Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1998, Síða 10
Bítlarnir
aldrei
vinsælli
Virgin-búöirnargerðu á dögunum könnun meö-
al 200.000 viöskiptavina 1 Bretlandi og kom í
Ijós að Bítlarnir eru enn vinsælasta hljömsveit
í heimi. Spurt var um uppáhaldstónlistarmenn
og uröu Bítlarnir langefstir en Bob Dylan kom
í ööru sæti. Á eftir fýlgdu svo Pink Floyd, Oas-
is, Davld Bowle, R.E.M., U2, Radiohead, Roll-
ing Stones og Nirvana lenti f tíunda sæti.
Einnig var spurt um uppáhaldsplötu og urðu
Bítlarnir vinsælir þar líka. „Revolver", „Sgt.
Pepper", „Hvíta albúmið" og „Abbey Road“
voru á topp 5 og aðeins „Nevermind" meö Nir-
vana blandaði sér í toppbaráttuna, varð í
fjóröa sæti. Sjötta vinsælasta platan var „Pet
Sounds" með Beach Boys, þá komu „Autom-
atic for the People" með R.E.M., „The Dark
Side of the Moon" með Pink Floyd, „What's
the Story Morning Glory?" með Oasis og „The
Bends" með Radiohead hafnaði í tíunda sæti.
Dire Straits fengu skammarverðlaunin, plata
þeirra „Brothers in Arms" var kosin ofmetn-
asta plata allra tfma.
Rufus Wainwright
lærði á píanó 6 ára,
samdi kvikmynda-
tónlist 14 ára
og tekst það
undraverða þegar
hann er 24 ára, að
vera fullorðinslegur
án þess að vera
leiðinlegur.
Rufus Wainwright er 24 ára og
nýbúinn að gefa út sólóplötu sem
hann nefnir í höfuðið á sjálfum sér.
Tónlist Rufusar hljómar þó engan
veginn eins og plata 24 ára gamals
manns, er fullorðinsleg án þess að
vera leiðinleg. „Modem Standards"
eða „Popera" eru nöfn sem heyrast
í sambandi við tónlistina en Rufus
er stuttur í spuna í útskýringunum:
„Ég skilgreini tónlist mína sem
skemmtun. Þú er þarna, ég er
skemmtunin. Ég er hér til að þjóna
þér.“
Rufus er sonur Loudon Wa-
inwright III og Kate McGarrigle
sem bæði eru kunnir lagahöfundar
og söngvarar. Strákur ólst upp hjá
mömmu í Montreal, fór að læra á
píanó 6 ára, samdi lag í kvikmynd
14 ára og fékk Juno-tilnefningu
ís1ensk
NR. 289
1 l 1 S * 8
vikuna 10.9-17.9. 1998
Sæti Vikur LAG FLYÍJANDI
1 11 I DONTWANTTO MISS ATHING ..............AEROSMITH
2 6 ANOTHER ONE BITES TEH DUST......QUEEN/WYCLEF FEAT...
3 3 ENJOYTHE SILENCE .........................FAILURE
4 S TIME AFTERTIME...............................ONOJ
5 9 THEBOYISMINE.....................BRANDY & MONICA
6 2 SUBSTITUTE FOR LOVE.......................MADONNA
7 6 I BELONG TO YOU ......................LENNY KRAVITZ
8 8 IMMORTALITY...........................CELINE DION
9 8 INTERGALACTIC ........................BEASTIE BOYS
10 2 LUV ME, LUV ME......................SHAGGY & JANET
11 2 WALKING AFTERYOU .....................F00 FIGHTERS
12 11 COME WITH ME.....PUFF DADDY & JIMMY PAGE (GODZILLA)
13 1 WHATSITUKE...............................EVERLAST
14 6 VIVA FOREVER ..........................SPICEGIRLS
15 6 ALL’BOUTTHE MONEY............................MEJA
16 5 SÍLIKON ...............................SKÍTAMÓRALL
17 5 STRIPPED................................RAMMSTEIN
18 1 MILLENNIUM.......................ROBBIE WILLIAMS
19 10 REALGOODTIME ....................ALDA ÓLAFSDÓTTIR
20 6 LIFE .....................................DES’REE
21 3 LOOKING FOR LOVE............................KAREN RAMIREZ
22 8 ORGINAL.......................SÁLIN HANS JÓNS MÍNS
23 1 IF YOU COULD READ MY MIND ...........STARS ON 54
24 2 ONEWEEK ..........................BARENAKED LADIES
25 7 YOU’RE MY HEART, YOU’RE MY SOUL ...MODERN TALKING
26 2 IF YOU TOLERATE THIS YOUR...MANIC STREET PREACHERS
27 2 NO MATTER WHAT............................BOYZONE
28 6 ANGEL ...............................MASSIVE ATTACK
29 1 WHAT CAN I DO...............................CORRS
30 3 NEW KIND OF MEDICINE ...................ULTRA NATE
31 3 PURE MORNING .............................PLACEBO
32 4 STELPUR..................................Á MÓTI SÓL
33 1 EVERYBODY GET UP ............................FIVE
34 9 DEEPER UNDERGROUND ....................JAMIROQUAI
35 4 MY FAVOURITE MISTAKE..................SHERYL CROW
36 11 DRINKING IN LA......................BRAN VAN 3000
37 2 WEEKENDER ..................................SELMA
38 6 SAINT JOE ON THE SCHOOL BUS......MARCY PLAYGROUND
39 3 LOVE UNLIMITED ...............FUN LOVEIN’CRIMINAL
40 1 LASTTHING ON MY MIND........................STEPS
3/9 28/8
1 1
4 3
7 7
6 10
2 5
10 -
9 25
12 11
5 4
21 -
22 -
8 6
lllYTT
3 2
11 14
20 20
17 30
ImýttI
18 18
15 13
27 27
26 28
llfÝTT
34 -
14 16
30 -
28 -
13 9
1MÝTTl
33 39
19 17
25 34
III Y T T
16 15
37 37
24 12
40 . -
23 8
32 32
| II Ý T T I
Taktu þátt í vali listans
í síma 550 0044
íslenski listinn er samvinnuverkefni Bylgjunnar og DV. Hringt er
f 300 til 400 manns á aldrinum 14 til 35 ára, af öllu landinu.
Einnig getur fálk hringt í sfma 550 0044 og tekiö þátt f vali
listans. íslenskl listinn er frumfluttur á fimmtudagskvöldum á
Bylgjunni kl. 20.00 og er blrtur i hverjum föstudegi f DV. Listinn
er Jafnframt endurfluttur á Bylgjunni á hverjum laugardegi kl.
16.00. Listinn er birtur, aö hluta, f textavarpi MTV sjónvarps-
stöövarinnar. íslenski listinn tekur þátt f vali „World Chart“ sem
framleiddur er af Radio Express f Los Angeles. Einnig hefur hann
áhrif á Evrdpullstann sem blrtur er f tdnlistarblaöinu Music &
Media sem er rekiö af bandarfska tdnlistarblaöinu BiHboard.
Yflrumijón me6 skoianakönnun: HaHdóra Hauksdóttir - Framkv*md könnunar: Markafisdeild DV - Tölvuvinnsla: Dódö - Handrit, heimildaröflun og
yfirumsjón me8 framlelislu: ívar Guðmundsson - Tarknistjórn og framleiðsla: Forsteinn Asoelrsson og FViinn Steinsson - Utsendingastjóm:
Asgeir Kolbeinsson og Jóhann Jóhannsson • Kynnir f útvarpi: Ivar Guðmundsson
(Grammy þeirra í Kanada) fyrir. Á
unglingsárunum uppgötvaði hann
óperuformið, drakk í sig hinar
ýmsu óperur og ákvað að verða
klassískur óperuhöfundur þegar
hann yrði stór. Hann var sendur í
skóla til New York og kom út úr
skápnum á svipuðum tíma. Rufus
fór aftur til Montreal, sneri sér í
auknum mæli að því að spila á gít-
ar - „af því það voru svo sjaldan pí-
anó í partíum" - og ákvað að tak-
marka sig ekki bara við klassíkina.
„Allir sætu strákarnir voru í rokk-
hljómsveitum,“ segir hann í gríni.
Rufus sökkti sér í kafFihúsakúlt-
úrinn í Montreal, samdi og lék lög
og eins og hann segir sjálfur,
„partied my ass off'. Á þessum
tíma upplifði hann sig í gífurlegum
vexti á sköpunarsviðinu. „Ég hékk
í náttsloppnum allan daginn, illa
þefjandi og samdi. Mömmu var al-
veg sama eins lengi og ég var að
semja lög.“
Nú kom pabbinn til skjalanna.
Hann var hrifinn af lögunum sem
sonurinn hafði sett á spólu og
sendi þau til vinar sins, Van Dyke
til liartaiij-f
Parks, sem er þekktur laga- og
textahöfundur. Parks varð hrifmn
líka og sendi spóluna áleiðis til
Lenny Weronker, hljómplötumó-
gúls, sem uppgötvaði m.a. Randy
Newman, Lowell George og
ijörulcillann Brian Wilson. „Mín
viðbrögð voru: Hvernig getur 21 árs
strákur samið þetta stöff?“ segir
Lenny. „Þetta var ótrúlegt. En þeg-
ar ég hitti hann sá ég strax að Ruf-
us er maður sinnar kynslóðar.
Samt er hann að gera hluti sem
enginn annar af hans kynslóð er að
gera og þess vegna held ég að aðrir
tónlistarmenn fíli hann svona vel.
Fólk eins og Michael Stipe, Chris
Cornell (bassaleikari Hole) og
Rickie Lee Jones er allt orðið að-
dáendur hans.“
Rufus vann að plötunni í 2 ár.
„Ég kláraði 56 lög og tók upp á 62
teip,“ skýrir hann frá, „í raun saug
verkefnið allt blóð úr mér. En
Lenny var sama hve lengi þetta
drægist eins lengi og tónlistin yrði
góð.“ Fyrir Rufus skipta gæði lag-
anna öllu máli og það stendur upp
úr, sama hvaða tíska ríkir á mark-
aðstorginu. Hann vitnar í klassísk-
an meistara máli sínu til stuðnings:
„Beethoven sagði: „Það sem kem-
ur frá hjartanu fer til hjartans” og
hvort sem er verið að tala um klass-
ískan höfund eða AC/DC, þá get-
urðu ekki feikað það. Takmark
mitt var að gera plötu sem hljómar
eins og hún sé dýr, stór og góðsæt
og ég er engan veginn að reyna að
hljóma eins og ég komi af götunni.
Ég er mikill 'aðdáandi Nat „King“
Cole, Frank Sinatra og Sarah
Vaughn og þess tíma þegar plötur
hljómuði eins og alvöru plötur."
Auk þessa meistara eru áhrif frá
Cole Porter og Kurt WeiU heyran-
leg. Það sérstaka er bara að plata
Rufusar hljómar ekki eins og stæl-
ing, heldur eins og glæný tónlist
með sterkum rótum. Strengjaút-
setningar Van Dyke Parks eru sem
strásykur og söngrödd Rufusar er
veraldarvön, dapurleg á köflum en
mjúk. Það kæmi mér ekki á óvart
þótt Rufus Wainwright ætti eftir að
verða mörgum tónlistaráhuga-
manninum ljós í rökkrinu.
-glh
plötudómar
Gálan - Fyrsta persóna eintala: ★★’A
gálan
Grípandi, hefí og flippað
niivi* itiwM íkiuj:
Júlfus Guömundsson er Gálan og geröi þessa
plötu algjörlega á eigin spýtur, söng og spilaöi
á allt, hannaöi m.a.s umslagiö, sem hann heföi
betur sleppt því það er klaufalega Ijótt og hall-
ærislegt. Tónlistin er ögn gamaldags, hippískt
rokk sem minnir á Trúbrot, Spilverk þjóöanna,
Ný dönsk og svo auðvitað aðeins á Deep Jimi
þar sem Július sat viö trommusettið hér áður
fýrr. Hann syngur á svipað tannlausan hátt og
Bjöm Jörundur en er þó alls ekki jafnrámur og
kemst auðvitaö ekki undan þvf að minna dálft-
ið á pabba gamla (Rúnar Júl.) þegar rokkand-
inn heltekur hann sem mest.
Það er ekki beint neitt sem kemur á óvart
f lagagerð Júlíusar, þetta er ekki meðvituð út-
víkkun á hefðbundinni dægurlagagerð heldur
þægileg tóntekja úr varplandi rokksins. Út-
setningarnar eru ágætar, skreytingar liprar
(húrra fýrir Júlla að vera svona klár á mörg
hljóöfæri!) og engin einhæfni f gangi þó Júlíus
spili sjálfur á allt; svei mér þá bara ef það er
ekki „band-fílíngur" f gangi stundum.
Lögunum má skipta f þijá flokka; grfpandi,
heff og flippað, en þó eru flest lögin blanda úr
þessu þrennu, grfpandi og hefi popprokk með
flippuðum innslögum. Gálan á það til að end-
urtaka grípandi viðlögin fulloft sem flýtir fýrir
að grfpandi verði að andstöðu sinni, þreyt-
andi. „Ég er á kafi f ruglinu" og „Ef ég væri
Guð“ eru t.d. lög sem maöur verður þreyttur á
fljótt þó þau „gripi" fýrst. Þegar lögin eru
meira hefi en gripandi má búast við mun
lengri líftfma. „Dýrin mfn stór og smá",
„Nostalgía" (sem minnir glettilega á
teknóbandið Underworld!) og „Grímskviður"
(þó hippiskt sóló „frfk-át" í endann sé öldruð
hugmynd) finnst mér standa upp úr, flott, hefi
og margslungin. 1 flippdeildinni eru svo
„Sunnudagaskólalagið" og „Vögguvísa", ein-
hvers konar barnalög á villigötum. Textarnir
ISsialSööfeÉ
eru upp og ofan, stundum sligaðir af þvinguðu
rími en oftar allvel hnittnir. Með plötunni brýt-
ur Júlíus ekki blað f fslenskri tónlistarsögu en
hann er kominn sterkur á blað og er vel trú-
andi til að gera enn betri hluti með vfðsýni og
nýjum pælingum.
Gunnar HJalmarsson
Intense Presents Logical Progression Level 3: ★★★i
Skyldueign
Þegar Logical Progression kom út í byrjun árs
1996 opnaði hún augu almennings fyrir þvf sem
kallast „intelligent" drum 'n’ bass en það er
melódískt drum 'n' bass án söngs með miklum
áhrifum úr electro-, ambient- og djasstónlist.
Þaö var Good Looking útgáfa LTJ Bukems sem
stóð fýrir þessari plötu en LTJ Bukem er einmitt
guðfaðir þessarar tónlistar og hefur sjálfstætt
útgáfufýrirtæki hans verið leiöandi f gerð henn-
ar frá upphafi. Nú er ný Logical Progression
plata orðinn árlegur viðburður hjá Good Looking
og hefur hin rökrétta framför leitt okkur á „Level
3".
Diskurinn er tvöfaldur og er sá fyrri live-upp-
taka frá tónleikum hljómsveitarinnar Intense
þann 18. desember sfðastliðinn í Brixton
Academy í London. Trióið Intense, sem hefur
veriö í fararbroddi í gerð þessarar tónlistar, hóf
feril sinn hjá Rugged Vinyl útgáfunni árið 1993
en á sfðustu tveimur árum hefur það gefið út Cr-
eative Source, Way Out og loks Good Looking.
A þessum tónleikum fékk þaö til liðs við sig
ýmsa tónlistarmenn og gefur það lögunum live-
tilfinningu ofan á þann stil sem Intense er þekkt
fyrir en honum má best lýsa sem mikilfenglegu
(epísku) drum 'n' bass. Lögin átta eru öll mjög
góð og erfitt að gera upp á milli þeirra en þó
finnst mér lögin Afterlife, Good Times Bad og
Wastelands best.
Seinni diskurinn inniheldur níu lög frá mörg-
um af helstu tónlistarmönnum Good Looking og
eru þau öll góð eins og annað sem kemur frá
þessari útgáfu. Þarna eru hins vegar ekki sígild
lög eins og á fýrstu plötunni í seríunni heldur
vönduð lög sem rúlla vel í gegn. Þó er upphaf-
slag plötunnar, She Moves through meö Blu
Mar Ten, fremst meðal jafningja og er þetta það
besta sem hljómsveitin hefur gert fýrir Good
Looking að mfnu mati. Þetta er svona dáleið-
andi geimaldarsinfónía sem maður fær alger-
lega á heilann. Einnig er electro-bræðingur
Blame og Tayla I iögunum Alpha: 7 og
Resolution frábær meðan Big Bud og 2 Bob
Soundsystem sýna okkur hvernig á að gera
framtíðarfunk með lögunum Freedom og Get
High Fiona. Hin lögin eru góð en ekki eins eftir-
minnileg.
Þessi plata er f alla staði mjög góð og vönd-
uð og skyldueign fyrir alla sem hafa áhuga á
þessari tónlist eða góðri tónlist yfirleitt. Ég vil
líka benda á fýrri tvo diskana í þessari seríu fyr-
ir þá sem vilja kynna sér þessa tónlist betur,
sérstaklega þann fýrsta. -
Olafur Darrl Bjornsson
10
f Ó k U S 11. september 1998