það er
ekki nema einn greiðandi aö öUu
saman, viðskiptavinurinn. Og það
er meira áberandi i hópi þeirra sem
kaupa smábíla heldur en hinna að
viðskiptavinurinn lítur á verðmið-
ann en skeUir skoUeyrunum við því
hvaða öryggisbúnaður fylgir.
Það er svo skrýtið að sjá þetta
mest áberandi meðal þeirra sem
- Á skiptingin 1
vörugjaldsflokka
einhverja sök á
þessu?
„Ég tel satt að
segja að bílar á ís-
landi séu nokkuð
hóflega skattaðir. Ef
við lítum til dæmis
til Danmerkur eru
þeir með fáránlega
skattlagningu, stig-
hækkandi eftir
hækkandi verði sem
gerir góða og vand-
aða bíla alveg gríð-
arlega dýra. Smábíl-
ar eru þar tiltölu-
lega lægst skattaðir
en eru samt dýrir.
Það er spurning
hvort hæsti flokkur-
inn hjá okkur ætti
að lækka eitthvað,
en það er í algjörri
andstöðu við það
sem önnur lönd eru
að gera. Þar eru
frekar hækkaðar
álögur á stóra bUa
sem nota mikið elds-
neyti og menga þar
af leiðandi meira.
Páll Gíslason, forstjóri hjá ístraktor: „Palio á eftir að fylla skarð í verðtöfluna
sem myndaðist þegar Lada datt út.“ DV-mynd E.ÓI.
Það er talað um að stórar fjöl-
skyldur þurfi stóra bíla og lega
landsins geri kröfu um bUa með
drifi á öllum hjólum. Kannski. En
eigum við ekki bara að kaupa einn
eða tvo snjóplóga í viðbót? Hvað
kosta þeir? Það á að leiðrétta og
létta undir með stórum fjölskyldum
meö öörum hætti en að lækka gjöld
til dæmis á Jrand Cherokee V8. Nú
er minna spurt um fjórhjóladrifs-
bUa, kannski vegna tíðarfarsins í
vetur sérstaklega, en almennt vegna
þess að það er orðin bylting í snjó-
ruðningi á Reykjavíkursvæðinu.
Það er varla sú gata sem ekki er
orðin hrein hálfátta tU átta að
morgni nema kannski akkúrat með-
an stórhrið stendur. Getum við ekki
bara skriðið undir sæng aftur þessa
örfáu daga? Það er miklu ódýrara."
- Þú býður dísilvélar og getur
boðið þaö í nánast aUa þína bUa:
„Já, og þá komum við að skatt-
Seljum bfla en afhend-
um þá ekki
og Ferrari Fl.“
Kosningar fram undan í
Garðabæ
lagningu sem er nánast alveg fá-
ránleg. Um það eru allir sammála
og hafa verið í mörg ár, en það ger-
ist fátt. Nú er eitt loforð enn, um
breytingu um næstu áramót og á
maður ekki að trúa því.“
- Hefur þú trú á því að það verði
■farið að lita 80% af seldri dísUolíu
á íslandi til að ná til þeirra 20 pró-
senta sem aka á dísUolíu?
„Er það ekki það sem tU stend-
ur? Einhvern veginn verður að
leysa þetta mál. Á þessu sviði
erum við heldur ekki í takt við það
sem er að gerast í nágrannalönd-
um okkar, þar sem verið er að
beina notkuninni meira inn á dísil
meðan við refsum þeim sem nota
dísil. Ég veit ekki hvaða aðferð á
að nota. Áreiðanlega eru til jafnvel
betri aðferðir en verið er að spek-
úlera í, ef menn settust virkUega
yfir vandamálið."
Toyota T-150
Hér til hliöar má sjá hugmynd
Toyota aö nýjum skúffubíl, T- 150,
sem var frumsýndur fyrir nokkrum
dögum í sambandi viö bílasýningu f
Chicago. T-150 er fyrsti skúffubíllinn
f fullri stærö sem Toyota í Bandaríkj-
unum smíöar, búinn stórri V8 vél og
meö stórt grill og mikla kanta eins
og bandarísku keppinautarnir.
Símamynd Reuter
I
1
(
I
- Hvernig byrjar árið hjá þér?
„Vel. Við eigum eftir að afhenda
núna jafn marga bíla selda og við
skráðum aUt árið í fyrra. Aðalvanda-
málið er að fá Alfa 156. Keppinaut-
arnir eru farnir að gera dálítið grín
að okkur, segja að við seljum bUa en
afhendum þá ekki. En þetta vanda-
mál er ekki einskorðað við okkur,
eftirspumin eftir þessum bU er langt
umfram framleiðslu. Enda er þetta
afbragðsbUl á góðu verði.
Við munum líka leggja áherslu á
Alfa 145 og 146, sem' er alveg kjörinn
fjölskyldubUl og á afar hagstæðu
verði. Þeir sem hafa keypt bUa nú
undanfarið ásamt miða tU útlanda
ættu bara að koma og kaupa Ölfú hjá
okkur. Þá gætu þeir sjálfir keypt
þrjá eða fjóra farmiða tU útlanda
jafnframt. Eftir rúman mánuð kem-
ur svo heimsbUlinn frá Fiat, Palio.
Við verðum með hann eingöngu sem
station með 75 ha. 1250 cc vél. Hann
verður eins og aðrir bilar okkar með
öUum öryggisbúnaði og á verði sem
erfitt verður að slá út. Hann fyUir
skarð í verðtöfluna sem myndaðist
þegar Lada hvarf af markaðnum.
Þegar kemur lengra fram á vorið
kemur Fiat Seicento, 600, á svipuðu
verði og gamli Cinguecento, 500, og
veröur boðinn sem rafmagnsbUl eða
bensínbUl. Það er forvitnUegt að fá
þennan nýja rafmagnsbU, sem á að
komast 200 km á hleðslunni, og verð-
ið verður líka gott. Enda hefur verið
ákveðið að á rafmagnsbUum verði
ekkert vörugjald. Þegar kemur
lengra fram á árið kemur lúxusbUl-
inn Alfa 166, nýr bUl sem þykir afar
faUegur. Hann verður með nýja
skiptingu, kúplingslausa handskipt-
ingu með tökkum í stýrinu, rétt eins
- Þá kemur lokaspurningin: Ertu
búinn að yfirvinna óþægindin af því
að vera í Garðabæ?
„Við reyndum að fá bæjaryfirvöld
tU að hjálpa okkur í því efni með því
að leggja útafkeyrslu af Reykjanes-
brautinni rétt hjá okkur. Það tókst
ekki, en nú eru bæjarstjórnarkosn-
ingar fram undan svo enn er nokkur
von. Því er borið við að útafkeyrslur
af Reykjanesbraut megi ekki vera of
margar. En við höfum talið þær ffá
gamla FáksheimUinu upp í Kópavog
og þar er þeim aUtaf að fjölga. Það er
bara frá Fífuhvammi út í Moldu-
hraun þar sem engar nýjar útaf-
keyrslur má gera. Það verður að
segjast að atvinnustarfsemi í Garða-
bæ hefur ekki verið mjög hátt skrif-
uð.
En það eru líka kostir við að vera
í Garðabæ: við getum treyst því að
þeir sem koma til okkar eru að koma
í alvöru. Það er fólk sem er að skoða
af áhuga og það gefur sér tíma tU að
skoða, spá og spekúlera.“ S.H.H.