Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1998, Page 34
48
MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1998
fjí/ar
Rafmagnsstrætó sem gengur fyrir efnahverfii:
Kemst 250 km á einni áfyllingu
Mercedes Benz er einn þeirra
framleiðenda sem lagt hefur mikla
vinnu í að þróa efnahverf-
il/orkusellur sem ganga fyrir vetni
til að knýja bíla og koma þannig til
móts við kröfur um minni mengun
af samgöngum. MB hefur búið til
strætisvagn sem gengur eingöngu
fyrir þessari orku og kallar bílinn
NEBUS, sem þrátt fyrir þýskt þjóð-
‘emi framleiðandans er stytting á
ensku orðunum New Electric Bus -
nýr rafmagnsstrætó. NEBUS hefur
þegar hlotið blessun þýsku skoðun-
arstofhunarinnar TiiV (Technische
tiberwachung Vereimmg) og verð-
ur á næstu misserum prófaður til
hins ítrasta til að komast að því
hvemig þessi búnaður stendur sig
í daglegu brúki til lengri tima litið.
Að sögn Klaus-Dieter Vöhringer,
framkvæmdastjóra rannsókna- og
tæknisviðs Mercedes Benz, hefur
orkusellutæknin þróast mun hrað-
ar en gert hafði verið ráð fyrir.
Hann bendir á að þegar fyrsti MB-
bíllinn knúinn þessari tækni kom
fram árið 1994, sendibíll af gerðinni
MB 100, hafi hann verið svo troð-
fullur af tækninni sjálfri að það
gerði ekki betur en ökumaður og
einn farþegi kæmust fyrir auk
hennar. Þetta var NECAR 1. Árið
1996 kynnti MB NECAR II, sendibíl
af V-klassa. Þá var kraftur efna-
hverfilsins miðað við eigin þyngd
bílsins fimm sinnum meiri en í
NECAR I, en samt komst búnaður-
inn fyrir undir aftursætisbekknum
í bílnum. Hann tók líka sex farþega
auk ökumanns og gat ekið 250 km
á hleðslunni.
"Mengar alls ekkert
í þessum tveimur fyrstu NE-bílum
beindist þróunarstarfið að þvi að auka
kraft sem hlutfall af þyngd bílsins. Síð-
an hefur það beinst að því að auka aflið
sem slikt. I sendibílunum var aflið 50
kílóvött - 68 hestöfl. í strætó er það 340
hestöfl - 250 kílóvött. Engu að síður
skilar það þremur meginkostum efna-
hverfilsins:
1. Tæki sem ganga fyrir efnahverfli
skila engum eitruðum útblæstri. Þegar
súrefhi og vatnsefni eru leidd saman í
efhahverflinum með sérstökum hætti
myndast rafmagn ásamt vatni og hita,
sem vélin gefur frá sér sem vatnsgufu.
í sprengihreyflum myndast orkan með
háum hita en hér myndast orkan við
lágan hita þannig að ekkert níturoxíð
myndast.
2. Orkunýting alls drifbúnaðarins er
mun hærri en þegar sprengihreyfill er
notaður, eða 30% móti 20%.
3. Efnahverfillinn er fullkomlega
hljóðlátur þar sem í honum verður
engin sprenging og ekkert í efnaferlinu
veldur hávaða.
svokallaða dauðavigt: hlutfalliö milli
eigin þyngdar og flutningsgetu í far-
þegafjölda. I fullsetnum strætó þarf
um 100 kg af farartæki fyrir hvem
farþega; í lestum helmingi meira.
Svo kann að fara að mengunarleysi
orkusellunnar/efnahverfilsins verði
það sem úrslitum ræður í þessu efni.
Mercedes Benz hefur ásamt kanadísk-
um samstarfsaðila sinum, Ballard
Power System, lagt 150 milljónir
marka í að þróa þessa aðferð til að
knýja bíla. Klaus-Dieter Vöhringer,
framkvæmdastjóri rannsókna- og
tæknisviðs Mercedes Benz, segir að
aldamótaárið 2000 verði komin niður-
staða í hvort efhahverfillinn eigi í
raun og veru framtíð fyrir sér. Hann
segir að hreinar rannsóknir á honum
séu nú að baki og nú sé raunveruleg
þróun að taka við. „Ef til vill era ekki
nema fáir áratugir þar til efnahverfill-
inn verður helsti orkugjafinn í sam-
göngum okkar,“ segir hann.
(Úr Mercedes Magazine)
ofan á?
Orkusellunum er staflaö þar sem vél og girkassi eru í strætisvögnum með hefðbundnum orkugjöfum. 150 kw. af 250
kw. alls, tæplega 205 hö af 340, fara beint til að knýja vagninn. Það er álíka og í dísilknúnum strætisvögnum.
Mengunarleysi - 0-mengun - er
hátt á óskalista stórborganna, bæði
ráðamanna og íbúanna. Rafknúnar
lestir, ofanjarðar eða neðan, þar með
taldir sporvagnar, eru mikils metnar
af því þær menga ekki þar sem þær
fara um. Mengun af orkuframleiðslu
handa þeim fer fram þar sem viðkom-
andi raforkuver standa. Þetta meta yf-
irvöld mikils. Þýska ríkisstjómin
taldi t.a.m. ómaksins vert að leggja 15
milljarða þýskra marka til sam-
gangna af þessu tagi árið 1996.
Hins vegar er teina- og orkuflutn-
ingskerfi þessara samgöngutækja
ásamt rekstri þess mjög dýrt. Hver
farþegakílómetri kostar t.d. 0,36 þýsk
mörk í dísilknúnum strætó en 1,20
mörk í lest eða sporvagni. Endanleg
umhverfismengun er mjög svipuð,
hvort sem í hlut eiga almennings-
vagnar með sprengihreyfli eða teina-
bundin rafknúin samgöngutæki, því
rafmagnið þarf að framleiða með kol-
um, olíu eða kjamorku. Lestimar em
líka mun óhagstæðari hvað snertir
snertir er þetta viðráðanlegt þannig
að áfyllingin dugar til 250 km akst-
urs og það sleppur fyrir venjulega
dagsnotkun á strætisvagni og síðan
er ráðrúm til að fylla þá á heima-
stöð til notkunar næsta dag.
Fyrir annars konar ökutæki em
tæknimenn MB að vinna að því að
búa vetnið til í bílnum sjálfum.
Vetniö er fyrirferðarmikið og krefst
vandaðra geyma. Ein áfylling á
geymaröð NEBUS, sex brúsa sem
komið er fyrir uppi á bílnum aftan-
verðum, dugar til 250 km aksturs.
NEBUS - nýr strætisvagn frá Benz sem gengur fyrir vetni og útblásturinn er gufa og ekkert annað.
Jafngildi menaunar-
lausra farartækja
En ekki er nú sopið kálið þótt í
ausuna sé komið. Vetnið er miklu
dýrara en hefðbundið eldsneyti.
Vetnisstöðvar eru ekki á hverju
strái eins og bensín- og dísilolíu-
stöðvar. Efnahverflarnir krefjast
fyrirferðarmikilla vetnisgeyma og
þeir þurfa að þola mikinn þrýsting,
þannig að þeir era þungir. Sérstak-
an búnað þarf til að dæla vetninu á
geymana. Hvað tilraunavagna MB
Heppilegasta efnið til þess er nú
talið vera metangas. Það er auðvelt
að framleiða því það myndast við
rotnun lífrænna efha, eins og m.a.
sannast í sorpbirgðum Sorpu í Álfs-
nesi. Það er tiltölulega auðvelt að
koma því á geyma í bílum en geym-
amir þurfa þó að vera töluvert
stærri en t.a.m. bensín- eða dísilol-
íugeymar til að gefa sambærilega
orku. I framhaldsrotnun metangass
framleiðist vetni og koltvísýringur,
en hann er margfaldlega miklu
minni en sá sem framleiðist við
bruna í hefðbundnum sprengi-
hreyfli. í þessu ferli myndast heldur
ekkert níturoxíð, brennisteinsoxíð
né kolvatnsefni þannig að orkusell-
ur knúnar af metangasi era í þeirri
kröfuhörðu Kaliforníu flokkaðar
sem Jafngildi mengunarlausra far-
artækja" (equivalent zero-emission
vehicles). Sumir þýða þetta sem „0-
mengun“.
(Endursagt úr Mercedes Mag-
azine, 4/97)
Almenningsbílar mun ódýrari en lestar og sporvagnar:
Verflur efnahverfillinn