Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1998, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1998, Blaðsíða 28
b í ó Bíóborgin The Horse Whlsperer Bók Nicholas Evans hlaut misjafnar viótökur og var annars vegar lofuð sem glæsilegt meistaraverk og hins vegar gagnrýnd sem innihaldslaus loft- bóla. Myndin brúar að mfnu mati biliö, og kannski má kalla hana fallega ioftbólu. -ge , Bíóhöllin/Saga-bíó Wrongfully Accused ★★ Myndir Leslie Nielsen eru farnar að verða svona dálft- ið eins og Spaug- stofan, þreyttar en enn þá færar um að kitla upp magahlátur á góðum stundum. Ef þú ert nægilega skilyrt f aulahúmor þá má vel skemmta sér yfir þess- ari þvælu. -úd Prlmary Colors ★★★ Mike Nichols hefur búið til snjalla og góða kvikmynd sem er beitt í ádeil- unni á atvinnufólk I pólitfkinni, hefur góðan húmor og er skemmtilega kræf og laus við for- dóma. Það er ekki rangt að draga þá ályktun að fyrri hluti myndarinnar sé aö miklu leyti byggð- ur á framboði Clintons árið 1992. -HK Háskólabíó Smálr hermenn ★★ Eina ferðina enn er það brúðuhönnuðurinn og brellumeistarinn Stan Winston sem stendur með pálmann í höndun- um þvf eina merkilega og skemmtilega í annars einhæfri ævintýramynd eru sköpunarverk Win- stons. Leikstjórinn Joe Dante, þekktur hryll- ingsmyndaleikstjóri á árum áður, hefur fengist við sams konar atriöi og f Small Soldiers, en hefur gert betur. -HK Danslnn ★★★ Ágúst Guðmundsson með sina bestu kvik- mynd frá því hann gerði Með allt á hreinu. Áhrifamikil saga sem lætur eng- an ósnortinn. Vel gerð og myndmál sterkt. Oft á tíðum frumleg þar sem dansinn dunar í forgrunni og eða þakgrunni dramatískra atburða. Leikarar í heild góðir og ekki hallað á neinn þegar sagt er að Gunnar Helgason, Pálína Jónsdóttir og Gísli Halldórs- son séu þest meðal jafningja. -HK BJörgun óbreytts Ryan ★★★★ Strfð í sinni dekkstu mynd er þema þessa mikla kvik- myndaverks. Stórfenglegt þyrjunaratriði gæti eitt sér staðið undir ómældum stjörnufjölda, en Steven Spielberg er meiri maður en svo að hann kunni ekki að fylgja þessu eftir og í kjöl- farið kemur áhugaverð saga um björgun mannslífs, saga sem fær endi f öðru sterku og löngu atriöi þar sem barist er gegn ofurefl- inu. -HK Sporlaust ★★★ Leikararnir skila sínu og sögufléttan er að mestu f anda góðra spennumynda. Þó er að finna slæmar holur f plottinu sem eru leiðinlegar fyrir þá sök að auðvelt hefði verið að komast hjá þeim. Þessir hnökrar spilla þó tæplega miklu og myndin ætti ekki að valda vonbrigðum. -ge Paulie ★ Einkennileg mynd sem virðist hvorki fyrir börn né fullorðna, kannski vegna þess að hún reynir að gera öllum aldurshópum til hæfis. Brandararnir missa flestir marks og tilvistarkrísur páfagauksins eru ekki þess eðlis að þær veki áhorfandann til samúðar. -ge Kringlubíó a Fjölskylduglldran **i Sumar sögur eru svo vel byggðar upp og skemmtilegar aö ekki er hægt að eyðileggja þær og þessi ágæta út- gáfa af tvfburunum sem skipta um hlutverk er skemmtileg og notaleg þó búið sé að troða inn á hana misgóðum rokklögum sem ekkert hafa með myndina að gera, hún stendur alveg fyrir sínu án þeirra. -HK A Perfect Murder **i Andrew Davis, leik- stjóri A Perfect Murder, ræðst ekki á garðinn þar sem hann er hæstur þvf að fyrirmyndin, Dial M for Murder (1954), telst ekki til bestu mynda Alfreds Hitchcocks. Útkoman er þó ágætis afþreying sem kemur stundum skemmtilega á óvart. -ge Töfrasverðlð ★★ Þetta er ekki fyrsta og örugg- lega ekki síðasta kvikmyndin þar sem Arhur kon- ungur, riddarar hans við hringborðið og sverðið Excalibur koma við sögu. Það sem greinir Töfrasverðið frá öðrum er að hún er teiknimynd, V en stendur ekki undir samanburði viö það besta sem komið hefur f þessum flokki. Islenska tal- setningin er góð. -HK Laugarásbíó The Truman Show ★★★TheTruman Shower t enn ein rós f hnappagat Peters Weirs. Hún er ekki besta kvikmynd hans en á meðal þeirra bestu, virkilega góö og áleitin kvikmynd sem byggð er á snjaliri hugmynd. Jim Carrey hefur hingað til tekist best upp f försum en sýnir hér agaðan leik f erfiðu hlutverki þótt ekki verði úr nein snilld. -HK •* Brían De Palma man eflir morðinu á Kennedy eins og það hefði verið framið í gær. Þetta hefur sést á nokkrum mynda hans og spilar nokkra sullu í þeirri nýjustu, Snake Eyes. ^ bíódómur Regnboginn Halloween: H20 ■ il Lelkstjórn: Steve Miner. Handrlt: Robert Zappia og Matt Greenberg. Kvlkmyndataka: Daryn Okada. Tónlist: John Ottman. Aðalhlut- verk: Jamie Lee Curtis, Adam Arkin, Adam Hann-Byrd, Michelle Williams og Josh Harnett. Mér til stanslausrar gleði og ánægju er hrollvekjan öll í upp- sveiflu um þessar mundir og það rétt í því að illviljaðir menn spáðu henni skjótum dauða. Heil gúmma af hrollvekjum hefur þeg- ar komið fram og gert góða hluti og önnur er væntanleg á næsta ári. Það má kannski segja með einhverjum rétti að upphafið hafi verið framhaldsmynd af svipuðu tagi og sú sem hér er til umfjöll- unar því vissulega átti nýr prófíll og nýtt yfirbragð Nýjustu martað- ar Wes Cravens (1994) ríkan þátt í þeirri uppsveiflu sem hrollvekj- an nýtur nú. Sú mynd var einmitt sú sjöunda í seríunni, rétt eins og H20 er sjöunda Halloween-myndin og tekur sér ákveðin bessaleyfi gagnvart því sem á undan var komið. Númer sex átti reyndar að hleypa nýju lífi í röðina en þótti ekki takast sem skyldi (þ.e. mis- takast herfilega). H20 gefur strax nýjan tón með mun virðulegra og næstum hlýrra yfirbragði en fyrri myndimar. í stað grárra lita sem gáfu næstum svarthvíta áferð í fyrri myndun- um eru nú komnir hlýir gulir lit- ir, enda gerist myndin að þessu sinni í sumarlandinum Kalifom- íu, þangað sem Laurie (Jamie Lee Curtis) er flutt, búin að skipta um nafn, eignast son og verða skólastýra í einkaskóla. Hún er enn ofsótt af martröðum um bróður sinn og drekkur helst til mikið en hefur að öðru leyti skapað sér hið ágætasta lif. Mich- ael Meyers á að hafa dáið í bruna í Halloween 2 (hinum framhöld- unum er sleppt, kannski voru þau bara martraðir Laurie?) en líkið fannst aldrei. H20 er smart og skemmtileg án þess að vera þessi háparódíska hrollvekja sem Scream-myndimar em. Líkt og hæfir nútímalegri og virðulegri ímynd er hryllingurinn allur með nýju yfirbragði, meiri áhersla lögð á kjark og þor í ómögulegum aðstæðum og þrátt fyrir að blóðgusur og útlimamiss- ir séu enn til staðar þá nálgast myndavélin slíkt á annan hátt en áður. Þetta eru hrollvekjur um og fyrir nútímaunglinga, fólk sem hefur séð öll gömlu trikkin og heimtar ný. Úlfhildur Dagsdóttir L.A. Confldental: Kevin Spacey í hlutverki spillts lögreglumanns. áratugurinn vínsæl Sjötti áratugurinn 1950-1960 hef- ur haft mikið aðdráttarafl fyrir kvikmyndagerðarmenn og lifað lengi í minningunni og allt frá 1960 hafa verið gerðar óteljandi kvik- myndir sem látnar eru gerast á sjötta áratugnum, mismunandi kvikmyndir að gerð og gæðum, sú nýjasta er Pleasantville sem er vin- sælasta kvikmyndin í Bandaríkj- unum um þessar mundir. Margar úrvalsmyndir gerast á sjötta ára- tugnum. Nokkrir gagnrýendur í Bandaríkjunum tóku sig til og völdu tíu hestu kvikmyndirnar sem gerðar eru eftir 1960 og eiga það sameiginlegt að gerast allar á árunum milli 1950 og 1960. 1. The Last Picture Show 1971 Leikstjóri: Peter Bogdanovich 2. L.A. Confidental 1997 Leikstjóri; Curtis Hanson 3. Big Night 1996 Leikstjóri: Stanley Tucci og Campbell Scott 4. My Favorite Year 1982 Leikstjóri: Richard Benjamin 5. Diner 1982 Leikstjóri: Barry Levinson 6. Quiz Show 1994 Leikstjóri: Robert Redford 7. The Buddy Holly Story 1978 Leikstjóri: Steve Rash 8. Grease 1978 Leikstjóri: Randal Kleiser 9. I.Q. 1994 Leikstjóri: Fred Schepisi 10. Back to the Future 1985 Leikstjóri: Robert Zemeckis Brian De Palma man eins og það hefði gerst í gær hvar hann var og hvað hann var að gera þeg- ar John F. Kennedy var myrtur: „Ég hafði boðið út ungri stúlku sem mér leist vel á. Hún var skólafélagi og efnileg leikona, Jill Clayburgh. Við vorum að ganga eftir götu í Bronxville (New York) og sáum fréttir af morðinu á sjón- varpsskermi í búðarglugga." Morðið hafði mikil áhrif á DePalma og segir hann engan at- burð á sinni ævi hafa haft jafn- djúp áhrif á sig. Þessi áhrif má sjá í kvikmyndunum Greetings, Blow Out og nýjustu kvikmynd hans, Snake Eyes, en hann segir morðið á Kennedy hafa haft bein áhrif á gerð hennar. Brian De Palma fæddist í Newark 11. september 1940. Faðir hans var skurðlæknir og í fyrstu ákvað De Palma að feta i fótspor foður síns og innritaði sig f Col- umbia háskólann með það í huga. Hann fékk þó fljótt áhuga á leik- list og skipti um deild. í kjölfarið keypti hann 16 mm kvikmyndavél og var iðinn við að fá félaga sína í leiklistardeildinni til að leika í stuttmyndum sem hann gerði í tíma og ótima. Þessar stuttmyndir gerðu það að verkum að hann gat farið að safna peningum í sínar fyrstu kvikmyndir, The Greetings og The Wedding Party. Það tók tvö ár að undirbúa og gera The Wedding Party. Fór svo að hann kvikmyndaði hana á strætum New York borgar og kostaði myndin 43.000 dollara (3,5 milljón- ir króna). í aðalhlutverkum voru Jill Clayburgh og Robert De Niro og var The Wedding Party fyrsta kvikmyndin sem þau léku í. De Palma hélt áfram að senda frá sér ódýrar kvikmyndir og það leynd- ist engum að hann leitaði í smiðju Alfreds Hitchcocks í sinni kvik- myndagerð. Stökkið kom 1976 þeg- ar hann sendi frá sér Carrie, sem Myndir Brian De Palma • Greetings 1968 • The Wedding Party 1969 « Hi Mom 1970 9 Sisters 1973 ° Phantom of the Paradise 1974 • Obsession 1976 > Carrie 1976 • The Fury 1978 Home Movies 1980 • Dressed to Kill 1980 Blow Out 1981 • Scarface 1983 • Body Double 1984 • Wise G'uys 1986 -->The Untouchables 1987 ■> Casualties of War 1989 • The Bonefire of the Vanities 1990 • Raising Cain 1992 • Carlito's Way 1993 « Mission: Impossible 1996 ’ Snake Eyes 1998 gerð var eftir skáldsögu Stephens Kings. Með þeirri kvikmynd skapaði hann sér nafn og var í fyrsta en ekki síðasta skipti sak- aður um óþarfa blóðbað og of- beldi. Brian De Palma hefur alltaf staðið fast á sínu, farið eigin leið- ir hvað sem aðrjr segja og er tal- inn meðal sjálfstæðustu leikstjóra í Hollywood. Myndir hans hafa farið fyrir brjóstið á mörgum og hann hefur hvorki verið í náðinni hjá áhorfendum né gagnrýnend- um í gegnum tiðina en ávallt þeg- ar hann er með allt niður um sig kemur hann með stórvirki og fylg- ir því jafnan eftir með mynd sem er gagnrýnd jafnharkalega og sú fyrri var lofuð. Dæmi um þetta er hin rómaða The Untouchables sem hann fylgdi einni mynd síðar eftir með The Bonfire of Vanities, sem var rökkuð niður af öllum sem um hana skrifuðu. Það má þó segja að síðustu kvikmyndir De Palma eru jafnari að gæðum og hafa sýnt það besta sem býr í hon- um. Brian De Palma er þrígiftur og hefur jafnoft skilið. Fyrsta eigin- kona hans var leikkonana Nancy Allen, næst í röðinni var fram- leiðandinn Gale Anne Hurd og saman eiga þau dótturina Lolitu og þriðja eiginkona hans er Darn- ella De Palma. Eiga þau saman dótturina Piper. Það hjónaband dugði í sjö mánuði. Brian De Palma og Nicholas Cage við tökur á Snake Eyes. Þetta eru hroflvekjur um og fýrír nútímaungiinga fólk sem hefur séð öli gömlu trikkin og heimtar ný.“ f ó k u s 23. október 1998 i 28

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.