Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1998, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1998, Blaðsíða 19
18 ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ 1998 ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ 1998 23 íþróttir Iþróttir ÚRVALSDEILD I fyrsta sinn frá 1977 var leikið á aðalvelli Laugardalsvallar í 1. um- ferð. Aðeins þrisvar hefur verið leik- inn deildarleikur á vellinum í maí frá þvi aö 10 liöa deild var komið á 1977; 1978 (21. maí), 1979, (29. maí) og 1994 (27. maí). Þróttarar spiluöu í gær sinn fyrsta leik í efstu deild í 13 ár. Það er met í 10 liða deild en Leiftur 1988-1995 og tBV 1983-1990 þurftu að bíða í 7 ár. Lengsta biö í efstu deild er hjá liði frá ísafirði en það var í efstu deild 1962 og svo aftur 1982 eða með 20 ára millibili. Keflavik leikur í kvöld útileik uppi á Skaga en liöiö hefur tapað 6 útileikj- um I röð og nálgast nú óðum met Hauka(1979) og Víkinga (1992-1993) sem eru 9 tapleikir á útivelli í röð. ÍA spilar sinn 18. heimaleik við Keflavík í 10 liða efstu deild en það hefur unnið 13 heimaleiki af þeim 17 sem liðin hafa leikið uppi á Skaga til þessa. Skagamenn hafa unnið 3 siðustu leiki við Keflavík uppi á Skaga og skoraöi í þeim 16 mörk gegn 2. Með- alskor lA í þessum leikjum er því 5,3 mörk. ÍR veröur 11. liðiö sem þreytir frumraun sina i 10 liða efstu deild. 5 af þeim 10 sem hafa komið fyrst upp í efstu deild frá 1977 hafa fallið á fyrsta ári en 3 á öðru ári. Aöeins Grindavík, sem er enn i deildinni, og Víðir, sem hélt út í þijú ár 1985-87, hafa haldiö sér uppi í meira en tvö ár. ÍR vann 3 af 5 leikjum sem liðið spil- aði í Grindavík í næstefstu deild 1990-1994 en liðin mætast þar í kvöld. KR og Valur mætast í 41. skiptið frá 1977 í kvöld. Þetta verður 21. heima- leikur KR gegn Val frá sama tíma en af þessum 20 hafa þeir leikið 13 á sín- um heimavelli. Af þeim 7 sigrum sem KR hefur unnið á Val i sínum heima- leik hafa 5 verið á KR-vellinum. Valur vann KR síöast í deildinni 1991, þá 1-0 með sigurmarki Sævars Jónssonar, en KR hefur unnið 3 leiki gegn Val á KR-vellinum i röð. Valsmönnum hefur aðeins tekist að skora 2 mörk á KR-vellinum í 8 leikj- um frá 1990. Þetta gerir Valsmark á KR-vellinum að meðaltali á 360 mín- útna fresti. Annaö þessara marka var sigur- mark Sævars Jónssonar 1991 og hitt skoraði Hörður Magnússón 11-6 tapi í fyrra. Milli þessara marka liðu 522 leikmínútur án þess aö Valur skoraði á KR-vellinum. Valsmenn hafa skorað úr 21 vlti í röö allt frá 1985 en þeir hafa ekki misnot- aö víti í efstu deild í 13 ár. Þaö var einmitt á KR-vellinum sem síðast misfórst víti hjá Val er Stefán Jóhannsson, markvörður KR, varði frá Sævari Jónssyni 8. júlí 1985. Skagamönnum er nú spáð öðru sæt- inu í deildinni sjöunda árið í röð. Þannig hefur þeim í öll skiptin frá því þeir komu upp 1992 verið spáð 2. sætinu en aöeins i fyrra fóru spá- menn rétt með sæti ÍA. -ÓÓJ Bland í noka Karlakvöld KR verður haldiö á Hót- el Borg á föstudagskvöldiö. Ingólfur Margeirsson verður ræðumaður og Bogi Ágústsson veislustjóri. Miðar fást í KR-heimilinu og Spörtu á Laugavegi. Stuöningsmannafélag Knatt- spyrnufélags tA verður stofnað í kvöld klukkan 19 í félagsaöstöðunni á Jaðarsbökkum. Tilgangur félagsins er að taka virkan þátt i umíjöllun um knattspymu á Akranesi. Þrír leikir vom i sænsku úrvals- deildinni í gærkvöld. Malmö sigraði Halmstad, 5-0. Sverrir Sverrisson átti góöan leik hja Malmö. Ólafur örn Bjamason kom inn á í síðari hálfleik. Hácken tapaói heima fyrir Fröl- unda, 0-1, og Elfsborg sigraði öster, 2-1. Stefán Þóröarson var í byrjunarliði öster en var tekinn út af i síðari hálf- leik. -GH/JKS/EH Fer Arnar til Anderlecht? - belgíska stórliðið vill kaupa hann frá AEK Aþenu Belgíska stórliðið Anderlecht vill kaupa Amar Grétarsson frá AEK í Grikklandi. Anderlecht er tilbúið að greiða ó bilinu 40-80 milljónir króna fyrir Arnar, sem hefúr átt mjög gott tímabil með AEK og verið einn jaflibesti leik- maður liðsins, en það hafnaði í þriðja sæti í grísku deildakeppn- inni og komst í átta liða úrslit í Evrópukeppni bikarhafa. Club Brugge, belgísku meistar- amir, sýndu Arnari mikinn áhuga á dögunum, eins og fram kom í DV, og hafa nú endumýjað hann. AEK vill þó gera allt til að halda Amari og hefur boðið honum nýjan fjögurra ára samning en hann átti tvö ár eftir af gamla samningnum. „Þetta eru mjög spennandi hlutir, ekki síst vegna þess að ljóst er að mikil alvara er í málinu hjá Anderlecht sem vill um leið kaupa gríska landsliðsmið- herjann Nikolaidis frá AEK. Fulltrúi frá Anderlecht kom hingað til Aþenu og ræddi við mig og stjóm AEK og hann sagði mér að félagið myndi gera allt til þess að endurheimta belgíska meistaratit- ilinn sem það hefur ekki unnið í þrjú ár. Club Brugge hafði verið að fylgjast meö mér en hefur nú haft samband og beðið mig að skrifa ekki undir neitt nema gefa þeim tækifæri líka,“ sagði Amar í samtali við DV í gærkvöld. Arnar kann mjög vel við sig í Grikklandi en segir boö Ander- lecht mjög freistandi. „Þetta er stórt félag sem ætlar sér mikið og það yrði eflaust mjög góður kostur að fara til Belgíu," sagði Amar Grétarsson. -VS Þjóöverjinn Jens Paeslack, hinn nýi framherji Eyjamanna, á hér í höggi viö Kristján Jónsson, varnarmann Þróttara, í opnunarleik íslandsmótsins í knattspyrnu í gær. Á innfelldu myndinni er Steingrímur Jóhannesson aö skora fyrsta mark íslandsmótsins og fagnar því meö viöeigandi hætti. DV-myndir Brynjar Gauti Þróttarar sprækir - veittu meisturum ÍBV harða mótspyrnu í opnunarleik íslandsmótsins I beinni á Vísi Leikur Þróttar og ÍBV var í „beinni" á íþróttavefnum á netmiðlinum Vísi í gærkvöldi. Á með- an útvarps- og sjón- varpsstöðvar máttu ekki sýna eöa lýsa frá leiknum gátu lesendur Vísis fylgst með gangi mála jafnóðum, fylgst með fæmm, mörkum og öðmm markverðum atvik- um. Iþróttadeild DV sá um lýsinguna. Köttararnir voru mjög líflegir í stúkunni í Laugardalnum í gær. NBA í nótt: Utah nú með gott forskot Staða Utah Jazz gegn LA Lakers í undanúrslitum NBA-deildarinnar í körfúknatt- leik er nú orðin mjög góð. Utah vann LA Lakers öðru sinni i nótt, 99-95, og Utah leiðir nú, 2-0. Karl Malone skoraði 33 stig fyrir Utah en John Stockton átti einnig mjög góðan leik og skoraði 22 stig. Shaquille O’Neal skoraði 31 stig, Eddie Jones 19 og Byron Fischer 12. Jordan bestur enn eitt áriö Michael Jordan var í nótt útnefndur besti leikmaður NBA-deildarinnar í fimmta sinn á ferlinum. -SK Meistarar Eyjamanna fengu held- ur betur mótspymu gegn nýliöum Þróttar í opnunarleik íslandsmótsins í knattspymu á Laugardalsvelli í gærkvöld. Þróttcu-ar sýndu það með frammistöðu sinni að þeir em til alls vísir í hinni erfíðu deild í sumar. Eyjaménn björguðu andlitinu með jöfhunarmarki á elleftu stundu. Það má með sanni segja að mótið hafi að þessu sinni hafist með miklum krafti og fjöri, sex mörk vom skoruð í leiknum en liðin skildu jöfn, 3-3, þeg- ar upp var staðið og miðað við gang leiksins verða það að teljast sann- gjöm úrslit. Steingrímur Jóhannesson gerði fyrsta mark mótsins Eyjamenn byrjuðu betur í leiknum og vom meira með boltann. Þróttar- ar sýndu meisturunum enga virð- ingu og léku af skynsemi. Leikurinn hafði ekki staðið yfir í nema fjórar minútur þegar fyrsta markið á mót- inu varð staðreynd. Þar var að verki Steingrímur Jóhannesson og var vel að þessu marki staðið. Þróttarar létu þetta mark ekki slá sig út af laginu og aðeins sjö mínút- um síðar vom þeir búnir að jafna metin. Hinn eldfljóti Hreinn Hrings- son nýtti sér vamarmistök Eyja- manna og skoraði af stuttu færi. Hreinn er baneitraður i sóknarleik Þróttara og er ljóst að mótherjar þeirra í sumar þurfa að hafa góðar gætur á þessum sóknarmanni. Eftir jöfnunarmark Þróttar færðist jafnræði yfir leikinn en baráttan var engu að síður í öndvegi hjá báðum liðum. Undir lok fyrri hálfleiks áttu Steingrimur og Þjóðverjinn Jens Pa- eslack ágæt færi fyrir Eyjamenn en Fjalar Þorgeirsson, markvörður Þróttar, varði vel í bæði skiptin. Þróttarar mættu ákveðnir til leiks í síðari hálfleik og vom þá betri aðil- inn lengstum. Þeir vom meira með boltann og leikur þeirra var mark- vissari en Eyjamanna sem áttu þó sin tækifæri. Tómas Ingi Tómasson jafnaði fyrir Þrótt með góðum skalla og Hreinn Hringsson var síðan aftur á ferðinni með þriðja markið og var vel að því staðið. Það stefndi allt í óvænt úrslit en Eyjamenn voru á öðru máli og Sigurvin Ólafsson jafnaði beint úr aukaspymu 30 sekúndum fyrir leiks- lok. Þróttur sýnd veiði en ekki gefin í sumar Af leik Þróttara í gærkvöld mátti álykta að þeir verða sýnd veiði en ekki gefin í vetur. Hreinn Hringsson og Tómas Ingi Tómasson vom spræk- ir í fremstu víglínu og Fjalar sterkur í markinu. Eyjamenn verða að gera betur en þetta ætli þeir sér að halda titlinum. Að vísu em nokkrir leikmenn frá vegna meiðsla en breiddin er sterk. Steingrimur Jóhannesson og Hlynur Stefánsson voru góðir. Þjóðverjinn Jens Paeslack er góður og liðinu mikill styrkur. -JKS Sigurvin Ólafsson: Vorbragur á leik okkar „Það var ánægjulegt að sjá boltaim fara í netið og úr því sem komið var getum viö verið sáttir við stigið. Þetta var færi fyrir vinstrifótarmann en ég var ákveðinn í aö taka þessu spymu og skora og bæta fyrir færið sem ég klúðraði í stöðunni 2-1. Viö misstum dampinn í síðari hálfleiknum eftir að hafa verið sterkari í fyrri hálfleiknum. Það er enn- þá vorbragur á leik okkar en við vitum hvað við getum eins og við sýndum í fyrra. Við þurfum ým- islegt að laga og þegar við höfum gert það og end- urheimt menn úr meiðslum verðum við vonandi sterkir,” sagði Sigurvin Ólafsson Eyjamaður. -GH Tómas Ingi Tómasson: Hefði þegið þrjú stig „Þetta var svolítiö svekkjandi þama í lokin en það er aldrei hægt að bóka sigur gegn ÍBV. Eyjamennirnir eru sjóaðir i að spila í efstu deildinni og vita hvað þarf á með- an okkar liö er frekar ungt og óreynt. Ég held að jafntefli hafi verið sanngjörn úrslit. Við vorum lengi í gang en þegar mesti skrekkurinn var farinn af okkur og við þorðum að spila boltanum fór þetta að ganga betur. Það er aldrei leiðinlegt að skora og auðvitað var gaman aö skora gegn gömlu félögunum. Maður hefði þegið 3 stig en það var ekkert við markinu hans Sigurvins að gera. Svona færi er eins og vítaspyrna fyrir hann,“ sagði Tómas Ingi. -GH Þróttur, R. (1)3 ÍBV (2)3 0-1 Steingrímur Jóhanneson (4.) fékk sendingu frá Paeslack og skoraði undir Fjalar i marki Þróttar. 1- 1 Hreinn Hringsson (11.), eftir vamarmistök ÍBV skoraði hann af stuttu færi. 1-2 Jens Paeslack (29.). Steingrímur Jóhannesson átti sendingu fyrir markiö og beint á kollinn á Paeslack sem skallaði af öryggi í netið. 2- 2 Tómas Ingi Tómasson (76.) með skalla eftir góða fyrirgjöf frá Ásmundi Haraldssyni. 3- 2 Hreinn Hringsson (81.) með skalla eftir homspymu frá Gesti Pálssyni. 3-3 Sigurvin Ólafsson (90.), beint úr aukaspymu af 20 metra færi. Lið Þróttar; Fjalar Þorgeirsson @ - Þorsteinn Halldórsson, Kristján Jónsson, Amaldur Loftsson, Vilhjálmur H. Vilhjálmsson - Logi Jónsson (Ásmundur Haraldsson 71.), Gestur Pálsson @, Páll Einarsson, Ingvar ólason - Hreinn Hringsson 0, Tómas Ingi Tómasson @. Lið ÍBV: Gunnar Sigurðsson - Jón Helgi Gíslason, Zoran Miljkovic, Hjalti Jóhannesson, Hlynur Stefánsson @, Sigurvin Ólafsson @, Ingi Sigurðsson (Sindri Grétarsson 72.), ívar Ingimarsson @ Steinar Guðgeirsson - Steingrímur Jóhannesson @, Jens Paeslack @. Markskot: Þróttur 11, ÍBV 13. Hom: Þróttur 4, ÍBV 4. Gul spjöld: Vilhjálmur (Þrótti), Miljkovic (ÍBV). Dómari: Kristinn Jakobsson, ágætur. Áhorfendur: 1847, met á heimaleik hjá Þrótti. Skilyrði: Völlurinn laus í sér. Veður stillt og um 6 stiga hiti. Maður leiksins: Hreinn Hringsson, Þrótti. Gerði mikinn usla með hraöa sinum, sivinnandi allan tímann. Til að kóróna leik sirni skoraði hann tvö góð mörk í leiknum. Bland i poka Davíö Jónsson, GS, sló vallarmetið á Hvaleyrarvelli á vormóti Hafnar- fjarðar i golfi sem fram fór um helg- ina. Davíð, sem sigraði á mótinu, lék á 67 höggum en gamla metið átti Sveinn Sigurbergsson, GK, 69, en hann varð i 2. sæti á mótinu með 73 högg. Þórdís Geirsdóttir, GK, sigraöi án forgjafar í kvennaílokki með 85 högg, Helga Gunnarsdóttir, GK, lék á 89 og Björk Ingvadóttir, GK, á 95 höggum. Helga sigraði meö forgjöf á 75 högg- um. Halldór B. Jóhannsson varð í 8. sæti af 40 keppendum í undankeppni á heimsmeistaramótinu í þolfimi sem fram fór á Sikiley um helgina. Jó- hanna Rós var í 26. sæti af 42 kepp- endum í undankeppninni í kvenna- flokki. -GH Landsliðskona úr Everton «1ÍBV - ætti að styrkja lið ÍBV verulega í sumar ■ ÚRVALSDEILD Nýliöar hafa 7 sinnum áður spilað við meistara í fyrsta leik en aldrei tekist að vinna. Þrisvar hafa meistaramir hafið titilvömina á sigri gegn nýliðum og fjórum sinnum hefur orðið jafntefli. islandsmeistarar hafa aðeins 6 sinnum af 21 skipti tekist aö vinna sinn fyrsta leik i titilvöm. 9 sinnum hafa þeir tapað fyrsta leik og 7 sinnum gert jafntefli. 6 sinnum af 21 skipti hafa meistarar varið titil sinn en það hafa samt bara gert tvö félög; IÁ (5 sinnum) og Víkingur (1). Þróttarar skoraðu eflir 11 minútur og því entist markaleysi þeirra á heimavelli siðan 1985 í 434 mínútur sem er fimmta lengsta bið eftir marki á heimavelli í 10 liða efstu deild. Tómas Ingi Tómasson, Þrótti, skoraði fyrir sitt fjórða félag í gær og jafnaði þar met í 10 liða efstu deild sem fjórir aörir eiga. Tómas Ingi hefur skorað fyrir ÍBV(17), KR(14) og Grindavík(7). Aörir sem eiga metið eru Helgi Bentsson, Grétar Einarsson og Andri Marteinsson. Andri á möguleika á að skora fyrir sitt fimmta félag skori hann fyrir Leiftur í sumar. Gunnar Már Másson leikur ekki fyrstu tvo leikina með Keflvikingum vegna meiðsla. -ÓÓJ/JKS Ensk landsliðskona í knatt- spymu, Karen Burke, er á leið til 1. deildarliðs ÍBV í knattspymu og mun leika með liðinu í sumar. Burke er 27 ára gömul og hefur átt fast sæti í enska landsliðinu síð- ustu fimm árin. Hún leikur með Everton og í stöðu miðjumanns. Hún skoraði mark fyrir enska landsliðið gegn því hollenska á dögunum. Missir af tveimur leikjum Burke kemur til landsins i næstu viku og missir þar af leiðandi af tveimur fyrstu leikjum ÍBV í deild- inni. Hún leikur með Eyjamönnum í þriðju umferð íslandsmótsins og ætti að styrkja liðið verulega. Sænska stúlkan Joan Nilson, sem lék með ÍBV í fyrra og stóð ekki undir væntingum sem til hennar voru gerðar, er hætt í knattspymu. -SK Draumalið DV Vegna þrengsla í blaðinu er ekki hægt að birta tflvisunar- númer draumaliða í dag en nokkuð af liðum bíður enn birt- ingar. Þeir sem skráðu lið sín sjálfir i gegnum netmiðilinn Vísi fá sín lið birt þar innan skamms. Landsímadeildin á Lengjunni! m v Grindavík - ÍR Grindavík - ÍR (0-1) KR - Valur KR - Valur (0-1) Leiftur - Fram Leiftur - Fram (0-1) ÍA - Keflavík "í X O 7G 2 2,80 1,90 3,40 4,15 1,40 1,85 2,75 2,90 3,40 4,15 1,40 2,10 2,65 2,55 3,80 4,60 1,30 1,70 2,85 3,25 2,95 4,10 1,50 ^LANDSSÍMA DEILDIN ______ 5T LE ’oJTKo: www. 1x2.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.