Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1998, Síða 19
MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 1998
Svisslendingurinn á leið um Oddsskarð. DV-mynd Þórarinn
Forvitnilegur ferðamaður:
Komið 15 sinn-
um til íslands
- og 14 ár í röð
DY Eskifirði:
„ísland er mjög fallegt land. Ég
vona að þið íslendingar og ferðamenn
getið baðað ykkur i sól. Þið eigið það
skilið,“ sagði Josef Niederberger,
flakkari frá Sviss, aö eigin sögn, þeg-
ar DV hitti hann á leið upp Oddsskarð
á dögxmum.
Hann hafði þá verið 2 mánuði á ís-
landi. í Mjóafirði, Neskaupstað og svo
var hann búinn að vera 3 daga á leið-
inni upp Oddsskarð og taldi þá að
hann ætti eftir að vera einhverja daga
til viðbótar á leiðinni upp. Hann ætl-
aði að vera mánuð til viðbótar á ferða-
lagi um íslenska náttúru.
Josef hefur komið tii íslands 15
sinnum og þar af 14 ár í röð. Ástæða
þess að hann er svona lengi á leiðinni
nú er sú að hann stansar oft til að
virða fyrir sér náttúru landsins, eink-
um blóm, og lætur sér ekki nægja að
skoða þau heldur teiknar hann þau í
sérstaka dagbók. Teikningamar eru
hrein listaverk. Hann vildi koma á
framfæri þakklæti til íslendinga og þá
sér í lagi Norðfirðinga fyrir mjög góð-
ar móttökur og sagði að íslendingar
væru mjög elskulegt og gott fólk. -ÞH
Hveragerði:
Stuð um
helgina
DV, Hveragerði:
Nú, i þann mund sem veðurfræð-
ingar hafa á orði að fyrstu haust-
lægðimar séu að nálgast, verður
sumarstemning um næstu helgi í
Hveragerði. Margt verður til
skemmtunar og fróðleiks og eru
landsmenn hvattir til þess að koma,
sjá og skemmta sér.
Húllumhæið hefst á fóstudags-
kvöld með sundlaugar-diskói fyrir
unglinga í lauginni í Laugaskarði.
Á dagskrá laugardags er fjölskyldu-
ganga um Hveragerði og nágrenni
undir leiðsögn Bjöms Pálssonar,
jarð- og sagnfræðings. Þá verður
tískusýning á sportfatnaði fyrir
ungt fólk á öllum aldri í Listaskál-
anum. Þar verður einnig opnuð sýn-
ing á verkum listahóps sem nefnist
Prójekt og er þar um verk innlendra
og erlendra listamanna að ræða.
Golfklúbbur Hveragerðis býður
fólki að reyna sig í pútti á hinum
nýja 9 holu golfvelli Hveragerðis.
Spákona verður í Eden, götuleikhús
og Sniglamir koma, hjólabrettasýn-
ing verður á Kjörís-planinu.
Brekkusöngur við bálköst í skrúð-
garðinum á laugardagskvöld er fast-
ur liður í hátíðahöldunum. Ekki má
gleyma stuðballi með hljómsveit
Rúnars Júliussonar á Hótel Björk á
laugardagskvöld. Pizza 67 býður
upp á Stuðmannakvöld á föstudags-
kvöld og Presleykvöld á laugardags-
kvöld. -eh
27 '
Fréttir
Veggjald á Stórabeltisbrúnni:
Miklu hærra
en í Hvalfirði
DV, Akranesi:
Fróðlegt er í ljósi umræðu um
veggjald í Hvalfjarðargöngum að
skyggnast til nágrannalanda og
sjá hvaða veggjöld bíleigendur þar
greiða fyrir að nýta nýleg sam-
göngumannvirki, til dæmis brýr
og göng. Stórabeltisbrúin mikla
var tekin í notkun í Danmörku á
dögunum. Þar er einn gjaldflokk-
ur fyrir heimilisbil undir 6 metr-
um að lengd. Stakt gjald fyrir að
fara um brúna er 210 danskar
krónur með vsk., jafnvirði tæp-
lega 2200 íslenskra króna. Á Stóra-
beltisbrúnni bætast við 105 dansk-
ar kr. fyrir að hafa hjólhýsi/kerru
aftan í fjölskyldubílnum. Þá er
heildargjaldið komið upp í tæp-
lega 3300 krónur - þúsundkall í
Hvalfirði.
Hér geta menn keypt 20 eða 40
ferðir í áskrift, greitt þær fyrir-
fram og fengið hverja ferð á 600
eða 800 krónur. Áskriftarferðir
hér má nota ótímabundið, svo
lengi sem þær endast. Á Stórabelt-
isbrú er einn afsláttarkostur. Boð-
ið að kaupa mánaðarkort með allt
að 50 ferðum yfir brúna og borga
fyrir það tæplega 47.000 ísl. krón-
ur. Með því fæst hver ferð fyrir
um 940 krónur en áskrifandinn
verður að nýta allar ferðirnar á
einum mánuði.
Á Stórabeltisbrú er vöruflutn-
ingabílum skipt í flokka við 10
metra lengdarmarkið en við 12
metra í Hvalfjarðargöngum.
Gjaldið fyrir minnsta flokk í Dan-
mörku er 4368 án vsk. en sam-
bærileg tala í Hvalfjarðargöngum
er 2632 krónur. Stakt gjald fyrir
stærri vörubíla á Stórabeltisbrú
er tæplega 7000 krónur en 3333 i
Hvalfirði. Reiknað er að með
veggjöld á Stórabeltisbrú1 greiði
niður stofnkostnað á 40 árum en í
samningum um Hvalfjarðargöng
er gengið út frá því að stofnkostn-
aðurinn verði greiddur á 20 árum.
í nýlegum neðansjávargöngum
við Stafangur í Noregi er gjald-
Björn Ingi og Sigurður Hafberg við uppsetningu á myndunum.
DV-mynd Guðmundur
Flateyri:
Ljósmyndasýn-
ing utanhúss
DV, Vestfjörðum:
„Þetta hefur vakið mikla athygli.
Það hafa margir staldrað við og
skoðað þesscir myndir enda eru þær
mjög fallegar. Einkum hefur ferða-
fólk verið hissa á því að sjá hér ljós-
myndasýningu utanhúss. Þetta nýja
framtak Önfirðingafélagsins er
mjög gott og vonandi að framhald
verði á næstu sumur," segir Sigurð-
ur Hafberg, umsjónarmaður íþrótta-
mannvirkja á Flateyri.
Nú í sumar hefur staðið yfir ljós-
myndasýning á vegum Önflrðinga-
félagsins í Reykjavík, sem er félag
brottfluttra Önfirðinga, á ljósmynd-
um þar sem myndefnið er allt ön-
firskt.
Sýningin er sett upp á skjólveggi
umhverfis sundlaugina á Flateyri
og er því utanhússsýning. Alls eru
um 50 myndir á sýningunni og hef-
ur nýlega verið skipt um allar
myndimar til að auka fjölbreytnina.
Að sögn Bjöms Inga Bjamasonar,
formanns Önfirðingafélagsins, er
ætlunin að framhald verði á næsta
sumar og er stefnt að því að mynd-
um fjölgi verulega enda margt góðra
mynda til. -GS
skráin byggð upp mjög líkt og í í*
Hvalfiarðargöngum. Einn stærð-
arflokkur fiölskyldubíla, svo era
næstu stærðarskil við 12 metra
lengd flutningabíla, eins og í Hval-
firði. Stakt gjald fyrir fiölskyldu-
bíl þar er 750 ísl. krónur og svo
þarf að borga til viðbótar fyrir
hvern farþega 235 krónur og fyrir
hvert barn 4-16 ára 113 krónur.
Hægt er að fá allt að 40% afslátt
með því að gerast áskrifandi, eins
og í Hvalfirði.
-DVÓ
Pizza '67 Kópavogi
vantar pitsubakara,
bæði í fidlt og
hlutastarf, næg
vinna í boði.
Upplýsingar í síma 699 8077.
Verslanir, fyrirtæki,
heimili.
Gínur, fataslár
Mátunarspeglar - sokkastandur
Barnagínur, framhengi í panil.
Panilpinnar, plastherðafré. Sérsmíði
á innréttingum. Verðtilboð.
Sendum í póstkröfu.
Rekki
ehf. heildverslun
Hellulirauni 10 - Sími 565 0980