Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1998, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1998, Blaðsíða 20
24 ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ 1998 Spurt í ísafjarðarbæ Hver veröa kosningaúrslitin? Gunnar Friðflnnsson: Fram- sókn vinnur líklega á en þó er ekki gott að segja því D-listin er með perlu i efsta sætinu. Bernharð Hjaltalín: Þetta fer 3- 3-3. Karl Ásgeirsson: Ég reikna með meirihluta D-listans og hin- ir fái tvo hver. Lára Lárusdóttir: Ég held því miður að D-listinn nái meiri- hluta. Kristján Pálsson: Það er alveg ljóst að þetta fer 4-4 fyrir D- og K- lista. Framsókn fær svo einn mann. Sigríður Sigursteinsdóttir: Þaö er mikil óvissa um úrslit en ég held að D-listinn og K-listinn fái 4 menn hvor. Framsókn fær einn mann. Sveitarstjórnarkosmngar 1998 Kosningar í ísafjarðarbæ: Barist gegn fækkun Frá ísafjarðarbæ þar sem átök um skólamál hafa einkennt pólitíkina á kjörtímabilinu svo sem oft áður. DV-mynd gva ísafjarðarbær er samsettur úr sex sveitarfélögum. Sameining ísa- fjarðar, Suðureyrar, Flateyrar og Þingeyrar, auk minni sveitarfélaga, varð að veruleika á kjörtímabilinu eftir nokkur átök. Hið sameinaða sveitarfélag glímir við miklar skuld- ir og fólksfækkun sem vart hefur í annan tíma verið meiri. Á kjörtíma- bilinu var kosið til sameiginlegrar sveitarstjómar og þá fékk D-listinn 4 menn kjöma. A-listinn fékk einn mann og B-listinn sömuleiðis. G-list- inn fékk einn mann og V-listi einn. Loks vann Funklistinn stórsigur, fékk tvo menn kjöma. Nú hefur framboðum fækkaö niður í þrjú. D- listinn býður fram sérlista, sem og Framsókn. A-flokkamir bjóða siðan fram sameiginlega ásamt óháðum og Kvennalista. Fyrstu skref sameiginlegrar bæj- arstjómar hins nýja sveitarfélags, sem skipuð er 9 bæjarfulltrúum, einkenndust af hatrömmum átökum sem vöktu athygli þjóðarinnar þó fæstir skildu til hlítar um hvað mál- ið snerist. Pólitíkin í ísafjarðarbæ hefur í gegnum tíðina þótt skrautleg og margar kempur hafa lotið í lægra ÍSAFJARÐARBÆR A ias% - úrslit kosninga '96 B: 12,8% D: 37,2% haldi en náð sér aftur á strik. Á yfir- standandi kjörtímabili hafa bæjar- fulltrúar ekki bmgðist þeim sem gaman hafa af slíkum hasar. Meiri- hluti sjálfstæðismanna og krata sprakk með látum í haust og bæjar- stjórinn tók hatt sinn og staf og hélt á svæði sem friðsælla er. Sjálfstæð- isflokkurinn klofnaði og nýr meiri- hluti settist að völdum með öðm klofningsbrotinu ásamt krötum og framsóknarmönnum. Þaö sem varð meirihutanum að falli var ágrein- ingur mn nýjan grannskóla sem hluti Sjáifstæðisflokks vildi að yrði í úreltu frystihúsi Norðurtangans. Bæjarstjórinn samdi við Þróunar- sjóð um kaup á húsinu í því skyni og þá fór allt á annan endann og eft- ir nokkurt þóf sprakk meirihlutinn. Nú em þrjú framboð í ísafjarðarbæ. Sjálfstæðisflokkurinn býður fram sameinaður aftur en aðeins einn bæjarfulltrúa flokksins gefur kost á sér að nýju. Það er reyndar núver- andi oddviti sem situr í fimmta sæti og nær því ekki inn í bæjarstjórn nema hreinn meirihluti náist. K-listinn kennir sig við Framfara- félag ísafjarðar og að honrnn standa A-flokkamir, Kvennalisti og óháðir. Þar er sömuleiðis aðeins einn bæj- arfulltrúi sem möguleika á til setu í nýrri bæjarstjóm. Framsóknar- flokkurinn býður fram undir eigin merkjum og þar er nýr maður í efsta sæti. Málefni grunnskólans em áber- andi í umræðunni en þó er merki- legt að ekkert framboðanna er með skýra og ótviræða stefnu i því hvemig leysa skuli húsnæðismál grunnskólans á ísafirði. Enginn tal- ar lengur um að hann verði í húsi Norðurtangans en óljósar hugmynd- ir era á sveimi. Því er svo að sjá að þetta hápólitíska mál sem varð meirihlutanum að falli sé í þeim far- vegi að ekki muni brjóta þar á að nýju. Öll þrjú ffamboðin leggja áherslu á atvinnumál í því skyni að snúa við þeirri óheillaþróun sem lýsir sér í gífurlegum fólksflótta undanfarin ár. -rt Bima Lárusdóttir, D-lista: Stöðvum fólks- flóttann „Þaö er ekkert launungarmál að héðan flytur fólk og margir sem ef- ast um að hér geti vaxið samfélag umffam það sem er í dag. Það þarf að stöðva þessa þróun en við ger- um það ekki á einni nóttu. Ein leiðin er sú að koma þeim skila- boðum til ann- arra landsmanna að það sé búandi hér. Það em mjög margir haldnir Bima Lárusdóttir, þeirri meinloku D‘lis,a- að hér sé óbúandi vegna veðurfars og ýmissa uppákoma í náttúmnni. Ég trúi því að þessu sé hægt að breyta," segir Birna Lámsdóttir, efsti maður á D-lista Sjálfstæðis- flokksins. „Ef við ætlum að búa hér verðum við að fá hingað fleiri íbúa og passa aö þeir sem hér búa vilji vera áfram og þá þurfum við að fá hingað nýja íbúa. Ég bendi á skýrslu Byggða- stofnunar þar sem segir að það séu fleiri sem vilja flytja út á land af höfuðborgarsvæðinu en þeir sem vilja flytja af landsbyggðinni þang- að. Við þurfum að ná í fólkið sem er í þessum þankagangi. Við höfum dæmi um að hreppar hafa lagst af. Ef þróunin heldur áfram em jaöar- byggðir, svo sem Þingeyri, i hættu og síðan kemur að ísafirði og allir flykkjast til Reykjavíkur. Það vant- ar stefnumótun í þessum málum. Þetta snýr að öllum rekstrarþáttum bæjarins. Bæjarfélagið er mjög skuldsett og þar verðum við strax að bregðast við. Þetta snýst þó auðvitað allt um fólk og því færri sem em því meiri skuldir em á hvem og einn. Við þurfum fyrst og fremst að fá hingað fleira fólk og skapa þannig grand- völl fyrir öflugri þjónustu á öllum sviðum." Guöni Jóhannesson, B-lista: Skólamálin mikilvægust „Aðalmálið er skólamálið og að leysa húsnæðisvandamál skólans. Þetta brennur á öflum íbúum tsafjarð- arbæjar og okkur hefur verið legiö á hálsi fyrir að hafa ekki stefhu í þessu máli. Við höfum verið gagnrýnd fyrir að vilja ekki byggja á þessum stað fremur en öðrum en málið er einfald- lega að það era sífeflt að koma fram nýjar tillögur í þessum. málum. Á borgarafundi í gær kom fram enn ný tiflaga um þetta mál þar sem gert er ráð fyrir byggingu á Torfhesi og við auglýsum bara eftir nánari útfærslum til að geta áttað okkur á því hvaða kostur er bestur með tifliti til kostnað- ar og hvemig eigi að framkvæma það,“ segir Guðni Jóhannesson, efsti maður á B-lista Framsóknarflokks. ,Atvinnumálin em geysilega mikil- væg og ég bind miklar vonir við að fiskvinnslufyrirtækin hér nái að byggja sig upp og efli þannig samfé- lagið. Þá þarf bæjarsjóður að stuðla að enn frekari uppbyggingu þó hann komi ekki að því fjárhagslega með beinum hætti. ísafjarðarbær er samansettur af nokkmm hverfum þar sem ýmislegt þarf að gera. Á Suðureyri vantar Guðni Jóhannes- iþróttahús fyrir son, B-iista. unga fólkið. Á Flat- eyri þarf að huga að grunnskólanum og á Þingeyri vofa yflr uppsagnir kennara. Að öllu þessu þarf að huga og taka á af festu og ákveðni." Bryndís Friðgeirsdóttir, K-lista: Bætta ímynd Vestfjarða „Við erum svolitið að slást við at- gervisflótta. Við þurfum að vinna meira heimavinnuna okkar og laða hingað fólk og fyrirtæki. í því ljósi þurfa heimamenn að beita áhrifum í því að knýja fram breytingar á stjóm fiskveiða. Undirstaðan er fiskurinn og til að geta haldið áfram að skapa þarf sá þáttur að vera í lagi,“ segir Bryndís Friðgeirsdóttir, efsti maður K-listans á ísafirði. „Við þurfum að skapa jákvæða ímynd Vestfjarða og þar er mikilvægt að til komi fjöl- breyttara atvinnu- líf. Þá þarf að gera umhverfið meira aðlaðandi til að fyrirtæki komi hingað. Við erum með dýrmæt mannvirki á svæð- inu en reyndar vantar grunnskóla ^9eirs- á Isafirði. Það hafa dótt,r’ K'lis,a- verið pólitísk áflog um það hvar skól- inn á að standa. Það er á hreinu að skólinn verður byggður en hvar er eitthvað sem þarf ákvörðim um. Það má þó ekki gleyma að skóli er miklu meira en hús og það þarf að vemda vel starfið innan hans. Það em því all- ir möguleikar til að taka við fleira fólki á svæðið. Stjómvöld þurfa að móta stefnu um það hvort byggja eigi landið allt. Það er engin stefna, sem er afleitt. Við Vestfirðingar þurfum enga notaða seðla að sunnan eins og komu með Vestfjarðaaðstoðinni frægu.“ -rt Framboöslistar á ísafirði B-listi: 1. Guðni Geir Jóhannesson framkvæmdastjóri. 2. Guðrún Hólmsteinsdóttir lögfræðingur. 3. Jón Reynir Sigurvinsson aðstoðarskólameistari. 4. Ástvaldur Magnússon bóndi. 5. Ingibjörg Vignisdóttir afgreiðslumaður. 6. Erla Eðvaldsdóttir húsmóðir. 7. Sigurður J. Hafberg forstöðumaður. D-listi: 1. Birna Lárusdóttir fjölmiðlafræðingur. 2. Ragnheiður Hákonardóttir leiðsögumaður. 3. Hildur Halldórsdóttir liffræðingur. 4. Pétur H.R. Sigurðsson mjólkurbússtjóri. 5. Þorsteinn Jóhannesson yfirlæknir. 6. Sigurður Þórisson fiskverkandi. 7. Kristín Hálfdánsdóttir skrifstofumaður. K-listi: 1. Bryndis Friðgeirsdóttir svæðisstjóri. 2. Sigurður R. Ólafsson, formaður Sjómannafélags ísfirðinga. 3. Sæmundur K. Þorvaldsson dúnverkandi. 4. Lárus Valdimarsson stundakennari. 5. Sigríður Bragadóttir verkakona. 6. Elísabet Gunnlaugsdóttir leikskólakennari. 7. Jóhann Bjarnason fiskverkandi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.