Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1998, Page 7
MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 1998
7
Fréttir
Halldór klókur
í bankaheiminum þykir mönnum
sem Halldór Ásgrímsson hafi spil-
að klókindalega þegar hann lýsti op-
inberlega yfir vilja til að selja
Skandinaviska En-
skilda-bankanum
stóran hlut í Lands-
bankanum. Davíð
Oddsson varð fox-
illur. Bankamenn
segja hins vegar að
yfirlýsing Halldórs
fyrst og fremst
hugsaða til að skapa
samningsstöðu fyrir Framsókn
gagnvart sölu á Drengjabankanum
til Búnaðarbankans sem Framsókn
lítur á sem „sinn“. Nú sé Halldór
nefnilega búinn að hanna atburða-
rás þar sem eina leiðin til aö draga
úr spennunni sé að báðir aðilar gefi
eftir. Þá fellur Sjálfstæðisflokkurinn
frá andstöðu sinni við að Drengja-
bankinn verði hluti af Búnaðar-
bankanum og Framsókn laetur af
kröfu sinni um að selja útlending-
um ráðandi hlut í Landsbankanum.
Þar með hafi Halldór náð að nota
hina sænsku Wallenberga til að
tefla Davíð út af borðinu...
Varaformaður aldarinnar
Heimdallur, félag ungra sjálfstæð-
ismanna í Reykjavík, útnefnir á
fostudag þingmann ársins. Pétur H.
Blöndal fékk þennann heiður síðast
en hann féll ekki í
geð Heimdellinga að
þessu sinni vegna
einkennilegrar fisk-
veiðistjórnunar-
stefnu. Stuttbuxna-
sveit Sjálfstæðis-
flokksins hefur því
ákveðið að útnefna
Friðrik Sophusson þar sem
hann hafi staðið sig frábærlega sem
fjármálaráðherra. Friðrik hefur
dijúgan hluta aldarinnar staðið í
ffamlínu Sjálfstæðisflokksins. Hann
hafði lengi vel þann kæk að bjóða
sig fram til formanns en laut ævin-
lega í gras og var kosinn varafor-
maður. Sú hugmynd ku hafa dúkk-
aö upp að útnefha hann varafor-
mann aldarinnar...
Kynslóðaskipti
Það vill stundum brenna við að
synir feti sama stíg og feður þeirra.
Glöggt dæmi um slíkt er nú að af-
loknum bæjarstjómarkosningum
þegar alls staöar er ýmist verið að
ráða eða reka bæjar-
og sveitarstjóra. Jón
Gunnar Stefáns-
son, sem verið hef-
ur farsæll bæjar-
stjóri Grindvíkinga
í 16 ár, var flæmd-
ur þaðan fyrir þær
sakir einar að
vera að nálgast 67 ára aldm--
inn. Það fór þó ekki svo að ættlegg-
urinn segði skilið við stétt þeirra
sem sveitarfélögum stjóma. Á sama
tíma og Jón Gunnar pakkaði saman
búslóð sinni og yfirgaf Grindavík
flutti Stefán Jónsson, sonur hans,
foggur sínar í Búðardal þar sem
hann er nú að stiga sín fyrstu skref
sem sveitarstjóri...
Svo hann gæti riðið
Fyrir um ári varð Páll Péturs-
son félagsmálaráðherra sextugur.
Var Páll búinn að vera nokkuð mik-
ið þá í sviösljósinu og átti að baki
mörg erfið mál sem
höfðu ekki skapað
honum vinsældir.
Notaði frúin á
Höllustöðum, Sig-
rún Magnúsdótt-
ir, þá tækifærið og
gaf ráðherranum
hest að gjöf til
reyna að létta lund hans. Hesturinn
var leiddur inn gólf þar sem Páll
hélt afmælið hátíðlegt. Af því tilefni
kvað Eyjólfur frá Galtanesi:
Hjá Páli Pé var farið flest,
framtakið var liðið,
þá Sigrún honum sendi hest,
svo hahn gæti riðið.
Umsjón Reynir Traustason
Netfang: sandkorn @ff. is
Þýsku skoðunarmennirnir skoðuðu sl. laugardag 32 Musso-jeppa sem ekki
hafa fengið skráningu hér á landi. DV-mynd S
Hestaleiga á
Þingeyri
DV, Vestfjörðum:
„Ég hugsaði þetta til þess að skapa
vinnu fyrir mig og börnin og fór því
að leigja út hesta. Það hefur gengið
mjög vel frá því að ég byrjaði núna í
júní, þrátt fyrir að þetta hafi ekkert
verið auglýst nema hvað ég hef látið
vita af mér hjá Upplýsingamiðstöð
ferðamála héma á Þingeyri. Að öðru
leyti hefur þetta bara frést. Ég hef
fengið fólk af fjörðunum hérna i
kring, bæði einstaklinga og hópa, auk
þess sem töluvert af erlendum ferða-
mönnum, sem eru hér á eigin vegum,
hefur nýtt sér þessa þjónustu. Þetta á
eftir að verða líflegt og skemmtilegt,"
sagði Kristín Elíasdóttir á Þingeyri.
í kjölfar þess að atvinna á Þingeyri
dróst saman við gjaldþrot frystihúss-
ins á staðnum fyrir nokkrum árum
fór Kristín, líkt og margir íbúar stað-
arins aðrir, út í að skapa sér atvinnnu
og ásamt því að reka þessa nýju hesta-
leigu hefur hún meðal annars umsjón
með fimm kirkjugörðum á Vestfjörð-
um auk þess að sinna ýmsu hand-
verki. Kristín hugsar sér að koma á
Musso-jepp-
arnir skoðaðir
- af þýskum skoðunarmönnum
Þýskir skoðunarmenn skoðuðu á
laugardaginn 32 Musso-jeppa sem
ekki hafa fengið skráningu hér á
landi. Jeppamir hafa staðið
óhreyfðir við Sundahöfh í nokkra
mánuði. Deilur hafa staðið milli
innflytjenda bílanna og Skráningar-
stofunnar sem ekki hefur viljað
skrá bílana.
„Það er rétt að þýsku skoðunar-
mennirnir skoðuðu alla jeppana á
skoðunarstöð við Sundahöfn. Við
bíðum nú eftir niðurstöðum þeirra
en þær munu koma innan tíðar. Það
er búið að forskrá og tollafgreiða
jeppana. Ég trúi ekki öðru en þetta
mál sé loks að komast í höfn og við
fáum loks að leysa jeppana út og fá
þá skráða hér á landi,“ segir Fjölnir
Þorgeirsson, einn eigenda bílasöl-
unnar Skeifúnnar sem flytur inn 15
af jeppunum. -RR
Kristín Elíasdóttir ásamt dóttur sinni, Heiðrúnu. DV-mynd Guðmundur
fót skipulögðum ferðum fyrir hesta-
fólk þar sem farið verður fyrir Slétta-
nes með gistingu í Svalvogum og far-
ið um Fossdalsheiði milli Arnarfjarö-
ar og Dýrafjarðar.
„Ég er svo mikið náttúrubarn að ég
get varla hugsað mér að vinna innan-
dyra yfir sumarið, helst vil ég ekkert
koma i hús allan daginn yfir sumar-
tímann. Til að leysa vandann með
bamapössun auglýsti ég eftir „ömmu“
tímabundið fyrir börnin. Ég fékk
konu frá Reykjavík til að passa böm-
in fyrir mig meðan ég er að vinna þar
sem ég get ekki haft bömin með mér,
en ég reyni að taka þau með þegar það
er hægt,“ sagði Kristín.
-GS
FÁÐU ÞER PIZZU FYRIR ÞÚSUNDKALL
[ tilefni af fimm ára afmæli Domino’s Pizza
á (slandi þann 16. ágúst býðst öllum pizzu-
unnendum einstakt afmælistilboð þessa viku.
Þú hringir eða kemur, pantar draumapizzuna þína
með allt að fjórum áleggstegundum og borgar
aðeins þúsund krónur fyrir. Njóttu afmælis-
veislunnar með Domino’s og fáðu þér pizzu
fyrir þúsundkall. Afmælisveislan hefst ( dag og
lýkur að kvöldi afmælisdagsins þann 16.
ágúst. Tilboðið gildir ekki í Kringlunni.
ÁNANAUSTUM 15 • GRENSÁSVEGI 11 ■ HÖFÐABAKKA 1 • GARÐATORGI 7 ■ SfMI 58-12345