Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1998, Blaðsíða 7
'uittf >&§ ruppiiL xJíjjjjj a wd3i seísj er JjJsj daJ:
©U bMir ibJasge ©g imar í SsAtefgfliiaffii. Wina eni |©ir ai æirj|a saitaan @g
landi í tvo mánuði og er byrjað-
ur með þátt á Skratz. Hvernig
kom það til, herra?
Antony: „Ég byrjaði í byggingar-
vinnu en vildi ekki vinna við það
þannig að ég röiti niður á Skratz
og spjaliaði við fólkið þar. Mánuði
seinna var svo hringt í mig og
mér boðin vinna. DJ Rampage
hefur eflaust haft einhver áhrif
þar því ég hugsa að hann hafi vit-
að hvernig vibe ég kæmi með mér
á stöðina."
Þú ert þá sennilega fyrstur til
að fá að blaðra á útlensku í ís-
lensku útvarpi.
Antony: „Yeah! Hiphop er slangur
og það er gott að hafa enskumæl-
andi DJ tii að kynna það.“
Þú ert frá Brooklyn, sem er
kannski svona höfuðstöð
hiphops. Hvemig er senan þar
núna?
Antony: „Ég byrjaði að hlusta á
hiphop 1988 og hef hlustað á það
siðan. Það er miklu almennara nú
en áður að fólk hlusti á hiphop,
það er alls staðar. Maður getur
labbað niður blokk og þú sérð
alltaf einhverja rímandi, þú veist
hvað ég meina, eða að slá taktinn
á bíla, þú veist hvað ég meina. Ef
einhver vill gera hiphop þá getur
hann gert það, þú veist hvað ég
meina."
Þú hefur sem sagt alist upp
við þennan hiphop kúltúr?
Antony: „Ég ólst upp við tónlist. Ég
get ekki sagt að það hafi verið
hiphop alveg frá byrjun en tónlist-
in hjédpaði mér að læra hvað var
gott og hvað ekki. Ég hlustaði á
Madonnu, Phil Collins og allt það
drasl og fannst það bara fmt. En
það höfðaði bara ekki til mín.“
Þú ert búinn að vera í hljóm-
sveit í New York lengi og gera
aragrúa af lögum. Segðu mér
frá því.
Antony: „Já, bandið er kallað WDC
og mér finnst það besta band f
heimi, eða besta unit í heimi.
Þetta er eitthvað sem frændi
minn kom á koppinn og ég hef
verið viðloðandi í mörg ár. Núna
hafa Maxie, Real Flavas og DJ
Rampage bæst í hópinn. Við vilj-
um bara stækka hópinn og leyfa
tónlistinni að dafna. Það er eigin-
lega ekki hægt að búa til tónlist
fyrir sjáifan sig og engan annan.
Ef við setjum öll okkar hæfileika
i einn pott þá kemur eitthvað
supreme út.“
Þú ert dálítið fljótur að ná
þér í sambönd, komst til ís-
lands fyrir rúmum tveimur
mánuðum og þekktir engan.
Antony: „Ja, sko ég hitti hr. Bix
fyrst og þekkti engan annan. Síð-
an kynntist ég Maxie í gegnum
Real Flavaz. Ég var búinn að
heyra um Subterranian áður en
ég kynntist honum en þegar við
hittumst sá ég að hann var niðri á
jörðinni og einlægur karakter og
þannig fólk fíla ég.“
Maxie, þið eruð að vinna
saman núna, hvernig kom það
ttl?
Maxie: „Ég pródúseraði lag fyrir
Real Flavaz og Anthony. Og ég
varð bara fyrir miklum áhrifúm
frá honum og einhvem veginn
urðum við bara góðir vinir.“
Antony: „Þetta er einhver tenging á
milli MC a. Við errnn að fást við
sama hlutinn. Hann skrifar á
hverjum degi þegar hann hefur
tíma og það geri ég líka. Tónlistin
getur leitt fólk saman. Eða það
finnst mér aliavega.“
Hvað finnst þér vun hiphop-
senuna á íslandi? Er eitthvað
gott í gangi hér?
Antony: „Hún er eins og ungabam
sem er búið að vera í mallanum á
mömmu sinni í níu mánuði og er
glænýfætt. Og þú veist eiginlega
ekkert hvað verður úr baminu.
Hiphopið héma er einhvem veg-
inn þannig. Ég veit ekki neitt um
framhaldið. Ef það fær rétta nær-
ingu og gott uppeldi þá ætti senan
hér að geta dafnað eins og hún
gerir í Brooklyn. Það þurfa bara
að vera jákvæðir straumar tii
staðar."
Ertu sammála þessu Maxie?
Maxie: „Mér flnnst nú hiphop-sen-
an vera ein risastór tískubylgja
hérna eins og er. Það em allir i
baggie-buxum og svoleiðis. En ég
held að sumir séu að læra. Það
þarf að kenna okkur meira um
hiphop. Ef þú veist ekkert um for-
tíðina og upprunann þá geturðu
ekkert ályktað um framtíðina.
Það er fullt af krökkum sem em í
hiphop-fotum héma en vita ekk-
ert um hvað þetta snýst.“
Og um hvað snýst þetta eigin-
lega allt saman?
Antony: „Sko, hiphop er kúltúr.
Eins og trúarbrögð. Kristnin
breiddist út um allan heim, eins
var með íslamtrú. Hiphop er það
sama. De LA Soul, og Gravediggaz
komu hingað að spila. Þeir komu
til að segja fólkinu það sem þeir
vita. Þetta snýst ekkert um fötin,
eða ég vona allavega að einhver
nái boðskapnum.
Hiphop er ekki eitthvað „look“
heldur frekar skilgreining á þér
sjálfum. Hiphop hjálpaði mér til
dæmis að finna sjálfan mig, þú
skilur hvað ég meina, hjálpaði
mér að vera orginal og skapandi.
Það skiptir mig líka máli að fá
fólk með mér í lið. Þegar ég kem
fram héma þá segi ég: „Yo, you
people in the crowd, if there is
any MC out there come up and
say what you’ve got to say!“ Þig
langar kannski að koma ein-
hverju frá þér og til skila. Þetta
snýst eiginlega allt um það.“
Hvað ætlið þið að gera við
lögin sem þið eruð að búa til
núna?
Maxie: „Við ætlum að gera eitthvað
saman, Anthony gerir eitthvað
einn, ég geri eitthvað einn, Real
Flavaz verða með okkur í ein-
hverju. Við viljum öll vinna sam-
an og svo kemur plata.“
Er ekkert mál að smella sér
bara í stúdíó og gefa út plötu?
Maxie: „Jú, það er frekar erfitt en
það er hægt ef þú vilt það. En það
er rándýrt. Hver sem á pening
kemst inn í stúdíóið. Maður getur
eytt 60.000 krónum í sex tíma í
stúdíói og ekkert kemur út úr því.
Og svo getur maður verið heima í
tvo tíma og gert lag.“ -MHÖ
Dúettinn Bang
gang er að
gera það gott
í Danmörku
þessa dagana.
Bang gang er á
leið til Kaup-
mannahafnar og
mun halda tón-
leika í Vega 14.
nóvember. Þetta
er í kjölfær óvæntra vinsælda hljómsveitarinn-
ar þar í landi eftir að danskir útvarpsmenn
heyrðu og sáu dúettinn á MTV-sjónvarpsstöö-
inni I sumar.
„Okkur var bara boðiö af einhverjum súrum
gæja með góðan tónlistarsmekk," segir Barði
um ferðina og bætir þvi við að hann hafi ekki
hugmynd um hvað þessi ágæti maður geri en
haldi að hann sé blaðamaður sem heldur tón-
leika í frístundum.
Með Bang gang fer Ragnar Bragason kvik-
myndagerðarmaður sem er að fara að leik-
stýra sinni fyrstu mynd nú eftir áramót. En
Ragnar sér einmitt um myndræna útfærslu á
tónleikunum því mynd og hljóö munu blandast
saman með frumlegum hætti þarna úti.
„Viö förum á föstudegi og komum heim á
sunnudegi, tökum einn léttan blaðamanna-
fund á Kaffi Reykjavík og klkjum kannski I
Kristjaníu og svo eru þaö bara þessir tónleik-
ar,“ segir Barði að lokum.
i Hveragerbiskirkju
veröa I kvöld kl.
20.30 flytja Ingveldur
Ýr og Gerrit Schuil
lög úr vinsælum söng-
leikjum, íslenskum og
erlendum.
Ungllngahljómsveit Llstaskóla Stokkhólms-
borgar (Stockholm’s Stads Kulturskolas
Ungdomssinfonietta) heldur tónleika í Nor-
ræna húsinu í kvöld kl. 20.30. Á efnisskrá er
m.a. P. Mascagnl, J.S. Bach, P. TJajkovsklJ
og sænsk þjóðlög.
Selkórinn á Seltjarn-
arnesi heldur tón-
leika ásamt Sinfón-
íuhljómsvelt Islands
í Langholtskirkju á
morgun kl. 17 I til-
efni af 30 ára af-
mæli kórsins. Tón-
leikarnir eru tileink-
aðir minningu frú
Guðrúnar Katrinar
Þorbergsdóttur for-
setafrúar og fyrrver-
andi bæjarfulltrúa á
Seltjarnarnesi.
Söngkvartettlnn Rúdólf syngur í Reykholts-
klrkju á sunnudaginn. Kvartettinn mun syngja
við messu kl. 14 en kl. 15.30 verður flutt
söngdagskrá með lögum af nýrri efnisskrá.
Þetta eru lög úr ýmsum áttum og mörg hver
sérútsett fyrir kvartettinn af Skarphóðnl
Magnússynl.
Á morgun verða haldnir
tónleikar í Hallgríms-
klrkju til heiöurs Þorkell _ ,
Slgurbjörnssynl. Þar l|K \
koma fram fjórir kórar og ■i\ V
flytja valin verk ásamt
hljóðfæraleikurum. Tón-
leikarnir heflast kl. 17
og er aðgangur ókeypis.
Klrkjukór Selfoss heldur tónleika í Selfoss-
klrkju fimmtudaginn 5. nóvember og hefjast
tónleikarnir kl. 20.30.
meira é.
www.visir.is
30. október 1998 f ÓkUS
7