Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1998, Page 12
12
MIÐVTKUDAGUR 12. ÁGÚST 1998
Spurningin
Ertu stressaður (-uð)?
Reynir Öm Reynisson tölvugaur:
Nei, ekki baun.
Kristin Traustadóttir líffræðing-
ur: Nei, ekki svo.
Rakel Ósk Ólafsdóttir nemi: Ekki
venjulega.
Gunnlaugur Þór Einarsson nemi:
Yfirleitt er ég rólegur.
Guðni Gorozpe atvinnulaus: Það
er misjafnt.
Ragnhildur Eyjólfsdóttir: Mjög oft
en ekki í dag.
Lesendur
Ljót aðkoma
að Leifsstöð
Skarphéðinn Einarsson skrifar:
Nýlega er ég átti leið í flugstöðina
á Keflavíkurflugvelli, sem í raun ætti
að heita Flugvöllur Leifs Eiríksson-
ar, sá ég íslenska fánann þar sem
hann blakti hnípinn á flaggstöng sem
sjálfsagt hefur verið framleidd fyrir
sumarbústað. Það er fallegur þjóð-
fáni, íslenski fáninn, en við Leifsstöð
er hann til skammar. Flaggstangir
eiga líka að vera á veglegum og
háum undirstöðum á áberandi stað -
ekki síst við alþjóðaflugvöU.
Um miðjan 5. áratuginn var lesin
saga í ríkisútvarpinu af Helga
Hjörvar, sagan um Bör Börsson sem
sló í gegn í hlustun. Þar var greint
frá persónu sem var seinheppin
með afbrigðum en um leið stórhuga.
í einum kaflanum var sagt frá því
er hann reisti háa flaggstöng að Öld-
urstaö. Hún var svo há að enga átti
sér líka, en brotnaði að lokum. -
Hin óþarfa flugmálastjórn sem utan-
rikisráðuneytið rekur þama syðra
gæti farið miUiveginn; reist stöng
sem væri lægri en lýst er í fyrr-
nefndri sögu en reisuleg samt.
Annars er rekstur flugmála á
KeflavíkurflugveUi tU skammar fyr-
ir ísland. Þar vantar ýmsa þjónustu
sem við lýði er á öðrum alþjóðaflug-
vöUum, t.d. hótel eða farfuglaheim-
ili fyrir farþega (hjólreiðafólk með
tUheyrandi búnaði), baðhús og
margt fleira sem þjónustu farþega
tilheyrir.
Á meðan utanríkisráðuneytið sér
Bréfritari er ekki sáttur viö rekstur og aðbúnað, utan dyra sem innan, í Leifs-
stöð. Mætti vera meiri reisn yfir öllu.
um þessi mál er flugvöUurinn van-
nýttur og flest mál þar í óstandi.
Krcifan er því að vöUurinn fari und-
ir stjóm samgönguráðuneytisins og
flugstöðin verði gerð að hlutafélagi,
þó þannig að stórveldi á innan-
landsmarkaði nái ekki meirihluta-
eign. Einnig þarf að ráða erlenda
aöUa (t.d. frá Bandaríkjunum) tU að
markaðssetja flugvöUinn. Þannig
má laða erlend fyrirtæki hingað
með starfsemi sina. Jafnvel með
sölu á hinum spiUta Búnaðarbanka
sem er óþarfur með öUu. Eyða
mætti skuldum Leifsstöðvar að
fuUu og bæta við aðstöðu sem skUar
arði. Núverandi ástand er með öUu
öásættanlegt fyrir ferðafólk og þjóð-
ina í heUd.
P.S. Siðast þegar ég kom heim frá
útlöndum mátti enn sjá stóra ryð-
bletti í öUu víravirkinu við fram-
hliðina þar sem farþegar ganga út
úr byggingunni og mæta landinu!
Hættulegur leikur
Margrét Sæmundsdóttir,
fræðslufulltrúi Umferðarráðs,
skrifar:
Um verslunarmannahelgina var
ég á gangi um Þórsmörk. Á leiö
minni frá Básum aö Langadal mætti
ég gulum jeppa. Eitthvað fannst
mér athugavert við jeppann en
gerði mér ekki grein fyrir því strax
hvað það var. Þegar bUlinn kom
nær mér sá ég hvers kyns var. Við
stýrið voru tveir ökumenn! Karl-
maður og lítiU drengur sem sat í
fangi hans. Pabbinn var sem sagt að
leyfa drengnum sínum að aka biln-
um. Hvað er nú athugavert við
þetta, gæti einhver hugsað, má
aldrei gera neitt skemmtUegt?
Því er tU að svara að það sem
virðist vera saklaus skemmtun get-
ur breyst í harmleik á augabragði.
Hugsum okkur að karlmaðurinn
hafi verið meðalmaður t.d. 80 kg að
þyngd og bamið 20 kg. Fjarlægðin á
miUi stýris og barns er ef tU viU 5
sentímetrar. Hvað hefði gerst ef
ökumaðurinn hefði kastast fram,
t.d. vegna ójöfnu á veginum eða
vegna þess að hann þurfti að
bremsa? Karlmanninn hefði auðvit-
að ekki sakað neitt því mjúkur
bamslíkaminn hefði tekið af honum
höggið. Barnið hefði hins vegar
fengið högg á kviðarholið með ófyr-
irsjáanlegum afleiðingum þegar það
klemmist á miUi manns og stýris.
Þar með gæti leikurinn orðið að
martröö sem ég óska engum foreldr-
um að þurfa að upplifa.
Hvalbátar á þurru landi
- og verðmætin grotna
Björgvin Jónsson skrifar:
Þaö stingur aUtaf í augu að sjá
hvalbátana ár eftir ár í Reykjavík-
urhöfn, næstum á „þurru landi“,
ónotaða þar sem þessi verðmæti
grotna og fúna. í stað þess mætti og
ætti að hefja hvalveiðar þegar i stað
og skapa verðmæti með þessum
tækjum sem eru tilbúin í rekstur
hvenær sem er. Það er búið að lýsa
því yfir af ráðamönnum okkar,
m.a.s. sjávarútvegsráðherra, að
hvalveiðar muni hefjast. Það vefst
hins vegar fyrir þeim að hleypa af
startbyssunni.
Þessi þáttur sjávarútvegs er með
því einkennUegasta sem á sér stað í
íslensum þjóðmálum og hefur veriö
látið danka ár eftir ár. Flestir eru
þjónusta
allan
í síma
5000
14 og 16
Hvalveiðibátarnir í Reykjavíkurhöfn - tilbúnir til veiða hvenær sem er.
sammála um að hvalveiðar skuli
stunda og allar forsendur eru fýrir
því að þær megi stunda án nokk-
urra mótmæla frá viðskiptaþjóðum
okkar, þegar sanna má að undir-
stöðuafli okkar sé í hættu vegna
ofgnóttar hvala hér við land.
En það er sama hve oft og hve
stórt íslenskir ráöamenn taka upp í
sig, þeir heykjast á eigin yfirlýsing-
um og láta hræðsluna við hið
óþekkta valta yfir verulegan og
sannanlegan ávinning af hvalveiö-
um. Nú verður að láta á það reyna í
þingbyrjun hvort Alþingi hefur
meirihluta fyrir hvalveiðum á ný.
Best væri auðvitað að sjávarútvegs-
ráðuneytið gæfi út reglugerö tun að
hefja hvalveiðar nú þegar.
Fyrrverandi hvalveiðimenn, að-
standendur og útgerðarmenn; hefjið
nú upp raust ykkar og krefjist yfir-
lýsingar ráðamanna: Af eða á með
hvalveiöar.
Skinkan í
fjórum flokkum
K.S.A skrifar:
Ég vil benda Þórunni, sem
skrifaði lesendabréf í DV 6. ágúst
sl., á að vandamálið með vatns-
blönduðu skinkuna ætti að
minnka í framtíðinni. Þannig er
nefnilega mál með vexti að þanri
25. maí kom út reglugerð um kjöt
og kjötafurðir þar sem nákvæm-
lega er sagt til um hvernig
merkja skuli matvæli, þ. á m.
skinku. Framleiðendur fá 6 mán-
aða aðlögunartíma. Eftir það
verður skinku skipt niður í fjóra
flokka. í fyrsta flokk fellur
skinka sem kölluð verður „lúxus-
skinka". Annar flokkur verður
einfaldlega kallaður „skinka" og
sá þriðji verður nefndur „brauð-
skinka". Fjórði flokkur verður
svo kallaður „skinka að viðbættu
vatni“. Því ættu allir sem ekki
vilja vatnsblandaða skinku að
geta forðast slíka skinku í fram-
tíðinni.
Urður - Verð-
andi - Skuld?
Bjöm Guðmundsson hringdi:
Mikið þykir mér sporgöngu-
mennimir í hinum nýja erfða-
sjóði vera lítið frumlegir í sinum
framtíöaráætlunum. Tek ég sem
dæmi heitið á nýja fyrirtækinu
hjá þeim: Urður - Verðandi —
Skuld. Þótt þetta heiti sé sótt í
hina fornu goðafræði þá hefur al-
menningim ekki hugmynd um
fyrirmyndina - að ég tali nú ekki
um yngri kynslóðina. Þessfr
ófrumlegu stoöiendur nýja
erfðarisans ættu nú að hugsa
sinn gang eilítið betur varðandi
þessa nafngift eða leggjast á bæn
og biðja þess að þetta allt stefni
ekki í „verðand skuld“. Annað
eins gerist nú, því miður, þegar
hátt hefur verið reitt til höggs
gegn frumherjum í fyrirtækja-
rekstri hér á landi.
Hverjir eiga
veðin?
Jón Hannesson skrifar:
Fróðlegt væri að vita hverjir
eiga þau veð er þeir er höfðu
heimildir til fiskveiða hér við
land fengu heimild frá Alþingi til
aö veðsetja þær? Það gefur að
skilja að sjávarútvegsráðherra
hefur ekki að tilefnislausu beitt
sér fyrir þessari lagasetningu.
Nú, þegar til stendur að selja þær
lánastofnanir er líklegastar eru
til að eiga veð í þessum veiði-
heimildum, get ég ekki annað séð
en ef illa árar í sjávarútvegi
verði þessar heimildir til fisk-
veiða á íslandsmiðum alfarið í
eigu lánastofaana, hvort sem þær
verða í eigu íslendinga eða Wall-
enberga í Svíþjóð. - Er þá ekki
fullkomnað ránið sem byrjað var
á með setningu hinna umdeildu
fiskveiöistjómunarlaga frá því á
9. áratugnum? Verður þá ekki
svo komið fyrir okkur aö hin
margrómaða auðlind, sem ávallt
hefur verið sögð „eign þjóðarinn-
ar“, verður það ekki lengur því
auðvitað láta lánastofnanir, sem
verðmætin hafa eignast, þau ekki
af hendi. Fróðlegt væri að fá lög-
fræðilegt álit á þessu.
Clinton frábær
friðarsinni
Steindór Einarsson skrifar:
Það er leiðinlegt til þess að vita
hve Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, hefur átt á brattann að
sækja vegna þessara kvenna sem
ofsækja hann með leiðindaáburði
á kynferðissviðinu. Maður skilur
ekki þessa stúlku sem nú er í
sviðsljósinu - er e.t.v. verið að
nota hana til að koma forsetan-
um frá völdum? Clinton hefur
reynst ákaflega traustur stjóm-
málamaður og er vel liöinn, hann
hefur reynst vera frábær friðar-
sinni og gengið vel á því sviði.
Vonandi er að þessu írafári um
þennan vinsæla forseta linni sem
fyrst.