Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1998, Qupperneq 12
26
MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1998 JU’V
Suzuki með framboð sem höfðar til íslenskra aðstæðna:
A sama verði og haustið '91
„Við erum fjallhressir með árang-
urinn eins og hann hefur verið und-
anfarið," segir Þorbergur Guð-
mundsson, sölustjóri Suzuki bíla hf.
„Við náðum nærri 40% aukningu
milli áranna 1996 og 1997 og 1998
hefur farið vel af stað. Þetta er í
rauninni mjög eðlilegt þegar litið er
á íslenskan smekk fyrir bilum og
það sem við höfum að bjóða. Þar á
ég við bíla með drifi á öllum hjól-
um, Baleno og Vitara. Baleno Wa-
gon varð fáanlegur sem fjórhjóla-
drifsbíll með árgerð 1997 og náði
strax vinsældum. Á síðasta ári seld-
ust um 120 Baleno með aldrifi, auk
þeirra sem seldust með hefðbundnu
framhjóladrifi. Það er svo sem eng-
in furða því bíllinn hefur reynst af-
burða vel og sýnt sig að vera mjög
vel gerður og henta fyrir okkar að-
stæður.
Vitarabílarnir hafa haldið sínu
striki með jafnri og þéttri aukningu,
samhliða því sem breiddin í fram-
boði hefur vaxið frá því að vera
þessi hefðbundni fjögurra strokka
jeppi með 1600-vélinni, fyrst með til-
komu V6- bílanna og síðan jeppanna
með dísilvélinni sem hafa fengið
mjög góðar viðtökur. Þetta er
tveggja lítra vél með túrbínu og
millikæli og hefur sýnt sig að vera
einkar gangþýð og sparneytin."
Vitara SE fær góðar
móttökur
„Nú erum við að kynna sérstaka
Evrópuútgáfu af þessum bíl á betra
verði en nokkurn tíma áður, enda
sýnir það sig að viðtökumar eru
skínandi og bíllinn uppseldur nú
þegar nokkuð fram í timann. Það er
gaman að sjá að núna, þegar við
bjóðum þennan bíl betur búinn en
nokkru sinni áður, er hann á sama
verði og Vitara kostaði haustið ’91.
Þú nefndir dísilbílana. Ég hef orð-
ið var við að fólk geldur varhug við
bílum með dísilvélum, sérstaklega
vegna þess háa gjalds sem sett er á
eigendur dísilbíla og einnig vegna
þess að enginn veit hvernig þetta
verður i framtíðinni. Eins og er geta
aðeins þeir nýtt sér kosti dísilvél-
anna sem aka mjög mikið og varla
hægt að segja að dísilvélar í litlum
bílum geti nokkurn tíma borgað sig.
Já, við verðum náttúrlega varir viö
visst óöryggi og stjómvöld hafa ver-
ið að hræra fram og til baka í
ákvörðunum um þetta mál. Það hef-
ur staðið til að færa skattinn inn í
olíuverðið en þeirri framkvæmd
hefur verið frestað ítrekað. Nú síð-
ast var því frestað fram að næstu
Þorbergur Guömundsson sölu-
stjóri: „Viö erum fjallhressir."
DV-mynd E.ÓI.
áramótum. Reyndar er það svo að
þá færi olíuverð að nálgast bensín-
verð mjög mikið þannig að hag-
kvæmnin af því að aka dísilbíl væri
þá af spameytni vélarinnar en engu
öðru.“
Litun olíu þung í fram-
kvæmd
„Litun olíu til annarra nota en
aksturs er það úrræði sem nú virð-
ist vera helst ofan á en oliufélögin
virðast, sem vonlegt er, ekki vera
neitt sérlega kát yfir þessu því þetta
þýðir geysilega kostnaðarsamar að-
gerðir í dreifikerfi, fyrir utan marg-
víslega aðra ágalla í þessu efni. Ég
hef svo sem ekki myndaö mér neina
endanlega skoðun á þessu en ég
held að það hljóti að verða talsvert
þungt í framkvæmd."
Nú heyrast raddir um breytingar
á vörugjaldi á bílum. Er ástæða til
að hafa mismunandi vörugjalds-
flokka?
„Það hefur legið í loftinu að ein-
hverjar breytingar yrðu til sam-
ræmingar og lagfæringar í heildina.
Það gæti haft einhver áhrif á að
lækka verð stærri bíla. Núgildandi
Ekki bara öryggi,
líka skemmtun
u 12 rása móttakari
24 klst. rafhlööuending
500 vegpunkta minni
16 geröir af merkjum
1024 ferilpunktar í plotter
Tracback breytir ferli í leið
Vatnshelt aö 1 metra dýpi
Umboðsaðilar:
Akranes - Guðmundur 8. Hanna
Akureyri - Haftækni
Grundarfjörður - Mareind
Höfn - Rafeindaþj. Jöhanns
ísafjörður - Pöllinn
Keflavík - Veiðislóð
Neskaupsstaður - Ennco
Reykjavík - Ellingsen
Reykjavík - Seglagerðin Ægir
Reykjavik - Skátabúðin
GPS12
Reykjavík - Útilíf
Reykjavík - Vesturröst
Reykjavík - Vélin
Seifoss - Tölvu- og Rafeindaþj.
Vestmannaeyjar - Geisli
jíi jnifís: Flskis)ó8 84
iiiÉi'
flokkun er náttúrlega einhvers kon-
ar neyslustýring sem menn hafa
ímyndað sér að leiddi til gjaldeyris-
spamaðar, að keyptir væru neyslu-
grennri bilar og þjóðhagslega hag-
kvæmari."
Enn stækkar Suzuki
„Suzuki hefur lengst af verið
framleiðandi litla bílsins en hann
hefur smám saman verið að stækka.
Og nú er enn ein stækkunin að
koma.
Breiddin sem er í boði hefur
aldrei verið jafnmikil og núna, allt
frá hefðbundnum smábil eins og
Swiftinum sem alltaf stendur fyrir
sínu. Baleno er stærri og svo náttúr-
lega jepparnir og nú styttist í að við
getum látið vita af jeppa til viðbótar
við þá Vitarabíla sem við höfum fyr-
ir. Þessi nýi jeppi verður með
tveggja lítra og tveggja og hálfs lítra
vélum og við vonumst til að geta
boðið hann á mjög þokkalegu verði.
Það er okkar stefna aö berjast fyrir
góðu verði og við reynum að halda
okkar rekstri og reksturskostnaði
þannig að við getum boðið það
áfram.“
S.H.H.
Litli Benzinn endurfæddur:
Nú má elgurinn koma
Nú er lokið endurbóta-
tímabili því sem
Mercedes Benz tók sér
áður en sala á þessum
fræga „smá-Benz“, A-bíln-
um, hæfist á nýjan leik.
Búið er að endurhanna
fjöðrun og afturöxul og án
efa er A-billinn einn allra
öruggasti bíll sem hægt er
að hugsa sér í dag.
Hann er þvi eflaust þess
albúinn að takast á við
hið fræga „elgspróf’ sem
velti honum á síðasta ári
með alkunnum afleiðing-
um.
Tilkynnt var fyrir
nokkrum dögum að sala á
A-bilnum myndi hefjast á
nýjan leik 26. febrúar.
„Nú má elgurinn korna," gæti þessi A-bíll sagt þar sem hann stendur fyrir framan
merki verksmiöjanna í Bonn. Símamynd Reuter
Loft og vökvafjöðrun í Cherokee?
Borist hafa af því fregnir að
tæknimenn og hönnuðir Chrysler
muni koma fram með nýjung þegar
nýr og gerbreyttur Grand Cherokee
sér dagsins ljós á næsta ári.
í stað hefðbundinnar gormafjöör-
unar mun vera ætlun þeirra að
koma með loft/vökvafjöðrun eða
„olíufiöðrun" í bílinn.
Auk þess að gera bílinn miklu
mýkri í akstri gefur svona fiöðrun
möguleika á fleiri stillingum og því
getur ökumaður valið hvort hann
vill stífa fiöðrun, miðlungs- eða
mjúka. Til viðbótar gefur svona
fiöðrun möguleika á því að stýra
veghæð bílsins, sem er kostur, jafnt
á hraðbraut og í torfærum.
Svona fiöðrun er alls ekki ný af
nálinni. Hver man ekki eftir
Citroen með svona fiöðrun en þar á
bæ var hún notuð á sjötta áratugn-
um. Þar gaf hún góða raun í akstri
og ökuferðin var silkimjúk eins og
setið væri í stofusófanum heima.
Gallinn á þessari fiöðrun var hins
vegar nokkur bilanatíðni og dýrt
viöhald. Með tækni dagsins í dag
ætti að vera hægt að leysa sumt af
gömlu vandamálunum, eins og sést
best á því að afbrigði af svona fiöðr-
un er þegar farin að sjást í öðrum
bílum, jafnt jeppum og fólksbílum.
Nú síðast í nýja stóra LandCruiser
sem verður frumsýndur innan fárra
vikna hér á landi.
Chevrolet Suburban
árgerð 1999
Sala jeppa og stórra skúffubíla hefur tekið mikinn kipp
í Bandaríkjunum að undanfómu. Bandarísku bílafram-
leiðendurnir keppast við að svara þessari eftirspurn og
þeir hjá General Motors vilja ekki vera þar eítirbátar.
Þeir hafa þurft að horfa upp á velgengni bíla eins og
Ford Expedition og Lincoln Navigator á Bandaríkjamark-
aði. Til að mæta þessu hafa þeir endurbætt stóru jeppana
sína og skúffubUa sem byggöir eru á sömu botnplötu.
Bæði Chevrolet og GMC- bUar þeirra breytast verulega og
fá nú nýjar V8-vélar auk endurbættra dísUvéla.
var kynntur fyrir blaðamönnum á bílasýningu f Chigaco
á dögunum. Z71 er meö grjótgrind úr grafítefni og þoku-
Ijós sem staöalbúnaö.