Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1998, Page 16
MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1998 DV
30 Qflar
ý( -~k
Hver selur
hvað?
Bifreiöar og landbúnaðarvélar,
Ármúla 13,
S. 575 1200
BMW, Hyundai, Renault,
Rover.
Bílabúö Benna,
Vagnhöföa 23,
s. 587 0587
Ssangyong.
Bílheimar,
Sævarhöföa 2 A,
s. 525 9000
Isuzu, Opel, GM.
Brimborg,
Skeifunni 15,
S. 515 7000
Daihatsu, Ford, Volvo.
GMÞ,
Fosshálsi 27,
s. 587 4444
Hummer.
Hekla,
Laugavegi 170-172,
s. 569 5500
Audi, Mitsubishi,
Volkswagen, Skoda.
Honda á íslandi,
Vatnagörðum 24,
s. 520 1100
Honda.
Ingvar Helgason,
Sævarhöfða 2,
525 8000
Nissan, Subaru.
fstraktor,
Smiösbúö 2,
s. 565 6580
Alfa Romeo, Fiat,
Lancia.
Jöfur,
Nýbýlavegi 2,
s 554 2600
Chrysler, Jeep, Peugeot.
P. Samúelsson,
Nýbýlavegi 4-8,
s. 563 4400
Toyota.
Ræsir,
Skúlagötu 59,
s. 540 5400
Mazda, Mercedes Benz.
Suzuki bílar,
Skeifunni 17,
s. 568 5100
Suzuki.
Allt bílaframboðið
í einni töflu
- meira framboð - stærri tafla
Eins og undanfarin ár birta DV
bílar yflrlit yfir bílaframboðið með
greinilegri töflu, þar sem saman eru
borin helstu atriði sem máli skipta
er menn leggja upp með að velja sér
nýjan bíl. Að þessu sinni er taflan
stærri en nokkru sinni fyrr og
kemst ekki lengur á fjórar síður.
Því miður verður hún ekki eins
handhæg fyrir neytendur en ef til
vill er sjá menn sér hag í að klippa
fimmtu síðuna út og stinga henni
inn í hinar íjórar, ef þá langar til að
geyma töfluna sér til að geta flett
upp í henni siðar, eins og vitað er
að margir hafa gert undanfarin ár.
Sem fyrri daginn eru
upplýsingamar frá umboðunum og
tafla hvers umboðs unnin beint af
starfsmönnum þess. Umsjármenn
DV bíla hafa ekki tök á að yfirfara
þessar upplýsingar í heild eða
staðreyna. Samt er leitast við að
hafa þær eins samræmdar og unnt
er og þar sem augljósar sláttuvillur
hafa komið fyrir hafa þær verið
leiðréttar. Reynt hefur verið að gera
töfluna sem best úr garði og áreið-
anlegasta. Engu að síður er rétt að
gera fyrirvara um hugsanlegar
villur, sem geta stafað af
misskilningi eða einfaldlega af
vangá, þrátt fyrir vilja og viðleitni
til hins gagnstæða. Ef þær kunna að
fyrirfinnast eru þær sennilega um
smáatriði, sem koma fljótt i ljós ef
til alvörunnar kemur, svo sem um
hvort tiltekið atriði er fáanlegt sem
aukabúnaður, eða ekki.
Rétt er líka að benda á að tölur
eins og t.a.m. um hröðun og
eldsneytiseyðslu eru nú almennt
miðaðar við evrópskan
meginlandsstaðal. Þessar tölur ber
að taka sem viðmiðunartölur. Þær
eru gefnar upp miðaðar við
tilteknar aðstæður og geta aldrei
orðið óbrigðular stærðir.
Hröðunartala 0-100 km gefur aðeins
vísbendingu um viðbragðssnerpu
tiltekins bíls. I rauninni myndi
hröðunartala 0-60 skipta miklu
meira máli miðað við íslenskar
aðstæður, einnig millihröðun eins
og t.d. 60-80. Hvorugar þessar tölur
eru almennt tiltækar úr
upplýsingum framleiðendanna né
uppsláttarritum með upplýsingum
á borð við þær sem fá má úr
meðfylgjandi töflu.
Það er trú okkar, sem að þessu
stöndum, að tafla af þessu tagi sé
fróðleg og gagnleg. Um það höfum
við raunar fengið vitnisburð á
liðnum árum, og vonum að svo
verði áfram nú í ár. Ef lesendur
hafa hugmyndir um breytingar eða
bætur á henni væri gott að fá
upplýsingar um það. Þó ber að hafa
í huga að dálkum verður ekki
fjölgað frá því sem nú er.
Hugsanlegar endurbætur myndu
því felast í breytingum á þeim
upplýsingum sem hér koma fram.
JR. - SHH
i
ui>í.
Kraftur og feguró!
aS&BOðt,
1-360.000 kr.
Verö aóeins:
Oflug 1600 vel
PEUGEOT
LJÓN Á VEGINUM!
NYBYLAVEGI 2
SfM1: 554 2600
0PIÐ LAUGARDAG
KL. 13-17
Peugeot 306 - Njóttu!
Aflið og mýktin gefa Peugeot 306 frábœra aksturseiginleika. Peugeot 306 er
rúmgóður og ríkulega útbúinn evrópskur eðalvagn sem þú verður að prófa.
1600 cc vél • 90 hestöfl • 5 gíra • bein innsprautun • regnskynjari á framrúðu • þokuljós að framan
vökva- og veltistýri • loftpúðar báöum megin ■ rafdrifnar rúður að framan • útvarp óg segulband
stillt með stöng í stýri ■ hœðarstillanlegt ökumannssœti • bílbeltastrekkjari ■ fjarstýrðar samlœsingar
með þjófavöm ■ litaö gler • höfuðpúðar í aftursœti ■ niðurfellanleg aftursœti 40/60 ■ rafdrifnir
hliðarspeglar ■ rafgalvaníseraöur ■ hiti í afturrúðu ■ samlitir stuðarar ■ barnalœsingar á afturhurðum
Uppliföu Peugeot í reynsluakstri
og leystu prófiö.
Ljónheppinn reynsluökumaöur mun
hljóta helgarferð fyrlr tvo til Parisar.