Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1998, Side 12
12
ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1998
Spurningin
Hefuröu fariö á útsölur
nýlega?
Anna Katrín Ottesen sjúkraþjálf-
ari: Nei.
Birgir Öm Thoroddsen fjöllista-
maður: Nei, en ég verð að vinna í
útsölu í næstu viku.
Ægir Garðarsson: Já, margar.
Stefán Garðarsson: Já.
Sólveig Dögg Edvardsdóttir: Nei,
ég held ekki.
Edda Ingibjörg Eggertsdóttir:
Nei, ég hef ekkert verið heima.
Lesendur
Hinn tæri vökvi
tælir enn
Bekkurinn í bænum er nú eina heimilið hans.
Konráð Friðfmnsson
skrifar:
Hinn „tæri“ vökvi sem
heimurinn er fullur af
hefur veitt mörgum
manninum falska
skemmtunar- og vellíð-
unartilfinningu. Vök-
vinn er með þeim ósköp-
um gerður að hann slæv-
ir svo vitund manna að
þeir halda sjálfir að þeir
séu skemmtilegir í þessu
ástandi. Síðan líða árin í
„vist vökvans". Sífellt
dregur af neytandanum
ef hann heldur áfram
uppteknum hætti, og
breytist á endanum í
,“asna“ sem hrekst
ósjálfbjarga á milli stað-
anna sem versla með
vökvann. Bekkurinn í
bænum er nú eina heim-
ilið hans og allar brýr að
baki brotna. Hann er orð-
inn einn með „tæra vökvanum sín-
um“. Að lokum deyr hann með
vökvann sér við hlið.
Já, áfengi og fíkniefni hafa lagt
margan manninn að velli. Samt er
þetta einn vinsælásti drykkur sem
framleiddur hefur verið í heiminum
í aldaraðir og er ekkert lát á vin-
sældum hans þótt óhugnaðurinn af
hans völdum blasi hvarvetna við
augum manna. En sumt fólk virðist
þrá að lifa í „þoku“.
Og sem betur fer er enn til fólk
sem vill berjast gegn þessum
óþverra og er reiðubúið til að rétta
fram hjálparhönd og skjóta skjóls-
húsi yfir þolenduma
Sannleikurinn er sá að allir þurfa
þak yfir höfuðið. Jafnvel djúpt sokk-
inn maður í neyslu á rétt á að fá að
taka i útrétta hönd, leiti
hann eftir henni og sýni
að hugur fylgi máli.
Sérstök heimili eru stofn-
uð fyrir fólk sem óreglan
hefur unnið sigur á. Og
inn á þessum heimilum
fá fjölmargir fúllan bata
og koma út í samfélagið
sem nýtir menn. En sam-
félagið þarf vitaskuld að
sýna af sér þann þroska
að taka þessu fólki vel.
Því margir eiga sér
„götótta" fortíð. En hver
er svo sem hreinn að þvi
leyti? Hún á heldur ekki
að ráða afstöðu manna til
viðkomandi heldur hið
nýja í fari hans og sönn
viðleitni til að standa sig.
- Sem er auðvitað það
sem máli skiptir.
Þetta er e.t.v. þarft að
hugleiða núna að lokinni
mestu fylliríishelgi árs-
ins, verslunarmannahelginni. Eftir
þá helgi kemur ótrúlega margt ungt
fólk, og reyndar einnig fúllorðnir,
brotið til baka með minningar á
herðum sér sem munu fylgja þeim
ævina á enda. Og innlögn í eigin
minningasjóð getur gerst á mjög
skömmum tíma. Eitt vanhugsað at-
vik í lífinu er þar oft nóg. Og hinn
tæri vökvi tælir enn.
Á að stela frá ríkissjóði?
K.H. skrifar:
Nú heyrir maður í útvarpsfrétt-
um að í Landsbankanum vantar um
4 milljarða króna. Sem almennur
skattborgari spyr ég: í hvað fóru
þessir peningar og hveijir tóku þá?
Sagt er að stjómmálamenn hafi eytt
þessum peningum í risnu og fleira.
Hvað er til í þvi? Og nú í sjónvarps-
fréttum Stöðvar 2 í kvöld er greint
frá því að sameina eigi Búnaðar-
banka Islandsbanka. Hvað er hér á
ferðinni? Maöur er ekki hissa þótt
fram af fólki gangi. Það mætti halda
að stjómmálamenn væm í þann
veginn að brjálast í öllu peninga-
flæðinu. En maður spyr líka: Er
verið að stela frá ríkissjóði?
Ég get ekki séð hvernig komist
verður hjá því að lækka verulega
skatta á okkur launþegunum, a.m.k.
um helming. Ég á að sjálfsögðu við
tekjuskattinn. Skattaprósentan er
orðin allt of há hér miðað við önnur
lönd. Stjómmálamönnunum finnst
kannski að íslenskur ríkissjóður eigi
að jafnast á við ríkissjóð landa þar
sem milljónir manna búa. - Eða er
verið að ögra fólki og láta reyna á
hve mikið hægt er að heröa ólina,
þar til fólk fer að slást á götum úti
eða grýta Ráðhúsið í mótmælaskyni?
Það lítur allt út fyrir að lög þau
sem sett hafa verið og við eigum að
byggja á séu óvirk. Eða hvar er að
finna ákvæði um að stjómmála-
menn megi skaffa sér laun að vild,
jafnvel með því að láta þau falla
undir „risnu"? Spillingin er að
verða óþolandi eins og hún kemur
almenningi, hinum vinnandi lýð
fyrir sjónir.
Hvalamiðin fyllast
enginn veiðir
Hvalamiöin fyllast af dýrum en ákvöröun til veiöa vantar tilfinnanlega, segir
m.a. í bréfinu.
Gxurnar Guðmundsson skrifar:
Þaö ætlar ekki af okkur íslending-
um að ganga í hvalalmálunum. Við
erum orðnir að skotspæni víða um
lönd þar sem fylgst er með hvalveiöi-
málum. Og sjávarútvegsráðherra
hummar allt fram af sér og segir að
brátt verði nú gengið frá því hvort
við hefjum hvalveiðar en ekkert ger-
ist. Nú er fullyrt að hvalamiðin hér
við land séu að fyllast af dýrum.en
enginn til staðar til að veiða. Meira
að segja er staðhæft í einu merkasta
tímariti heims, National Geographic
,svo og í New York Times að stór-
hvalamiðin út af Snæfellsnesi séu
meðal þeirra bestu í heimi.
Hér miðast allt við hvalaskoðun
þótt hún fari ekki fram nema í
mesta lagi 3-4 mánuði ársins og er
framkvæmd sem aukabúgrein, ým-
ist hótela eða annarra ferða-
mannagúrúa. Fróðlegt væri að vita
hve miklum fjármunum þessi auka-
búgrein skilar sem skatttekjum í
ríkissjóð, af öllum þessum milljón-
um sem sagt er aö inn komi vegna
hvalaskoðunar.
Er það lífsins ómögulegt að knýja
Alþingi til að taka endanlega af-
stööu til hvalveiða hér við land.
Maður reiknar nú ekki með sjávar-
útvegsráðherra lengur i þessu máli.
Það er óþolandi að þurfa að vísa öll-
um málum nú orðið til sjálfs forsæt-
isráðherra, sem alls ekki ætti að
þurfa. En líklega endar þetta mál
líkt og flest önnur á hans borðum.
DV
100 milljónir
Sophiu
Steindór Einarsson skrifar:
Guöríður Jónsdóttir skrifar í
lesendadálk DV nýlega og ræðir
um 100 milljónimar sem farið hafa
til málefna Sophiu Hansen og
dætra hennar. Auðvitað eru 100
milljónir mikið fé, en hvernig
fyndist Guðriði og skoðanasystkin-
um hennar ef hún ætti böm og
stæði i sömu sporam og Sophia?
Það hlýtúr að vera sárt að sjá ekki
sín eigin böm. Þótt Halim A1 hafi
sagt við Sophiu að hún mætti
koma í heimsókn hvenær sem er
öll þessi 8 ár til að hitta dætumar,
þá hefði hann svikið það eins og
allt annað. Það er óþarft að líkja
honum við engil. Annað hefur ver-
ið uppi á borðinu frá hans hálfu.
Ekki selja Bún-
aðarbankann
Viðskiptavinur skrifar:
Það er hlægilegt að sjá mynd af
forstöðumönnum íslandsbanka,
þ.á m. fyrrverandi forsvarsmann
ASÍ, þar sem þeir eru að tilkynna
hugmynd sína, kaup á Búnaðar-
bankanum fyrir litla 8 milljarða
króna. Svona leikaraskap bjóða
þeir í íslandsbanka ekki okkur
sem höfum skipt við Búnaðar-
bankann svo áratugum skiptir.
Ég mótmæli þessu sýndarkauptil-
boöi kröftuglega og það ættu allir
traustir viðskiptamenn Búnaðar-
bankans einnig að gera. Fjárfest-
ingarbanki atvinnulífsins væri
hins vegar vel settur sameinaður
Búnaðarbankanum. Það á mikið
vatn eftir að renna til sjávar áður
en íslandsbanki getur innlimað
okkar góða Búnaðarbanka.
Herskóli Guð-
mundar
Sigtryggur hringdi:
Mér var bent á að lesa viðtal
við hinn landsþekkta Guðmund
Arason sem starfaði lengi innan
íþróttahreyfingarinnar á árum
áður og vann sér nafn sem boxari
til margra ára. Ég hafði gaman af
þessu viðtali og fannst það auk
þess mjög fróðlegt. Hann telur
agaleysið okkur fjötur um fót og
finnst ungir menn vera bæði
ókurteisir og skorti karlmennsku.
Hárrétt. Guðmundur bendir á aö
hér dugi ekkert minna en her-
skóli eigi ástandið að batna. Sam-
mála. - Nema hvað ekki myndi
þýða að minnast á herskyldu hér
á landi. Viö viljum bara að aðrir
sjái um þá hlið mála fyrir okkur.
En þegnskylda væri sjálfsögö.
Guðmundur hefur lög að mæla.
„Konurnar"
heim?
Súsanna skrifar:
Nú fer senn að flæða undan
málefninu „Börnin heim“ sem
landsmenn hafa stutt dyggilega og
staðið með Sophiu Hansen í gegn-
um þykkt og þunnt. En nú er
þetta orðinn eins og hver annar
leikaraskapur. Dæturnar em að
verða uppkomnar konur og það
gengur ekki að halda þessari bar-
áttu áfram undir sömu slagorð-
um. Nú verður það þá að vera
„Konurnar heim“ ef eitthvert
mark á að taka á þessu héðan af.
Málið þarf greinilega að endur-
meta frá öllum hliðum. Lika frá
fjármálahliöinni.
Var hnífamaður-
inn „hugarórar"?
Erla Sigurðardóttir hrlngdi:
Maöur er nú farinn að halda að
fréttirnar um margnefndan
„hnífamann" sem átti að hafa ver-
ið að elta tvær telpur í Fossvogs-
hverfi hafi einfaldlega verið hug-
arórar telpnanna. Ég las bréf frá
Kristjönu í DV sl. fimmtudag þar
sem líka er ýjað að þessu. Auðvit-
að á lögreglan ekki að láta blekkj-
ast af sögusögnum. Hún ætti því
að gefa út yfirlýsingu um þetta
mál, hvar það stendur. Almenn-
ingur á kröfu um það.