Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1998, Side 18
26
MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 1998
Sviðsljós
Paul ætlar að
halda baráttu
Lindu áfram
Bítillinn fyrrverandi Paul
McCartney hefur í hyggju að
halda dýravemdarmerki eigin-
konunnar sálugu, Lindu, hátt á
lofti. Paul sagði í viðtali viö
tímarit dýraverndarsinna að
hann hefði viljað leggja áherslu
á baráttumál Lindu með því aö
veita ritinu fyrsta blaðaviðtal
sitt eftir andlát Lindu í apríl.
„Ég syrgi,“ segir Paul í viðtal-
inu, „en ég segi við krakkana að
við verðum að horfa á björtu og
jákvæðu hliðamar."
DV
Karl Bretaprins ekki hrifinn af hættulegu klifri litlu prinsanna sinna:
Öskuillur út í barn-
fóstruna fyrir tiltækið
Tiggy Legge-Bourke fékk kon-
unglegt orð í eyra í vikunni. Karl
Bretaprins varð alveg hoppandi ill-
ur út í bamfóstru sona sinna fyrir
að hafa staðið að hættulegu klifri
þeirra niður þverhníptan fimmtíu
metra háan stífluvegg í Wales á
dögimum. Og það án þess að vera
með nokkurn öryggisbúnað. Ekki
öryggislínu, ekki hjálma og ekki
klifurskó. Ekki neitt.
„Karl er alvex foxillur. Tiggy á
svo sannarlega á hættu að missa
vinnuna," segir heimildarmaður
innan hirðarinnar við netútgáfu
breska blaðsins Mirror.
Lái Karli hver sem vill þótt hann
hafi lesið Tiggy, barnfóstru þeirra
Vilhjálms og Harrýs til margra ára,
pistilinn.
Það var æsifréttablaðið News of
the World sem skýrði frá glæfraför
prinsanna síðastliðinn sunnudag.
Karl faðir þeirra hafði ekki hug-
Bresku prinsarnir Vilhjálmur og Harrý léku háskalegan leik á dögunum þeg-
ar þeir klifruðu niður þverhníptan 50 metra háan stífluvegg án þess að vera
með nokkurn öryggisbúnað. Karli föður þeirra var ekki skemmt.
mynd um hvað til stóð. Ríkisarfínn
hefur beðið aðstoðarmenn sína að
rannsaka málið til hlítar.
Tiggy slapp með skrekkinn í
þetta sinn. Eigendur stíflunnar,
Vatnsveita Wales, hafa ákveðið að
sækja barnfóstruna ekki til saka
fyrir uppátækið, enda þótt klifrið
kunni að vera brot á lögum.
„Við áskiljum okkur allan rétt
til að lögsækja þá sem fara inn á
land okkar í leyfisleysi. Það gerist
þó ekki oft og við höfum ekki í
hyggju að gera það nú,“ segir tals-
maður vatnsveitunnar í viðtali við
Mirror.
Um tíma var talið að bróðir
barnfóstrunnar, 26 ára gamall höf-
uðsmaður i Velsku varðsveitunum,
hefði verið með í for. Svo reyndist
þó ekki vera þegar betur var að
gáð.
Litlu prinsamir eru nú í fríi með
pabba og barnfóstrunni.
Talctu DV med þér í fríið
Hríngið og pantið DV í fríið í síma 550 5
Sölustaðir Shell aulc eftirtalinna
sölustaöa taka við áskriftar-seölum DV
Sölutuminn Albína
AÖalstræti 89
Baula
Staíholtstungum
311 Borgames
Bitinn
Reykholti
320 Borgames
Grillskálinn
355 ölafsvík
Dalakjör
Vesturbraut
370 Búðardal
450 Patreksfjörður
Tröllanaust
Hafnarbraut 52
740 Neskaupstaður
Árborg
Ámesi
801 Selfoss
Bjamabúð
Brautarhóli, Bisk.
801 Selfoss
Geysir
Haukadal
801 Selfoss
Tjaldmiðstöðin
Laugarvatni
840 Laugarvatn
Landvegamót
Rangárvallasvslu
851 Hella
Sölustaðir sem þjónusta
áskrifendur í sumarbústööum
Árborg, Gnúpverjahreppi
Baula, Stafholtstungum, Borgarfirði
Bjímiabúð, Brautarnóli
Bitinn, Reykholtsdal
Bní, Hrútafirði
Essó-skálinn í Hvalfirði
Ferstikla, Hvalfirði
Grenivík
Grímsey
Hlíðarlaug, Úthlíð, Bisk.
Hyman, Borgamesi
Hreðavatnsskáli
Hrísey
Laufið, Hallormsstað
Laugarás, Biskupstungum
Minni-Borg, Grímsnesi
Reykjahlíð, Mývatnssveit
Shellskálinn, Stokkseyri
Skaftárskáli, Klaustri
Staðarskáli, Hrútafirði
Sumarhótclið, Bifröst
Söluskálar, Egilsstöðum
Varmahlíð, Skagafirði
Veitingaskálinn, Víðihlíð
Verslunin Grund, Flúðum
Verslunin Hásel, Laugarvatni
DV safnað
✓
✓
9
a
O
Áskriftarseðlar tryggj
þér DV í
Áskriftarseblarnir eru mjög handhægir þegar
ferbast er vítt og breitt um landib.
Askrifendur sem fara ab heiman i sumarfriinu
geta fengib pakka af DV afhentan vib heimkomu.
Til ab tryggja ab áskrifendur fái DV í sumarleyfinu
er blabib i samstarfi vib 30 sölustabi um allt
land. Lesendur geta fengib blabib sérpakkab
og merkt á sölustab nærri dvalarstab hérlendis.
Áskrifendum á ferb og flugi erlendis býbst ab fá
fréttir ab heiman á faxi á hótel eba dvalarstab
án endurgjalds.
Þeir eru kátar og glaðar á svipinn, leikkonurnar Anne Heche og Jada Pinkett.
Ekki nema von þar sem þær eru á leið á frumsýningu nýjustu myndarinnar
sem þær leika í, Return to Paradise. Myndin sú er eins konar samviskukrísu-
tryllir og segir frá ferðamönnum sem lenda í miklum hremmingum vegna
ásakana um eiturlyfjasmygl.
Tommy Lee réðst
á öryggisvörð
Vandræöi rokkarans Tommys
Lees, sem eitt sinn var kvæntur
hinni bijóstgóðu Pamelu Anderson,
virðast engan endi ætla að taka. 30
daga varðhald og 800 dollara sekt
blasir við Lee sem kærður var fyrir
að ráðast á öryggisvörð á tónleikum.
Var honum gefið að sök að hafa
ráðist aftan að öryggisverðinum og
barið hann í höfuöið. Félagi Lees í
Moetly Crue, bassaleikarinn Niki
Sixx, var kærður fyrir að hafa
sparkað í öryggisvörðinn. Atvikið
átti sér stað þegar þeir félagar
hvöttu aðdáendur til að ryðjast yfir
öryggisverðina og koma upp á svið
til sín. Tíu manns slösuðust í
látunum og veruiegar skemmdir
hlutust af. Ekki er þó húist við að
Tommy sitji lengur inni en hann
þegar hefur gert vegna ofbeldis
gagnvart Pamelu.