Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1998, Page 23
ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1998
27
Sviðsljós
Poppstjörnurnar eldast eins og við hin:
Madonna fertug
Fallega fólkið í Hollywood sótti frumsýningu nýrrar rómantískrar myndar um helgina. Þar á meðal var stórstjarnan
Chayanne, suður-amerískur söngvari, leikari og hjartaknúsari. Hér er hann með leikkonunum Vanessu Williams og
Jane Krakowski. Þau Vanessa og Chayanne leika saman í myndinni sem heitir einfaldlega Dansaðu við mig.
Tltanic-lag í
fyrstu tilraun
Söngfuglinn Celine Dion er
heldur betur ánægð meö sig,
enda full ástæða til. Hún ljóstr-
aði því upp um daginn að upp-
taka lagsins hennar vinsæla úr
myndinni Titanic, My Heart
Will Go On, hafi heppnast í
fyrstu tilraun. Útgáfan sem heyr-
ist í myndinni hafi átt að vera
prufuupptaka en hún hafi svo
reynst fúllkomin.
Já, meira að segja kynþokkagyðj-
an hún Madonna býr ekki yfir
leyndardómi hinnar eilífu æsku.
Madonna er orðin fertug.
Poppstjaman náði þessum merka
áfanga í lífí sínu á sunnudag. Ekki
efndi hún til fjölmenns fagnaðar af
því tilefni, eins og svo margur ann-
ar hefði gert, heldur kaus hún að
gleðjast með útvöldum hópi ætt-
ingja og náinna vina heima í New
York.
„Hún hefði sko getað haldið risa-
veislu en hún kaus að halda upp á
þetta svona,“ sagði fjölmiölafulltrúi
Madonnu.
Á löngum ferli sínum hefur
Madonna brugðið sér í fleiri kvik-
inda líki en flestir aðrir jafnaldrar
hennar. Hún var kynþokkadís, efn-
ishyggjustúlka, móðir, Evita og guð
má vita hvað annað. Og aUtaf fórst
henni það jafnvel úr hendi.
Madonna sendi nýlega frá sér
Madonna er orðin fertug og ber bara aldurinn vel.
hljómdiskinn Ljósgeisla eða Ray of
Light. Að sönnu hefur hann ekki
selst í jafnstóm upplagi og ýmsir
aðrir diskar söngkonunnar. Engu
að síður sýnir hann að Madonna
fylgist vel með og reynir að höfða tU
áheyrenda.
Og ef að líkum lætur á hún mörg
velgengnisár fram undan. RoUing-
arnir em komnir á sextugsaldurinn
og láta engan bUbug á sér finna.
En Madonna er ekki eina popp-
goðið sem kemst á fímmtugsaldur-
inn í þessum mánuði. Kóngurinn
sjálfur, Michael Jackson, fagnar
sama áfanga eftir tvær vikur, tæpar
þó.
Popparinn sem einu sinni hét
Prince en heitir nú einhverju óskUj-
anlegu tákni varð fertugur snemma
i júní. Þá hafa margir frægir leikar-
ar orðið þessarar ánægju aðnjótandi
á undanfómum mánuðum, meðal
annarra Sharon Stone.
Sophia Loren
lögð inn vegna
mikillar streitu
ítalska kvikmyndagyðjan Sophia
Loren hvUir sig nú á sjúkrahúsi í
New York þar
sem hún var
lögð inn vegna
of mikiUar
streitu. Af
þeim sökum
getur Sophia
ekki sótt kvik-
myndahátíð-
ina í Feneyj-
um þar sem
hún átti að taka við viðurkenningu
fyrir ævistarfíð. Eiginmaður
Sophiu, kvikmyndaframleiðandinn
Carlo Ponti, sagði fréttamönnum á
sunnudag að henni liði nú miklu
betur eftir hvUdina á sjúkrahúsinu.
„Sárustu vonbrigðin eru hins
vegar þau að geta ekki sótt kvik-
myndahátíðina í Feneyjum," var
haft eftir Ponti.
Stallone viðrar
litlu dótturina
Sylvester StaUone er mjúkur
maður inn við beinið þótt kvik-
myndir hans flestar gefi nú ann-
aö tU kynna. Karlinn er löngum
stundum með dóttur sinni lítiUi,
SoSlu Rósu. Þeir sem hafa séð
þau feðginin saman eru á einu
máli um aö ekki leiki nokkur
vafi á því hver faðirinn sé því sú
litla þykir svo sláandi lík leikar-
anum mikla. Þau voru í fríi í
Halifax um daginn.
Mest seldi orkudrykkurinn <i íslandi fra upphafi er Magic
Slagorö Godzilla-myndarinnar er „Stærö skiptir máli"
Vegalengdin fra oxl aö hoföi God/ilta eru 9 metrar
David Arnold seniur kvikmyndastefiö i Godzilla
uí<» '
Spmt vorður ui |iussuiii troðluiksmolum i þrtttti
Kiiiij Kiiiiii (t ltyli|)uiiiu oi) h Visi.it> rt inonjun.
I rtðrtlverðlrttin *ji SONV KV 29X5 sjonvfli|isteuki
lin JAI’ls rtiik t)olil>i tiukrtviniiingrt
www.visir.is
Lengi lifir í gömlum glæðum:
Ást og friður á Woodstock
Sjálfsagt hefur margur gamall
hippinn fyllst ljúfsárri fortíðarþrá
um helgina þegar haldin var tónlist-
arhátíð í Woodstock í New York, á
sama stað og hátíðin fræga var
haldin fyrir tæpum þrjátíu árum.
Hátíðin nú var frábrugðin þeirri
gömlu að því leytinu til að ekki bar
of mikið á fíkniefnaneyslu og nekt-
arsýningar voru fáar og smáar. Þar
rikti hins vegar ást og friður, rétt
eins og í gamla daga.
Margir ffægir og gamlir popparar
létu ljós sitt skína um helgina, þar á
meðal sá tannlausi Richie Havens,
breska grúppan Ten Years After,
Donovan og fleiri. Af nýjum sveit-
um má nefna Third Eye Blind.