Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1998, Side 14
28
MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1998 DV
Dollarinn óhagstæður en franski frankinn hagstæður:
Peugeot seldist umfram áætlun
Stýrir siálfvirkt bili milli bíla
Búist er við að á þessu ári verði
einhverjir Mercerdes Benz-bílar,
líklega S-klassinn, fáanlegir með
skriðstilli með fjarlægðarskynjara.
Búnað þennan kalla þeir hjá Benz
ART. Hann er þannig gerður að þeg-
ar skriðstillirinn, Tempomat, er
settur á verður örsmár radarsendir
á vatnskassahlífmni virkur. Hann
skynjar annan bíl eða aðra hindrun
allt að 150 metra á veginum fram
undan og sendir jafnharðan boð til
bíltölvunnar sem reiknar á auga-
bragði út raunverulega íjarlægð og
hraðamuninn. Tempomat-skriðstill-
irinn sér síðan sjálfur um að slá af
hraðanum og jafnvel hemla með allt
að 20% hemlaafli til þess að fara
ekki of nærri bílnum sem á undan
fer. Ef það dugar ekki fær ökumað-
urinn hljóðmerki um að hann verði
að gera eitthvað sjálfur, bremsa að
fullu, beygja frá eða annað sem við-
eigandi kann að vera.
Ef þess er ekki þörf en umferðin
gengur hægar en skriðstillirinn er
stilltur á sjá radarskynjarinn og töl-
van um að halda sama hraða og um-
ferðin á undan. Ef hún herðir hins
vegar á sér, eða víkur af veginum,
tekur hraðastillirinn aftur óskoruð
völd og drífur bílinn upp í þann
hraða sem hann var í upphafi stillt-
ur á.
(Úr Mercedes Magazine)
Plastrúður í bíla eftir aldamótin
Loks virðist vera komið að því að
við getum farið að nota plastrúður í
staðinn fyrir hefðbundnai- rúður í
bíla. í byrjun verður aðeins um slík-
ar rúður að ræða í jeppum og van-
bílum en bílaframleiðendur hafa
komist að þeirri niðurstöðu að opn-
anlegir afturgluggar á slíkum bílum
henti yé\ til að reyna hversu vel
plastið standist daglega notkun. Þó
er ekki reiknað með því að fyrstu
bílarnir komi með plastrúður fyrr
en eftir aldamót.
Plast hefur ekki þótt gott í bíl-
glugga vegna þess hversu fljótt það
rispast en þróun þess hefur tekist
Vel að undanfórnu eins og sjá má af
því hversu mjög það er notað i gler-
augu í staðinn fyrir gler.
Þetta nýja plast, sem yerður notað
í bilglugga framtiðarinnar, verður
svipað því plasti sem í dag er notað í
glugga á blæjubílum og í þakglugga
en á að standast rispur betur.
- Guðmundur Hilmarsson, fram-
kvæmdastjóri hjá Jöfri hf.: - Þegar
maður kemur hér inn í fyrirtækið
núna má segja að allt sé á öðrum
endanum. Hér er verið að breyta og
bæta - hvað er að gerast?
„Við erum að breyta aðkomunni
þannig að allir sem eiga erindi við
fyrirtækið geti komið um sama inn-
gang, aðaldyrnar, og varahluta- og
dekkjasalan verða í tengslum við
sölu nýrra og notaðra bíla. Jafn-
framt geta viðskiptavinir gengið
skemmri leið út úr sölusalnum út á
svæðið þar sem við geymum notaöa
bíla. Um leiö stækkum við sýning-
arsalinn inn þangað sem varahluta-
verslunin var áður og fáum þannig
þægilegri umgang og auðveldari
leið til að koma með bíla inn í sal-
inn.“
- Á síðasta ári var uppsveifla á
bílamarkaðnum miðað við nokkur
ár þar á undan. Á sama tíma misst-
uð þið eina tegund út - kannski þá
tegund sem þetta fyrirtæki var upp-
runalega byggt á.
„Það eru sveiflur í þessu eins og
öllu öðru. I bílaframleiðslu eins og
öllu öðru verða ýmsar breytingar.
Þess er skemmst að minnast að þeg-
ar BMW keypti Rover-verksmiðj-
urnar fluttist Rover-umboðið frá
Heklu til B&L. Þegar Volkswagen-
verksmiðjumar keyptu Skoda, sem
þær eiga nú 95% í, fluttu þær Skoda
til Volkswagen-umboðanna."
Peugeot á afbragðsverði Guömundur Hilmarsson, framkvæmdastjóri Jöfurs hf.: „Óeölilegt aö mismuna bensínvélum og dísilvélum meö þeim hætti sem nú
„Þetta kom okkur ekkert á óvart.
Við lögðum höfuðáhersluna á Peu-
geot allt síðastliðið ár og náðum
112% söluaukningu á honum. Enda
er nokkuð ljóst að flestum sem prófa
Peugeot líkar hann mjög vel. Jap-
anskir bílar áttu hér markaðinn um
nokkur ár, enda á þeim tíma betur
búnir heldur en keppinautarnir og
á betra verði. Nú er þetta að snúast
allhressilega viö. Verðið á Peugeot-
bílunum núna er fyllilega sambæri-
legt við hvaða aðra bíla sem er og
búnaðurinn engu lakari, jafnvel
betri. Og hvað aksturseiginleika
áhrærir stendur Peugeot mjög
sterkur og fáir betur.
Áherslan var á Peugeot og
Chrysler. Við fórum fram úr áætl-
unum okkar um Peugeot og héldum
áætlun gagnvart Chrysler. Við
stöndum frammi fyrir því að það er
ekki hagstætt að versla einmitt
núna með bíla sem greiddir eru í
dollurum og fyrir það líða Chrysler-
bílamir að nokkru leyti. Á móti
kemur að það er hagstætt að versla
í frönskum frönkum og að hafa Peu-
geot-bílana í þeim gæðaflokki sem
þeir eru.“
Mismunandi vörugjald
óeðlilegt
- Skipting bíla í flokka eftir mis-
munandi vörugjaldi hlýtur lika aö
koma niður á Chrysler.
„Það er mjög óeðlilegt hvemig
mismunandi vöragjald á bíla kemur
út. Jeppamarkaðurinn hefur t.d.
tekið mikið mið af því að dísilvél,
sem skilar álíka orku og bensínvél,
er oftast í miklu lægri vörugjalds-
flokki þannig að bíllinn verður mun
ódýrari. Þess vegna er hærra hlut-
fall jeppa nú með dísilvélum heldur
en var áður. Allir þeir jeppar sem
við flytjum inn með bensínvélum
fara í 65% vörugjaldsflokk að und-
anskildum Cherokeejeppanum bein-
skipta."
- Lætur ekki fólk sem er að spá í
dísilbíl truflast af þeirri óvissu sem
er um hvað verður um dísilgjaldið
og hvemig það verður útfært?
„Jú, það er mjög mikið um það
spurt einmitt þessa stundina. Það er
mjög mikið um að fólk sem ekur 20
þúsund kílómetra á ári og þar yfir,
líka í fólksbílaflokknum, velti þessu
fyrir sér. Núna er ekki hagkvæmt
fyrir fólk að vera með dísilbíla fyrr
en ársaksturinn er kominn í 25 þús-
und kílómetra eða meira. Þetta get-
ur breyst mjög snögglega ef gjaldið
fer inn í olíuna og olían verður
kannski svona 10% ódýrari heldur
en bensínið. Þá er dísUbíllinn orð-
inn mjög hagkvæmur.
Það er að mínum dómi mjög
óeðlilegt að mismuna bensínvélum
og dísilvélum með þeim hætti sem
nú er gert nema það sé einhver
markviss aðgerð til þess aö hlúa að
því sem mengar minna og er hag-
kvæmara fyrir þjóðarbúið.
En þá verður líka að stíga
það skref til fulls og láta
það sjást.
Mér finnst líklegt að
dísilgjaldið fari í olíuverð-
ið. En það er mjög slæmt að
fá ekki að vita fyrir víst um
þá ákvörðun með góðum
fyrirvara því pantanir fyrir
bíla era gerðar með löngum
fyrirvara - 3-6 mánaða.
Mér kæmi mjög á óvart ef
stjórnvöld ákvæðu að
stuðla ekki að þvi að hér
kæmu mengunarminni bíl-
ar og hagkvæmari fyrir
þjóðarbúið. Olían er ódýr-
ari í innkaupsverði en
bensín svo þetta myndi
spara gjaldeyri. Vélarnar
eyða minna og endast bet-
ur, þannig að það er spam-
aður að þeim, alveg sama
hvemig á það er litið.“
Nýir bílar og harð-
kornadekk
- Hvað er nýtt fram und-
an í bilum hjá ykkur?
„í næsta mánuði munum
við sýna nýjan rafmagnsbíl
frá Peugeot. Við verðum
líka með á svipuðum tima
Peugeot 406 Coupé. Við
fáum nýjan Peugeot, vænt-
anlega í haust, sem á að
ergert." taka við af 205 og verður
líklega kallaður 206. Frá
Chrysler fáum við nýja Durango
jeppann, sem byggist á Dakota
skúffubúum. Seinna fáum við Ram
skúffubílinn með stutta skúffu og
fjögurra hurða húsi sem er nýung.
Aðrar nýjungar frá Chrysler koma
ekki hingað til okkar fyrr en á
næsta ári: Neon og væntanleg breyt-
ing á Grand Cherokee.
Svo má ekki gleyma því að við
verðum með ný harðkomadekk frá
Cooper en ég tel að einhvers konar
kornadekk ..eða loftbóludekk verði
það sem koma skal en nagladekkin
annaðhvort hverfi alveg eða notkun
þeirra minnki að minnsta kosti til
muna.“ S.H.H.
/VZVYLVVNE.
MAliAtlA HUuMTÆKi I BILA
Radar stgnals