Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1998, Blaðsíða 8
8
MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 1998
Utlönd
Drottning hafði
mestar áhyggjur
af skartgripum
Elísabet Englandsdrottning haföi
meiri áhyggjur af því að ná aftur
öllum konungsgersemunum sem
Díana prinsessa hafði hugsanlega á
sér þegar hún lést en að hugga fjöl-
skyldu hennar. Þetta kemur fram í
nýrri bók þar sem dregin er upp
miöur fógur mynd af bresku kon-
ungsfjölskyldunni.
Bókin Daginn sem Díana lést er
eftir bandaríska blaðamanninn
Christopher Andersen. Hún byggist
á fjölda viðtala sem höfundurinn
tók við starfsfólk sjúkrahúsa, Buck-
inghamhallar og háttsettra heimild-
armanna.
Opna aftur grafir
á Svalbarða
Alþjóðlegur hópur vísindamanna
mun á miövikudag eftir viku opna
sex grafir á Svalbarða þar sem fórn-
arlömb spænsku veikinnar hvila.
Vonast menn að líkin séu það vel
varðveitt að taka megi sýni sem
geri kleift aö einangra erfðaefni
veirunnar sem orsakaði faraldurinn
forðum. Takist það munu vísinda-
menn vera mun betur i stakk búnir
að verja mannfólkið gegn sams kon-
ar faröldrum í framtíðinni.
Athyglin beinist nú aö rannsókn sprengjutilræðanna í Kenýa og Tanzaníu:
Konan sem nefnd
var Rósa fannst látin
ísraelskir björgunarmenn fundu
kenýska konu látna í rústunum við
sendiráð Bandaríkjanna í Naíróbí
skömmu eftir miðnætti í nótt. Kon-
an, sem kölluð var Rósa, var föst í
litlu rými inni í brakinu. Konan
virtist ekki slösuð en hafði verið án
matar og drykkjar í flmm daga.
Björgunarmenn heyrðu síðast til
hennar á mánudagskvöld.
Þó enn sé leitað í rústunum eru
menn úrkula vonar um að finna
fleiri á lífi.
Athyglin beinist nú í auknum
mæli að rannsókn sprengjutilræð-
anna í Naíróbí, þar sem 224 fórust,
og í Dar es Salam í Tanzaníu þar
sem 10 fórust. Lögregla í Tanzaníu
hefur handtekið 14 útlendinga
vegna tilræðanna, þar á meðal sex
íraka, sex Súdani, Sómalíumann og
Tyrkja. Þeir munu allir hafa verið
án vegabréfs og ekki getað gert full-
Kenýskur maöur, sem særöist í sprengjutilræöinu í Naíróbí, er hér borinn úr
herflugvél í flugstöð Bandaríkjamanna í Þýskalandi. Símamynd Reuter
nægjandi grein fyrir ferðum sínum.
Hins vegar urðu bandarískir rann-
sóknarmenn fyrir áfalli þegar í ljós
kom að efni frá myndavél á þaki
sendiráðsins í Dar es Salam hafði
ekki verið tekið upp á myndbönd.
Vonuðust menn tU að fá þar at-
burðarásina fyrir sprenginguna.
Engar handtökur hafa verið gerð-
ar vegna tilræðisins í Kenýa og hafa
rannsóknarmenn ekki fengið nema
takmarkaðan aðgang að rústunum
meðan þar er verið að leita að fólki.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti á
fund með öryggisráðgjöfum sínum í
dag um rannsókn tilræðanna. Sex
sendiráðum Bandarikjamanna víða
um heim var lokað um stundarsak-
ir meðan öryggismál þar voru end-
urskoðuð. Flogið verður með lík 10
Bandaríkjamanna sem fórust í
tilræðunum frá Þýskalandi til
Bandaríkjanna á morgun. Reuter
Bílamarkaburinn \
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut.
Kopavogi, simi
567-1800
Löggild bílasala
Við vinnum fyrir þig
Subaru Legacy '90, drappl., 5 g., ek. 162 þús.
Renault Megane RT 1,6, '97, silfurgr., 5 g.,
ek. 12 þús. km. V. 1.330 þús. Toppeintak.
Ford Mercury Sable station, '91, blár, ssk.,
ek. 94 þús. mílur, allt rafdr. o.fl. Toppeintak. V.
1.080 þús.
Ford Scorpion 2,0 GL '90, svartur, 5 g., ABS,
topplúga, o.fl. V. 950 þús. Tilboö 750 þús.
Ótrúlegt verð
á fjölda bíla
Frábær greiðslukjör
á fjölda bíla
MMC Pajero dísil turbo '90, blár/grár, ssk., ek.
160 þús. km. Nýyfirfarinn. V. 1.250 þús.
Ford Escort 1900 LX station '95, grænn, ek.
80 þús. km, ssk. Verö 1.130 þús.
Tilboö 980 þús.
Grand Cherokee LTD '95, drapplitaöur,
einn m/öllu, ek. 55 þús. km, ssk. V. 3.300
þús.
MMC Colt GLi '93, rauöur, 5 g., ek. 100 þús. km.
V. 690 þús.
Jaguar Sovereign '89, svartur, ssk., ek. 201
þús. km, m/öllu . Bílal. getur fylgt. Verö tilboö
BMW 318i, '92, blár, 5 g., ek. 90 þús. km.
V. 1.350 þús.
Citroen BX 16 TRS '91, 5 g., ek. 119 þús. km.
Verö 450 þús. Tilboö 375 þús.
Citroen BX 19 GTi '90, hvítur, álfelgur, spoiler,
topplúga, ek. 110 þús. km. V. 510 þús.
Hyundai Accent GLSi '95, hvítur, 5 g., ek. 76
þús. km. V. 790 þús. Tilboö 640 þús.
VW Golf CL1600 '91, rauöur, 5 g., ek. 110 þús.
km. V. 450 þús. Tilboö 360 þús.
Chevrolet Camaro '89, blár, 5 g., ek. 101 þús.
km, toppeintak. V. 750 þús. Tilboö 450 þús.
stgr.
Willys Korando 2,3 dísil '89, 4 g., ek. aöeins
103 þús. km. Tilboösverö 490 þús.
Mazda 323 fastback GLXi '92, ssk., ek. 113
þús. km. V. 680 þús.
Nissan Micra LX '96, 3 d., 5 g., ek. 48 þús. km.
V. 770 þús. (Bílalán getur fylgt).
Ford Prope 2,0,16 v., '93, 5 g., ek. 86 þús. km,
spoiler o.fl. V. 1.350 þús.
M. Benz E 220 '94, ek. 85 þús. km, álfelgur,
topplúga, rafdr. rúöur, original GSM-sími, fjarst.
læs., þjónustubók. Verö tilboö.
Suzuki Baleno GL sedan '98, blásans, ssk., ek.
2 þús. km, álfelgur, rafdr. rúöur o.fl. V. 1.300 þús.
Toyota HILux ex-cab, bensín, '90, hvítur, 5 g„
ek. 126 þús. km, ek. 12 þús. á vél. V. 950 þús.
Toyota Corolla touring, GLi, '96, hvítur, 5 g„ ek.
35 þús. km, bílalán getur fylgt. V. 1.490 þús.
Opel Vectra 2,0 CD '98, vlnrauöur, ssk„ ek. 12
þús. km. V. 2,1 millj.
Subaru Impreza GL, 4x4, '94, grænn, 5 g„ ek.
63 þús. km, sumar- og vetrardekk.
Bdalán getur fylgt. V. 1.090 þús.
Honda CRX '89, svartur, 5 g„ ek. 107 þús. km.
Toppbíll. V. 620 þús.
MMC Lancer GLXi, station, '98, rauöur, 5 g„ ek.
13 þús. km. V. 1.420 þús.
Mazda 323 LX 1,3 '89, hvítur, 5 g„ ek. 160 þús.
km. V. 350 þús. Bfll í toppstandi.
VW Golf GL 1400 '95, fjólublár, ek. 39 þús. km,
161 álfelgur, sumar- og vetrardekk o.fl.
V. 1.020 þús.
BMW 5181 special ED '88, grár, 5 g„ ek. aöeins
75 þús. km, 2x álfelgur, topplúga o.fl. Toppbíll. V.
680 þús.
Suzuki Sidekick JXi '95, hvítur, ssk„ ek. 59 þús.
km, 31“ dekk, fjarstart o.fl. V. 1.490 þús.
Honda Civic GL '88, rauöur, sóllúga, samlæsing-
ar, ek. 150 þús. km. V. 390 þús. Tilboö 290 þús.
Dodge Caravan SE 3,3 '95, blár, ssk„ ek. 41
þús. km. V. 1.940 þús.
M. Benz 190E, '87, gullsans., ssk„ ek. 195
þús. km, ABS, 15“ felgur. V. 890 þús. Tilboö
Toyota T-100, ex-cab '95, grænn, ek. aöeins
49 þús. km. Einstakur bíll. V. 2.250 þús.
Mazda 626 2,0 GLXi '94, vínrauöur, ssk„ ek.
72 þús. km, hlaöin aukabúnaði, bílalán getur
fylgt.V. 1.490 þús. Tilboö 1.290 þús.
Suzuki Vitara JLX, '90, blár, ssk„ ek. 134 þús.
km, 30“ dekk o.fl. V. 650 þús.
Plymouth Voyager SE '96, fjólublár, ssk„ ek.
74 þús. km. V. 2.550 þús.
MMC 3000 GT SL '92, rauður, 5 g„ ek. 90
þús. km, allt rafdr., leöursæti, ABS. V. 2.250
þús. Tilboö 1.900 þús. stgr. Bílalán.
Nissan Terrano II '90, hvítur, 5 g„ ek. 133
þús. km, topplúga. V. 890 þús.
Cherokee Limited 4,0 '89, ssk„ ek. 110 þús.
km, m/öllu. V. 1.280 þús. Tilboö 1.150 þús.
Toyota Corolla sedan XLi 1600 '93, rauöur,
ssk„ ek. 98 þús. km. V. 830.000
Tilboö 790.000
Margrét Pórhildur Danadrottning og Hinrik prins dveija nú í sumarieyfi í
kastala prinsins í Frakklandi. Ef marka má myndina væsir ekki um drottn-
ingu og bónda hennar, enda kastalinn á fögrum staö í suðvesturhluta Frakk-
lands. Símamynd Reuter
Sjálfstæðismál Færeyjastjórnar:
Fá ekki stuðning
jafnaðarmanna
Færeyskir jafnaðarmenn styðja
ekki hugmyndir færeysku land-
stjómarinnar um fullveldi til handa
eyjunum. Joannes Eidesgaard, leið-
togi jafnaðarmanna, bendir hins
vegar á að langtímamarkmið þeirra
sé einnig fullt sjálfstæði Færeyja.
„Við viljum ekki vera með í því
að koma á fullveldi á kostnað vel-
ferðarkerfisins í Færeyjum. Nokkr-
ir menn í landstjórninni tala meðal
annars um að afnema eigi sem allra
fyrst fjárstuðninginn frá Danmörku
sem nemur um einum milljarði
danskra króna. En það er blekk-
ing,“ segir Joannes Eidesgaard í
viðtali við dönsku fréttastofuna
Ritzau. Hann leggur áherslu á að
Færeyingar geti ekki án aðstoðar-
innar frá Danmörku verið.
„Ég vil líka að fjárstuðningurinn
hverfl en það mun hafa í för með
sér mikinn niðurskurð og hafa gíf-
urleg áhrif á samfélagið. Það mundi
ef til vill verða til þess að tiu þús-
und Færeyingar yrðu að flytja úr
landi,“ segir Eidesgaard.
Landstjórnin áformar að efna til
þjóðaratkvæðagreiðslu þegar nýr
samningur við Dani um sjálfstæði
til handa Færeyingum verður tilbú-
inn.
\