Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1998, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1998, Qupperneq 13
MÁNUDAGUR 15. JÚNÍ 1998 Fréttir 13 DV Grundarfjörður: Skuldir Eyrarsveitar 73 þúsund á íbúa • Stangir • Veióihjól • Línur • Vesti DV, Vesturlandi: Ársreikningar sveitarsjóðs Eyrar- sveitar í Grundarfirði og fyrirtækja sveitarfélagsins (Grundarfjarðar- hafnar, Vatnsveitu Grundarfjarðar og félagslegra íbúða) voru nýlega samþykktir í hreppsnefnd Eyrar- sveitar. Heildarskatttekjur sveitar- sjóðs 1997 voru 140 millj. kr. og hækkuðu úr 116 millj. kr. árið 1996 eða um 21%. Það samsvarar hækkun úr 126 þús. kr. pr. íbúa árið 1996 í 153 þús. kr. pr. íbúa 1997. „Hækkunin stafar fyrst og fremst af því að við flutning grunnskólans frá ríki til sveitarfélaga varð tilfærsla á tekju- stofnum; árið 1997 er fyrsta heila árið sem við keyrum grunnskólann," sagði Björg Ágústsdóttir sveitar- stjóri. „Á móti hækka enn fremur rekstrargjöld málaflokka nettó. Þau voru 105,7 millj. kr. en voru 81,4 millj. árið 1996. Rekstur málaflokka er því um 75,4% af skatttekjum 1997 og hækkar frá fyrri árum en hlutfail- ið var 69,5% árið 1995 og 69,2% árið 1996. Skýringin er sem fyrr hið nýja verkefni sveitarfélaganna, yfirfærsla grunnskólans." í fjárhagsáætlun, sem samþykkt var í febrúar 1997, var gert ráð fyrir um 107,5 millj. kr. í rekstrargjöld nettó en endurskoðuð fjárhagsáætl- Flateyringar óttast að bensínstöð verði aflögð: Esso byggir ekki Kjarnorkubyrgi DV, Flateyri: „Olíufélagið vill byggja en það hefur ekki fengist leyfi frá ísafirði. Þeir á Veðurstofunni treysta ekki vamargarðinum og skipulagsyfir- völd hafa ekki svarað bréfrun frá Esso. Það fór fram undirskriftar- söfnun í bænum þar sem skorað var á Esso að koma upp nýrri bensínstöð og ég hef þegar komið afritum af þeim undirskriftarlista til þingmanna okkar Vestfirðinga og kynnt þeim málið. Þannig að Esso hefur fullan hug á að byggja nýja bensínstöð á Flateyri," sagði Þórður Jónsson, umboðsmaður 01- íufélagsins hf. á Flateyri. Bensinstöð Esso á Flateyri eyði- lagðist í snjóflóðinu 1995 og hefur frá þeim tima verið í bráðabirgða- skúr neðst í bænum sem Olíufélag- ið kom upp eftir flóðið. Mikill ugg- ur er nú í heimamönnum vegna fregna sem eru að berast af hug- myndum olíufélaganna um að fækka bensínstöðvum á lands- byggðinni. í litlum þorpum gegna söluturnar veigamiklu hlutverki í bæjarbragnum og eru oftar en ekki miðstöðvar mannlifs á stöð- unum. „Það er slæmt ef ekki er hægt að treysta þessum nýju og dýru vam- argörðum. Esso hefur hug á að byggja hér venjulega bensínstöð en það verður aldrei farið út í að byggja neitt kjarnorkubyrgi. Þetta á að vera alveg hættulaust þegar vont er veður og svo er hægt að loka ef menn telja snjóflóðahættu yfirvofandi.“ -GS Guðlaxinn sem Hringur fékk í trolliö. DV-Danfel Grundarfjörður Fengu kynjakvik- indi í veiðarfærin DV, Vesturlandi: Oft koma ýmis kynjakvikindi í veiðarfæri íslenskra fiskiskipa. Það fengu þeir að reyna á Hring SH 135 þegar þeir fengu þennan myndar- lega guðlax í trollið á dögunum. Hringur er í eigu útgerðar- og fisk- vinnslufyrirtækisins Guðmundar Runólfssonar í Grundarfirði. -DVÓ im gerð í nóvember 1997 gerði ráð fyrir 108,3 millj. kr. í rekstrargjöld nettó. Útkoman er þannig innan áætlunar. Afkoma eftir rekstur málaflokka er 34,4 millj. kr. Greiðslu- byrði lána nettó var 9,6 millj. kr. og gjaldfærð fjárfesting sveitarsjóðs var 24,3 millj. kr. Þar af fóru 3,7 millj. í uppbyggingu á nýjum íþróttavelli og 14,5 millj. fóru í nýbyggingu gatna og holræsa og gerð opinna svæða. Eignfærð fjárfesting sveitarsjóðs var 14,4 millj. kr. nettó sem fór aðal- lega í tvö verkefni; hönnun og undir- búning nýbyggingu grunnskóla (3,7 millj.) og í nýtt húsnæði tónlistar- skólans (9,7 miilj. kr.). Skuldir sveit- arsjóðs voru í árslok 1997 um 67,3 miUj. kr. eða tæp 48% af skatttekjum ársins. Það gerir um 73 þúsund kr. á hvern íbúa. „Sé litið til samstæðu- uppgjörs eru heildarskuldir sveitar- sjóðs, Grundarfj arðarhafnar, Vatns- veitu og félagslegra íbúða 175,8 millj. kr. og munar þar mestu um skuldir félagslega íbúðakerfisins sem eru rétt um 100 millj. kr. Þar af eru reyndar 60 millj. kr. vegna nýrrar byggingar íbúða aldraðra en kaup- leigufyrirkomulag gerir það að verk- um að leiga er greidd fyrir íbúðimar sem standa á undir afborgunum þessara lána.“ -DVÓ Bensínstöðin á Flateyri er enn í bráðabirgðaskúr eftir að snjóflóðið splundraði skálanum. Ekki hefur fengist leyfi til aö reisa nýja stöö á sama staö þrátt fyrir að öflugir snjóflóðavarnargarðar hafi verið byggðir. DV-mynd GS Hornsófatilboð Einlit áklceði ml óhreinindavörn 295 cm I-------------------------1 Hornsófi með innbyggðu gestarúmi SUÐURLANDSBRAUT 22 S: 553 6011 & 553 7100 116.800 St.gr 295 cm Kúm 140x195 cm Jjölbreytt litaúrval

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.