Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1998, Qupperneq 26
40
•f/ar
MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRUAR 1998
Árið í fyrra kannski eðlilegt miðað við meðalendingu bíla:
Bílarnir betur búnir og
verðið betra
Gylfi Gunn-
arsson,
framkvæmda-
stjóri Honda:
„CR-V gjörbreytti
öllu fyrir okkur."
DV-mynd E.ÓI.
„Það verður að horfa á árið í
heild en ekki afmörkuð stutt tímabil
þegar verið er að spá í aukna bíla-
sölu almennt," segir Gylfi Gunnars-
son, framkvæmdastjóri Honda á ís-
landi. ,Á síðasta ári varð 25% aukn-
ing miðað við árið áður. En það má
ekki gleyma öllum mögru árunum á
undan. Árið i fyrra var kannski
eðlilegt ár miðað við meðalendingu
bíla, en lítið miðað við endumýjun.
Einhver var búinn að reikna það út
að ef endurnýjunin ætti að vera í
hlutfalli við endingu bíla eins og
gengur og gerist í Evrópu þyrftum
við að selja héma 18 þúsund bíla á
ári I þrjú til fjögur ár. Af 110-120
þúsund bílum á götunni hjá okkur
núna er nokkurn veginn réttur
helmingur af árgerðum ’88 eða
eldri. Aðeins 30% af núverandi bíla-
flota íslendinga em með hvarfakút,
sem þó varð algengur í nýjum bílum
frá árgerð ’91, hefur t.d. verið í öll-
um okkar bílum síðan.
Ég sé ekki fram á 25% aukningu í
bílasölu í ár miðað við árið í fyrra.
Okkar spár segja að árið í ár verði
mjög svipað, heildarsala fólksbíla
eitthvað um 11 til 12 þúsund bílar.
En viö verðum líka að muna eftir
því að verðið er almennt gott. Bíl-
amir em að verða betur búnir án
þess að verð hækki að sama skapi.
Hjá okkur til dæmis era allir bílar
að verða komnir með ABS og tvo ör-
yggisloftpúða og við stefnum að því
að frá miðju ári verði allir okkar bíl-
ar þannig búnir.“
- En í fyrra varð ágætis aukning
hjá Honda.
„Við seldum 353 bíla í fyrra miðað
við 186 bila árið 1996. Það er um 90%
aukning. Árin þar áður voru öll
minni og erfið. Nú hefur verð lagast
og við erum komnir með miklu breið-
ari línu. Það er náttúrlega jepplingur-
inn CR-V, eða jeppinn, sem gjör-
breytti öllu fyrir okkur. Af honum
fóru um 150 bilar þá sex mánuði sem
við höfðum hann til að selja. Á árs-
grundvelli hefði það verið um 300 bíl-
ar. Af söluhæsta jeppanum, sem var í
sölu allt árið, fóru um 350 bílar.“
- Heldurðu að þið náið þeirri tölu
á þessu ári?
„300 CR-V bílum? Ég tel tæplega
raunhæft að hugsa sér það. Það eru
komnir fleiri bílar svipaðrar geröar
og fleiri væntanlegir, en við gemm
það sem við getum og það er aldrei
aö vita. Það er fínt verð á þessum
bíl og hann er gríðarlega skemmti-
legur, rúmgóður og þægilegur."
Vörugjaldsbreyting ekki
bara jakvæð
- Hefði það áhrif á ykkur ef vöra-
gjaldsflokkum yrði breytt?
„Vissulega hefði það áhrif. Ef að-
eins yrði einn 30% flokkur, eins og
stundum hefur verið talað um, eða
bara tveir flokkar, 30% fyrir minni
vélarnar en 40% yflr 2000 rúmsentí-
metra, myndi það hafa góð áhrif á
alla tveggja lítra bíla, eins og CR-V.
Accordinn myndi líka lækka. En
menn mega ekki gleyma því að
áhrif breytinga em ekki bara já-
kvæð. Svona breytingar breyta öll-
um strúktúr í kringum sig. Við sjá-
um það að stærri fólksbílar seljast
bara ekki nú til dags. Það gæti
breyst ef lagfæringar væra gerðar á
vörugjaldsflokkunum. Þó að það
kæmi sér illa fyrir einhverja myndi
það fljótlega jafnast út og komast í
sitt jafnvægi."
Umræðan og vandræðagangur-
inn í kringum dísilgjaldið kemur
ekki mál við ykkur?
„Nei. Honda framleiðir að vísu
dísilbíla fyrir Evrópumarkaðinn, þó
að þeir noti ekki sinar eigin dísil-
vélar. Dísilbílarnir era bara of dýr-
ir í innkaupi og það þarf að vera
verulegur ávinningur í tollum og
öðru til þess að það borgi sig. Nú
stendur til að fara að lita olíuna
þannig að dísilolía á bila verður á
sama verði og bensín þannig að
sparnaðurinn verður þá bara í
eyðslunni, ekki innkaupunum, og
þá þarf að aka ansi mikið til að það
sé sparnaöur af dísilnum, miðað við
verðmuninn."
Jeppabylgjan á kostnað
stærri folksbíla
- Hvað er nýtt fram undan?
„Línan sem við erum með núna
heldur sér nánast, en síðan bætist
alltaf eitthvað við. í vor erum við til
dæmis að koma með Civic Aerodeck,
stationútgáfu af Civic. Hann verður
með 115 ha. 1600 vél og afar vel bú-
inn. Við ætlum ekki í keppni við
ódýrustu stationbílana á markaðn-
um. Síðan stendur til að við fáum
nýjan Accord einhvem tíma í haust
eða I byrjun vetrar. Við vitum í
rauninni afar lítið um þann bíl enn
þá, en vonum að hann verði í líkingu
við Ameríkubílinn, afar rúmgóður
og skemmtilega úr garði gerður.
En það er nú bara staðreynd að
jeppabylgjan tekur bíla eins og Ac-
cordinn dálitið í nefið. Þú færð CR-
V fyrir sáralítið meiri pening,
meira rými og er fjórhjóladrifmn.
Menn mega heldur ekki gleyma því
að CR-V-inn hefur aksturslega séð
miklu meiri fólksbílseiginleika
heldur en jeppaeiginleika. Hann er
lipur eins og fólksbíll og eyðir eins
og fólksbíll en nýtist jafnframt um
mjög margt eins og jeppi. Við verð-
um líka varir við að fólki fmnst gott
að umgangast hann. Hæðin er góö
og gott að setjast inn í hann. Á
heildina litið er CR-V mjög alhliða
fjölskyldubíll með sérlega skemmti-
lega eiginleika og á mjög hagstæðu
verði." S.H.H.
FJAÐRABUÐIN PARTUR HF.
EldshöfíSa 10, 112 Reykjavik, símar
567 8757 og 587 3720. Fax 567 9557
4X4
Fjaðrir í jeppa og sendibíla, verð frá
kr. 12.000 stk. m/vsk.
Fjaðrablöð og fjaðraklemmur í úrvali.
Loftpúðar frá FIRESTONE t.d. með 1300 kg
burð, kr. 9.200 stk. m/vsk.
Blöndungur
Innsprautun
Innsprautun
Eldsneytis-
úöi
Á teikningunum má sjá mismunandi ferli í aöfærslu eldsneytis aö sprengihólfi. Lengst til vinstri er blöndungurinn
sem áratugum saman var allsráöandi. Þá kemur innsprautunarkerfiö sem frá upphafi hefur veriö kailaö bein inn-
sprautun en loks hin nýja strokkinnsprautun sem frumherjinn á þessu sviði, Mitsubishi, hefur kosiö aö kalla GDI.
GDI-bensínválin mengar minna:
Svipar í ýmsu til dísilvélanna
í heimi vaxandi vandamála vegna
mengunar hefúr verið litið til bifreið-
anna þar sem þær eiga sinn þátt í loft-
mengun jarðarinnar. Það er kannski
ekki að furða þar sem talið er að í jan-
úar 1996 hafi skráðar bifreiðir í heim-
inum verið 479.273.636 fólksbifreiðar
og 154.518.582 vöruflutningabiffeiðir.
Til að mæta kröfunni um minnk-
aða mengun bifreiða, sérstaklega C02
(koltvísýring), en C02 er talið eitt
þeirra efna sem valda gróðurhúsaá-
hrifúm, hafa bifreiðaffamleiðendur
beitt ýmsum ráðum.
Eitt þessara ráða er hinn nýi GDI-
hreyfUl sem mikið hefur verið í aug-
lýsingum undanfarið. En hvað er
GDI-hreyfíll og hvaða áhrif hefur
hann á loftmengun?
GDI er skammstöfun á ensku orð-
unum „Gasoline Direct Injection
Engine" og hefur verið þýtt strokk-
innsprautun á íslensku, sem er lýs-
andi fyrir virkni hreyfilsins.
GDI-hreyflinum svipar að vissu
leyti til dísilhreyfils þar sem eldsneyt-
inu er sprautað beint inn í strokk
(brunahólf) hreyfilsins. Með ná-
kvæmri hönnun brunahólfs, soggrein-
ar, innsprautunarspíssa og stjómunar
hefur tekist að ná fram 20% eldsneyt-
isspamaði, (betri nýtingu en í dísil-
hreyfli), 20% minni C02 mengun (þó í
beinu sambandi við eldsneytisnotk-
un) og 10% meiri afli en í sambærileg-
um hreyfli með hefðbundinni inn-
sprautun þar sem eldsneyti er spraut-
að inn í soggrein framan við innsogs-
ventil).
Stjómun vélarinnar er með tvenn-
um hætti, af spamaðarsviði og afl-
sviði. Þegar ekið er við lítið og milliá-
lag (ailur innanbæjarakstur) og undir
120 km/kl er vélinni stjómað af
spamaðarsviði en við hröðun og þeg-
ar ekið er undir miklu álagi er stjóm-
að af aflsviði.
Sparnaðarsvið
Við stjómun vélarinnar af sparn-
aðarsviði er eldsneytinu sprautað
inn í strokkinn seint á þjappslagi.
Blandan er mjög mögur, um það bil
40:1 (40 hlutar súrefnis á móti 1
hluta eldsneytis). Með sérstakri
hönnun soggreinar og sprengirýmis
(stimpilkolls) er eldsneytisbiönd-
unni haldið saman á litlu svæði við
kveikikertið þegar neistanum er
hleypt á. Á þennan hátt er hægt að
nota blöndu sem nær að tendrast þó
að eldsneytisblandan sé svo mögur.
Aflsvið
Við stjómun vélarinnar af
aflsviði er eldsneytinu sprautað inn
í strokkinn á sogslagi og er elds-
neytisblandan þá 13-24:1. Innspraut-
að eldsneytið úðast þá á stimpilkoll-
inn og gufar þar upp (myndar
gasblöndu). Við uppgufunina verð-
ur kæling sem kælir stimpilkollinn
og veldur því að minni líkur em á
forkveikju (neistabanki) við sam-
þjöppun eldsneytisblöndunnar. Af
þessu leiðir möguleiki á að hafa
þjapphlutfallið hærra en það er
12.0:1 í GDI-vélinni. Hátt þjapphlut-
fall vélarinnar gerir hana afímeiri
(10%) og viðbragðsbetri.
Frá Fræðslumiðstöð bUgreina.