Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1998, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1998 JL>V
24
#/ar
x
Bílabúð Benna:
Rétl stefna að bjóða vel búna bíla
- segir Benedikt Eyjólfsson
„Við getum ekki annað en verið
rosalega ánægðir með síðasta ár,“
segir Bendikt Eyjólfsson, eigandi
Bílabúðar Benna. „Við seldum meira
en 200 bíla frá Ssangyong á síðasta
ári sem er meira en bjartsýnustu
menn vildu trúa fyrirfram.
Við kynntum líka nýjan bíl, Kor-
ando, serm fékk mjög góðar viðtökur.
í upphafi bjuggumst við ekki við
miklu þegar hann kom en þetta
breyttist fljótt og viðtökumar voru
betri en við áttum von á. Þetta er að
grunni til sami bíll og Musso hvað
varðar tæknilega útfærslu, 500.000
krónum ódýrari og sportlegri þar að
auki. Þetta er bíll sem hefur hentað
vel þeim sem vilja góðan og öílugan
jeppa en þurfa ekki á 4ra hurða bil
að halda.
Ég vil einnig undirstrika hve við-
skiptavinir okkar eru almennt
ánægðir," segir Benedikt Eyjólfsson.
„Þegar við tókum inn fyrstu Musso-
bílana lögðum við mikla áherslu á að
búa bilana sérlega vel, með óvenju-
miklum staðalbúnaði, eins og menn
hafa séð í auglýsingum og umfjöllun
um bílana. Þegar við kynntum fyrstu
Korando-bílana voru þeir einnig
mjög vel búnir og það hefur sýnt sig
að vera rétt stefna því þegar menn
kaupa þessa bíla hjá okkur eru þeir
það vel búnir að það þarf ekki að
byrja að bæta við búnaði svo að
menn séu ánægðir.
Við kynntum Musso einnig með
breyttu útliti á afturenda á síðasta
ári og það var greinilegt að sú breyt-
ing féll í góðan jarðveg.
Ein veigamesta viðbótin var þó
sennilega sú að við kynntum nýja
4ra strokka bensínvél á síðasta ári
sem hefur komið sérlega vel út en
við erum með örugga vissu fyrir því
að bílar með svona vél eru aðeins að
eyða allt niður í 13 lítra á hundrað-
ið í bæjarakstri og 10 lítra á
hundraðið í langkeyrslu.
Með þessum bíl breikkuðum við
það svið sem við getum boðið bílana
á, jafnframt því að bjóða þá 600.000
krónum ódýrari. Þetta breytti
miklu en með þessu var hægt að fá
vel búinn jeppa í þessum stærðar-
flokki á 3 milljónir króna.“
Gott ár fram undan
„Ég get ekki verið annað en bjart-
sýnn á þetta ár. Við erum sérlega
„Dísilolía á aö vera eins skattlögö og bensín. Viö eigum að hætta þessu rugli
um þyngd,” segir Benedikt.
ánægðir með samstarfið við
Ssangyong í Kóreu. Þeir hafa lagað
öll þau atriði sem við höfum bent á.
I dag erum við að selja okkar bíla til
ánægðra kaupenda, bila sem hafa
tekið breytingum að hluta til vegna
ábendinga frá okkur.
Við ætlum að halda okkar striki.
Við pöntum alla okkar bíla sérstak-
lega frá Kóreu. Sumt í okkar bílum
er sérsmíðað eftir okkar óskum. Við
fáum betri dempara og það eru
Rain-X Plus í
rúðuvökvann
Margir ökumenn þekkja vel Rain-
X, efni sem bera má á rúður bUa tU aö
gera þær vatnsfælnari. Nú hefur
Skeljungur kynnt nýja útgáfu af þessu
efni sem heitir Rain-X Plus en nú er
munurinn sá að því er blandað í rúðu-
vökvann og á á þann hátt að hjálpa tU
við að halda ffamrúðunni hreinni.
Þegar rúður voru meðhöndlaðar
með „garnla" Rain-X varð yfirborð
þeirra mjög vatnsfæhð og vatnsdrop-
ar runnu léttUega tU hliðar undan
vindi í akstri þannig að nota þurfti
rúðuþurrkumar sjaldnar.
Með leiðbeiningum um notkun
kemur fram að innihald brúsans, sem
er hálfur lítri, dugar í 30 litra af rúðu-
vökva en einnig má blanda þetta nýja
efiii með vatni í sömu hlutfóllum og
setja á úðabrúsa og nota tU að hreisna
rúður.
Hafi rúður verið meðhöndlaðar
áður með Rain-X á þetta nýja efhi
blandað í rúðuvökvann að tryggja enn
betri virkni og endingu þess.
Auðvelt er að blanda efiiinu í rétt-
um hlutfóllum í rúðuvökva því þegar
tappinn er losaður er hægt að kreista
flöskuna létt og þá streymir vökvirm
upp í mæliglas í stútnum og þannig
fást 15 millUítrar sem passa í einn
líh’a af rúðuvökva.
Dana- hásingar undir öllum okkar
bUum en þær eru annars á öðrum
mörkuðum aðeins undir bUunum
með stærri vélamar.
Okkar samstarfsaðUar í Kóreu
segja fleiri hugmyndir að endurbót-
um og breytingum hafa komið frá
okkur en öUum öðrum löndum Evr-
ópu samanlagt. Eitt það veigamesta
sem hefur komið út úr þessu sam-
starfi er að bíUinn er verulega hljóð- j
látari en áður var.“
Hentar vel til breytinga <
„Eitt vil ég undirstrika varð-
andi Musso og Korando," segir
Benedikt. „Þessir bUar henta '
ótrúlega vel til breytinga, að mín-
um dómi, og hafa komið sérlega
vel út. Hér gildir einu hvort um
er að ræða breytingu yfir á 33ja
tomma, 35 eða 38 tomma dekk. Að
mínu viti er þetta besti bUlinn í
dag til breytinga á 38 tomma dekk
vegna þyngdar, vegna þess hve
þungi dreifist jafnt á hjól og að
hægt er að læsa drifum bæði að
framan og aftan en hægt er að fá
rétt og öflugari drifhlutfoU en í
öðrum bílum. í þessum efnum er '
þessi bUl sér á báti.
Ef við horfum tU breytinga á 33
tommur er mun breiðara val á (
markaðnum í dag.“
Hættum þessu hringli
Við beindum sömu spumingu tU
Benna og talsmanna annarra um-
boða um skattlagningu á bUa.
„Við eigum að hætta þessu hringli
með skattiagningu á bUa. Við eigum
að taka upp einn gjaldaflokk, 35% á
aUa bUa. í framhaldinu þarf aðeins
að breyta einni tölu og lækka þessa
skattiagningu í þrepum síðar.
Það er vitað mál að það koma
mjög litlar tekjur inn tU ríkissjóðs í
dag úr efsta þrepi vörugjalds á bUa. I
Ef þessu yrði breytt í einn flokk og
fólk hefði fijálst val um hvaða og
hvemig bUa það keypti þá sé ég j
miklu frekar fýrir mér að það verði
vandamál hvemig Friðrik fjámiála-
ráðherra ætii að eyða þessum pen-
ingum.
Það er betra að fá meira út úr
fleiri stærri btium og um leið að fá
inn öraggari og endingarbetri bUa
sem um leið er þjóðhagslega hag-
kvæmt.“
En hvað sér Benedikt Eyjólfsson
frcim undan varðandi dísUskattinn?
„DísUolía á að vera eins skattiögð
og bensín. Við eigum að hætta þessu
ragli um þyngd. Menn sem keyra
mikið eiga einfaldlega að greiða
meira. Á móti kemur að bílar með |
distivélum era hagkvæmari í
rekstri.“ -JR
Rain-X Plus, efni sem má blanda í
rúðuvökva og á aö hreinsa rúöurnar
betur og gera þær vatnsfælnari.
DV-mynd Hilmar Pór
Efnið fæst á bensínstöðvum Skelj-
ungs og kostar brúsi með hálfum Utra
af því kr. 895. -JR