Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1998, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1998, Side 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1998 Neytendur Afþreying eða munaðarvara? Vérð tímaritanna Það má segja að á tlmaritamark- aðnum geti allir fundið eitthvað við sitt hæfl. Það á bæði við um íslensk og erlend tímarit. Úrvalið er nánast endalaust og þeir sem kjósa að lesa sér til um áhugavert efni á erlend- um tungumálum geta valið á milli þýsku, frönsku, hollensku, dönsku... Herlegheitin kosta auðvitað sitt og sumum finnst tímarit of dýr. í augum þeirra eru tímarit munaðar- vara, sérstaklega hin svokölluðu glanstímarit. Þegar kemrn- að tímaritum sem flalla um híbýli, mat eða annað afmarkað efni má fullyrða að stór hluti kaupendanna geymi þau í nokkur ár. Peningunum er því vel varið. Þess má geta að eftir að 14% virð- isaukaskattur var lagður á timarit fyrir um 5 árum hækkuðu þau ekki í verði. íslenskir útgefendur kusu frekar að taka þann aukakostnað á sig. „Útgefendurnir treystu sér ekki til þess,“ segir Þórarinn Jón Magn- ússon, eigandi Gamla útgáfufélags- ins. „Og það fór mjög illa með marga. Sambærileg erlend blöð, eins og híbýlablöð og önnur vand- aðri blöð, eru á svipuðu verði hing- að komin.“ Þórarinn segir að áður en virðis- aukaskatturinn hafi komið til hafi það verið geðþóttaákvörðun fjár- málaráðuneytisins hverjir fengju undanþágu frá söluskatti. „Sum fyr- irtæki borguðu fúllan virðisauka- skatt en önnur engan. í dag þarf að borga 14% virðisaukaskatt fyrir bæði íslensk og útlensk tímarit og í áskrift fást erlendu tímaritin án vsk. á meðan greiddur er virðis- aukaskattur af íslenskum tímarit- um í áskrift. Það er samt hart að Tímarit eru spennandi kostur, hvort sem um er að ræða afþreyingu eða afmarkað efni. DV-mynd E.Ói. keppa við magn sem gefið er út í tonnatali í útlöndum. Markaðurinn héma er svo lítill. Skýringin á þvi hvers vegna hægt er að selja sum blöð á 399 krónur - en margir spyrja hvers vegna það er ekki gert í meira mæli - er að þau eru færri blaðsíð- ur og prentuð á ódýrari pappír. Mörg blöð em í rauninni ódýrari en útgefendur ráða viö.“ Þórarinn segist nú leita allra leiða til að lækka verð tímaritanna sinna þriggja. „Það er gert til að mæta samkeppninni." -SJ Dæmi um verð á íslenskum og erlendum tímaritum: Sportlíf 299 krónur Tölvuheimur 970 krónur Heimsmynd 699 krónur Bo bedre 876 krónur Hús og híbýli 789 krónur Mad og bolig 876 krómu- Iceland Review 690 krónur Smag og behag 1.024 krónur Allt 599 krónur Ude og hjeme 399 krónur Tölvuheimur 970 krónur Billed bladet 399 krónur Vikan 399 krónur Norsk ukeblad 346 krónur LifsstUl 699 krónur World Soccer 824 krónur Gestgjafmn 789 krónur PC World 599 krónur Séð og heyrt 399 krónur National Geographic 530 krónur Boltinn 790 krónur Hvers vegna ekki að prófa eitthvað nýtt? Af kynjafiskum Sumir kjósa stundum að fá ný- stárlegt krydd í matseldina með því að velja annað hráefni en venjulega. í fiskborðinu í flskbúð- inni Hafrúnu má stundum sjá stjörf og lífvana augu ýmissa sjald- séðra fiska stara á viðskiptavinina. Margir viðskiptavinir líta í aðra átt og vilja ekkert með þessa kynja- fiska að gera. Aðrir hætta við að kaupa ýsuflakið og vilja prófa eitt- hvað nýtt. Stundum fæst smokkfiskur í Nýjung á íslandi: Bankarí verslunum í byrjun næsta árs verða opn- aðir bankar í Bónusi, Hagkaupi og Nýkaupi. „Þetta er hugmynd sem er búin aö vera á borðinu í alllangan tíma,“ segir Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Bónuss. „Við höfum séð þetta víða erlend- is og þetta er þróun sem er að eiga sér stað. Tæknin í banka- starfsemi er orðin miklu einfald- ari og þessi gömlu útibú hljóta að breytast. Þar sem öll greiðslu- miðlun er að verða í gegnum kort þá er þetta orðiö mjög einfalt kerfi." Flestir bankar eru lokaðir kl. 16 en bönkunum í verslununum verður lokað jafnt og þeim. „Bönkunum í verslununum fylgir ódýrari þjónusta og boðið verður upp á betri og þægilegri kjör í alla staði. Við verðum með kort sem er kredit-, debet- og punktakort. Það mun bjóða upp á marga nýja möguleika sem ég get ekki sagt frá núna. -SJ fiskbúðinni. „Hann er bragðlítill en mér flnnst hann mjög góð- ur pönnusteiktur," segir Magnús Sigurðs- son fisksali. „Við höf- um líka verið með sandhverfu og makríl. Það veiðast ekki margar sandhverfur á ári við strendur ís- lands enda er hún mjög dýr.“ Magnús er spurður hvaða fiski sandhverfan likist. „Hún er engu lík,“ er eina svarið. „Mér finnst sólkoli vera besti fiskurinn," segir Magnús. „Og ég borða hann með roði. Það er best að steikja hann eins og rauð- sprettu og velta hon- um upp úr hveiti, salti og pipar. Sólkoli er sérstakur. Hann er miklu stífari en rauð- spretta en ekki eins slepjukenndur. Hann er svona mitt á milli lúðu og rauðsprettu. Hann er sætur og góð- ur.“ Tvær góðar Uppskriftamar feng- um við hjá Brynjúlfl Halldórssyni, mat- reiðslumeistara hjá La Primavera. Heilsteiktur sól- koli með hvít- lauk og fersku kóríander Aðalréttur f. 4 4 x 400 g sólkolar 20 hvítlauksrif Heilsteiktur sólkoli. Uppskriftin er frá La Primavera. DV 50 g ferskt kóríander Biðjið fisksalann að klippa haus, ugga og sporð af fiskunum og rista í roðið með beittum hníf. Aðferð: 1. Hvítlauksrifin eru soðin í ólífuolíu við vægan hita i 10 mínút- ur. 2. Fiskurinn er sett- ur í hveiti og brúnaður á vel heitri pönnu í þrjá minútur á hvorri hlið. Kryddið með salti og pipar. Hvítlaukur og kóriander sett yfir fisk- inn og hann ofnsteikt- ur í 8 mínútur við 170 gráður. Meðlæti að eig- in vali. Grillaður smokk- fiskur með fersku chili og sítrónu Forréttur f. 4 400 g smokkflskur (vel hreinsaður og skammtaskorinn) 1 dl jómfrúrólífuolía 40 g ferskur chili (fræ- hreinsaður), skorinn í litla teninga 1 stk. sítróna, skorin í báta 1/3 tsk. salt Aðferð: 1. Hitið ólifuoliuna með chilipipamum og bætið út í 1/3 tsk. salt 2. Smokkfiskurinn er grillaður á vel heitu grilli og penslaður með olíunni 3. Sett upp á diska ásamt chiliolíu og -mynd E.ÓI. sítrónu. Upplagt er að hafa grænt salat og brauð með þessum rétti. -SJ Humar og skötu- selur með saffransósu Fyrir 6 manns Humarinn er hafður á sveppamauki sem á kokkafrönsku heitir „duxeles", skötuselnum rað- að í kring og „saffrangul" sósan á milli. 450-600 g skelhreinsaður humar en skeljarnar notaðar í sósusoð 600 g flakaður og tilsnyrtur skötuselur ólífúolía til steikingar 4 cl brandí eða koníak Humarsoð: humarskeljarnar 2 tsk. paprikuduft 1/2 laukur, skorinn 1 sellerístilkur, skorinn I msk. tómatkraftm’ 2^4 lárviðarlauf 1/2 tsk. timjan II fisk- eða kjúklingasoð Duxelles: 125 g sveppir 3-4 skalottlaukar 1 lítið búnt steinselja 1 dl humarsoð 2-4 msk. rasp salt og hvítur pipar úr kvörn ólífuolía til steikingar Brjótið skeljarnar og léttsteikið í djúpum potti ásamt lauknum og sellerístilknum. Stráið papriku- dufti yfir, látið tómatkraft, lárvið- arlauf og timjan saman við. Hellið soðinu yfir og látið smásjóða í u.þ.b. einn tíma. Sigtið soðið og látið sjóða niður þar til um hálfur lítri er eftir. Hakkið sveppina og skalottlauk- inn í matvinnsluvél. Passið upp á að það verði ekki að mauki heldur sé frekar gróft. Steikið þetta upp úr ólífuolíunni og hellið humar- soðinu yflr. Látið sjóða saman i gott mauk og stráið þá raspinum saman við þar til þetta er orðið þurrt og mótast með skeið án þess að úr þvi leki safi. Saltið og piprið að smekk. Haldið heitu. Ananas-, ferskju- og pass- íuávaxtasalat með pönnu- kökum fylltum með Bailey’s rjóma 1 nýr ananas 3 nýjar ferskjur 6 stk. passíuávöxtur 80 g sykur 2 dl vatn rifinn börkur af einni sítrónu rifinn börkur af einni appelsínu 6 pönnukökur 21/2 dl þeyttur rjómi Bailey’s líkjör Flysjið ananasinn, fjarlægið kjarnastöngulinn og skerið an- anasinn i bita. Flysjið ferskjurnar og flarlægið steininn. Skerið í svipaða bita og ananasinn. Látið sykurinn og vatnið í pott og hitið þar til sykurinn hefur leyst upp. Kælið. Skerið passíuávöxtinn i tvennt og takið kjötið úr með skeið. Látið það í sykurlöginn. Rífið börkinn utan af sítrónunum og appelsínunum með þar til gerðu rifjárni eða flysjið hann þunnt af (án þess að nokkuð hvítt sé með) og skerið i flna strimla. Látið út í löginn. Hellið leginum yfir ávextina og látið standa í kæli í minnst fjóra tíma. Blandið smávegis af Bailey’s líkjör eða öðrum góðum líkjör saman við þeytta ijómann. Látið inn í pönnu- kökurnar og rúllið upp eða brjótið saman. Skerið pönnukökurnar í þrennt og látið á disk. Látið ávextina og drjúgt af leginum jafnt á alla diska. Úr Að hætti Sigga HaU

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.