Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1998, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1998
9
Utlönd
FLUGLEIDIR
Traustur íslenskur ferðafélagi
Norðmenn
herða blaða-
lesturinn
DV, Ósló:
Norðmenn voru fyrir heims-
meistarar í blaðalestri og styrktu
enn stöðu sína þar á síðasta ári.
Nú kaupir hver Norðmaður að
jafnaði 1,6 dagblöð á dag. Þetta
þýðir að á mörgum heimilum er
keypt áskrift að þremur og fjór-
um blöðum.
Á síðasta ári jókst blaðasalan
um 3 prósent og voru það stóru
blöðin og allra minnstu blöðin
sem sóttu sig mest á markaðnum.
Verdens Gang, stærsta blaö Nor-
egs, jók söluna mest og þeir hjá
Aftenposten eru líka mjög sáttn-
við sinn hlut. Norska Dagbladet
er hins vegar hætt að stækka eft-
ir mikla sókn árið áður.
Verst standa flokksmálgögn
Verkamannaflokksins mörg og
smá. Þrátt fyrir 1 milljarð ís-
lenskra króna i ríkisstyrk ná þau
ekki athygli lesenda og tapa í
samkeppninni við borgaralegu
blöðin. í Noregi eru gefin út um
200 dagblöð sem einnig er heims-
met miðað við mannfjölda.
-GK
Hermenn skjóta
á mótmælendur
í Indónesíu
Allt að 10 þúsund manns tóku
þátt í óeirðum í bænum Kendari
á Sulawesi í Indónesíu í gær.
Hermenn skutu gúmmíkúlum að
manníjöldanum sem kastaði
grjóti og rændi verslanir í mót-
mælaskyni við gífurlegar verð-
hækkanir.
Einnig var efht til mótmæla í
Jakarta, höfuðborg Indónesíu, í
gær. Hundruð stúdenta söfnuðust
saman á háskólalóðinni og hróp-
uðu slagorö gegn Suharto forseta.
Ekki kom til óeirða í Jakarta.
Undanfarnar tvær vikur hafa
orðið róstur I yfir 25 borgiun. Yf-
irvöld virðast ekki hafa miklar
áhyggjur af ástandinu og halda
fast við stefhu sína í efnahags-
málum.
Grunuðum
raðmorðingja
sleppt
Breska lögreglan hefur sleppt
manni sem talið var að gæti hafa
myrt sjö konur í Bastilluhverfmu
í París. DNA-rannsókn sýndi aö
hann var ekki sá sem nauðgaði
og myrti konurnar. Hinn grun-
aði, sem sagður er vera frá Alsír,
hafði verið handtekinn vegna
brota á innflytjendalögum. Hann
veröur yfirheyröur í Frakklandi
áður en hann veröur sendur til
Alsír.
Nyrup boðar til þingkosninga í Danmörku þann 1. mars:
Uffe fór heim með
Andrés Bretaprins flaug til Sviss í vikunni til aö halda upp á 38 ára afmæli sitt meö dætrum sínum tveimur, Eugenie og Beatrice, og fyrrverandi eiginkonu,
hertogaynjunni af Jórvfk, Söru Ferguson, f Verbier. Þar hafa mæðgurnar rennt sér á skföum undanfarna daga. Hertogaynjan varö reyndar fyrir óhappi og
rifbrotnaöi en hefur ekki látiö þaö aftra sér frá þvf aö bruna niöur skföabrekkurnar. Sfmamynd Reuter
Uffe Ellemann-Jensen, leiðtogi
Venstre í Danmörku, var ekki fyrr
lentur i París í gær þegar Poul Ny-
rup Rasmussen forsætisráðherra til-
kynnti að eftit yrði til þingkosninga
í Danmörku þann 11. mars næst-
komandi. Uffe sneri þegar við á
flugvellinum í París og tók sömu
flugvél heim til Kaupmannahafnar.
Tilkynning Rasmussens í þinginu
kom öllum í opna skjöldu. Kosning-
amar verða haldnar sex mánuðum
áður en kjörtímabilið rennur út og
ellefu vikum fyrir þjóðaratkvæða-
greiðslu um Amsterdamsáttmála
Evrópusambandsins.
„Framtíðin brosir við Danmörku.
Við þurfum aö hreinsa loftið fyrir
þjóðaratkvæðagreiðsluna," sagði
forsætisráðherrann í ræðu sinni
sem var sjónvarpað beint.
Ríkisstjóm Pouls Nyraps hefur
Poui Nyrup Rasmussen, forsætis-
ráöherra Danmerkur, telur rétta tfm-
ann fyrir kosningar vera nú.
haft mikinn meðvind í skoðana-
könnunum undanfama mánuði.
Borgaralegu flokkamir sem em í
stjómarandstöðu hafa aftur á móti
verið í töluverðum öldudal.
Tveir helstu andstöðuflokkamir,
Venstre og íhaldsflokkurinn, eru í
nokkmm vanda um þessar mundir.
Helstu stuðningsmenn Venstre með-
al bænda em reiðir út í flokkinn
fyrir að hafa fallist á rándýra um-
hverfisáætlun fyrir landbúnaðinn.
Þá em flokksmenn enn að sleikja
sárin yfir að hafa ekki getað klekkt
á stjóminni í Færeyjabankamálinu.
íhaldsmenn eiga líka í vanda. Per
Stig Moller flokksformaður var ný-
búinn að skýra fréttamönnum frá
því í gær að þingflokkurinn hefði
ákveðið að reyna að fmna þann sem
hefur lekið í fjölmiöla að undan-
fömu imi Moller og klofning í
flokknum þegar tilkynnt var um
kosningarnar.
„Ég væri hugleysingi ef ég viður-
kenndi það ekki,“ sagði Poul Nymp
þegar hann var spurður hvort vand-
ræðagangurinn hjá Venstre og
íhaldsflokkinum hefði haft áhrif á
tímasetningu kosninganna.
En þrátt fyrir meðbyr ríkisstjóm-
arinnar að undanfömu era fylking-
amar tvær með svo til jafn mikið
fylgi. Eins og svo oft áður veröa það
miðflokkamir sem koma til með að
ráða úrslitum um hvemig stjómin
verður skipuð að kosningunum
loknum. Fréttaskýrendur sögðu i
gær að mjótt yrði á mununum.
Rétt rúm fimm ár em síðan Poul
Nymp tók við embætti forsætisráð-
herra af Poul Schlúter sem varð að
segja af sér vegna svokallaðs Ta-
mílamáls.
sömu vél frá París