Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1998, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1998, Síða 2
2 MÁNUDAGUR 15. JÚNÍ 1998 Fréttir Bankastjóri og yfirmenn Búnaöarbankans á laxveiðum í Langá um helgina: Búnaðarbankinn fjár- magnaði veiðihúsið - einkaboð mitt og vina minna, segir Ingvi Hrafn Jónsson leigutaki Byggðasafnið að Skógum: Kirkjuvígsla „Það var kirkja í Skógum í 800 ár og ég hafði lengi haft áhuga á því að aftur yrði byggð kirkja. Það lá því opið fyrir að byggja þá kirkju meö stoð í þeim byggingarhlutum sem voru til úr gömlu kirkjunni, hún er í sömu stærð og gamla Skógakirkj- an var,“ sagði Þórður Tómasson, safnvörður í byggðasafninu í Skóg- um. í byggðasafninu var í gær vígð ný kirkja til minningar um kristni- tökuna árið 1000. Biskup íslands, herra Karl Sigur- bjömsson, vígði kirkjuna, við at- höfnina þjónuðu einnig prestar úr Skaftafells- og Rangárvallaprófasts- dæmum og kirkjukórar úr Holts- prestakalli sungu. „Þessi kirkja er framlag byggðasafnsins í Skógum til þess að minnast 1000 ára afmælis kristnitöku á íslandi," sagði Þórður. Hjörleifur Stefánsson arkitekt teiknaöi kirkjuna í sömu stærð og síðasta Skógakirkja var. „Formið á kirkjunni er nákvæmlega það sem gilti um kirkjur á íslandi allt frá miðöldum fram á síðustu öld, það liggur í því að það er milligerð milli kórs og framkirkju, skreytt milli- gerð með útskurði. En þessi kirkja er samansafn byggingarhluta úr 16 kirkjum úr Rangár- og Vestur- Skaftafelssýslu,“ sagði Þórður. Bygging kirkjunnar hefur staðið yfir í 3 ár. Sveinn Sigurðsson, bygg- ingameistari á Hvolsvelli, gerði hús- ið fokhelt en Karl Ragnarsson, húsa- smíðameistari í Vík, sá um alla inn- smíði í húsinu. „í mínum huga er þetta toppurinn á því sem unnið hefur verið hér í Skógum í safna- uppbyggingu, að fá þessa safn- kirkju," sagði Þórður. -NH Frá vígslunni í gærdag. Hér eru þeir Þórður Tómasson safnvörður og Þór Magnússon þjóðminjavörður við athöfnina að Skógum. DV-mynd Njörður Bankastjórar Búnaðarbanka ís- lands voru að veiða í Langá á Mýrum um helgina í boði leigu- takans, Ingva Hrafns Jónssonar. Þar voru samkvæmt heimildum DV Sólon Sigurðsson bankastjóri og Kristján Snorrason, útibús- stjóri Búnaðarbankans í Borgar- nesi. Ingvi Hrafn staðfesti viö DV í gær að Búnaðarbankinn hefði ijármagnað byggingu nýs veiði- húss við Langá, sem bankastjór- inn og útibússtjórinn tóku þátt í að opna um helgina. Samkvæmt heimildum DV komu bankamennirnir að Langá á föstu- dagskvöld og voru þar við veiðar. Þeir fóru þaðan um hádegisbilið í gær. Bauð vinum mínum „Þetta var einkaboð mitt og vina minna til að halda upp á að það var verið að opna nýtt og glæsilegt veiðihús hér um helgina," sagði Ingvi Hrafn, en hann er leigutaki Langár. - Voru banka- stjórar Búnaðar- bankans staddir þarna? „Ég vil ekkert Sólon segja um það. Eins Sigurðsson. og ég sagði þá bauð ég vinum mínum í þetta einkaboð og það er ekkert meira um það að segja.“ - Átt þú í viðskiptum við Búnað- arbankann? „Ekki ég persónulega. Veiðifélag Langár á í viðskiptum við Búnaðar- bankann í Borgarnesi. Búnaðar- bankinn fjármagnaði þessa bygg- ingu,“ sagði Ingvi Hrafn. Samkvæmt upplýsingum DV veiddi „bankastjórahollið" einn lax um helgina. Veiðin gekk hins vegar mun betur hjá bændum í Borgarfírði seinni hluta gærdags- ólfsson viðskiptaráðherra. Finnur viU fá upplýsingar um fimm lax- veiðiferðir Sólons i Rangá á árun- um 1993-1997. Búnaðarbankinn hafði ekki skýrt ráðherra frá þess- um veiðiferðum. Ráðherra hefur gefið Alþingi, í annað sinn á skömmum tíma, rangar upplýsing- ar um laxveiði banka. -RR/aþ ins. Ekki náðist í Sólon Sigurðsson í gærkvöld. Fundur með ráðherra Nú í morgunsárið mættu bankastjórar Búnaðarbankans til fundar við Finn Ing- Ingvi Hrafn Jónsson. Reykjavíkurlistinn skipar i ráð og nefndir: Sex nýir formenn kosnir Nýir formenn verða í sex þunga- vigtarnefndum á vegum Reykjavíkur- borgar samkvæmt tiUögu sem borgar- stjóri leggur fyrir meirihlutafund Reykjavíkurlistans í dag. AUmörg ný nöfn verða einnig meðal formanna smærri nefnda. Hörð átök ríkja inn- an Alþýðubanda- lagsins um hvort Helgi Hjörvar eða Guðrún Ágústsdóttir verði forseti borgarstjómar eins og greint er frá á baksíðu DV í dag. Hrannar bíður Helgi Pétursson, sem er nýr borg- arfulltrúi úr Alþýðuflokknum, mun samkvæmt tillögunni verða formaður í atvinnu- og ferðamálanefnd, auk þess sem hann verður einnig formað- ur stjómar Strætisvagna Reykjavík- ur. Hrannar B. Arn- arsson, óháður borg- arfuUtrúi, sem var kjörinn í borgar- stjóm úr hópi fram- bjóðenda á vegum Al- þýðuflokksins, verð- ur formaður um- hverfis- og heilbrigð- isnefndar. Áður voru heilbrigðismálin í sérstakri nefnd en borgarstjóri ráðgerir að sameina nefndim- ar tvær i eina. Hrann- ar verður einnig formaður nefndar sem sér um samstarf við Kjalames sem nýlega varð hluti af Reykjavík. Hrannar lenti sem kunnugt er í áföUum í kosningabaráttunni vegna ásakana um fjármálaóreiðu og hefur ákveðið að taka ekki sæti í borgar- stjórn eða nefndum hennar fyrr þau mál eru leidd tU lykta. Gert er ráð fyr- ir að varaborgarfuUtrúi Alþýðuflokks- ins, Pétur Jónsson, taki sæti hans á meðan í borgarstjórn og líklega nefnd- um sem Hrannar á að veita forstöðu. Framsókn sterk Úr röðum Fram- sóknar verður Alfreð Þorsteinsson áfram formaður stjórnar Innkaupastofhunar Árni Þór: for- borgarinnar og mennska í Veitustofnana en hafnarstjórn. undir þær heyrir meðal annars bygging orkuversins að NesjavöUum. Sigrún Magnúsdótt- ir verður sömuleiðis áfram formaður fræðsluráðs. Þá gegnir Guðrún Jóns- dóttir arkitekt áfram formennsku í menningarmálanefnd. Nýr formaður byggingamefndar verður Óskar Bergsson úr Fram- sóknarflokki. Framsókn er því með formennsku í fjórum þungavigtar- nefndum, eða mun fleiri en nokkur hinna flokkanna. Nýr formaður Dagvistar Helgi Hjörvar mun líklega verða formaður félags- málaráðs, jafnvel þótt hann verði einnig forseti borg- arstjórnar. Guðrún Ágústsdóttir verður áfram formaður skipulagsnefndar, sem er talin mikil- vægasta nefnd borg- arinnar, nema svo fari að hún verði forseti borgar- stjórnar. Þá mun Helgi líklega einnig fá formennsku í skipulags- nefndinni. Árni Þór Sigurðsson, fyrrverandi borgarfulltrúi, sem skipar nú tíunda sæti listans, verð- ur kyrr í formennsku hafnarstjórn- ar. Af hálfu Kvennalistans heldur Steinunn Valdís Óskarsdóttir for- mennsku í íþrótta- og tómstunda- ráði en stalla hennar úr Kvenna- listanum, Kristín Blöndal, verður nýr formaður Dagvistar barna í stað Áma Þórs. -rt Hrannar B. Arnarsson: formaður um- hverfis- og heilbrigðis- nefndar. Helgi Péturs- son: formað- ur SVR og at- vinnu- og ferðamála- nefndar. Kristín Blön- dal: nýr for- maður Dag- vistar barna. Stuttar fréttir i>v Vongóður ráðherra Ingibjörg Pálmadóttir heil- brigðisráðherra segist vongóð um að hjúkrunar- fræðingar dragi uppsagnir sínar til baka þegar úr- skurðað hefur verið um nýtt launakerfi fyrir þá innan tíu daga. Að óbreyttu taka uppsagn- ir hjúkrunarfræðinga gildi um mánaðamótin og er þá fyrirsjá- anlegt neyðarástand á sjúkra- húsum landsins. Kæra vegna virkjunar Náttúruverndarsamtök íslands hafa sent umhverfisráðherra stjórnsýslukæru vegna úrskurð- ar skipulagsstjóra ríkisins þar sem hann fellst á fyrirhugaða byggingu allt að 140 MW Vatns- fellsvirkunar. Aðalkrafa Náttúru- verndarsamtaka íslands er að umhverfisráðherra ógildi úr- skurð skipulagsstjóra rikisins en ákveði í staðinn að ráðist veröir í nýtt mat á umhverfisáhrifum. Betra eldsneyti Olíufélagið Esso hf. hefur blandað nýjum bætiefnum í allt eldsneyti sitt fyrir bifreiðar og vinnuvélar. Þau eiga að stuðla að betri endingu véla, nýta betur eiginleika þeirra og draga úr umhverfismengun. Milljón vegna jarðskjálfta Stjóm Rauða kross Islands ákvað á fundi sínum í gær að leggja eina millj- ón til hjálpar- starfs Rauða krossins vegna jarðskjálftanna í Afganistan. Þor- kell Diego, sendi- fulltrúi Rauða kross íslands, er jafhframt á leið til skjálftasvæð- anna. Enn fremur ákvað stjórnin að taka þátt í aðstoð Alþjóða Rauöa krossins við flóttamenn frá Kosovo með tveggja milljóna króna framlagi. ísland í Öryggisráö SÞ íslensk stjórnvöld íhuga fram- boð til Öryggisráðs Sameinuðu þjóöanna árið 2005 eða 2006. Þetta kom fram, að sögn Bylgj- unnar, í viðræðum Halldórs Ás- grímssonar utanríkisráðherra við forseta og utanríkisráðherra Litháens þar sem Litháar fóm fram á stuðning íslendinga við framboð þeirra í Öryggisráðið áriö 2001. Auglýsingar í rannsókn Lögreglan í Reykjavík hefur til rannsóknar hvort bjórauglýs- ingar í sjónvarpi, í tengslum við HM í Frakklandi, bijóti áfengis- lög. Sjónvarpið greindi frá þessu en alkunna er að bjórtegundir séu auglýstar undir því yfirskini að um létt öl með sama nafni sé aö ræða. Hættur vegna smygls Starfsmaður Samskipa hefur hætt störfum hjá fyrirtækinu vegna aöildar sinnar að smygli á 4000 lítrum af sterku áfengi með gámi en upp um það komst í síðustu viku. Alvarleg mistök Pálmi Jónsson, formaður bankaráös Búnað- arbanka íslands, segir að vantald- ar laxveiðiferðir bankastjóra Bún- aðarbankans í svari viðskipta- ráðherra til Al- þingis séu eins og hver önnur mistök. Lítil kjörsókn Heildarkjörsókn í sveitar- stjórnarkosningunum í maí var 81,98% og hefur aðeins einu sinni verið minni síðan í kosningunum 1954. Fyrir fjórum árum var kjör- sóknin 86,6%. -me

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.