Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1998, Page 25
onm fMfil ?.[ U;th; r\irU M /
MÁNUDAGUR 15. JÚNÍ 1998
Hatar þú Bill Gates?
- yfir þusund heimasíður af Bill Gates-gríni
Litli maðurinn með
flöskubotnagleraugun, sem
varð stór, stærri, stærstur og
sigraði heiminn, á undir
högg að sækja á öllum víg-
stöðvum þessa dagana. I rétt-
arsalnum er hann sakaður
um einokun og kúgun af
sjáifri ríkisstjóm Bandaríkj-
anna - ekki beinlínis heppi-
legasti aðilinn til þess að
deila við, og á Netinu keppist
fólk við að opna heimasíður
sérstaklega tileinkaðar því að
ata nafh hans auri og gera
hann að athlægi.
Bill Gates hefúr hin síð-
ustu misseri sætt mikilli
gagnrýni fyrir að bera ekki
hag viðskiptavina sinna fyrir
brjósti. Andstæðingar hans
halda því fram að Gates láti
stjómast af græðgi og svífíst
einskis til þess að maka krók-
inn. Á heimasíðunum er að
fmna m.a. safn neyðarlegra
tilvitnana í Bill Gates er út-
mála hann sem vægast sagt
vitgrannan einfeldning en
ekki ofurmennið sem flestir álíta
hann. Á einni þeirra er því haldið
Bill Gates var varla búinn að sleikja rjómann framan úr sér
þegar óvinir hans sáu sér leik á borði og ...
fram að Bill Gates hafi árið 1981 fullyrt
að 640 K myndi vera nægt minni fyrir
hvem sem er um ókomna tíð. Eins og
gefur að skilja kannast hann ekki við
að hafa sagt þetta en hinir sitja fastir
við sinn keip.
Gates og rjómatertan
Microsoft-brandarar em að sjálf-
sögðu einnig í boði: „Hvað þarf marga
Microsoft-verkfræðinga til þess að
skrúfa í eina ljósapera? - Engan, þeir
innleiða bara myrkur í bransann."
Sýnist sitt hverjum um ágæti þessara
brandara en eitt er víst: Þeir þjóna til-
gangi sínum ágætlega - veita bitrum
Micrsoft-höturum smáútrás og ljós í
annars dökka tilvera.
Ef brandari um Bill Gates, sama
hversu lélegur, er ljóstíra hjá fjendum
hans þá er ekki ofsagt að fýrr á þessu
ári, í byrjun febrúar nánar tiltekið,
hafl þeir fengið ofbirtu í öfúndaraug-
un. Þá gerði nefnilega belgískur rithöf-
undur, Noel Godin, bragð úr ellefta
boðorðinu og þeytti ijómatertu í höfuð
Gates þegar hann gekk í hægðum sín-
um út úr tónleikahöll i Brassel. Godin
þessi skrifaði einmitt bókina Þeyttur
rjómi og refsing en óhætt er að ftdl-
yrða að kökukastið hafi fært höfúndin-
um meiri frægð en ritsmíðin. Godin
þessi hefur nú verið tekinn í guða tölu
af Gates-höturum og má finna við
hann viðtöl á ýmsum stöðum á Netinu
(annars staðar á síðunni era nokkur
netföng tengd Gates). Einnig er hægt
að fara í alls konar leiki þar sem mark-
miðið er að fleygja kökum af öUum
stærðum og gerðum í Gates auk þess
sem tU er ókeypis skjávari með sama
þema.
Gates sem Pacman
TU era fleiri Gates-leikir. Hinn sí-
vinsæli leikur Misþyrmum moldvörp-
unni, þar sem markmiðið er að slá
moldvörpuhausa aftur niður í holur
sínar, hefur verið lagaöur að Gates og
vakið mUda lukku. Hinn gamU, góði
Pacman hefur einnig snúið aftur sem
Gates. Hann gleypir nú peningasekki
og ráfar um réttarsali á miUi þess sem
hann rabbar við fjölmiðla. Aðrir leikir
era ofbeldisfyllri, t.d. snýst einn leikur
um að slá höfúðið af aumingja Gates í
sem fæstum höggum og annar um að
henda í hann dartpUum. Stóð ekki ein-
hvers staðar að ekki mætti slá fólk
með gleraugu?
Aðrar síður era beittari í sínu gríni
á Gates. Á þeim er m.a. íjaUaö um at-
vikið á tölvusýningunni Com-
dex í apnl þegar BUl Gates
ætlaði að kynna nýjasta af-
sprengi Microsoft, Windows
98 sem átti að sigra heiminn.
En kerfið fór bara ekki í gang
og Gates bætti gráu ofan á
svart með aulalegri athuga-
semd á þá leið að þetta væri
skýringin á því að Microsoft
hefði ekki enn þá sett kerfið á
markað. Einnig er endalaus
umfjöUim um lagaflækjur og -
króka tengda ásökunum á
hendur Microsoft um einok-
un og kúgun á hugbúnaðar-
markaðnum. Meira að segja
hefur harðsvíraður húmoristi
komið upp netsíðu sem ber
yfirskriftina Microsoff. Þar er
snúið út úr slagorðum
Microsoft og þau útlögð á
versta veg í samræmi við álit
þessa netverja á risanum. Að-
alslagorð fyrirtækisins,
Where do you want to go
today, er tU dæmis hjá
Microsoff þannig: Where do
we want you to go today?
Fyrirþá allra biluðustu...
Fyrir tölufikla er svo tU Auðklukka
Gates þar sem kemur fram að Gates
þénar næstum 3000 doUara á sekúndu
og á litla 47 miUjarða fyrir.
Úlitið er þó ekki alsvart fyrir BUl
Gates. Hann á sér sína málsvara þó að
þeir kjósi að tjá stuðning sinn á
óvenjulegan hátt. Einn þeirra hefúr
sett upp heUa vefsíðu honum tU máls-
bóta, að kaUa, a.m.k. sé miðað við
ófræginguna annars staðar á veöium.
Þessi síða ber yfirskriftina Ég hata
Hanson meira en ég hata BiU Gates og
getur Gates huggað sig við það að
þama hefúr hann loksins eignast þján-
ingarbræður. Meira að segja þrjá.
Þeir allra hörðustu, sem líta á Gates
sem holdgerving hugbúnaðardjöfuls-
ins, geta auðvitað líka fengið eitthvað
nógu geðveikislegt við sitt hæfi:
vúdú-dúkku af Gates. Nákvæm eftir-
mynd, íklædd einni af haUærislegu
peysunum sínum, með skrýtnu klipp-
inguna og gleraugun. Svo nú getur
Gates-hatarinn skemmt sér við að
stinga títuprjónum í nefið á BiU litla
og reynt að hugsa ekki um það að á
meðan græðir Gates nógu mikið tU
þess að geta keypt sér nýtt. -fin
Tölvuógnanir aðeins „fræðileg" hætta
- segja vísindamenn og saka stjórnvöld um hræðsluáróður
SífeUt berast fregnir af tölvuribböld-
um sem bijótast inn í tölvur banka og
fyrirtækja, jafnvel stjómvalda úti í
hinum stóra heimi og valda þar usla.
Oftar en ekki er þetta gert tU gamans
og þrjótamir bara að hlaða undir og
fóðra sitt persónulega egó með innbrot-
inu, samanber Boris og FBI-leikinn
hans í James Bond-myndinni Gold-
eneye. En hvað ef tUgangurinn væri
öUu ískyggUegri? Það er stóra spum-
ingin sem valdið hefúr mönnum kvíða
og jafnvel ofsahræðslu. Skemmtana-
iðnaðurinn hefur líka gert sitt tU þess
að ýta undir þennan kviða með mynd-
um og skáldsögum um tölvuþrjóta sem
brjótast inn í tölvimet einhvers kjarn-
orkuveldisins og halda heiminum í
gislingu. Nú hafa sérfræðingar á þessu
sviði gengið fram fyrir skjöldu og sagt
okkur að slaka á - hættan sé frekar
fræðUeg en raunveruleg og fyrst og
fremst tU í ofvirkum heUum „hoUý-
vúdskra" handritaskrifara.
Svo við getum andað léttar. En það
sjónarmið hefur einnig komið fram að
stjómvöld séu kannski ekkert aUt of
hrifin af því að þessari nútímagoðsögn
sé komið fyrir kattamef. Verslun á
veraldarvefnum hefúr aukist gífurlega
á síðustu árum og það hefur reynst
stjómvöldum hvar sem er þrautin
þyngri að komast yfir sinn skerf af
kökunni, þ.e. aUur gangur er á hvem-
ig skattar af þessum viðskiptum skUa
Að sögn sérfræðinga er raunveruleg
hryðjuverkasfarfsemi miklu raunhæfari
og meira aökallandi hætta en svokölluö
tölvuhryöjuverk.
sér í ríkiskassann. Áhyggjur af hugs-
anlegum glæpsamlegum notum af
vefhum gætu nefnUega veitt stjóm-
völdum afsökun tU þess að fylgjast bet-
ur með því sem þar fer fram og stinga
sínu stóra nefi í fleiri staði en annars
væri mögulegt. Þetta stóra EF er
þeirra helsta röksemd og þau hafa ým-
islegt tU síns máls því að vissulega er
ekki hægt að útUoka neitt og allra sist
í tölvuheiminum þar sem framfarimar
era svo örar að næstum ómögulegt er
að fylgjast með.
Að sögn Peters Sommers hjá Lon-
don School of Economics er rétta orðið
tíl að lýsa þessari ógn og líkunum á að
hún verði að veruleika „fræöUegur":
„TU þess að brjótast inn i stórt tölvu-
kerfi þarf viðkomandi að vita hvemig
það virkar, hvaða öryggisafrit era tU
staðar og fleira. Hann myndi þurfa
mjög miklar upplýsingar og meira að
segja bandamann á staðnum sjálfum
sem kynni að skrUa kóta og koma hon-
um fyrir inni í kerfinu. Ég er ekki að
segja að þetta sé ekki hægt en það er
mun minni fyrirhöfn að koma bara
fyrir sprengju!"
Sérfræðingar telja einnig að kerfum
þar sem minni vamir eru tU staðar en
t.d. hjá herjum og stjómvöldum séu
mun meiri hætta búin af þessum
„tölvuterrorisma". Þeir nefna sem
dæmi samgöngufyrirtæki, lesta- og
flugfélög og símafyrirtæki. Með tölvu-
árásum á slík fyrirtæki sé hægt að
valda gifurlegu tjóni og öngþveiti.
Nýlega var haft eftir Clinton Banda-
rUíjaforseta að vestrænum löndum
stæði sífeUt meiri ógn af tölvuþrjótum
en vísindamenn á borð við Ross And-
erson hjá tölvudeUd Cambrigde-há-
skóla segja þetta vera hræðsluáróður.
„Þetta er einfaldlega tilraun yfirvalda
tU þess að ná stjóm yfir rafrænum við-
skiptum. Þau era að reyna að koma á
kerfi þar sem fólki sé skylt að gefa upp
dulmálslyklana að tölvukerfum sínum
á grundveUi þessarar útblásnu hættu.
Það er aUt og sumt.“ -fin
37
I^ListasmiQjan kenmtlkMs
Höfiim flutt starfseud olckar úr Hafitarfirði
í Skeifuna 3a Reykjavík. Verið veTkomin
SktifamSa
/lýtt
Skeifan 3a
108 Reykjavik
Sími: 588-2108
15. júni SVARTUR tO.júnf SPUR
16. Júnf PAPAR opið til kl. 03.00 20. fúni SPUR
17. júni MILLER-TIME PAPAR A ,21, júnl DÚNDURFRÉTTIR
18. júni MILLER-TIME SSSÓL
SMIRNOFF www.smirnoff.com
^úökaupsveislur—útisamkomur—skemmtanir—tónleikar—sýningar—kynningar og fl. og fl. og fl.
iiiatjðld - veislutjðld-
<
SkÍDU
..og ýmsir fylgihlutir
Ekki treysta á veðrið þegar
skipuleggja á eftirminnilegan viðburð -
Tryggið ykkur og leigið stórt tjald á
staðinn - það marg borgar sig.
Tjöld af öllum stœrðum frá 20 - 700m2.
Einnig: Borð, stólar, tjaldgólf og
tjaldhitarar.
aleigcs sgcáta
..með skátum á heimavelli
sími 562 1390 • fax 552 6377
Húsbréf
Útdráttur
húsbréfa
Nú hefur farið fram útdráttur
húsbréfa í eftirtöldum flokkum:
1. flokki 1989
1. flokki 1990
2. flokki 1990
2. flokki 1991
3. flokki 1992
2. flokki 1993
2. flokki 1994
3. flokki 1994
- 31. útdráttur
- 28. útdráttur
- 27. útdráttur
- 25. útdráttur
- 20. útdráttur
-16. útdráttur
-13. útdráttur
-12. útdráttur
Koma þessi bréf til innlausnar 15. júní 1998.
Öll númerin verða birt í Lögbirtingablaðinu.
Auk þess eru númer úr fjórum fyrsttöldu flokkunum
birt hér í blaðinu í dag. Upplýsingar um útdregin
húsbréf liggja frammi hjá Húsnæðisstofnun ríkisins,
á Húsnæðisskrifstofunni á Akureyri, í bönkum,
sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum.
CHÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 569 6900
www.visir.is
FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR