Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1998, Page 18
18
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 1998
Iþróttir
Hvaö er til ráða
- hver þessara 9 aðferða er best?
Vítakeppnir eru famar að setja mjög mikinn svip á all-
ar lokakeppnir í alþjóðlegri knattspyrnu. Umræðan
um ágæti þeirra fór einna hæst fyrir fjórum árum'
þegar í fyrsta sinn var útkljáð um heimsmeist-
aratitilinn í vítakeppni. Hér að neðan skul-
um við líta á hvort það séu til aðrar leiðir
en að enda leikinn i vítakeppni og veltum'
fyrir okkur kostum og göllum við hverja og eina aðferð.
Þessu er ætlað að vera meira til skemmtunar en í mikilli alvöru en
stjómarmenn FIFA hafa sagt að þeir séu opnir fyrir sniðugri lausn.
Gullmark
Sú regla sem gildir á HM i Frakklandi og
var fyrst tekin í notkun á Evrópumótinu í
Englandi þar sem Oliver Bierhoff skoraði
sigurmarkið á 95. mínútu. Gullmarkið er
til hoða 130 mínútur annars tekur við vita-
keppni.
Kostir: Gullmarkið kemur ekki nema að
liðin sæki og reyni að skora. Úrslitin ráð-
ast með því að skora mark í leik og verö-
launar því sóknarknattspymu.
Gallar: Liðin geta hangið á jöfnu langt fram eftir kvöldi. Þarf því að
vera í sambandi við vítakeppni.
Vítaspyrnur teknar fyrst
Vítaspymukeppnin fer fram fyrir
leikinn og mun hún síðan ráða úr-
slitununum skilji liðin jöfn að leik
loknum.
Kostir: Það lið sem tapar víta-
keppninni getur bætt fyrir það og
farið framar og reynt að sækja og bæta fyrir klúðrið á vítunum.
Gallar: Það lið sem vinnur vítakeppnina pakkar mjög líklega í vöm.
Horn
Það lið vinnur sem fengið hefur fleiri hom
eftir framlengingu.
Kostir: Horn eru afleiðing sóknarknatt-
spymu þó svo kannski að mörg komi upp úr lít-
ilvægum sóknum.
Gallar: Hver segir að það sé betra og
skemmtilegra að lið fái fleiri hom?
Skot á mark
Það lið vinnur sem náð hefur fleiri skot-
um á markið eftir framlengingu.
Kostir: Skot koma eftir sóknir og því fá
liðin bónus fyrir að ná fleiri skotum á
mark.
Gallar: Ætti ekki að verðlauna lið fyrir
að skora en ekki að láta verja frá sér.
Tína leikmenn út af t.
Eftir framlengingu þurfa þjálfarar að‘
taka einn leikmann af velli á 5 mínútna
fresti.
Kostir: Leikurinn ræðst í venjulegum
leik og þegar liðin em orðin mannfá er ólík-
legt að þau reyni annað en sóknarbolta.
Gallar: Allt skipulag og uppsetning lið-
anna riðlast og auk þess sem þetta umbreytir leiknum líkt og um víta-
keppni væri að ræða.
Fjöldi brota
Það liö vinnur leikinn sem brotið hefur
minna af sér eftir framlengingu.
Kostir: Það verðlaunar prúðan leik en gerir
litið sem ekkert annað en það. Prúðmannlegur
leikur er nú samt það sem menn vilja alltaf sjá
í knattspymunni.
Gallar: Það væri hægt að vinna leik án þess
að ógna neitt á sóknarvelli. Það segir lítið til um
sóknarleik liðanna að þau spili ekki vömina
fast.
Bráðabani, einn á einn
Bandaríska aðferðin. Minnir á íshokkí, leik-
maður rekur knött frá miðju og fer einn á einn á
markvörðinn. Leikmaðm* hefur aðeins 15 sek-
úndur til að klára skotið.
Kostir: Líkara leik heldur en vítakeppni þar
sem reynir á boltaleikni leikmanna auk skot-
leikni.
Gallar: Nánast um dulbúna vítakeppni að
ræða og leikmenn verða blórabögglar.
Vítaspyrnukeppni
Hvort lið fær fimm víti eftir framlengingu.
Þessi aðferð gildir enn i alþjóðaknattspyrnu og
allir þekkja hana vel.
Kostir: Af hverju erum við að nefha 8 aðrar
leiðir?
Gallar: Leikmaður getur orðið blóraböggull
fyrir að klikka á einu víti þrátt fyrir að hafa
unnið fyrir kaupinu sínu
hina 2 klukkutímana sem leikurinn stóð yfir.
v Kastað upp á það
Ein leiðin enn er að gera eins og gert var í fyrstu
keppnunum því ef aukaleikur liðanna var jafh var
tekinn upp teningur og hann látinn ráða um örlög
liðanna. En er þetta ekki komið gott í bili?
Hvaða leið finnst þér best?
DV
16 liða úrslit í bikarkeppninni að heQast:
Hvað gerist á
Eskifirði í kvöld?
- þegar 1. deildar lið KVA mætir Leiftursmönnum
16-liða úrslit í bikarkeppninni í
knattspymu hefjast i kvöld með
fimm leikjum en annað kvöld verða
þrír leikir. 1. deildar lið KVA, sem
gerði sér lítið fyrir og sló út bikar-
meistara Keflvíkinga í síðustu um-
ferð, mætir Leiftursmönnum á Eski-
firði.
Það verður fróðlegt að sjá hvort
KVA heldur áfram á sömu braut en
framganga Austfirðinga í síðustu
umferð vakti mikla athygli.
Eyjamenn, sem tróna í efsta sæti
úrvalsdeildar, halda norður yfir
heiðar og mæta Þór á Akureyri.
Athygliverð viðureign verður á
KR-velh þar sem heimamenn taka á
móti Val. Breiðahlik og ÍR eigast við
á Kópavogsvelli og loks leika Víðir
og Víkingur í Garði.
16-liða úrshtuniun lýkur annað
kvöld. Þá mæta Fylkismenn liði FH
í Árbænum. Grindavík tekur á móti
ungmennaliði KR og Fram og Þrótt-
ur eigast við á Valbjamarvelli í
Laugardal. Allir leikimir í umferð-
inni hefjast klukkan 20. -JKS
Hollendingar hafa sýnt með frammistöðu sinni á HM að þeir eru til alls vísir. í hollenska liðinu er valinn maður í
hverju rúmi og svo virðist sem liðið vaxi við hverja raun. Hér sjást Hollendingar fagna sigurmarkinu gegn
Júgóslövum. Markið gerði Edgar Davids sem er í peysu númer 16. Símamynd-Reuter
Svensson gaf
Celtic afsvar
Sviinn Tommy Svensson gaf í
gær skosku meisturunum í Celt-
ic svar þess efnis að hann settist
ekki í stól framkvæmdastjóra fé-
lagsins. Svensson bauðst starfið
í síðustu viku og fékk nokkra
daga til að íhuga málið. Celtic
heldur því leit sinni áfrarn en
mjög brýnt er að maður finnist í
starfið en nú styttist óðum í að
æfingatímabilið hefjist.
-JKS
ítali í vörnina
hjá Tottenham
Enska úrvalsdeildarliðið
Tottenham hefur fest kaup á
italska vamarmanninum Paolo
Tramezzani frá Piacenza fyrir
1,3 milljónir punda. Tramezzani
hittir landa sinn Nicola Berti
fyrir hjá Tottenham. Tramezzani
sagði að Berti hefði mælt með
Tottenham og það hefði ráðið
miklu í endanlegri ákvörðun
sinni.
-JKS
Perez í herbúðir
Blackburn Rovers
Roy Hodgson, knattspyrnu-
stjóri Blackbum Rovers, hefur
um tíma leitað að sterkum vam-
armanni og í gær gekk hann frá
kaupum á Frakkanum Sebastian
Perez frá Bastia á Korsíku.
Enska liðið greiddi 320 milljónir
fyrir leikmanninn sem skrifaði
undir fiögurra ára samning.
Blackbum hyggur á enn meiri
leikmannakaup fyrir tímabilið.
-JKS
íslandsmót á torfærumótorhjólum:
Næsta mót í Ketilási
Önnur umferð af
þremur á íslands-
mótinu í torfæm-
mótorhjólaakstri
verður haldin á
fóstudaginn kemur
við Ketilás í Fljótum.
Keppnin hefst klukk-
an 19 og er áætlaö aö
henni verði lokið um
tveimur tímum síð-
ar. Allar keppnir
sumarsins gefa stig
til íslandsmeistara.
Keppt verður i
þremur Dokkum og
verða verðlaun veitt
að lokinni keppni við Vi99ó Viggósson hefur unniö allar keppnir sem Sniglarnir hafa staðið
útibú Kaupfélags fyrir 1 Enduro. Heldur hann áfram á sömu braut í Ketilási?
Skagfirðinga, Ket-
ilási, í boði kaup-
félagsins. Þessi
keppni er hluti af
landsmóti Snigla
sem haldið er við
Ketilás dagana
2.-5. júií.
Á mótinu er
keppt á svokölluð-
imi torfærumótor-
hjólum í braut í
landi Helgustaða
og Stórholts og er
um 6 km að lengd.
Eknir verða 7-8
hringir og verður
aðgangur ókeypis.
-JKS
t