Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1998, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1998, Blaðsíða 6
meira á. www.uisir.is I Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafn- arfjarðar, verða tónleikar á sunnudaginn og hefjast þeir kl. 20.30. Fram koma Hlín Slgur- Jónsdóttlr fiðluleikari, Junah Chung lágfiölu- leikari og Siguróur Halldórsson sellóleikari. Á efnisskrá tónleikanna eru eftirtalin verk: Strengjatrió op. 53 eftir Franz Joseph Haydn, þrír Madrigalar eftir Bohuslac Martinu og Strengjatríó i G-dúr op. 9, nr. 1 eftir Ludwig van Beethoven. Miðasala að tónleikunum verður í Hafnarborg laugardag og sunnudag frá kl. 12-18. „Ég reyni að eyða peningunum einhvern óþarfa Skúli Gautason: „Ég hef aldrei veriö jafnlengi aö semja lag, enda eru smá núansar á því - þaö er ekki eins einfalt og þaö hljómar." Það er síður en svo auðvelt að leiða á laginu enn og honum semja lag sem slær í gegn, hvað þá að gera jólalag sem slær í gegn, enda jólalögin bundin í tíma og hætta á að gleymist að rifja upp vinsælt jólalag frá því árinu áður. Jólahjólið er líklega nýjasta við- bótin við hið klassíska jólalands- lag og sumum fínnst jafnvel jólin ekki á næsta leiti fyrr en Stebbi Hilmars byrjar að syngja „undir hjóla jólatré er pakki“. Höfundur lags og texta er Skúll Gautason og hann söng það sjálfur þegar lagið kom fyrst út á 12“ árið 1984. Það var í flutningi Lagavalsnefnd- ar Bifhjólasamtaka lýðveldisins sem var einhvers konar forveri Sniglabandsins. Útgáfa Skúla heyrist sjaldan og það var ekki fyrr en ungur söngvari, Stefán Hilmarsson, söng lagið aftur tveim árum síðar að frægðarferill Jólahjólsins hófst fyrir alvöru. Sú útgáfa kom á jólasafnplötu og síð- an þá hefur lagið komið út á ýms- um jólaplötum. Skúli segir það merkilegt að hann skuli ekki vera búinn að fá finnst alltaf jafngaman að því þeg- ar það fer að hljóma úr útvarpinu. „Ég hef aldrei verið jafnlengi að semja lag,“ segir hann, „enda eru smá núansar á því - það er ekki eins einfalt og það hljómar. Á sín- um tíma gerði ég vísindalega könnun á laginu, spilaði grunn- taktinn tímunum saman - það má eiginlega segja að ég hafi álags- prófað það.“ Þegar lagið kom út á sínum tíma hringdi íslenskuprófessor úr háskólanum í Skúla og þakkaði honum sérstaklega fyrir texta- gerðina. „Það kom mér í opna skjöldu og ég hélt að einhver væri að gera grín að mér. En hann gaf sig ekki svo ég fór að trúa því að þetta væri ágætistexti hjá mér. Svona lætur maður alltaf álit ann- arra hafa áhrif á sig því enginn er spámaður í eigin kroppi." í bransanum gekk sú saga að Skúli hefði selt Jóni Ólafssyni í Skífunni öll réttindi að laginu á 50 þúsund kall en höfundurinn tekur alveg fyrir það. „Litli skattur frá Það hlakfca sjáifsagt fáir jafnmikið fil jóianna og Skúli Gautason leikari. Jólin færa honum nefnilega peninga og hann þarf ekkert að hafa fyrir þeim. Hann er höfundur lagsins Jólahjól, sem er farið að óma í útvarpinu og mun halda áfram að glymja þar næstu fimm vikunnar. Stef kemur alltaf í desember og uppistaðan í tékkanum er spilun á þessu lagi. Ég reyni að eyða pen- ingunum í einhvem óþarfa fyrir mig og mína nánustu, eins og jóla- konfekt, en stundum hverfur tékkinn í vísitölupyttinn, maður borgar reikninga eða eyðir þessu í aðra eins heimsku." En þó lagið sé mikið spilað í sirka 5 vikur á ári getur Skúli ekki lifað af jólahjóli einu saman og segist vera aðallega í leiklist. Hann er þessa dagana að leikstýra leikriti í Menntaskólanum á Laugarvatni. „Spilakláðinn tekur sig þó alltaf upp annað slagið og þá fæ ég útrás með hljómsveitinni Rjúpunni. Við höfum komið fram á mjög lítið auglýstum samkom- um og stefnum ekki að frægð og frama heldur erum við í þessu til að fullnægja sköpunarþörfinni," segir höfundur Jólahjólsins að lokum. -glh Það má ekki taka í vörína á íslandi. Það er bannað með lögum. Munntóbak má hvorki flytja inn, framleiða né selja. Og þetta eru margir mjög ósáttir við. Manna ósáttastur mun þó vera Einar Baldvin Árnason laganemi. Eins og að banna pilsner en Hvaó segirðu Einar, þú ert eitt- hvaó óhress meö að fá ekki aó taka í vörina í friði? „Mér finnst það yfirnáttúrulega fáránlegt. Ég veit ekki hvað okkar háæruverðugu alþingismenn telja vera sitt hlutverk, en hitt veit ég þó að það er ekki þeirra hlutverk að hugsa fyrir hvern og einn ís- lending. Samt sem áður finnst þeim alveg sjálfsagt að segja þeim einstaklingum sem taka í nefið eða vörina að þeir megi ekki gera það. I fyrsta lagi er þetta forræðis- hyggja af verstu tegund sem lýsir engu öðru en ótrúlegum hroka og sýnir að alþingismenn telja sér ekkert óviðkomandi í daglegu lífi fólks. Það er sjálfsagt að reyna að koma í veg fyrir sölu til barna en það er ekkert annað en mannfyrir- litning að segja fullorðnu fólki svona fyrir. í öðru lagi er bannið byggt á misskilningi frá upphafi. Heilbrigðisráðherra hélt því fram að munntóbak væri bannað innan Evrópska efnahagsvæðisins og sýndi þar með yfirgripsmikla van- þekkingu sína á málinu. Stór hluti Svía tekur í vörina og myndu þeir aldrei líða slikt bann. í þriðja lagi er bannið brot á EES-samningnum þar sem leyft er að selja íslenskt tó- bak í nef og vör en það erlenda bannað. Slík mismunun brýtur gegn skuldbindingum Islands. Hvað vakti fyrir þingmönnum er mér hulin ráðgáta. Reyklaust tóbak er margfalt hættuminna en reyktó- bak. í umræðum um þetta sögðu þeir að það væri algengt að menn leiddust úr neyslu munntóbaks út í reykingar. Það er eins og að banna pilsner en ekki bjór. Ég vil ineina að alþingismenn hafi ekki bara gert sig seka um brot á þjóðréttar- legum skuldbindingum íslands með þessu banni heldur einnig sýnt af sér ótrúlegt dómgreindarleysi. Það kemur reyndar ekki á óvart að hluta þingmanna hafi fundist þetta bann vera sjálfsagt og algjört þarfa- þing þar sem þeir telja sig vera bet- ur til þess fallna að taka ákvarðan- ir fyrir fólk. Þeirra hugsun er alltaf sú að margir séu svo vitlausir að það þurfi að hugsa fyrir þá. Hvað hina varðar sem ekki höfðu sýnt slíkan hroka áður er gríman fallin. Ef einhverjir hafa talið sig vera að standa vörð um frelsi einstaklings- ins þá hafa þeir heldur betur sofn- að á verðinum. Samband ungra sjálfstæðismanna er á sjö-mílna skónum sinum og talar um lögleið- ingu fikniefna. Það er tragí-kó- mískt í ljósi þess að þingmenn þeirra vilja ekki einu sinni leyfa mönnum að taka í vörina. Ég grát- bið ráðamenn þjóðarinnar að leið- rétta þetta rugl og aflétta innflutn- ingsbanninu og leyfa mér að ákveða sjálfum hvort ég tek í vör- ina eða ekki.“ Kór Langholtskirkju heiórar Þorkel Slgur- björnsson tónskáld í Langholtskirkju á laug- ardaginn í tllefni af sex- tugsafmæli hans. Ein- söngvari I nokkrum verkanna veröur Ólöf Kolbrún Haröardóttir og einnig syngur Gradualekór Langholtskirkju ásamt Moniku Abend roth hörpuleikara. Á tón- leikunum verða einnig flutt kirkjuleg verk, þar af eru nokkur sem Þorkell hefur gegnum tíðina samið fyrir kórinn. Dag- skráin hefst kl. 17. Miðasala verður við inn- ganginn. Sólrún Bragadóttlr óp- erusöngkona heldur einsöngstónleika I Safn- aðarhelmlli Akureyrar- kirkju á laugardaginn og hefjast þeir kl. 17. Tónleikarnir eru liður I ferð Sólrúnar um land- ið. Tilefnið er útgáfa geisladisks þar sem Sólrún syngur íslenskar einsöngsperlur. Lúörasveit verkalýðslns heldur hausttónleika í Ráöhúsi Reykjavíkur á laugardaginn og af- hjúpar hvað hún hefur verið að æfa í sumar. Á efnisskrá tónleikanna eru m.a. verk eftir Leon- ard Bernsteln, Engelbert Humperdinck, Percy Aldrldge Gralnger, Rossini, Prokofleff og Gordon Langford. Alls leika um 40 hljóö- færaleikarar með Lúðrasveit verkalýðsins. Stjórnandi sveitarinnarerTryggvi M. Baldvins- son. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og hefjast þeir kl. 14. Kammertónleikar Tón- listarskólans í Reykja- vík verða haldnir föstu- daginn 20. nóvember nk. og heflast þeir kl. 20.30 I Grensáskirkju. Á efnisskrá eru: Tríó í g- moll op. 63 eftir C.M. I von Weber, Strengja- kvartett op. 77 nr. 1 í G-dúr eftir J. Haydn, Planókvartett í g-moll Kv 478 eftir W.A. Mozart. Knintett op. 57 fyrir pí- anó og strengjakvartett og Strengjakvartett nr. 1 eftir D. Sjostakovitsj. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Tjamarkvartettlnn úr Svarfaðardal heldur út- gáfutónleika í Tjamarbíól á laugardaginn. Þar munu fjórmenningarnir þau Rósa Kristín Bald- ursdóttir, Kristjana Arngrímsdóttir, HJörlelfur Hjartarson og Krlstján E. Hjartarson syngja lög af nýútkomnum geisladiski sínum sem ber heit- ið I fíflúlpum. Einnig munum þau flytja eldri lög í nýjum útsetningum. Tónleikarnir hefjast kl. 16. 6 f Ó k U S 20. nóvember 1998

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.