Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1998, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1998, Blaðsíða 15
ÞRIÐJUDAGUR 19. MAI 1998 15 um. Þaö á ekki að mismuna hópum. All- ir eiga rétt á að njóta þessarar greiöslu ef viðkomandi nýtir ekki leikskólaplássið." Hundahald Sif Knudsen, miðbænum: Hvaða stefnu hafðið þið sjálfstœðismenn í málefnum hundaeigenda í borginni. „Við höfum komið því svo fyrir að hér í borginni er mögulegt að hafa hunda og þaö er grunnurinn. Ég tel að það sé mjög mikilvægt að aðstaöa fyrir hundaeigend- ur sé tryggö, þannig að bæði séu opin svæöi sem þeir hafa afnot af og einnig að við sjáum til þess að samlíf manna og hunda í borginni gangi upp. Auðvitað fylgir því ábyrgö að eiga hund og alltaf verða að gilda ákveðnar reglur sem ekki er hægt að skorast undan og það hvilir á hundaeigendum að þeir fylgi þeim regl- um. Annars er ég mjög á móti því aö komið sé fram við hundaeigendur sem annars flokks þegna eins og stundum hef- ur viljaö brenna við.“ Sif Knudsen: Ef þið vœruó hér vió stjórnvölinn, mynduó þið virkilega leyfa tívolí á hafnar- bakkanum sem er algjörlega óþolandi fyr- ir okkur sem búum hér í miðbœnum? „Ég verð að viðurkenna að ég stelst í tívolí með bömunum mínum. Viö höfum hins vegar lagt áherslu á aö á ákveðnum tima að kvöldlagi væri reynt að draga niður i hávaðanum. Um þetta hafa kom- ið fram ýmsar hugmyndir sem við mun- um að sjálfsögðu skoða." Dýr menning Svavar Cesar: Reykjavíkurborg á aó vera ein af menn- ingarborgum Evrópu árið 2000. Ég hef heyrt að það muni kosta svimandi upp- hœðir og á sama tíma er skorió niöur ann- ars staóar. „Ég tel að það sem við gerum fyrir Reykjavíkurborg sem menningarborg árið 2000 muni nýtast okkur áfram. Því finnst mér áhugavert að taka þátt í því að hér verði byggt tónlistarhús og ýmsir möguleikar í listum verði nýttir til þess að gera þær að sterkum atvinnugreinum og allt eins útflutningsvöru. Ég lít þannig á að með slíku séum við aö fjárfesta í framtíðinni.“ Kristján Hreinsson: Ég bý í Breiðholti og þarf oft aó fara í miðbœinn. Mér þykir það taka fulllangan tíma og mig langar að spyrja hvaða hug- myndir flokkurinn hefur varóandi það aó létta umferöarþunga. „Við höfum lagt áherslu á það að gera umferðina greiðari. Þetta tengist mislæg- um gatnamótum, til dæmis við Breið- holtsbraut og Reykjanesbraut og síöan á Miklubraut og Kringlumýrarbraut þannig að umferðin geti fengið að flæða áfram. Það dregur úr slysahættu og mengun, en þaö hefur sýnt sig þar sem mælingar hafa verið gerðar á þessum leiðum. Það þarf meiri umferðarstjórnun þar sem umferð úr ákveðnu hverfi flæðir í eina átt. Það er til dæmis hægt að gera meö því að breyta götum sem hafa veriö tvístefnuleiðir í einstefnuleiðir. Þannig er hægt að stýra umferð miklu betur. Jón Ármann Héöinsson, Kópavogi: Á velmektardögum D-listans sótti ég sex sinnum um lóð, bœði einn og með öðrum. Þrisvar var mér hafnað og þrisvar fékk ég ekki svar. Munuö þið fara í sama farið aft- ur, pólitískt? „Árið 1982, þegar sjálfstæðismenn tóku við borginni, komust menn út úr því punktakerflsrugli sem vinstrimenn höfðu komið á. 1982 hófst uppbygging Grafar- vogssvæðisins og eftir það hefur ekki vantað lóðir í borginni, nema þá á þessu kjörtímabili. Sjálfstæöismenn munu jafn- an tryggja það að það sé nægt lóðafram- boð í borginni." Árni Jónsson: Finnst þér að D-listinn hafl fengið hlut- lausa umfjöllun DV í þessari kosninga- baráttu? „Ég tel aö það hafi skort á hlutlausa umfjöllun hjá DV. Það er greinilegt hver ritstjómarstefnan er, þó að það sé ekki endilega blaðamönnum að kenna sem um málin fjalla. Ég vil þvi greina á milli um- flöllunar blaöamanna og ritsflómarstefn- unnar. Ég tel að hún hafi ekki verið okk- ur hliöholl og þaö liggur nokkuð ljóst fyr- ir. Blaðið er frjálst að því að hafa sína skoðun en ég vænti þess að blaðamenn, fagmenn, láti þá stefhu ekki hafa áhrif á sin skrif. Þá væri illa komið fyrir fijálsu óháöu blaði.“ Ólöf Ólafsdóttir: Skólar á Ártúnsholtinu og uppi í Selási eru of litlir. Þegar nemendur fara í átt- unda bekk eru þeir fluttir í Árbcejar- skóla. Hafið þið lausn slíkra mála? „Gailinn við Árbæjarskóla er að nemendur sem koma þangað til þess að fara í efri bekki grunnskóla fá oft á tilfinninguna aö þeir séu aðkomumenn eða gestir i skólan- um. Formið sem er notað í Haga- skóla, þangað sem nemendur koma úr öðrum skólum til þess aö fara í efri bekkina, en enginn þeirra hefur „alist upp“ í skólanum, er betra. Það væri betra ef Árbæjarskóla væri skipt í að vera hrein unglingadeild svo að nemendur fái ekki þessa slæmu að- komumannatilfmningu." Stefán Ásgeirsson: Finnst þér það vera góð kosning- abarátta að benda frekar á ókosti mót- frambjóóend- anna heldur en kosti frambjóð- endanna sjálfra? „í kosn- ingabar- áttu ber okkur skylda til þess að ræða mótheijanum um leið og okkur ber skylda til þess aö benda á meö hvaða leið- um má ná árangri. Viö höfúm gert hvort tveggja í okkar kosningabaráttu og mun- um gera það áfram.“ Guðrún Sigurðardóttir: Hvaó hefóuó þið gert öðruvisi í málefn- um eldri borgara ef þið hefðuö verió við stjórnvölinn á síóasta kjörtímabili? „Við hefðum ekki hækkað fasteigna- gjöld eldri borgara um 27%, við hefðum ekki hækkað strætisvagnafargjöldin um 100% og við hefðum ekki hækkaö gjöld fyrir heimaþjónustu verulega. Við hefð- um hins vegar skipulagt þjónustu við aldraða, sérstaklega verðandi hjúkrun, eins og við gerðum á síðasta kjörtima- bili.“ Þóra Þorvaldsdóttir: Þegar málefni fatlaóra flytjast frá ríki yfir til sveitarfélaga munuó þió þá taka betur á málunum en gert er í dag ef þið náið meirihluta? „Málefhi fatlaðra eru vandmeðfarin, þó að í krónum talið sé það ekki eins mikið verkefni að flyfla þau yfir til sveit- arfélaganna og aö flyfla grunnskólana. Þó að ekki sé komin dagsetning á tilflutning- inn þurfum við strax að fara að huga að þessum málum. Það eru margir ólíkir þætt- ir betur fara sem veröur að huga að og við sjálfstæðis- menn erum þegar famir að sifla fundi með fulltrúum Þroskahjálpar og Öryrkja- bandalagsins." Kom við kaunin Jón Guðmundsson: Þú innleiddir raunverulega samkeppni um iógjöld bílatrygginga, sem varó til þess að bifreióatryggingar lœkkuðu. Hefurðu fundið fyrir því að menn hugsi þér þegj- andi þörfina og óski þess gjarnan að þú tapir kosningunum? „Ég hef náttúrlega fundið fyrir þvi aö menn hugsi mér þegjandi þörfina, en hvort það gengur svo langt að sjálfstæðis- menn dreymi um að ég tapi þessum slag, það vil ég ekki segja. Það er alveg ljóst að ég hef komið við kaunin á ýmsum sjálf- stæðismönnum, en það eru alls staðar, í öllum þjóðfélögum, aðilar sem vilja tryggja sina hagsmuni og þegar þeim er ógnaö þá bíta þeir frá sér. Og það eru ýmsir sjálfstæðismenn sem gera þaö og þá eru þeir ekki að horfa á gildi sam- keppninnar sem mín hugmyndafræði gengur út á. Þá eru þeir eingöngu að hugsa um að hún gildi annars staðar en í þeirra ranni. Flóttinn úr Reykjavík Kristján Kristjánsson: Nú hefur þú lofaó aó lœkka skatta borgarbúa um tugþúsundir á fjölskyldu. Þér hefur tekist vel upp meó bifreiðatrygg- ingamar, en hvemig í ósköpunum œtlar þú að fara aó þessu? „Viltu ekki bara treysta mér fyrir þessu eins og bifreiðatryggingunum? En i alvöru talað þá má líta á málið í heild eins og sam- keppnismál: Að hluta til byggist staðan á samkeppni, í þessu tilfelli samkeppni milli sveitarfélaga. Ef við bjóðum ekki góðar íbúðalóðir, þá fer fólk annað. Það leitar þá í önnur sveitarfélög sem bjóða betur, eins og í Kópavog. Á fyrstu þremur mánuöum þessa árs fluttu 60% þeirra sem komu inn á höfuðborgarsvæöið til Kópavogs, en aðeins 20% til Reykjavíkur, og á síðasta ári sjáum við að 60% þeura sem fluttu til Kópavogs komu úr Reykjavík. Töl- urnar eru þannig að þó að Kópavogur sé aðeins fimmtung- ur af stærð Reykja- víkur miö- að viö íbúaflölda þá fluttu fleiri ein- staklingar til Kópa- vogs en til Reykja- vikur. Til aö geta lækkað skattana í Reykja- vik þá þarf vitanlega aö bæta ýmsa þætti í sflómkerfinu sem miða að því aö ein- falda sflómkerfíð og það tel ég okkur geta gert, sérstaklega af því viö sjáum hvem- ig R-listinn hefur þanið það út. Við getum dregiö saman og einfaldað sflómkerfið. En við eigum ekki síður möguleika með því að laða að fleiri íbúa þannig að fleiri taki þátt í að greiða í sameiginlega sjóði. Við nýtum hagkvæmni stærðarinn- ar. Þá verður þjónusta okkar hlutfalls- lega hagkvæmari og við getum lækkað skatta. Þetta er ólík leið við það sem R- listinn er að gera. Hann einfaldlega hækkar skatta til að auka tekjurnar í borgarsjóö. Það þýðir að einstaklingamir fara aö horfa i önnur sveitarfélög, sjá kosti þeirra og flyfia. Við segjum: Við get- um lækkað skatta, viö getum skapað hér aðlaðandi íbúðahverfi þannig aö fólk leiti hingað og ekki síður að borgarbúar fari ekki héðan. Þetta er leiðin. Sigrún Stefánsdóttir: Ég á tvœr dœtur sem eru meö 2 börn hvor á leikskólaaldri sem eru hálfan dag- inn á leikskóla. Fá þœr heimsendar greiðslur upp á 25 þúsund krónur á mán- uði nái fjölskyldustefna þín fram að ganga? Og ef svo er, erum þaó ekki við eldra fólkið sem erum aó greiða þetta af okkar sköttum? „Þær eiga rétt á þessu vali, og þær eiga rétt á því að fá fiölskyldugreiöslur, en ef þær nýta greiðslur hálfan daginn þá helmingast greiðslur til þeirra. Við ætl- um ekki að gera mun á þvi hvort Reykja- víkurborg er að greiða niður leikskóla eða aðrar lausnir eða leiðir vegna um- önnunar bamsins. Staðreyndin er sú að það stefnir í að 99% bama i hverjum árgangi fari á leik- skóla og þaö stefhir allt í aö það sé heils- dagsvistun. Þannig að við erum að horfa á það að hvert pláss er niðurgreitt um 28 þúsund krónur á mánuði í rekstrarkostn- að. Síðan kostar 1,2 milljónir að byggja hvert pláss þannig að við segjum einfald- lega að fólk eigi val um að fá þessa greiðslu beint. Það sem sparast hjá borg- inni er þá byggingarkostnaöurinn." Anton Angantýsson: Ég er meó beina spumingu sem lýtur að innri málefnum Sjálfstœóisflokksins. Ég hef heyrt aó þú œtlir á nœstu vikum að skipuleggja betri tengingu í gegnum hverfafélögin, og meó því þykist ég sjá að þaó takist aó efla tengsl okkar sjálfstœðis- manna úti í hverfunum og ykkar fulltrú- anna í borgarstjórninni. Er þetta rétt? „Þetta er rétt.“ Hækkuð húsaleiga Steinar Marinósson: Um mánaðamótin júní-júli veróur stór hcekkun á leigu hjá borginni, en hve stór? „Hún verður reiknuð út í hveiju til- felli. Hjá ákveðnum hópi hækkar leigan en lækkar hjá öðrum. Það fer eftir því hvaða tekjur menn em með og reyndar eftir því í hvaða húsnæði þeir era. Það virðist vera hugmyndin að þeir sem búa eftir mælikvörðum borgaryfirvalda held- ur rúmt fái á sig hækkun, og þá er rætt um að þeim bjóðist annað húsnæði, minna. Ég hef reyndar spurt hvemig þeir ætli að fara að þessu, og það era reyndar ekki enn komin svör en þaö er verið að fara yfir það. Þaö er mismunandi eftir flölskyldustærð og stærð íbúðar. Bjöm Guðmundsson: Veróa fjölskyldugreiðslumar skatt- skyldar? „Þær verða framtalsskyldar og ef fólk hefur tekjur að einhveiju ráði þá hefúr þetta áhrif á þær. Þetta eru mál sem hver fiölskylda þarf að fara yfir og reikna út en það liggur alveg Ijóst fyrir aö eins og staðan er i dag eru þetta tekjur sem koma inn sem slíkar og hafa áhrif á skattinn. Trausti Ellasson: Hvaó hefði Sjálfstœðisflokkurinn gert ef sams konar mál og þeirra Hrannars og Helga hefðu komið upp innan framboðs- listans? „Slik mál hefðu orðið meira áberandi í prófkjöri og ég geri ráð fyrir að þessir menn hefðu ekki komist inn á listann. Þeir hefðu síast út í prófkjörinu. Það er full ástæða til að minna á aö þessi mál tvímenninganna komu upp og fóru af stað í prófkjöri R-listans. Það era jafhvel til einstaklingar sem á hafa verið bornar sakir en engar sannanir hafa veriö lagð- ar á borðiö og þeir hafa þurft að gjalda orðróms, en það er annars konar mál.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.