Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1998, Blaðsíða 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ 1998
Spurningin
Lesendur
Hver eldar á þínu
heimiii?
Örnar Amarsson stýrimaður: Ég
sjálfur.
Fanney Bogadóttir nemi: Mamma
og stundum ég.
Eva Björk Björnsdóttir nemi: Að-
allega mamma.
Bára Karlsdóttir húsmóðir: Ég.
Indriði Arnarsson framhalds-
skólakennari: Oftast konan, stund-
um ég.
Kristín Óskarsdóttir skrifstofu-
maður: Við hjónin bæði en aðallega
þó maðurinn.
Prestwick- og Kefla-
víkurflugvöllur
Skarphéðinn Einarss. skrifar:
Nýlega mátti lesa i skoskum blöð-
um fréttir um að flugvöllurinn í
Prestwick hefði verið seldur á 41
milljón punda. Kanadamaður að
nafni Mathew Hudson, talsmaður'
eignarhaldsfélags þess sem nú á
völlinn, sagði fréttamönnum að
mikO umsvif og framkvæmdir væru
á döfinni. Nú starfa þar 300 manns
og breytingar sem verða munu
skapa 1000 ný störf á flugvellinum.
Framtíð Prestwickflugvallar var
óráðin um tíma. Starfsfólk kemur
frá tveimur bæjum, Prestwick og
Ayr. Áöurnefndur Hudson sagði að
framvegis yrði völlurinn vöruflutn-
inga- flughöfn vegna vöruflugs milli
Norður-Ameríku og Evrópu. Þessu
fylgja mikil umsvif. Vörum verður
umskipað og þær geymdar þar til
þær fara aftur með flugi.
í dag sinnir flugvöllurinn meiri
vöruflutningum heldur en Gatwick-
flugvöllur og Heathrowflugvöllur
samanlagt. í lokin sagði talsmaður
hins nýja eiganda Prestwickflug-
vallar að til lengri tíma litið myndu
nokkur þúsund starfsmenn starfa
við flugvöllinn.
Prestwick er varaflugvöllur fyrir
Keflavíkurflugvöll og vamarliðið á
íslandi hefur haft Prestwick sem
varaflugvöll frá árinu 1962. Flugvél-
ar frá þessum aðilum hafa oft þurft
að lenda I Prestwick. Spumingin er:
Hvað hafa íslensk stjómvöld gert til
að markaðssetja Keflavík? Greini-
lega ekkert. íslendingar hefðu rétt
eins getað tekið við þessu vöruflugi.
Þá hefðu fyrmefnd umsvif orðið í
Keflavik eða verulegur hluti þeirra.
Nú eru glæsileg hótel í Reykja-
Prestwickflugvöllur í Skotlandi. - Keflavíkurflugvöllur hefði getað tekið sæti
hans, segir Skarphéðinn í bréfinu.
nesbæ og trúlega hefði þurft önnur
tvö ef umsvif á Keflavíkurflugvelli
myndu aukast. En ísland er dýrt
ferðamannaland og erlendir ferða-
menn kvarta undan dýrum mat og
þjónustu. Á íslandi er rekin land-
búnaðarstefna sem er fjandsamleg
neytendum með höftum og rikisað-
stoð.
Allt þetta hefur spurst út erlend-
is. Erlend fyrirtæki em einfaldlega
búin að afskrifa ísland í þeim mál-
um sem vöruflutningastarfsemi og
umskipun á Keflavíkurflugvelli
varðar.
Einnig er greinilegt að eitthvað
er að rekstri og markaðssetningu
Keflavíkurflugvallar. Flugstöðin
ætti t.d. að vera hlutafélag og utan-
ríkisráðuneytið ætti ekki að fara
með mál flugvallarins. Flest hefur
farið í handaskolum hvað snertir
Keflavíkurflugvöll og litt eða ekkert
verið sinnt hagsmunum þeirra sem
góðs nytu af auknum umsvifum. -
Því fer sem nú er augljóst orðið.
Engin rannsókn í
Landsbankamálinu?
Björn Sigurðsson hringdi:
Ég reikna með að margir fleiri en
ég hafi orðið undrandi eftir lestur
fréttarinnar í DV sl. fimmtudag þar
sem fram kemur það álit rikissak-
sóknara að embætti hans hafi ekk-
ert tilefni gefist til að mæla fyrir
um opinbera rannsókn í Lands-
bankamálinu sem nú hefur orðið að
mesta hneykslismáli hjá lands-
mönnum um árabil. - Þetta þýðir
væntanlega, eins og kemur fram í
fréttinni, að Landsbankamálið verð-
ur ekki talið sakamál!
Ég er hins vegar viss um hvað
hér er að baki. Ekkert annað en það
að verði Sverrir Hermannsson,
fyrrv. bankastjóri, sóttur til saka
muni hann fletta ofan af öðrum
embættismönnum, þingmönnum og
ráðherrum, núverandi og fyrrver-
andi, svo rækilega að enginn standi
upp úr með hreinan skjöld. Er þetta
ísland í dag? Er þetta framtíðarsið-
ferði íslenskrar réttvísi? - Aumt er
þá yfirklórið og lágkúran yfirþyrm-
andi.
Frank Sinatra fallinn frá
- harmdauöi Qölda aðdáenda
R.L.A. hringdi:
Þótt kunnugt væri að heilsufar
hins dáða dægurlagasöngvara,
Franks Sinatra, væri ekki upp á það
besta kom það samt á óvart að
heyra andlát hans í morgunútvarpi
Rásar 2 i morgun (föstudag). Hjart-
að var sagt hafa gefið sig að fullu en
hann átti við hjartaslæmsku að
stríða upp á síðkastið.
Ekki er vafi á því að Frank
Sinatra söng sig inn í hörtu heims-
byggðarinnar frá upphafi söngferils
síns. Og hann var engan smátíma á
stjörnuhimninum, um 40 ár. Og enn
er „Frankie boy“, en það gælunafn
fékk hann snemma, að syngja um
heim allan. Um hann er beðið í
óskalagaþáttum og hann er leikinn
(LÍ©ÍRfl®/S\ þjónusta
allan sólarhringii
Aðeins 39,í
- eða hringið i síma
5000
liríilli kl. 14 og 16
Frank Sinatra á tónleikum. Myndin er tekin á
siöasta áratug.
þar sem þægileg tónlist er notuð
víðs vegar: í hótelum, flugvélum og
samkvæmum, þar sem fólk vill
hlusta á fallega rödd söngvarans og
annarra tónlistarmanna.
Frank var ráðríkur maður
eins og títt er um fræga
listamenn og fór ekki
troðnar slóðir. Hann vildi
ekki syngja nema með úr-
valsundirleikurum. Raun-
ar söng hann ekki með
undirleikara, þannig talað.
Hann valdi bestu hljóm-
sveitir Bandaríkjanna,
alltaf svokallað „big-
band“. Hann notaði t.d.
hina viðurkenndu hljóm-
sveit Quincy Jones sem út-
setti sum lög hans fyrir
stórhljómsveit.
Það var ávallt stíll yfir
Frank Sinatra og enn er
Ijómi af Frank og lögum
hans sem hann hefur gert
heimsfræg og ódauðleg.
Sum tónskáld hélt Frank
upp á umfram önnur, t.d.
Michel Legrand, og texta-
höfunda eins og Alan og
Marylin Bergman. Frank
Sinatra á eftir að vera dáð-
ur söngvari um ókomin ár
og hér á landi verður hann leikinn
aftur og aftur sem hingað til. Söng-
ur Franks hljóðnar líklega aldrei að
fullu.
DV
Hvalfjarðar-
göng og
gjaldið
Akm nesingur hringdi:
Þótt almennt sé viðurkennt að
Hvalharðargöngin stytti vega-
lengdina héðan til Reykjavíkur og
þægindi muni verða af þeim fyrir
þá sem þau nota þá er staðreynd
að gjaldið, 1000 kónur á ferð, er
alltof hátt og mun fæla fólk frá því
að nota göngin. Þetta eru 2000 kr.
fyrir eina ferð til Reykjavíkur. Við
sem ekki fórum til Reykjavíkur
nema stöku sinnum munum ekki
greiða þennan tofl. Nokkur viðbót-
arkeyrsla verður því ofan á. Akra-
borgin eða önnur ferja yrði enn
besti kosturinn fyrir fjölmarga.
Sverrir er
ofan á
Jóhann hringdi:
Enginn vafi finnst mér leika á
því að Sverrir Hermannsson fyrrv.
bankastjóri er búinn að ná yfir-
höndinni í deilu sinni við ríkissak-
sóknara, viðskiptaráðherra, og þá
um leið Jóhönnu Sigurðardóttur,
upphafsmann Landsbankamálsins
margfréttnæma. Einfaldlega vegna
þess að Sverrir veit sem er aö eng-
inn innan stjórnsýslunnar, þ.m.t.
öllum ráðuneytunum, vill að rótað
sé upp í fleiri málum. Nú er nóg
segja þeir allir í dag. Og þetta sjá
allir sem fylgjast með fréttum
þessa dagana.
Skuldir
heimilanna
Hafliði Helgason skrifar:
í sjónvarpsviðtali á Stöð 2 lét
Þórarinn V. Þórarinsson hjá VSÍ
þau orð falla að efnahagsástand
þjóðarinnar hefði aldrei verið
betra. en nú. Kvöldið áður hafði
einmitt verið greint frá þvi í sjón-
varpsfréttum að skuldir heimil-
anna hefðu hækkað 8-fallt. Þórar-
inn hjá VSÍ á að vita að hiö meinta
bætta efnahagsástand þjóðarinnar
er ekki í vösum almennings, hvað
þá verkafólks, hinna öldruðu, ör-
yrkja eða þeirra sem eru að missa
frá sér íbúðir sínar og bíla á upp-
boðum. Ekki heldur hjá þeim sem
lögreglan klippir nú bílnúmerin
hjá, bíleigendum sem ekki hafa
látið skoða bíla sína síðan í fyrra
og jafhvel hittiðfyrra. Hvar er hið
góða efhahagsástand, Þórarinn?
Kærkomin
heimsókn frá
Danmörku
Elín hringdi:
Það má með sanni segja að
Margrét Þórhildur Danadrottning
og maður hennar, Hinrik prins,
séu aufúsugestir hér á landi þessa
dagana. Mér finnst drottningin
vera ein mest aðlaðandi kona í
þjóðhöfðingjastöðu sem maður
sér. Hún geislar af góðmennsku
og gleði. Og maöur hennar sómir
sér vel við hlið hennar. Heimsókn
þeirra er kærkomin held ég flest-
um ef ekki öllum íslendingum.
Verst að betri árstími skuli ekki
hafa verið valinn til heimsóknar-
innar.
Boðskapur
Maríu til
mannkyns
Bettý skrifar:
Ég get ekki setið á mér. Ég er að
lesa svo góða bók þessa dagana að
ég verð að segja ykkur frá henni.
Hún hefur opnað hug minn fyrir
öllu mögulegu, t.d. þessu með trú-
arbragðadeilur. Við erum öll börn
guðs, gleymum mismuninum og
finnum hve lík við erum. Eins er
með bænina. Það skiptir ekki máli
hvort við forum upp að altari eða
ekki eða hvort við notum talna-
bönd, möntrur eða orð Biblíunnar.
Þráin eftir guði er langbesta bæn-
in. - Þetta er bókin „Boðskapur
Maríu til mannkynsins".